Morgunblaðið - 20.01.2003, Blaðsíða 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Giss-
ur Ár fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Pét-
ur Jónsson kemur til
Straumsvíkur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinustofa
kl. 13, félagsvist kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 9–12 op-
in handavinnustofa, kl.
11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíðastofa/út-
skurður, opin handa-
vinnustofa, kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–11 samveru-
stund, kl. 13.30–14.30
söngur við píanóið, kl.
13–16 bútasaumur. Upp-
lýsingar í síma 568 5052.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánudagur: Kl. 16 leik-
fimi.
Félag aldraðra í Mos-
fellsbæ og nágrenni.
Aðalfundur félagsins
verður í Hlégarði í dag
13. janúar.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerðastofan opin
frá kl. 10. Skrifstofan
Gullsmára 9 er opin kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9.
fótaaðgerð, og myndlist,
kl. 10–12 verslunin opin,
kl. 11.30 hádegisverður,
kl. 13 föndur og handa-
vinna, kl. 13.30 enska,
framhaldsflokkur, kl.
14.30 kaffiveitingar
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10, leikfimi,
kl. 11.15 hádegismatur,
kl. 13 brids, kl. 15. kaffi-
veitingar.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 handa-
vinnustofan opin, kl. 9–
12 myndlist, kl. 13–16
körfugerð, kl. 11–11.30
leikfimi, kl. 13–16 spilað,
kl. 10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Böðun kl. 9–12,
almenn handavinna kl.
9–16.30, félagsvist kl. 14,
hárgreiðslustofan opin
9–14. Nýtt námskeið í
postulínsmálun byrjar á
miðvikudaginn kl. 9.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9.30, 10.15
og 11.10 leikfimi, kl. 13.
postulínsmálun.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Púttað kl.
10, kóræfing kl. 10.30,
tréskurður kl. 13. fé-
lagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin kl. 10–13 virka
daga. Morgunkaffi, blöð-
in og matur í hádegi.
Mánudagur: Brids kl.
13. Línudans fyrir byrj-
endur kl. 18. Dans-
kennsla Sigvalda í sam-
kvæmisdönsum framh.
kl. 19 og byrjendur kl.
20.30. Skrifstofa félags-
ins er í Faxafeni 12, sími
588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Fjölbreytt vetrardag-
skrá í boði alla virka
daga kl. 9.30 til 16.30.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9–17, kl. 9.30 gler og
postulínsmálun, kl.
10.50, róleg leikfimi, kl.
13 skák.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
15.15 enska, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fótaað-
gerð, kl. 10 bænastund,
kl. 13.30 sögustund og
spjall, kl. 13 postulíns-
málun og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og föndur, kl. 9 og
kl. 10 jóga, kl. 13 spilað,
kl. 13.30 ganga, fótaað-
gerðir. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Kl. 10–11
ganga, kl. 9–15 fótaað-
gerð, kl. 9–12 myndlist,
kl. 13–16.45 opin handa-
vinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálning, kl
9.15–15.30 alm. handa-
vinna, kl. 9.30–10.30
boccia, kl. 10.30–11.30
jóga, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing. Lyfjafræð-
ingur á staðnum kl. 13
fyrsta og þriðja hvern
mánudag.
Vitatorg. Kl. 08.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morgun-
stund, kl. 10 fótaaðgerð-
ir og boccia-æfing, kl.
11.30 matur, kl. 13 hand-
mennt – almennt, gler-
bræðsla og frjáls spil, kl.
14.30 kaffi.
Gullsmárabrids. Brids
að Gullsmára 13 mánu-
og fimmtudaga.
Skráning kl. 12.45, spil
hefst kl. 13.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu, Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánudag-
kvöld kl. 20.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborgar-
svæðinu, félagsheimilið
Hátúni 12. kl. 19 brids.
Minningarkort
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla), sími
588-8899.
Minningarkort Grafar-
vogskirkju.
Minningarkort Grafar-
vogskirkju eru til sölu í
kirkjunni í síma
587 9070 eða 587 9080.
Einnig er hægt að nálg-
ast kortin í Kirkjuhús-
inu, Laugavegi 31,
Reykjavík.
Líknasjóður Dómkirkj-
unnar, minningarspjöld
seld hjá kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í síma
456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafnar-
firði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Minningakort Áskirkju
eru seld á eftirtöldum
stöðum: Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31, þjónustu-
íbúðum aldraðra við Dal-
braut, Norðurbrún 1,
Apótekinu Glæsibæ og
Áskirkju Vesturbrún 30
sími 588-8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minning-
arkort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28 í s. 588
8899 milli kl. 10 og 17
alla virka daga. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum í Reykja-
vík: Skrifstofu Hjarta-
verndar, Holtasmári 1,
201 Kópavogi, s. 535-
1825. Gíró- og greiðslu-
kort. Dvalarheimili aldr-
aðra, Lönguhlíð, Garðs
Apótek, Sogavegi 108,
Árbæjar Apótek,
Hraunbæ 102a, Bókbær
í Glæsibæ, Álfheimum
74, Kirkjuhúsið, Lauga-
vegi 31, Bókabúðin,
Grímsbæ v/Bústaðaveg,
Bókabúðin Embla,
Völvufelli 21, Bókabúð
Grafarvogs, Hverafold
1–3.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á
Reykjanesi: Kópavogur:
Kópavogs Apótek,
Hamraborg 11. Hafn-
arfjörður: Lyfja, Set-
bergi. Sparisjóðurinn,
Strandgata 8–10, Kefla-
vík: Apótek Keflavíkur,
Suðurgötu 2, Lands-
bankinn, Hafnargötu
55–57.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Vestur-
landi: Akranes: Hag-
ræði hf., Borgarnes:
Dalbrún, Brákarbraut 3.
Grundarfjörður: Hrann-
arbúð sf., Hrannarstíg 5.
Stykkishólmur: Hjá
Sesselju Pálsd., Silfur-
götu 36. Ísafjörður:
Póstur og sími, Aðal-
stræti 18. Strandasýsla:
Ásdís Guðmundsd.
Laugarholti, Brú.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Aust-
urlandi: Egilsstaðir:
Gallery Ugla, Miðvang-
ur 5. Eskifjörður: Póstur
og s., Strandgötu 55.
Höfn: Vilborg Einars-
dóttir, Hanarbraut 37.
Í dag er mánudagur 20. janúar, 20.
dagur ársins 2003. Bræðramessa.
Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð,
að þér elskið hver annan, eins og ég
hef elskað yður.
(Jóh. 15, 12.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 meðvitundarlaust, 8
munnar, 9 tréíláti, 10
óhreinka, 11 blauðar, 13
notfærði sér, 15 sjávar-
gróðurs, 18 skynfærin, 21
guð, 22 aumingja, 23 dug-
legur, 24 biblían.
LÓÐRÉTT:
2 heiðarleg, 3 ýlfrar, 4 að
baki, 5 rófa, 6 mikill, 7
moli, 12 nöldur, 14 fisks,
15 gagnleg, 16 get um, 17
framendi, 18 eldstæði, 19
æði yfir, 20 nálægð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fress, 4 gepil, 7 kytra, 8 undur, 9 par, 11 rýrt,
13 magn, 14 jánka, 15 skrá, 17 nótt, 20 æsa, 22 rykks, 23
lúann, 24 klafi, 25 aftri.
Lóðrétt: 1 fákur, 2 eitur, 3 skap, 4 gaur, 5 padda, 6 lær-
in, 10 annes, 12 tjá, 13 man, 15 sprek, 16 rækta, 18 ólatt,
19 tangi, 20 æski, 21 alda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
NÚ styttist í það að kunngjörtverði hvaða myndir eru til-
nefndar til kvikmyndaverðlauna
bandarísku kvikmyndaakademíunn-
ar, Óskarsins svonefnda, en þau eru
jafnan afhent í mars. Mun Víkverji
auðvitað ekki hlaupast undan merkj-
um, heldur horfa á beina útsendingu
frá athöfninni í ár, sem endranær.
Nú þykir Víkverja að vísu synd
hversu fáar af þeim myndum, sem
einkum er spáð velgengni á hátíðinni,
hafa verið sýndar hér á landi enn sem
komið er. Sannur kvikmyndaáhuga-
maður vill jú hafa fengið tækifæri til
að móta sér eigin skoðun á hugsan-
legum verðlaunamyndum. Hefur því
miður verið fátt kræsilegt í boði und-
anfarnar vikur hjá bíóhúsum borg-
arinnar. Um helgina hófst að vísu
frönsk kvikmyndahátíð, sem er hið
besta mál og sannarlega ástæða til að
bregða undir sig betri fætinum í vik-
unni af því tilefni og skella sér í bíó.
Þá er auðvitað alltaf hægt að fara
og rýna betur í annan kafla Hringa-
dróttinssögu. Víkverji gæti vel sætt
sig við að leikstjóri myndarinnar,
Nýsjálendingurinn Peter Jackson,
fengi að þessu sinni óskarsverðlaun,
en hann hefur unnið mikið þrekvirki
með þessari mynd.
Spenntastur er Víkverji þó fyrir
því að sjá hvort breska leikstjóranum
Stephen Daldry hafi tekist að koma
Pulitzer-verðlaunabók Bandaríkja-
mannsins Michaels Cunninghams til
skila í samnefndri mynd, The Hours.
Víkverji keypti sér bókina fyrir til-
viljun er hann var staddur í Barce-
lona sumarið 2000 og varð afar hrif-
inn af stílsnilld Cunninghams og
frásagnarhæfileikum. Heyrst hefur
að þær Meryl Streep, Nicole Kidman
og Julianne Moore vinni allar leiksig-
ur í myndinni og gefur það óneitan-
lega tilefni til bjartsýni.
x x x
VÍKVERJI var á heimleið úrvinnu í vikunni og nú sem
endranær þurfti hann að stoppa á
ljósum á mótum Kringlumýrarbraut-
ar og Miklubrautar. Nú þekkja menn
auðvitað að í gangi hefur verið um-
ræða um að þessi gatnamót ráði ekki
lengur við þann fjölda bifreiða, sem
fer um þau.
Hitt er annað mál að vegfarendur
þurfa nauðsynlega að bæta háttalag
sitt, er þeir fara um þessi hættulegu
gatnamót. Þannig gerist það alltof
oft að þeir sem t.d. hafa verið að
koma sunnan úr Kópavogi og vilja
beygja vestur í bæ, þ.e. vestur Miklu-
braut, láta sig hafa það að leggja af
stað, þó að ljós á þá sé orðið í meira
lagi rautt.
Þannig gerðist það t.d. nýverið að
Víkverji, sem var að aka vestur
Miklubraut, ók af stað á grænu ljósi –
en varð síðan að snarstoppa þegar
hann var kominn hálfa leið því öku-
maður, sem var að beygja af Kringlu-
mýrarbrautinni, hafði einfaldlega
lagt af stað á sama tíma, jafnvel
seinna en Víkverji, og kom því aðvíf-
andi frá vinstri.
Maður spyr sig á svona stundum:
hversu rautt þarf ljós eiginlega að
vera til að menn ákveði að bíða frek-
ar eftir næsta tækifæri til að taka
beygjuna? Auðvitað átti Víkverji
ekki að þurfa að vara sig sérstaklega
á bílum úr hinni áttinni, úr því að
ljósið á hann sjálfan var orðið svo vel
grænt. Það er þó vissara að gera það
við þessi gatnamót, enda margir öku-
menn ósvífnir í meira lagi – og um
leið stórhættulegir.
Gott
viðtal
ÉG vil vekja athygli á viðtali
í DV sl. þriðjudag við Sigurð
Aðalsteinsson, bónda á Vað-
brekku, í næsta nágrenni
við Kárahnjúkavirkjun, um
virkjunina. Það er alveg rétt
hjá honum að þetta fólk sem
er á móti virkjuninni hefur
yfirleitt aldrei komið þang-
að því það hefur ekki verið
bílfært þangað fyrr en nú.
Þessir umhverfissinnar vita
ekkert um hvað þeir eru að
tala og halda að þeir geti
klifið fjöll og firnindi alla tíð
og mótmæla öllu þótt þeir
hafi ekki hugmynd um hvað
þeir eru að tala um. Ég er
sammála Sigurði um að
bæði gæsir og aðrir fuglar
færa sig eftir aðstæðum.
Valborg Böðvarsdóttir.
Ekki spurð álits
Í FRÉTTABLAÐINU 14.
janúar síðastliðinn lýsir
Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðarráðherra, því yfir að
henni finnist ósæmandi að
Íslendingar séu að beita sér
erlendis gegn þeirri lýðræð-
islegu samþykkt sem Kára-
hnjúkavirkjun er.
Lýðræðisleg? Ekki var
ég spurð álits. Andstaða
meðal þjóðarinnar var það
mikil að það er bara ekki
verjandi að kalla þetta lýð-
ræðislega ákvörðun. Mér
finnst þetta ekkert nema
hreinræktuð ósvífni í henni.
Í sömu grein kastar hún
skít í Svía fyrir að hafa
dregið sig út úr fram-
kvæmdunum: „Þeir þykjast
geta haft eitthvað yfir okk-
ur að segja. Svo er þetta
þjóð sem notar m.a. kjarn-
orku til raforkufram-
leiðslu.“ Er manneskjan í
leikskóla eða hvað?
Lilja Sif Þorsteinsdóttir.
Enn um
flugelda
ÉG skammast mín fyrir að
hafa verið skáti, sagði einn
herramaður eftir öðrum í
Velvakanda 14. janúar sl.
Annar sagði í útvarpinu að
björgunarsveitirnar ættu
að hafa aðra fjáröflun en
flugeldasölu. Það var hávaði
og ónæði af sprengingunum
hjá öðrum, en hrossin fæld-
ust hjá hinum.
Ég spyr þessa herra-
menn hvort láti hærra í
flugeldum frá björgunar-
sveitunum, það eru jú fleiri
sem selja flugelda. Ekki
dettur mér í hug að halda að
þeir yrðu lagðir niður þó
björgunarsveitirnar seldu
þá ekki. Það yrðu bara aðrir
sem fengju ágóðann.
Björgunarsveitir vinna
gott starf. Þær hafa hjálpað
mörgum. Gott þykir örugg-
lega vegvilltum að sjá björg-
unarsveitarmenn birtast.
Guðríður Bjarnadóttir.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ANNAN dag jóla fór ég
ásamt syni mínum, sem er
fæddur og uppalinn í
Bandaríkjunum, í Bláa
lónið. Var þetta í annað
skiptið sem henn kemur í
Bláa lónið og fannst hon-
um fyrri heimsóknin ynd-
isleg. Það varpaði skugga
á síðari heimsóknina nú
um jólin að við pallana
sem liggja út í lónið var
mikið af brotnum plast-
glösum á botninum á lón-
inu og var maður hrædd-
ur um að skera sig á
þeim, og eins var mikið af
hárum í leirnum og sums
staðar var svartur sandur
í leirnum svo ekki var
fýsilegt að bera hann á
andlitið. Þetta fannst syni
mínum ekki gott – en
glöggt er gests augað –
og sárnaði mér þetta fyr-
ir hönd landans því þetta
er ekki góð auglýsing fyr-
ir Bláa lónið eða ferða-
þjónustuna og hvet ég
staðarhaldara til að
hreinsa til í lóninu sem
fyrst.
Maddý.
Morgunblaðið/Þorkell
Hreinsum
Bláa lónið