Morgunblaðið - 30.01.2003, Síða 4
GENGI krónunnar hækkaði um
0,57% á millibankamarkaði í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá Íslands-
banka var rólegt á markaðinum fram-
an af en gengi krónunnar sveiflaðist
nokkuð síðasta klukkutímann og
hækkaði verulega. Hver Bandaríkja-
dalur kostar nú 77,65 krónur og hefur
gengi dalsins ekki verið skráð lægra
gagnvart íslensku krónunni frá
miðjum júlí árið 2000.
Gengi evrunnar var 84,93 krónur
og hefur verið á bilinu 84 til 86 krónur
frá því fyrravor. Gengi breska punds-
ins var 128,58 krónur á móti um 146,5
krónum á sama tíma í fyrra. Geng-
isvísitala krónunnar var að meðaltali
140,3 stig í janúar í fyrra en krónan
hefur styrkst verulega síðan og nú
stendur vísitalan 123,45 stigum.
Gengi Bandaríkjadals hefur lækk-
að verulega gagnvart öðrum myntum
að undanförnu og hefur ekki verið
lægra gagnvart evru frá því í október
árið 1999. Krossgengi evrunnar gagn-
vart dal er nú 1,09.
Dollarinn ekki verið
lægri frá sumrinu 2000
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
RÚMLEGA 20 ungmenni settust á
gang iðnaðarráðuneytisins upp úr
hádegi í gær til að mótmæla virkj-
anaáformum ríkisstjórnarinnar við
Kárahnjúka. Einar Baldvin Árna-
son, nemi í Kvennaskólanum, var
einn þeirra og hlekkjaði sig við
handrið stigagangsins. Hann sagði
setumótmælin hafa farið frið-
samlega fram og þeim hafi almennt
verið vel tekið. Fleira fólk hafi ætl-
að að mæta til að mótmæla en var
ekki hleypt inn í ráðuneytið af lög-
reglu. Um 15 manns til viðbótar
hafi því þurft að bíða fyrir utan.
„Lögreglan ætlaði upphaflega að
henda okkur út en svo ákvað hún að
hætta við það. Þá fórum við sjálf-
viljug enda búin að koma okkar
málstað á framfæri,“ sagði Einar.
Þá var klukkan orðin hálffimm og
búið að loka ráðuneytinu. Krökk-
unum var bannað að fara á klósettið
svo þau ákváðu að hverfa á braut.
Einar sagði neikvæð umhverfis-
áhrif Kárahnjúkavirkjunar efst í
huga þeirra sem mótmæltu. „Einn-
ig morð á gæsum, hreindýrum og
kjóum. Þarna er stærsta kjóabyggð
á Íslandi.“ Enginn annar staður sé
fyrir þessi dýr því ef þau færa sig
þá verði of mikið af dýrum á því
landsvæði."
Valgerður Sverrisdóttur fór
fram á gang til að spjalla við krakk-
ana. „Hún sagði að við mættum
hafa okkar skoðanir og þetta væri
hennar skoðun, að virkja þarna og
byggja álver.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ungmennin sem mótmæltu Kárahnjúkavirkjun í iðnaðarráðuneytinu í gær.
Mótmæli í iðnaðarráðuneytinu
„LÍFS-vísir – Vörn gegn sjálfs-
vígum“ er verkefni sem Kiwanis-
klúbbar í Ægissvæði (umdæmið Ís-
land og Færeyjar) hafa unnið í
samráði við Landlæknisembættið
til þess að vekja athygli á þeim
vanda sem sjálfsvíg eru og benda á
leiðir úr vandanum og mögulegar
forvarnir. Hagnýtar upplýsingar
hafa verið settar á bókarmerki sem
hannað hefur verið vegna átaksins
og verður því dreift í tíu þúsund
eintökum í samráði við Landlækn-
isembættið og aðra fagaðila. For-
seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, biskup Íslands Karl
Sigurbjörnsson og Lúðvík Geirs-
son, bæjarstjóri í Hafnarfirði veittu
fyrstu Lífs-vísunum viðtöku í gær í
Hafnarborg, menningar og lista-
stofnun Hafnarfjarðar.
Í tilkynningu kemur fram að
hugmyndin að verkefninu kviknaði
í framhaldi af setningu umdæm-
isþings Kiwanis í Reykjanesbæ árið
2000 þar sem séra Ólafur Oddur
Jónsson, sóknarprestur, hafi gert
sjálfsvíg að umtalsefni.
Morgunblaðið/Sverrir
Telma Gylfadóttir afhendir Ólafi Ragnari Grímssyni fyrsta lífsvísinn.
Kiwanisklúbbar
gegn sjálfsvígum
KARLMAÐURINN sem slasaðist
alvarlega í árekstri tveggja bifreiða
á Vesturlandsvegi miðja vegu milli
Reykjavíkur og Mosfellsbæjar fyrir
réttri viku er heldur á batavegi á
Landspítalanum í Fossvogi. Hann
liggur þó enn meðvitundarlaus
tengdur við öndunarvél á gjörgæslu-
deild en að sögn vakthafandi læknis
hefur líðan hans samt skánað nokk-
uð að undanförnu.
Á hægum
batavegi
eftir bílslys
HVORKI hefur tekist að opna
verslun né bensínafgreiðslu á
Bakkafirði, en engin þjónusta
hefur verið þar síðan Sjafnar-
kjöri var lokað þann 1. desember.
Áki Guðmundsson, oddviti á
Bakkafirði, sagði að ástandið í
bænum hefði verið erfitt frá því
að versluninni var lokað. Hann
var þó bjartsýnn á að lausn fynd-
ist á málinu og sagði sveitar-
stjórn gera allt sem hægt væri til
að koma verslun og bensínaf-
greiðslu aftur á laggirnar. 30 km
eru í næstu verslun, sem er á
Vopnafirði og 45 km til Þórs-
hafnar.
Í þorpinu búa um 140 manns
og sagði Áki þá tölu hafa verið
stöðuga undanfarin ár.
Enn hefur ekki verið opn-
uð verslun á Bakkafirði
ALLTOF margir vanrækja að fara
með bíla sína í aðalskoðun og dæmi
eru um að bílarnir séu komnir tvö ár
framyfir. Þetta segir Gylfi Sigurðs-
son, varðstjóri lögreglunnar í Hafn-
arfirði. Lögreglan í Hafnarfirði veitir
þessum málum nú sérstaka athygli.
Gylfi segir að eigendur bíla sem
ekki séu færðir til aðalskoðunar á til-
skildum tíma megi búast við að lög-
regla boði þá til að fara með þá til
skoðunar. Því fylgir 10.000 króna
sekt. Eftir það hefur bíleigandinn sjö
daga til að fara með bílinn í skoðun
en láti hann ekki segjast hefur lög-
regla heimild til að klippa númerin
af.
Kostar 10.000
að vanrækja
aðalskoðun
TVÆR ákærur vegna stórfelldra
skattsvika í byggingariðnaði voru
þingfestar fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra ákærir
fimm menn og eitt fyrirtæki fyrir að
stinga rúmlega 35,5 milljónum und-
an skatti og fyrir að oftelja rekstr-
argjöld um tæplega 128 milljónir.
Þetta er að mati lögreglu eitt um-
svifamesta skattsvikamál sem hefur
komið til rannsóknar á síðustu árum.
Ákærurnar eru tvær en einn mað-
ur er ákærður í báðum tilvikum. Þrír
menn, sem ákærðir eru fyrir samtals
26 milljóna skattsvik, játuðu á sig
brotið í gær en tveir þeirra gerðu það
með þeim fyrirvara að þeir vildu
ganga úr skugga um að upphæðirnar
sem tilgreindar eru í ákæru væru
réttar. Einn hinna ákærðu neitað sök
og það gerði líka forsvarsmaður fyr-
irtækisins, fyrir hönd fyrirtækisins
en hann er ekki ákærður í málinu.
Samkvæmt ákærunni fóru svikin
einkum fram með þeim hætti að til-
hæfulausir reikningar voru notaðir
til að hækka rekstrargjöld. Í þessum
tilgangi voru reikningar gefnir út
fyrir vinnu sem aldrei var unnin og
fyrir kaup og sölu á vörum sem aldr-
ei fór fram. Með því að hækka
rekstrargjöldin með sviksamlegum
hætti, hafi mennirnir og fyrirtækið
komið sér hjá greiðslu virðisauka-
skatts og útsvars. Í sumum tilvikum
leiddi þetta til þess að virðisauka-
skattur var ranglega endurgreiddur
úr ríkissjóði. Er einnig ákært fyrir
að vantelja tekjur og fyrir að standa
ekki skil á virðisaukaskatti. Sak-
borningarnir voru handteknir í júní
2001 í kjölfar rannsóknar efnahags-
brotadeildar og skattrannsóknar-
stjóra ríkisins og sátu þrír þeirra um
tíma í gæsluvarðhaldi.
Borið á að óreglumenn selji
tilhæfulausa reikninga
Helgi Magnús Gunnarsson, sem
sækir málið f.h. efnahagsbrotadeild-
ar ríkislögreglustjóra, segir að nokk-
uð hafi borið á útgáfu tilhæfulausra
reikninga í seinni tíð. Einkum hafi
óreglumenn stundað þessa iðju.
Verktakar hafi séð sér hag í að kaupa
þessa reikninga, yfirleitt fyrir litla
upphæð, til að hækka rekstrargjöld
sín og nota til innsköttunar í rekstri,
þ.e. til að lækka skattgreiðslur sínar.
Þetta kemur mun betur út fyrir
verktakann en þann sem gefur út
reikninginn, því sá sem gefur út
reikninginn verður fyrr eða síðar að
standa skil á virðisaukaskatti vegna
hans. Í málinu sem ákært var fyrir í
gær voru þeir sem gáfu út reikn-
ingana í óreglu.
Ákært í umfangsmiklu skattsvikamáli
Rekstrargjöld
voru oftalin um
128 milljónir
♦ ♦ ♦