Morgunblaðið - 30.01.2003, Síða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 15
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
8
3
0
4
/
sia
.is
HOL&LARA
Ef þú ert að spá í línurnar getur þú notið þess að smyrja með fitulitlu viðbiti
sem bragðast líkt og smjör. Létt og laggott – þyngdarlausa viðbitið.
ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í París
sýknaði í gær Roland Dumas, fyrr-
verandi utanríkisráðherra Frakk-
lands, af ákæru sem tengist spilling-
armálum olíufélagsins Elf þegar það
var í eigu ríkisins.
Dumas, sem er áttræður, var sak-
aður um að hafa þegið gjafir, sem Elf
hefði greitt, frá fyrrverandi hjákonu
sinni og notið þannig góðs af ólögleg-
um sjóði olíufélagsins sem notaður
var til mútugreiðslna og ýmissa vafa-
samra viðskipta. Undirréttur dæmdi
hann árið 2001 í 2½ árs fangelsi, þar
af tvö ár skilorðsbundin.
Áfrýjunarrétturinn dæmdi einnig
Loik Le Floch-Prigent, fyrrverandi
forstjóra Elf, í 30 mánaða fangelsi.
Alfred Sirven, fyrrverandi aðstoðar-
maður Le Floch-Prigents sem sá um
mútugreiðslusjóði Elf, hefur þegar
setið í tvö ár í fangelsi en hann var
dæmdur í þriggja ára fangelsi.
Christine Deviers-Joncour, fyrr-
verandi hjákona Dumas, var dæmd í
30 mánaða fangelsi, þar af 12 mánuði
skilorðsbundið.
Dumas er sagður hafa útvegað
Deviers-Joncour hálaunað starf hjá
Elf og síðan þegið frá henni gjafir
sem olíufélagið hafi greitt í því skyni
að hafa áhrif á ákvarðanir hans á ár-
unum 1989–93 þegar hann var utan-
ríkisráðherra.
Reuters
Roland Dumas, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Frakklands.
Dumas
sýknaður í
spillingar-
máli Elf
París. AFP.
TÓNLISTARMAÐUR í brasilísku borginni Sao Paulo
heldur á spjaldi þar sem hann býður nýra sitt falt.
Hann er 27 ára og hefur verið atvinnulaus í tvö ár.
Hann vill fá andvirði 160.000 króna fyrir nýrað og ætl-
ar að nota féð til að koma tónlist sinni á framfæri við
útgáfufyrirtæki. Atvinnuleysið í Brasilíu er nú 10,5%.
AP
Nýrað falt vegna atvinnuleysis
SILVIO Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, fór í gær hörðum orð-
um um ítalska dómarastétt en þá
hafði hæstiréttur landsins hafnað
þeirri ósk hans, að væntanleg spill-
ingarréttarhöld yfir honum yrðu
flutt frá Róm til borgarinnar
Brescia. Hefði flutningur líklega
orðið til að ónýta allt málið.
„Ég mun verjast þessu með öllum
ráðum,“ sagði Berlusconi á frétta-
mannafundi, sem hann boðaði til á
heimili sínu í Mílanó, en hann sakar
dómara í borginni um óvild í sinn
garð.
„Ég er viss um, að ég hef ekki
brotið neitt af mér,“ bætti hann við
og hélt því fram, að hann sætti
„pólitískum ofsóknum“. Berlusconi,
sem var í gær að leggja upp í ferð
til Lundúna, Washington og
Moskvu, vísaði á bug sem fásinnu,
að hann kynni að
neyðast til að
segja af sér.
Hefði hæsti-
réttur samþykkt,
að málið gegn
Berlusconi yrði
flutt frá Mílanó,
hefði það þýtt, að
það hefði verið
tekið fyrir frá
byrjun. Hefði það þá að öllum lík-
indum fallið um sjálft sig vegna
fyrningarákvæða.
Berlusconi er sakaður um að hafa
mútað dómurum árið 1985 til að
fallast á, að fyrirtæki hans, Finin-
vest, mætti kaupa upp ávaxtafyr-
irtæki. Af því varð raunar ekki en
nú er stefnt að því að rétta í málinu
7. febrúar næstkomandi og búist er
við dómi um mitt sumar þegar Ítalir
taka við forystunni innan Evrópu-
sambandsins. Sektardómur gæti
þýtt þriggja til fimm ára fangelsi.
Önnur útistandandi mál
Berlusconi, ríkasti maður á Ítal-
íu, hefur átt í ótal málaferlum og
unnið fleiri en hann hefur tapað.
1998 var hann dæmdur í rúmlega
tveggja ára fangelsi og til að greiða
háa sekt fyrir ólöglega fjármögnun
stjórnmálaflokka en þeim dómi var
hrundið ári síðar. 1999 var hann
sýknaður af skattsvikum og 2001 af
bókhaldssvikum og spillingu.
Auk þess að vera sakaður um að
hafa mútað dómurum blasa við
Berlusconi tvenn önnur málaferli.
Snúast önnur um bókhaldssvik í
fjármálafyrirtækinu All Iberian og
hin um skattsvik og bann við
hringamyndun á Spáni.
Berlusconi atyrðir
ítalska dómara
Róm. AFP.
Silvio Berlusconi
HUGO Chavez, forseti Venesúela,
hefur náð yfirhöndinni í baráttunni
við andstæðinga sína um yfirráð yf-
ir olíuiðnaðinum eftir 59 daga alls-
herjarverkfall.
Olíuframleiðslan er nú rúmlega
milljón föt á dag en hún var um
200.000 föt þegar hún var minnst í
desember. Framleiðslan er þó enn
aðeins um þriðjungur þess sem hún
var áður en verkfallið hófst.
Helsta ástæða þess að framleiðsl-
an hefur aukist er að stjórnin legg-
ur áherslu á að nýta nýjar lindir þar
sem auðveldara er að dæla olíunni.
Búist er við að við að hægt verði að
auka framleiðsluna í 1,2–1,4 millj-
ónir fata á dag en að erfiðara verði
að auka hana frekar þegar byrja
þarf aftur að dæla úr gömlum bor-
holum þar sem olían er orðin erfið
viðfangs eftir að hafa legið óhreyfð í
tvo mánuði.
Hermenn og erlendir starfsmenn
hófu olíuframleiðsluna að nýju og
til að ná olíuiðnaðinum á sitt vald
hefur stjórnin einnig rekið yfir
5.000 af 40.000 starfsmönnum rík-
isolíufyrirtækisins Petroleos de
Venezuela (PDVSA). Þessar upp-
sagnir geta orðið til þess að erfitt
verði að auka framleiðsluna í þrjár
milljónir fata á dag eins og stefnt er
að.
Margir af verkamönnum PDVSA
hafa snúið aftur til vinnu en stjórn-
endur og faglærðir starfsmenn fyr-
irtækisins segjast ætla að halda
verkfallinu áfram þar til Chavez
segi af sér eða boði til kosninga.
Slakað á verkfallinu?
Leiðtogar andstæðinga Chavez,
frammámenn í viðskiptalífinu og
verkalýðsleiðtogar, neita því að
verkfallið sé að fjara út. Ágrein-
ingur hefur þó komið upp milli
hægrimanna og verkalýðshreyfinga
sem standa fyrir verkfallinu.
Verkalýðsleiðtogarnir íhuga nú
að slaka á verkfallinu vegna mikils
skorts á matvælum, bensíni og lyfj-
um í landinu. Þeir segja að til
greina komi að opna að nýju versl-
unarmiðstöðvar, veitingahús og
skóla í næstu viku, að minnsta kosti
hluta úr degi. Starfsemi hefur haf-
ist að nýju í mörgum smáfyrirtækj-
um og öðrum var aldrei lokað.
Verkfallið í Venesúela
Chavez tekst
að auka
olíufram-
leiðsluna
Caracas. AP.