Morgunblaðið - 06.01.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HRYÐJUVERK Í TEL AVIV
Tveir menn með sprengjur innan
klæða gerðu sjálfsmorðsárás á fjöl-
förnum stað í Tel Aviv í Ísrael í gær.
Talið er að á þriðja tug manna hafi
látið lífið og 100 manns hafi særst.
Samtökin Hamas og Jihad hafa lýst
yfir ábyrgð á verknaðinum. Ísraelar
svöruðu þegar fyrir sig og gerðu
þyrluárás á Gaza-svæðinu. Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
kvaddi þegar til ríkisstjórnarfundar.
Togstreita að tjaldabaki
Harðvítug átök um yfirráð yfir
Fjárfestingabanka atvinnulífsins
hófust 1998 og í kjölfarið um Ís-
landsbanka. Er þetta átakamesta
viðskiptastríð, sem háð hefur verið á
Íslandi í áratugi og fór það að mestu
fram að tjaldabaki.
Norðurljós semja við LÍ
Norðurljós sömdu á gamlársdag
við Landsbankann um að greiða 100
milljónir upp í skuld vegna yfirdrátt-
ar í bankanum og um leið var samið
um önnur lán. Sigurður G. Guð-
jónsson, forstjóri Norðurljósa, sagði
í gær að nú væru öll lán félagsins í
skilum og næst væri að fara út í end-
urfjármögnun.
Minna um heilahimnubólgu
Tíu tilvik
heilahimnu-
bólgu greind-
ust á liðnu ári
og eru það
færri tilfelli en
síðustu fimm
ár á undan.
Aðeins eitt til-
felli af b-stofni
greindist, en
staðið hefur yfir bólusetning gegn
heilahimnubólgu af þeim stofni und-
anfarna mánuði.
Minjar eða gamalt drasl?
Byrjað er að rífa ratsjárstöð
Bandaríkjahers á Stokksnesi, en
ýmsir eru þeirrar hyggju að fara eigi
hægt í sakirnar. Ekki megi vanmeta
sögulegt gildi þessara mannvirkja
og þau beri að vernda. Aðrir segja
hér um að ræða gamalt drasl.
Opinberun með vorinu
Hrafn Gunnlaugsson stefnir á að
frumsýna nýja bíómynd, Opinberun
Hannesar, með vorinu. Tökum er
nýlokið og hefst nú klippivinna.
Jafntefli
Íslenska karlalandsliðið í hand-
bolta náði að tryggja sér jafntefli,
25–25, með marki úr víti á lokasek-
úndum vináttuleikjar við Slóvena í
gærkvöldi. Liðin léku einnig á laug-
ardag og þá sigruðu Íslendingar.
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VALSMENN FÁ LIÐSAUKA Í KÖRFUKNATTLEIK / B12
ALBERT Sævarsson, markvörður Grindvík-
inga, er að íhuga hvort hann eigi að fara til
Færeyja og leika þar með B68 í Tóftum, en lið
staðarins varð í sjötta sæti deildarinnar í fyrra.
Forráðamenn B68 höfðu samband við Albert
og hafa áhuga á að fá hann til liðsins. „Það er
rétt, þeir eru búnir að tala við mig en ég á alveg
eftir að ákveða hvað ég geri,“ sagði Albert í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Fyrir nokkrum árum stóð til að Albert færi til
Færeyja og gengi til liðs við þarlent félag, en af
því varð ekki. Albert sagðist þekkja nokkuð til í
Færeyjum enda væri eiginkona hans færeysk.
Þegar deildakeppnin hófst í fyrra hafði Al-
bert ekki misst af leik með Grindvíkingum í
efstu deild. Hann hafði þá leikið 121 leik í röð í
deildinni en missti af fyrstu leikjunum í sumar
vegna meiðsla.
Albert á leið
til Færeyja?
DONTE Mathis, bandarískur körfu-
knattleiksmaður, kom til liðs við úr-
valsdeildarlið Skallagríms á laugar-
daginn og lék með því gegn ÍR í
deildinni í gærkvöld. Hann kemur í
staðinn fyrir Isaac Hawkins sem lék
með Borgnesingum fyrir áramótin
en var sagt upp fyrir jólafríið.
Mathis er 27 ára gamall bakvörður
1.90 metrar á hæð og lék síðast í
Þýskalandi með 1. deildarliðinu
Mitteldeutscher BC. Þar skoraði
hann oft á fjórða tug stiga, í einni af
sterkustu deildum Evrópu. Í Banda-
ríkjunum lék hann með háskólaliði
Southwest Texas.
Ólafur Helgason, formaður körfu-
knattleiksdeildar Skallagríms, sagði
við Morgunblaðið í gær að atvinnu-
leyfi fyrir júgóslavnesku bræðurna
Darko og Milos Ristic væru loksins
að komast í höfn. Þeir voru komnir
með leikheimild með Skallagrími í
desember en gátu ekki komið til
landsins þar sem bið var á að at-
vinnuleyfin lægju fyrir. „Bræðurnir
eru væntanlegir hingað næsta laug-
ardag og verða þá með þegar við
mætum Snæfelli í Stykkishólmi
þann 17. janúar,“ sagði Ólafur
Helgason.
Mathis til
Skallagríms
og bræð-
urnir vænt-
anlegir
Tímamótamark Ólafs var annaðmark Íslendinga í leiknum og
með því jafnaði hann metin, 2:2.
Markið skoraði Ólafur með því að
stökkva upp jafnfætis og skjóta
firnafast efst í markhornið hægra
megin við Mustafa Torlo, markvörð
Slóveníumanna. „Mér gæti ekki
verið meira sama,“ sagði Ólafur
þegar honum var greint frá áfang-
anum í leikslok. „Tölfræði er góð
fyrir ykkur blaðamenn, fyrir mig
skiptir þetta harla litlu máli.“
Ólafur skoraði alls fimm mörk í
leiknum, tvö með langskoti, tvö úr
vítakasti og eitt af línu.
Ólafur hefur skorað 704 mörk í
160 landsleikjum, sem er að með-
altali 4,4 mörk í leik. Hann hefur
átta sinnum náð að skora tíu mörk
eða meira í landsleik.
Kristján Arason skoraði 1.089
mörk í 238 landsleikjum, eða að
meðaltali 4,6 mörk í leik. Hann hef-
ur náð því að skora oftast tíu mörk
eða fleiri í landsleik, eða níu sinnum.
Flest mörk skoraði hann í landsleik
gegn Ungverjalandi 1985, eða 15.
Valdimar Grímsson skoraði 932
mörk í 158 landsleikjum, eða að
meðaltali 3,6 mörk í leik. Hann
skoraði sjö sinnum yfir tíu mörk í
leik, flest 13 í leik gegn Portúgal
1998.
Sigurður Valur Sveinsson skoraði
730 mörk í 236 landsleikjum, eða að
meðaltali 3 mörk í leik. Hann skor-
aði fimm sinnum tíu mörk eða fleiri í
leik.
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Stefánsson með sendingu á línu í leiknum í gærkvöldi í Laugardalshöll.
Ólafur rauf 700
marka múrinn
ÓLAFUR Stefánsson rauf 700 marka múrinn með íslenska lands-
liðinu í handknattleik, þegar hann skoraði fyrsta mark sitt í leikn-
um gegn Slóveníu í Laugardalshöllinni í gærkvöldi í jafnteflisleik,
26:26. Ólafur er fjórði leikmaðurinn sem nær því afreki, en áður
höfðu þeir Kristján Arason, Valdimar Grímsson og Sigurður Valur
Sveinsson náð þeim áfanga – allir vinstrihandarleikmenn.
Ekkert
náðst í
Duran-
ona
á Kúbu
ENN er óvíst hvort Ró-
bert Julian Duranona
komi til móts við ís-
lenska landsliðið í
handknattleik fyrir
heimsmeistarakeppn-
ina í Portúgal. Duran-
ona er í fríi á Kúbu og
forráðamenn landsliðs-
ins hafa enn ekki náð
sambandi við hann,
samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
Duranona lék mjög vel
í tveimur leikjum með
Wetzlar í þýsku 1.
deildinni í kringum jól-
in og gæti því reynst
landsliðinu góður liðs-
auki. Landsliðsþjálfarinn/B2
Leikirnir/B6
2003 MÁNUDAGUR 6. JANÚAR BLAÐ B
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Myndasögur 42
Erlent 20 Bréf 42
Forystugrein 26 Dagbók 44/45
Viðskipti 28 Bíó 46/49
Listir 30/32 Fólk 46/49
Minningar 40/43 Ljósvakar 50
Umræðan 33/35 Veður 51
* * *
Morgunblaðið/Sverrir
Meðal þeirra sem sóttu samkomuna var Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins, en hann var jafnframt ræðumaður dagsins.
Stemning á trúarsamkomu
„ÞÚ Guðs her, ver heill“ var yf-
irskrift samkomu ýmissa kristinna
trúfélaga á höfuðborgarsvæðinu
sem haldin var í húsnæði Hvíta-
sunnukirkjunnar Fíladelfíu í gær.
Að sögn forstöðumanns Fíladelfíu
tóku hátt í 600 manns í sjö trú-
félögum þátt í samkomunni.
Síðdegis á laugardag var bæna-
ganga trúfélaganna þar sem gengið
var frá Hlemmi niður Laugaveginn
og á Austurvöll þar sem beðið var
fyrir landi og þjóð. „Þetta var til að
undirstrika að við stöndum saman
sem einn her,“ segir Vörður Leví
Traustason, forstöðumaður Hvíta-
sunnukirkjunnar Fíladelfíu. Hann
telur að milli 400 og 500 manns hafi
tekið þátt í göngunni í fyrrakvöld.
Á samkomunni tók fulltrúi hverr-
ar kirkjudeildar þátt með tónlist-
arflutningi, prédikun eða stjórnun.
„Húsið var troðið,“ segir Vörður.
„Það tekur í kringum 500 manns og
fólk stóð á göngum og úti við dyr.
Svo sendum við samkomuna út í
beinni útsendingu á útvarpsstöð-
inni Lindinni og þar eru þúsundir
sem hlusta á.“ Að hans sögn var
stemningin á samkomunni stórkost-
leg. „Fólk var hreinlega ekki tilbúið
að hætta,“ segir hann.
KOMIN er út skýrsla Rannsóknanefnd-
ar flugslysa, RNF, vegna flugóhapps í
Vestmannaeyjum þegar flugvél af gerð-
inni Cessna 172 Skyhawk rann út af flug-
braut eftir lendingu í hliðarvindi. Fjórir
voru um borð í vélinni. Segir m.a. í nið-
urstöðu að reynsluleysi flugmanns hafi
orðið til þess að hann beitti ekki stjórn-
tækjum nægilega ákveðið í lendingunni
og að flugumferðarstjóri vallarins hafi
átt að gefa flugmanningum upplýsingar
um vindstyrk fyrr en raunin varð þar
sem mögulegt er að flugmaðurinn hefði
þá óskað eftir að lenda á annarri braut
en hann gerði.
Fram kemur í skýrslunni að rétt eftir
lendingu fór flugvélin skyndilega að
skrika og leitaði nef hennar til vinstri.
Rann hún út af brautinni á töluverðum
hraða um 50 metra frá þeim stað sem
hún fyrst snerti brautina. Þegar hún
stöðvaðist var hún um 15 metrum austan
og utan við flugbrautina. Vélin skemmd-
ist töluvert en í skýrslu RNF segir að við
rannsókn á stjórntækjum vélarinnar hafi
ekki fundist neitt óeðlilegt.
Einnig segir að flugumferðarstjórinn
hafi átt að gefa flugmanninum upplýs-
ingar um vindstyrk og vindstefnu strax
eftir að flugmaðurinn kallaði í flugturn-
inn í seinni ferð sinni. Ekki eru lagðar til
neinar tillögur í öryggisátt vegna
óhappsins.
Reynsluleysi
og síðbúnar
upplýsingar
meðal orsaka
♦ ♦ ♦
Skýrsla um flugóhapp
í Vestmannaeyjum
UMFERÐ um Reykjanesbraut
þykir orðin það mikil að öruggara
þótti að ráðast í tvöföldun hennar
en að bæta við einni akrein, gera
svonefnda 2 + 1 leið, og hafa
hugsanlega miðjuvegrið, að sögn
Jóns Rögnvaldssonar aðstoðar-
vegamálastjóra. Segir hann að sú
lausn komi til greina annars stað-
ar í þjóðvegakerfinu og sé hana
m.a. að finna á Hellisheiði enda
þótt þar séu ekki slík vegrið.
Fram kom í frétt Mbl. í gær að
Svíar hafi víða sett upp miðju-
vegrið á þjóðvegum til að draga
úr árekstrahættu. Hafi það leitt
til færri banaslysa á umræddum
vegum. Fram kom einnig að
þriggja akreina vegur með miðju-
vegriði væri ódýrari lausn en veg-
ur með tveimur akreinum í báðar
áttir.
Jón Rögnvaldsson segir það
hafa komið mjög til athugunar að
hafa þrjár akreinar á Reykjanes-
brautinni og hugsanlega vegrið.
Horfið var frá því þar sem rúm-
lega sex þúsund bíla umferð á sól-
arhring þótti of mikil til að sú
lausn teldist viðunandi. Benti Jón
á að nauðsynlegt hefði orðið að
leggja þriðju akreinina og breikka
Reykjanesbrautina um fjóra til
fimm metra fyrir hana að með-
töldu vegriði. Auk rýmis fyrir
vegrið yrði að gera ráð fyrir 1–1,5
m rými báðum megin vegriðs.
Kostnaður hefði þó orðið minni en
við tvöföldun.
Jón segir þá leið að hafa þrjár
akreinar á ákveðnum vegarköflum
eins og gert sé á Hellisheiði hæfa
vel sums staðar í þjóðvegakerfinu
með eða án miðjuvegriðs. Hann
segir reynslu hérlendis þó ekki
benda til þess að mikið sé um slys
og óhöpp vegna þess að ekki sé
miðjuaðskilnaður á þjóðvegum.
Tvöföldun þótti örugg-
ari en þrjár akreinar
Fyrirhugaðar framkvæmdir á Reykjanesbraut
Viðbúnaður vegna
líflátshótana
TVEIR liðsmenn úr sérsveit ríkislögreglu-
stjóra voru kallaðir að heimahúsi í Hafn-
arfirði í gærkvöldi vegna hótana sem bár-
ust frá karlmanni sem hringdi í lögregluna
og sagðist vopnaður byssu. Hann var einn
heima hjá sér og hótaði sjálfum sér lífláti
svo og öðrum sem kæmu nálægt húsinu.
Lögreglan í Hafnarfirði brást við vegna
málsins og fékk til aðstoðar lögreglumenn
frá Reykjavík auk sérsveitarmanna. Mað-
urinn kom út að loknum samningaviðræð-
um við lögreglu og reyndist óvopnaður með
öllu. Var hann færður á lögreglustöð í
Hafnarfirði. Var hann ölvaður og andlega
vanheill að sögn lögreglunnar.
BÖRN í Danmörku undir 15 ára
aldri, sem eru með hita, mega
ekki lengur fá verkjastillandi lyf
sem innihalda acetylsalicyl-sýru,
eða öðru nafni aspirín, samkvæmt
ákvörðun danska lyfjaeftirlitsins.
Notkun aspiríns hefur verið
tengd sjaldgæfum en lífshættu-
legum sjúkdómi sem nefnist
Reyes Syndrom og leggst á börn.
Notkun aspiríns, sem hitalækk-
andi eða verkjastillandi lyfs, er
hverfandi hér á landi að sögn yf-
irlæknis barnaspítala Hringsins.
Aspirín er að finna í ýmsum
verkjastillandi lyfjum en einna
þekktust af þeim hérlendis eru
magnyl og kódímagnýl. Lyfið er
þó ekki að finna í öðrum algeng-
um verkjalyfjum á borð við para-
setamól og parkódín. Reyes
Syndrom er hættulegur sjúkdóm-
ur sem getur valdið alvarlegum
heilaskaða og jafnvel dauða hjá
börnum.
Að sögn Ásgeirs Haraldssonar,
yfirlæknis á barnaspítala Hrings-
ins, kemur sjúkdómurinn í kjölfar
ákveðinna sýkinga og virðist vera
algengari ef börnin hafa einnig
fengið aspirín sem hitalækkandi
meðferð. „Það eru líkur á að
hann tengist aspiríni en menn
greinir á um hvort það sé full-
sannað,“ segir hann.
Í frétt Jyllandsposten segir að
þrátt fyrir að sjúkdómurinn hafi
aldrei verið rakinn til notkunar
lyfsins þyki rétt að banna lyfið
með ofangreindum hætti. Ásgeir
segir að mestu hætt að nota
aspirín sem hitalækkandi eða
verkjastillandi lyf fyrir börn hér
á landi. „Við notum annaðhvort
parasetamól eða bólgueyðandi
gigtarlyf sem líka eru hita- og
verkjastillandi og ekki hafa þessa
aukaverkun. Þannig að aspir-
ínnotkun hjá börnum á Íslandi
vegna hita eða sem verkjastilling
er nánast úr sögunni.“
Hann segir sjúkdóminn afar
sjaldgæfan. „Það er álitamál
hvort hann hafi greinst einu sinni
hér heima á síðustu tveimur ára-
tugum en það er ekki staðfest.
Þannig að þessi sjúkdómur er að
heita má óþekktur hér.“
Danir banna aspirín fyrir börn með hita
Lyfið mjög lítið
notað hér á landi
LAUST eftir miðnætti á laugardag
var slökkvilið Stykkishólms kallað
út að Sjávarflöt þar sem kviknað
hafði í út frá kerti. Eldri börn á
heimilinu tóku eftir því að reyk
lagði frá baðherberginu og létu
foreldra sína vita.
Kallað var á slökkviliðið og haft
lokað inn á baðherbergi meðan
beðið var eftir aðstoð. Eldurinn var
kafnaður þegar slökkviliðsmenn-
irnir komu á staðinn en þeir reyk-
ræstu húsið.
Skemmdir urðu á baðherbergi
en ekki annars staðar í húsinu.
Húsráðendum var að vonum
brugðið, en þakklátir fyrir hve
slökkviliðið brást fljótt við. Ekki
liðu nema örfáar mínútur frá því að
hringt var í 112 og þar til slökkvi-
liðið var mætt á staðinn.
Börn gerðu
viðvart
um eld
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
SEX ára drengur hljóp í veg fyrir
bíl við Smárahlíð á Akureyri um
fimmleytið í gær. Bíllinn var ekki á
miklum hraða, að sögn lögreglu, og
voru meiðsl drengsins lítil.
Varð fyrir bíl
♦ ♦ ♦