Morgunblaðið - 30.01.2003, Page 1
Á Norðurbryggju
TÓMAS Ingi Olrich og Brian Mikk-
elsen gengu um Norðurbryggju
þar sem vestnorrænt menning-
arsetur verður vígt í haust.
DANIR hafa samþykkt að afhenda
Íslendingum til varðveislu fyrstu
stjórnarskrá Íslands frá árinu 1874
auk ýmissa annarra skjala ráðu-
neytis Íslandsmála frá árunum
1848 til 1904. Hugmyndir eru uppi
um frekari afhendingu menning-
arminja. Eftir er að ganga frá sam-
komulaginu formlega en gert er
ráð fyrir að afhendingin fari fram í
vor.
Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra og Brian Mikkelsen,
menningarmálaráðherra Dan-
merkur, áttu fund í Kaupmanna-
höfn í gær. Þeir ræddu m.a. um
samvinnu í menningarmálum, ekki
síst í sambandi við hugmyndir,
sem Tómas Ingi hefur sett fram,
um aukið samstarf á þessu sviði og
óskir um viðræður við Dani um
frekari afhendingu á menning-
arminjum.
„Þarna er um að ræða grund-
vallarheimildir íslenskrar sögu á
þessu tímabili og á meðal skjal-
anna er fyrsta stjórnarskrá Íslands
frá 1874,“ sagði Tómas Ingi í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Þetta
eru mjög mikilvæg gögn fyrir okk-
ur og í sjálfu sér afar ánægjulegt
að þetta skuli gerast á 120 ára af-
mæli Þjóðskjalasafns Íslands.“
Ráðherrarnir skoðuðu líka
framkvæmdir við Norðurbryggju,
þar sem m.a. verður vestnorrænt
menningarsetur Íslands, Færeyja
og Grænlands í Kaupmannahöfn
og íslenska sendiráðið, en stefnt er
að því að vígja húsið í haust.
„Ég tel þetta mikinn feng fyrir
okkur og það er ekki lakara að fá
stjórnarskrána heim, þó að hún
hafi verið prentuð og sé öllum
kunn,“ segir Ólafur Ásgeirsson
þjóðskjalavörður.
Danir afhenda Íslendingum
stjórnarskrána frá 1874
Ljósmynd/Jens Dige
Stjórnarskráin/6
STOFNAÐ 1913 28. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 mbl.is
Gullið er
markmiðið
Sigfús Sigurðsson ætlar alla leið
á HM í Portúgal Íþróttir B2
Tískan er breytileg og áhrifin
koma úr ýmsum áttum Fólk 46
Lifandi
listavefur
Krakkar kynnast listinni og
leiknum að mála Menntun 24
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur sótt um
flugrekstrarleyfi í Bretlandi fyrir dótt-
urfyrirtæki sitt, Air Atlanta Europe, sem
stofnað hefur verið um flugrekstur út frá
Bretlandi. Nokkrar þotur félagsins verða
skráðar hjá hinu nýja flugfélagi.
Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Atlanta,
segir flugrekstrarleyfið vonandi verða af-
greitt í næsta mánuði og að flugið undir
merkjum hins nýja félags muni hefjast
með vorinu. Atlanta hefur allt frá árinu
1995 sinnt verkefnum fyrir breskar ferða-
skrifstofur og flugfélög, m.a. Excel og
Virgin. Með því að stofna breskt flugfélag
sé flugreksturinn þar í landi treystur og
unnt að semja um víðtækari verkefni.
Búið er að ráða í helstu stjórnenda-
stöður Air Atlanta Europe og í nýlegu
tölublaði flugtímaritsins Flight Inter-
national var auglýst eftir sérfræðingum í
flugrekstri, áhafnaþjálfun og gæða-
stjórnun.
Breiðþota flugfélagsins Atlanta.
Atlanta
stofnar félag
í Bretlandi
STJÓRNVÖLD í Írak hafa tengsl við al-Qaeda-
hryðjuverkasamtökin, en óljóst er hve víðtæk
þau eru. Þetta fullyrti Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, í umræðum í neðri deild
brezka þingsins í gær.
Þessi ummæli lét Blair falla daginn eftir að
George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í
stefnuræðu sinni að sannanir væru fyrir því að
Saddam Hussein Íraksforseti „hjálpaði og hlífði
hryðjuverkamönnum, þar á meðal liðsmönnum
al-Qaeda“. Talsmenn Íraksstjórnar brugðust
hart við þessum ummælum og sökuðu Bush um
„ódýrar lygar“.
Tariq Aziz, varaforsætisráðherra Íraks, tjáði
bandarísku ABC-sjónvarpsstöðinni að „allir á
svæðinu og annars staðar í heiminum vissu að
Írak hefði engin tengsl við al-Qaeda“. „Þessi
ásökun hefur verið margendurtekin en engar
sannanir lagðar fram,“ sagði hann.
Í svari við spurningu Iains Duncans Smith,
leiðtoga brezkra íhaldsmanna, í þinginu í gær
sagði Blair að „við vitum um tengsl milli al-
Qaeda og Íraks,“ en bætti við að hann vissi ekki
um neinar beinar sannanir fyrir slíkum
tengslum í sambandi við flugránsárásirnar á
Bandaríkin 11. september 2001. Blair fór ekki
nánar út í það hvaða vísbendingar það væru sem
gerðu hann svo vissan um þessi tengsl. En tals-
maður Blairs gekk aðeins lengra á fundi með
blaðamönnum í gær, er hann sagði að brezk
stjórnvöld hefðu vissu fyrir því að liðsmenn al-
Qaeda hefðu fengið að njóta skjóls í Írak. Fram
til þessa hafa brezkir og bandarískir ráðamenn
verið varfærnari í fullyrðingum um tengsl vald-
hafa í Bagdad við hryðjuverkasamtök Osama
bin Ladens og aðeins talað um lausleg tengsl.
Ekki nægilegt að halda Saddam í skefjum
Bush Bandaríkjaforseti sagði í ávarpi í Mich-
igan í gær að það væri ekki nóg að eftirláta
vopnaeftirlitsmönnum SÞ að fást við Saddam.
Að halda einræðisherranum í skefjum væri ekki
nóg; það héldi þeim möguleika opnum að Írakar
legðu hryðjuverkaöflum lið við að gera árásir á
Bandaríkin „án þess að skilja eftir fingraför.“
Öryggisráð SÞ sat á rökstólum um Íraksmál-
in í gær og voru þar flestir fulltrúarnir á því að
gefa skyldi vopnaeftirlitsmönnum lengri frest.
Staðhæfa al-Qaeda-tengsl
Lundúnum, Bagdad, Washington. AP, AFP.
Blair og Bush segja tengsl Íraka við hryðjuverkasamtökin sönnuð en þeir neita
Fullyrti/26
Stríðshetjan/Tyrkir/13
PALESTÍNSKIR borgarar hlaupa í ofboði með
særðan dreng þaðan sem ísraelskir skriðdrekar
skutu niður hús í Rafah-flóttamannabúðunum á
Gaza-svæðinu í gær. Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, hafnaði í gær tilboði Yassers Arafats, leið-
toga Palestínumanna, um nýjar friðarviðræður. /14
Reuters
Harka á Gaza að loknum kosningum
Herratískan
kynnt í París
KÝRIN Skræpa mjólkaði mest allra kúa á
Íslandi í fyrra. Það gerði hún reyndar
einnig tvö ár þar á undan. Skræpa er í
eigu Jóhanns Nikulássonar og Hildar
Ragnarsdóttur, bænda í Stóru-Hildisey II
í Austur-Landeyjum.
Frá því Skræpa bar fyrst árið 1995 hef-
ur hún mjólkað rösklega 50 tonn. Meðalaf-
urðir hennar í þau rúmlega fimm ár sem
hún er búin að mjólka eru því nálægt
9.000 kílóum. Fá dæmi eru um slíkan ár-
angur.
Hefur mjólkað
50 tonn á 5 árum
Skræpa/27
♦ ♦ ♦
ÞÝZKA ríkis-
stjórnin tilkynnti í
gær að hún sæi
sig tilneydda að
lækka spá sína
um hagvöxt í
landinu á þessu
ári niður í 1% og
að búast mætti við
því að atvinnu-
leysi ykist enn,
þótt mikið væri
það fyrir. Þessi spá tæki þó ekki tillit
til þeirra neikvæðu efnahagslegu af-
leiðinga sem stríð í Írak myndi hafa.
Þessar dökku horfur í efnahagslífi
stærsta þjóðhagkerfis Evrópu voru
kynntar í Berlín í gær, er árleg
skýrsla þýzka efnahags- og atvinnu-
málaráðuneytisins var birt. Ráð-
herrann Wolfgang Clement hélt því
þó fram að færu stærstu óvissuþætt-
irnir ekki á versta veg væri hann von-
góður um að betri tíð væri framund-
an.
Dökkar
horfur í
Þýzkalandi
Wolfgang
Clement
Berlín. AFP.
Mannskæð
sprenging í
verksmiðju
ALLT að átta létu lífið í öflugri
sprengingu sem rústaði verksmiðju í
Kinston í Norður-Karólínu í Banda-
ríkjunum í gær. Eftir því sem AP-
fréttastofan greindi frá voru tvö
dauðsföll staðfest og sex manns
saknað.
Sprengingin varð í byggingu West
Pharmaceuticals, sem framleiðir
sprautur og annars konar plastvörur
til sjúkrahússnota. Talsmaður
sjúkrahúss þar sem hlúð var að sár-
um manna sem verið höfðu við vinnu
í verksmiðjunni sagði að hann hefði
fengið þær upplýsingar að átta
manns hefðu farizt. Sumir hinna
slösuðu kváðu hafa hlotið mjög al-
varleg brunasár. Unnið var að rann-
sókn á orsökum sprengingarinnar.
♦ ♦ ♦