Morgunblaðið - 06.01.2003, Side 6

Morgunblaðið - 06.01.2003, Side 6
FRÉTTIR 6 MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ FORMAÐUR Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæð- inu gagnrýnir trúnaðarlækni lífeyrissjóðsins Framsýnar og Lífeyrissjóðs Norðurlands fyrir að endurskoða örorkumat Tryggingastofnunar rík- isins og lækka tillit sjóðanna til þess í því skyni að lækka örorkulífeyri sjóðanna til viðskiptavina sinna. Trúnaðarlæknirinn bendir á að mismun- andi reglur séu í gildi fyrir örorkumat hjá Trygg- ingastofnun annars vegar og lífeyrissjóðunum hins vegar. Um er að ræða örorkulífeyri sem sjúklingar fá frá lífeyrissjóðum til viðbótar við örorkubætur frá Tryggingastofnun ríkisins. Þórir Karl Jónasson, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, segir þessa tvo lífeyrissjóði vera með trúnaðar- lækni á sínum snærum, Júlíus Valsson, sem end- urmeti örorkumat Tryggingastofnunar með þeim hætti að þessar örorkugreiðslur lífeyrissjóðanna til viðskiptavina sinna lækki. Dæmi séu um að ör- orkumatið hafi lækkað allt úr 75% örorku niður í 30–40 prósent eða minna sem þýði að greiðslur líf- eyrissjóðanna falli hreinlega niður. Skoðar ekki sjúklingana Hann segist hafa fengið á milli 20 og 30 kvart- anir vegna þessa frá því í haust. „Hann hefur ekki einu sinni skoðað alla þessa sjúklinga og ég vil nú meina að þetta sé gert vegna þess að lífeyrissjóð- irnir vilja sleppa við að greiða sem flestum.“ Að sögn Þóris láta flestir lífeyrissjóðir sér nægja að fara eftir örorkumati Tryggingastofn- unar og því stingi meðhöndlun þessara tveggja líf- eyrissjóða í stúf við það sem gengur og gerist. Að- spurður segir hann lífeyrissjóðunum hins vegar ekki skylt að fara eftir örorkumati Trygginga- stofnunar þar sem reglum þar að lútandi hafi ver- ið breytt fyrir nokkru. „Við ætlum að óska eftir fundi með Júlíusi og athuga hvað við getum gert og ef ekkert gengur eða rekur verðum við einfald- lega að fá okkur lögfræðing.“ Mat lífeyrissjóðsins miðast við fyrra starf Júlíus Valsson, trúnaðarlæknir lífeyrissjóðanna tveggja, bendir á að mismunandi reglur séu í gildi varðandi lífeyristryggingar hjá Tryggingastofnun ríkisins annars vegar og hins vegar hjá lífeyr- issjóðunum. „Yfirleitt fara örorkumötin saman en stundum geta niðurstöðurnar verið mismunandi,“ segir hann. „Fyrstu þrjú árin sem viðkomandi er metinn til örorku hjá lífeyrissjóðunum eru miðuð við hans menntun og það starf sem hann gegndi þegar hann varð fyrir sjúkdómi eða slysi. Það þarf líka að verða breyting á heilsu hans eða vinnugetu til að hann öðlist örorkurétt. Hann þarf þá að hafa verið í vinnu næstu þrjú árin á undan áður en þessi breyting varð en þessi skilyrði eru ekki fyrir hendi hjá Tryggingastofnun. Þeir geta metið 16 ára gamlan ungling sem er fæddur öryrki og hef- ur aldrei unnið en það geta lífeyrissjóðirnir ekki því það þurfa eðlilega að hafa skapast ákveðin réttindi til að viðkomandi geti fengið lífeyris- greiðslur.“ Ítarleg gögn frá læknum Hann segir eðlileg vinnubrögð að meta örorku sjúklinga án skoðunar. „Það eru þannig vinnu- reglur, bæði hjá Tryggingastofnun og lífeyrissjóð- unum, að langfæstir eru skoðaðir. Það liggja yf- irleitt fyrir mjög ítarleg gögn frá heimilislæknum eða sérfræðingum þannig að það er mikill minni- hluti sjúklinga sem er skoðaður. Ef sjúklingar eru óánægðir með niðurstöður þá geta þeir í öllum til- fellum haft samband við sjóðinn eða mig og fengið skoðun nánast í sömu viku eða vikunni á eftir. Og eðlilega heyrist ekkert í þeim hópi fólks sem hefur fengið leiðréttingu hafi trúnaðarlæknir metið ör- orku þess of lágt.“ Að mati Júlíusar getur aukinn fjöldi þeirra sem eru óánægðir með matið stafað af því að mikil aukning hafi orðið á umsóknum til sjóðanna milli ára. „Það er heilmikið af fólki sem er á gráu svæði sem á við félagsleg vandamál eins og atvinnuleysi að stríða, sem ekki heyrir undir reglur sjóðsins. Það er oft erfitt að meta örorku þess og stundum verður það fólk óánægt með matið.“ Lífeyrissjóðir gagnrýndir fyrir lægra örorkumat en hjá Tryggingastofnun Mismunandi reglur hjá lífeyrissjóðum og TR ÁHÖFNIN á Þorsteini GK 15 frá Raufarhöfn fékk sannkallaðan happadrátt á föstudag þegar fyrsta trossa ársins var dregin skammt innan við Sauðá í Þistilfirði á um 20 faðma dýpi. Í enda trossunnar kom stórlúða, sem reyndist vera tæpir tveir metr- ar á lengd og 153 kg að þyngd, slægð. Langt er síðan fengist hefur svo stór lúða á þessu svæði svo vitað sé. Fyrirhugað var að selja stór- lúðuna á fiskmarkaði. Önundur Kristjánsson, sonarson- ur og alnafni eiganda og útgerðar- manns Þorsteins GK 15, sést hér stoltur með aflanum um borð í Þor- steini. Stórlúða í fyrstu trossu MAGNÚS Jónsson veðurstofustjóri segir hverfandi slysahættu af völd- um kassa sem lenda á jörðinni eftir að þeir hafa verið sendir í háloftin til veðurmælinga. Hraðinn á kössunum sé lítill þegar þeir koma niður auk þess sem þeir séu afar léttir. Morgunblaðið greindi á laugardag frá hvítum kassa sem kom svífandi af himnum ofan og lenti skammt frá Kolbrúnu Sveinsdóttur, bónda í Hvammi í Landsveit, þar sem hún var úti á túni að fóðra búfénað. Kass- arnir eru sendir á loft með aðstoð helíumfylltra belgja sem springa eft- ir ákveðinn tíma þannig að boxin koma svífandi niður. Að sögn Magnúsar hafa slíkir kassar verið sendir reglulega á loft í yfir 50 ár frá Keflavíkurflugvelli. „Við sendum háloftabelgi tvisvar á sólarhring á loft, alla daga ársins þannig að þeir eru alltaf að koma ein- hvers staðar niður,“ segir hann og bendir á að kassarnir séu einnig sendir upp frá meginlandi Evrópu og jafnvel oftar en hér er gert. „Það kann að vera að þetta hafi rekist í mann eða skepnu einhvers staðar en mér er ekki kunnugt um slys af þessum völdum. Það er mun meiri ástæða til að láta flugumferð vita af þessu og það er alltaf gert því menn vilja ekki fá þetta í hreyflana.“ Kassinn, sem féll niður í Land- sveit á dögunum, er nokkuð frá- brugðinn þeim kössum sem alla jafna eru sendir á loft að sögn Magn- úsar þar sem hann er stærri og jafn- vel þyngri en gengur og gerist. „Þetta er viðbótarkassi sem er send- ur upp á þessum árstíma til að fylgj- ast með ósoni og fer þar af leiðandi hærra en aðrir kassar sem eru send- ir upp. Venjulegir kassar eru minni, fara ekki jafnhátt og eru fyrst og fremst hugsaðir til að mæla veður.“ Flestir lenda í sjónum eða á hálendinu Hann segir Veðurstofuna hafa litla stjórn á því hvar kassarnir koma niður. „Þetta berst einfaldlega með vindum og hér á Íslandi fer lang- stærstur hluti af þessum kössum lík- lega í sjóinn því það er stutt í sjóinn í ýmsar áttir frá Reykjanesskagan- um. Ef einhver verulegur vindur er í lofti inn á landið þá eru kassarnir oft komnir inn á hálendi þegar þeir lenda aftur.“ Hann segir því nokkuð um að menn gangi fram á boxin þeg- ar þeir eru í gönguferðum úti í nátt- úrunni en þó séu ekki margir kassar sem skili sér inn til Veðurstofunnar. Hann undirstrikar að kassarnir séu á lítilli ferð þegar þeir koma nið- ur. „Þetta eru mjög léttir kassar úr ákaflega þunnu efni sem hefur auk þess mikla loftmótstöðu þannig að það verður ekki mikill hraði á þessu.“ Hverfandi slysa- hætta af fljúgandi veðurkössum NÝR allsherjargoði Ásatrúarfélags- ins er Hilmar Örn Hilmarsson, tón- listarmaður og tónskáld, en hann var kjörinn á fundi Lögréttu á laug- ardag. Áður hafði Jónína Kristín Berg gegnt emb- ættinu til bráða- birgða. Hilmar sagði í samtali við blaða- mann að sátt hafi ríkt um kjör hans í embættið og engin mótframboð hafi borist. „Jör- mundur Ingi var einn af mínum með- mælendum þannig að þetta er gert í góðri sátt við hann.“ Hilmar segir að nú ríki friður í félaginu. „Þetta er því góð lausn á þeirri kreppu sem er bú- in að vera í gangi,“ segir Hilmar. Á fundinum á laugardag voru þrír aðrir goðar skipaðir. Jóhanna Harð- ardóttir blaðamaður var skipuð Kjal- nesingagoði. Sigurjón Þórðarson heilbrigðisfulltrúi tekur við embætti Hegranesgoða og Tómas Albertsson var kjörinn seiðgoði. Stjórn og goðar félagsins undir- búa nú félagsstarf ársins en á þessu ári eru liðin 30 ár frá því að félagið var lögformlega stofnað, segir í til- kynningu frá Ásatrúarfélaginu. Hilmar Örn Hilmarsson kjörinn alls- herjargoði Hilmar Örn Hilmarsson UNGMENNAFÉLAGIÐ Eyfell- ingur hélt þrettándagleði sína við Skógafoss á laugardagskvöld. Framan við fossinn var komið fyrir bálkesti og síðan var skotið upp flugeldum sem lýstu skemmtilega upp Skógafoss. Að sögn Sigurgeirs Ingólfssonar í Hlíð undir Eyjafjöll- um er þessi hátíð haldin annað hvert ár við Skóga og er öllum við- stöddum boðið í kaffi í Fossbúð að lokinni sýningunni, hitt árið er svo hátíðin haldin við Heimaland en þar er einnig félagsheimili. Að þessu sinni mættu um 130 manns til að njóta skemmtunarinnar. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Skógafoss upplýstur Fagradal. Morgunblaðið. EINSTAKA tjón á bifreiðum og gróðurhúsum hefur verið tilkynnt til Sjóvár-Almennra á undanförnum árum vegna flugeldaprika sem lenda aftur á jörðu eftir flugferð í háloft- unum. Ekki er vitað til að slys hafi orðið á fólki vegna slíkra prika. Að sögn Einars Guðmundssonar, forvarnafulltrúa Sjóvár-Almennra, eru tjón af völdum flugeldaprika þó afar sjaldgæf. „Ég man eftir að það hafi komið flugeldaprik í gróðurhús og eitt og eitt sem hefur fallið á bíla.“ Hann segir ekki um háar fjárhæð- ir að ræða og enn hafi ekki borist tjónatilkynningar vegna nýliðinna áramóta. Theodór Friðriksson, læknir á slysadeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss í Fossvogi, veit ekki til þess að slys hafi orðið á fólki vegna flugeldaprika sem koma af himnum ofan. „Það er þó ekki útilokað að það hafi gerst. Svo eru sjálfsagt ein- hverjir sem fá svona í hausinn en meiða sig ekki svo þeir hugsa ekki meira um það,“ segir hann. Fá tjón vegna flugeldaprika

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.