Morgunblaðið - 06.01.2003, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2003 47
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30.
Hverfisgötu 551 9000 Nýr og betri
„Turnarnir gnæfa yfir
bestu myndir ársins“
SV. MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
Sýnd kl. 6.
1/2SV. MBL
EN SANG FOR MARTIN
Sýnd kl. 6.
YFIR 55.000 GESTIR
DV
RadíóX
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12 ára
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
www.laugarasbio.is
„Turnarnir gnæfa yfir
bestu myndir ársins“
SV. MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
YFIR 55.000 GESTIR
DV
RadíóX
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
Sýnd kl. 5.40, 7, 9 og 10.30.
Sýnd kl. 6 með íslensku tali.
Stórkostlegt ævintýri frá Disney byggt á
hinu sígilda og geysivinsælu ævintýri um
GullEyjuna eftir Robert Louis Stevenson
Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 12 ára.
Mbl
A I K I D O
Ný námskeið
hefjast 6. janúar
Frír kynningartími!
Unglinga- og fullorðinstímar
Upplýsingar í s. 822 1824 eða 897 4675
http://here.is/aikido – aikido@here.is
Sjálfsvarnarlist fyrir alla í anda friðar og samvinnu
ÍSLENDINGUM finnst greinilega
gott að horfa á spennumyndir í
öruggu umhverfi stofunnar heima.
Fimm vinsælustu myndirnar á
myndböndum síðasta ár eru úr þeim
flokki, Swordfish, Spy Game, Train-
ing Day, Ocean’s Eleven og The
Score.
„Ég sé þessa á myndbandi,“ er oft
viðkvæðið, þegar rætt er um kvik-
myndir er gott orð fer af, myndir sem
einhverra hluta vegna þykir ekki
ómissandi að sjá í kvikmyndahúsi.
Af öðrum myndum fer það orð að
hreinlega sé nauðsynlegt að sjá þær
á stóru tjaldi. „Þú verður að sjá hana
í bíó,“ virðist hafa verið almannaróm-
ur um nokkrar vinsælustu myndir
ársins.
Að minnsta kosti vekur athygli að
Hringadróttinssaga: Föruneyti
hringsins, Harry Potter og visku-
steinninn og Spider-Man komast
ekki sérlega hátt á listann, eða í
tíunda, 28. og 31. sæti.
Vinsældir þessara mynda virðast
hafa verið það miklar að flestir hafi
verið búnir að sjá þær þegar þær
loks komu út á myndbandi. Allra
hörðustu aðdáendurnir hafa jafnvel
fest kaup á mynddiski til að geta litið
inn í heim ævintýranna eftir eigin
hentugleika.
Myndbandamarkaðurinn virðist
því ekki endurspegla aðsókn í kvik-
myndahúsin heldur lúta eigin lög-
málum.
Myndir, sem hafa jafnvel ekki hlot-
ið góða dóma, eru eftirsóttar á mynd-
bandaleigunum og nægir að nefna
Domestic Disturbance í því sam-
bandi. Þessi slaka spennumynd með
John Travolta er sú 12. vinsælasta á
árinu 2002. Travolta afrekar að leika
einnig í vinsælasta leigumyndbandi
ársins, spennumyndinni Swordfish.
Annar leikari með aðdráttaraflið í
lagi er Brad Pitt en hann leikur bæði
í Spy Game, sem er í öðru sæti
listans, og Ocean’s Eleven, sem er í
fjórða sætinu.
Rómantík og grín njóta einnig
nokkurra vinsælda og nægir að nefna
Legally Blonde með Reese With-
erspoon, smellinn My Big Fat Greek
Wedding og mjúka manninn Hugh
Grant í About a Boy.
!
! "
##
$%
& '
&
& ()
&%$ $ #$
#$ "$)
#
!
!
!
!
!
!
!
"
!
Vinsælustu myndbönd ársins 2002
Spennan
er mest á
toppnum
Vinnie Jones og John Travolta í hlutverkum sínum í Swordfish, vinsælasta
leigumyndbandi ársins 2002.
PAPARNIR héldu uppi rífandi dansstemningu í Hlégarði í Mosfellsbæ á
laugardagskvöldið. Fólk fór á dansskónum og dillaði sér í takt við þétta
þjóðlagatónlist strákanna.
Paparnir eiga sér greinilega fjölmarga aðdáendur en plata þeirra,
Riggarobb, var ein sú söluhæsta fyrir jólin.
Það var líf og fjör á dansgólfinu hjá Pöpunum.
Papaball í Hlégarði
Þétt þjóðlagarokk
Paparnir á sviði í Hlégarði en þeir eru eftirsótt ballsveit.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
frá okt.-apríl Orator, félag laganema
mbl.is
VIÐSKIPTI