Morgunblaðið - 20.01.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.01.2003, Blaðsíða 12
BRESKT sunnu- dagsblað fjallaði í gær enn á ný um meinta erf- iðleika í hjóna- bandi Gerhards Schröders, kanslara Þýska- lands, en dóm- stóll í Hamborg hafði að beiðni lögmanna Schröders bannað blaðinu, The Mail on Sunday, að fjalla frekar um málið. Sagði í leið- ara blaðsins að ritstjórar þess ætl- uðu ekki að láta Schröder segja sér fyrir verkum. The Mail on Sunday fjallaði 5. janúar sl. um meinta erfiðleika í hjónabandi Schröders, en þetta er hans fjórða hjónaband. Nafn- greindi blaðið þá konu sem Schröd- er er sagður eiga vingott við. Leiðarahöfundar The Mail on Sunday sögðu í gær að þeir þyrftu ekki að hlíta lögbanni réttarins í Hamborg. „Okkur þykir það leitt, herra Schröder, en þú ert ekki við stjórn í Bretlandi … að minnsta kosti ekki ennþá,“ sagði í fyrirsögn leiðarans. Var varað við því í leið- aranum að tilraunir Schröders til að koma í veg fyrir umfjöllun blaðs- ins væru til marks um að Bretar gætu vænst þess að tapa ýmsum lýðréttindum, s.s. tjáningarfrelsinu, ef stjórnvöld tækju þátt í frekara sameiningarferli á vettvangi Evr- ópusambandsins. „Enn um sinn getum við leitt þennan ofsa og þessar hótanir hjá okkur,“ sögðu leiðarahöfundar. „Vegna þeirrar hefðar, sem hefur myndast í Bretlandi, og vegna virks lýðræðis í landinu, getum við birt svona efni og það er okkar trú að okkur sé það fyllilega heimilt. Við vorkennum þýskum starfsbræðrum okkar sem þurfa að lúta lögum sem kúga þá, og koma í veg fyrir að þeir geti sinnt starfi sínu almennilega.“ Gerhard Schröder The Mail on Sunday storkar Schröder ERLENT 12 MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ FJÓRIR hafa látist og allt að 400 íbúðarhús hafa brunnið í miklum kjarreldum í úthverfum Canberra, höfuðborgar Ástralíu, um helgina. Mjög heitt er nú á þessum slóðum og nokkuð vindasamt og óttast menn því að eldarnir breiðist enn út. Neyðarástandi var lýst yfir á laugardag en þúsundir manna hafa þurft að flýja heimili sín af völdum eldanna. Kaldara var í gær en á laug- ardag og því gekk slökkviliðs- mönnum betur að hefta útbreiðslu eldanna. Veðurspá er hins vegar með þeim hætti að óttast er að að- stæður versni aftur í dag og á morgun. Óttast menn að eldar muni blossa upp að nýju á stöðum, þar sem þó hefur tekist að ráða niðurlögum þeirra. Náttúruhamfarirnar eru sagðar með því versta sem þekkist. „Ég hef oft komið á vettvang kjarrelda í Ástralíu [...] en ég hef aldrei séð það jafnsvart,“ sagði John How- ard, forsætisráðherra Ástralíu, en hann skoðaði afleiðingar eldanna í gær. „Það er kraftaverk að fleiri skuli ekki hafa týnt lífi og það ber að þakka björgunarfólkinu marg- falt.“ Veita þurfti um 250 manns að- hlynningu í gær vegna brunasára og reykeitrunar. Átti fólkið það flest sameiginlegt að hafa allan daginn reynt að verja hús sín með því að kasta vatni á eldana. Þá var víða rafmagnslaust í Canberra en um 320 þúsund manns búa í borg- inni. Slökkviliðinu gekk illa að ráða niðurlögum eldanna og heyrðust gagnrýnisraddir, sem sögðu að menn hefðu verið illa búnir undir hamfarirnar. John Stanhope rík- isstjóri vildi hins vegar ekki heyra á þetta minnst. „Það varð einfald- lega ekki við neitt ráðið,“ sagði hann. Vika er liðin síðan elding olli því að eldar kviknuðu í skóglendi í út- jaðri Canberra. Miklir þurrkar hafa verið á þessu svæði undanfar- ið og því dreifðust eldarnir hratt út, einkum eftir að tók að hlýna fyrir helgi og vindar að magnast. AP Ástralskur slökkviliðsmaður berst við reyk og hita af völdum kjarreldanna í Canberra. Óttast að eldar geti enn átt eftir að breiðast út Fjórir hafa týnt lífi og allt að 400 heimili eyðilagst í miklum kjarreld- um í Ástralíu Canberra. AFP, AP. BÆÐI Donald Rumsfeld, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, og Colin Powell utanríkisráðherra snerust í gær opinberlega á sveif með þeim sem vilja reyna að fá Saddam Hussein, forseta Íraks, til að afsala sér í völdum í landinu og halda í útlegð ásamt nánustu sam- starfsmönnum sínum. Lét Rumsfeld þau orð falla að hann væri tilbúinn til að sætta sig við að Saddam yrði veitt fyrirheit um að hann yrði ekki sóttur til saka fyrir stríðsglæpi, gegn því að hann færi í útlegð. „Til að afstýra stríði, myndi ég persónulega leggja það til að þannig yrði búið um hnútana að helstu leið- togar Íraksstjórnar og fjölskyldur þeirra fengju skjól í einhverju öðru landi,“ sagði Rumsfeld í viðtali í fréttaþættinum „This Week“ á ABC-sjónvarpsstöðinni. „Ég tel að það væru góð býti ef þannig mætti afstýra stríði,“ bætti hann við. Rumsfeld var að svara spurningu fréttamanns um það hvort Banda- ríkin myndu styðja tilraunir leiðtoga nokkurra arabaríkja sem miða að því að fá Saddam til að láta sjálfur af völdum. Frá þessum tilraunum var greint í vikuritinu Time á fimmtudag en skv. blaðinu fæli slíkt samkomulag í sér að helstu stjórn- endum Íraks yrði veitt almenn sak- aruppgjöf. Powell tók í sama streng og Rumsfeld. „Þessar deilur myndu leysast ef Saddam Hussein og allir þeir sem hann umgangast og hugsa eins – sonur hans, æðstu embætt- ismenn stjórnarinnar – létu sig hverfa,“ sagði Powell. Kvaðst hann sannarlega reiðubúinn til að íhuga þann möguleika, að Saddam yrði veitt sakaruppgjöf, gegn því að hann hyrfi af valdastóli. „Góð tíðindi fyrir heiminn“ Rumsfeld var spurður að því hvort hann teldi líklegt að Saddam tæki það sjálfur í mál að víkja og fara í útlegð. „Ég tel að þetta sé í það minnsta möguleiki,“ svaraði hann. „Nágrannaríki Íraks eru nú að reyna að koma í veg fyrir stríðs- átök með því að fá hann til að yf- irgefa landið,“ sagði Rumsfeld enn fremur. „Það væru afar góð tíðindi fyrir heiminn ef hann færi.“ Skv. frétt Time áttu þeir Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, og Abdullah Gul, forsætisráðherra Tyrklands, í síðustu viku fund með Abdullah, krónprinsi í Sádí-Arabíu, í því skyni að ræða þessi mál. Stað- festi Gul í viðtali við New York Tim- es á laugardag að þessa hugmynd hefði borið á góma. Írakar hafa hins vegar sjálfir algerlega hafnað orð- rómi um að Saddam sé að hugleiða þann möguleika, að fara í útlegð. Sætta sig við að Saddam fari í útlegð Rætt um að Saddam fái öruggt hæli í öðru landi afsali hann sér völdum í Írak Washington. AFP. Colin Powell Donald Rumsfeld ÞINGKOSNINGAR fóru fram á Kúbu í gær og var kosið um 609 þingsæti. Jafnmargir voru í kjöri og þurfti því enginn frambjóðend- anna að óttast um að ná ekki settu marki. Landinu var skipt upp í nokkur kjördæmi og gat fólk merkt við hvern frambjóðanda tiltekins kjördæmis fyrir sig, eða valið að setja kross í þar til gerðan kassa, sem þýddi að menn lögðu blessun sína yfir alla frambjóðendurna 609 í heild sinni. Hafði Fidel Castro Kúbuforseti einmitt hvatt almenning til að nýta sér þennan valkost til að sýna heim- inum að kúbverska þjóðin stæði sameinuð sem ein heild. Allir frambjóðendur í kosning- unum höfðu áður hlotið náð fyrir stofnunum ríkisvaldsins. Juan Miguel Gonzalez, faðir Elians, var meðal frambjóðenda, en grannt var fylgst með forræðisdeilu vegna El- ians sem kom upp árið 2000. Þá voru hlaupakonan Ana Fidelia Quirot, sem hlaut bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í Barcelona árið 1992, og þjóðlagasöngvarinn Silvio Rodriguez meðal frambjóðenda, að ekki sé talað um Castro sjálfan. Lýðræðissinnar gagnrýna að kjósendur skuli ekkert val hafa haft í kosningunum og telja kosning- arnar lítið gildi hafa, sökum þess hversu ólýðræðislegar þær voru. Castro, sem hefur verið forseti Kúbu í 44 ár, segir kosningarnar hins vegar lýðræðislegri en þær sem fram fara í öðrum löndum, enda sé kjörsókn jafnan góð á Kúbu, auk þess sem kosninga- áróður sé þar óþekkt fyrirbæri; sem geri það að verkum að menn geti ekki „keypt“ sig inn á Kúbu- þing með auglýsingamennsku. AP Tveir íbúar Havana kynna sér frambjóðendur í þingkosningunum í gær. Allir náðu kjöri í kosningum á Kúbu FORSÆTISRÁÐHERRA Frakk- lands telur þörf á að rödd Frakka hljómi sem aldrei fyrr í heimi sem genginn sé af göflunum. Jeaa-Pierre Raffarin lét þessi orð falla á fundi með flokksmönnum sín- um í borginni Poitiers á laugardag. Sama dag söfnuðust um 200.000 manns saman í París og fleiri frönsk- um borgum til að andmæla hugsan- legum hernaði gegn stjórn Saddams Hússeins í Írak. „Við höfum áhyggjur af stríði og erum andvígir stríði,“ sagði forsætis- ráðherrann. „Ekkert er til sem heitir ánægjulegt stríð, stríð mun ávallt teljast neyðarrúrræði. Við munum verja gildismat hins klóka Frakk- lands sem verður að láta rödd sína hljóma í sturluðum heimi,“ bætti hann við. Raffarin hefur líkt og Jaques Chirac Frakklandsforseti hvatt til þess að allar diplómatískar leiðir verði fullkannaðar til að leysa Íraks- deiluna. Þeir hafa og lýst yfir því að samþykki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þurfi að liggja fyrir áður en farið er með hernaði gegn stjórn Saddams Hússein. Jean-Pierre Raffarin „Sturlaður heimur“ Poitiers. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.