Morgunblaðið - 30.01.2003, Síða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!
!"# !$%& '
"
!
#
$%
&$
'
$
(
$
$)
!%$'*
+
&
,
-
'
$
.
$
&
$)*
/
*
$*
$$!
*
-
&
0&
.
1
$
$
'&
&
1
$)
'&
2$
/
'
(
)' ' * ' !+ # !
TALSVERÐU munar á niður-
greiðslu sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu vegna daggæslu barna í
heimahúsum ef marka má samantekt
sem Eygló Ingadóttir, fulltrúi í fé-
lagsmálanefnd Bessastaðahrepps,
hefur tekið saman. Þannig munar allt
að 17.210 krónum á niðurgreiðslu fyr-
ir níu tíma dagvistun sé um barn for-
eldra sem eru í sambúð að ræða og
allt að 25.850 krónum sé aðeins annað
foreldrið í námi.
Eygló kannaði nú í janúar hvernig
niðurgreiðslum vegna daggæslu í
heimahúsum er háttað í Reykjavík,
Kópavogi, Mosfellsbæ, Hafnarfirði,
Garðabæ og Bessastaðahreppi. Hún
segir að kveikjan að því að hún fór að
kanna þetta hafi verið sú að henni
hafi fundist reglurnar vera ruglings-
legar og að svo virtist sem tugum
þúsunda munaði á niðurgreiðslum
eftir því í hvaða sveitarfélagi viðkom-
andi fjölskylda býr. Hún undirstrikar
að úttekt sín taki ekki til niður-
greiðslna vegna barna í dagvistun á
leikskóla.
Lægstar greiðslur í Mosfellsbæ
til foreldra í sambúð
Af samantekt hennar má ráða að
niðurgreiðslur vegna barna giftra
foreldra eða foreldra í sambúð eru
lægstar í Mosfellsbæ en þær nema
frá 3.500 krónum vegna fjögurra tíma
dagvistunar og upp í 7.000 krónur
vegna níu tíma dagvistunar. Aftur á
móti eru þær í flestum tilfellum
hæstar í Hafnarfirði þar sem þær
nema frá 10.760 krónum fyrir fjög-
urra tíma dagvistun og upp í 24.210
krónur fyrir níu tíma dagvistun. Al-
mennt er reglan sú í Hafnarfirði að
borgaðar eru 2.690 krónur á mánuði
með barninu fyrir hverja klukku-
stund í dagvistun.
Í Garðabæ gildir aftur sú regla að
með öllum börnum sem eru eins árs
eða eldri og eru á biðlista eftir leik-
skólaplássi eru borgaðar 11 þúsund
krónur á mánuði og er það óháð því
hvort barnið er hjá dagmóður, for-
eldrum sínum eða öðrum. Að sögn
Eyglóar mun um þessar mundir verið
að endurskoða reglur varðandi nið-
urgreiðslur vegna dagvistunar í
Garðabæ og því breytinga að vænta
þar á næstunni sem eiga að miða að
því að létta frekar undir með fjöl-
skyldufólki þar.
Hafnarfjörður hæstur
Sé litið til barna einstæðra foreldra
eða foreldra sem báðir eru í námi
kemur í ljós að mismunandi er hvaða
sveitarfélag er með lægstu niður-
greiðslurnar eftir því um hversu
langan vistunartíma er að ræða. Aft-
ur á móti eru niðurgreiðslurnar alltaf
hæstar hjá Hafnarfirði í þessu tilviki.
Þar er reglan sem fyrr sú að borguð
er viss upphæð fyrir hvern klukku-
tíma í dagvistun og er hún 3.650 krón-
ur á mánuði fyrir hvert barn ein-
stæðra foreldra eða foreldra í námi.
Fæst sveitarfélaganna taka tillit til
þess þegar fleiri en eitt systkini eru í
vistun hjá dagforeldri. Undantekn-
ingin er m.a. í Reykjavík en borgin
greiðir frá 2.500 til 5.000 krónur til
viðbótar með hverju systkini sem er
hjá dagmóður. Ef annað barnið er
hins vegar hjá dagmóður eða í einka-
reknum leikskóla en hitt í leikskóla
reknum af borginni gildir afsláttur
leikskólans. Á sama hátt greiðir
Kópavogur frá 2.100 krónum upp í
2.400 krónur aukalega með hverju
systkini hjá dagmóður. Ef eitt barn
er á leikskóla og annað hjá dagmóður
fæst afsláttur á leikskólagjaldinu, en
bara ef yngra barnið er orðið eins árs
gamalt.
Loks kannaði Eygló niður-
greiðslur vegna daggæslu barns í
heimahúsi þegar foreldrar eru í sam-
búð og annað þeirra er í námi. Hjá
flestum sveitarfélögunum reyndist
ekki tekið tillit til þess að annað for-
eldrið sé í námi. Í Reykjavík er nið-
urgreiðslan nokkuð hærri en sam-
kvæmt almennu gjaldskránni fyrir
foreldra í sambúð og nemur frá 8.000
krónum fyrir fjögurra tíma dagvistun
og upp í 16.000 krónur fyrir níu tíma
dagvistun. Hafnarfjörður niðurgreið-
ir dagvistunina hins vegar á sama
hátt og ef foreldrarnir væru báðir í
námi eða einstæðir.
Aðeins Reykjavík greiðir niður
ef daggæslan kemur heim
Eygló segist telja að í mörgum til-
fellum séu reglurnar vanhugsaðar
auk þess sem lítið samræmi sé á milli
sveitarfélaganna hvað þetta varðar.
„Á sumum stöðum er ekki borgað
meira með öðru barni sem er hjá dag-
mömmu eða ef annað er í leikskóla og
hitt er hjá dagmömmu. Þá fær hvor-
ugt afslátt. Hins vegar er heilmikill
afsláttur ef systkinin eru bæði á leik-
skóla. Eins ef maður vill fá einhvern
heim til að gæta barnanna þá er það
bara Reykjavík sem býður upp á nið-
urgreiðslur í þeim tilfellum nema ef
sérstakar aðstæður eru til staðar.“
Hún segir það hafa verið talsvert
flókið að setja sig inn í hvernig
greiðslunum er háttað og oft geti ver-
ið erfitt fyrir foreldra með ung börn
að gefa sér tíma til þess. „Ég vildi sjá
samræmdar reglur og kannski að það
væri gert betur við fólk. Hins vegar
er ég er ekkert viss um að það þurfi
að hækka niðurgreiðslurnar mikið,“
segir hún.
Mikill munur milli sveitarfélaga á niðurgreiðslu vegna daggæslu í heimahúsum
Munurinn allt að 26
þúsund krónur fyrir
níu tíma dagvistun
Höfuðborgarsvæðið
%
& #'
( #&' " $ #
!""#$
%!& !' (
) (#$
*+(,
#$$$#
$#$$$#
%#$$$#
&#$#
#$$$#
$#$$$#
#$$$#
$#$$$#
%#$$$#
#'$#
#$$$#
$#$$$#
(#'$#
%#'$$#
'#'$#
(#($#
#$$$#
%#'$$#
(#'$#
%#'$$#
'#'$#
)#&$#
#$$$#
%#'$$#
'#'$$#
'#$$$#
#'$$#
#&'$#
#$$$#
'#$$$#
)
* + ,
'#'$$#
'#$$$#
#'$$#
$#%)$#
#$$$#
'#$$$#
- +. +/ +0 +1 +
%
& #'
( #2& 3
!""#$
%!& !' (
) (#$
*+(,
&#$$#
#$$#
$#$$$#
#('$#
#$$#
)#)$$#
#%)$#
#$$#
$#$$$#
#$$#
#$$#
#$$#
$#$%'#
%#$$#
%#'$$#
'#''$#
$#$$#
#&$$#
)#'$$#
&#'$$#
'#$$$#
#$$#
%#'$#
(#&$$#
#('#
#$$$#
#'$$#
(#'$#
&#&'$#
'#($$#
)
* + ,
(#'$#
$#$$$#
$#$$$#
&#)$$#
#''$#
#%$$#
- +. +/ +0 +1 +
FORELDRAR í
Seljaskóla vilja að
skólinn verði settur í
forgang í fimm ára
byggingaáætlun borg-
arinnar sem nú er
verið að leggja loka-
hönd á. Undirskrifta-
listar þar að lútandi
voru afhentir for-
manni fræðsluráðs á
þriðjudag.
Alls skrifuðu 675
foreldrar undir áskor-
unina þar sem segir
að tengibygging milli
skóla og samkomu-
húss sé lykilaðgerð til
að skapa mötuneytis-
aðstöðu og leysa úr brýnni hús-
næðisþörf fyrir sérkennsluver,
list- og verkgreinastofur, tónlist-
arstofu og fleira. Að sögn Guð-
rúnar Þórsdóttur, formanns for-
eldraráðs, er Seljaskóli einn af
örfáum skólum og sá eini af stærri
skólum borgarinnar sem hefur
enga mötuneytisaðstöðu og mjög
óviðunandi aðstöðu til listgrein-
anáms. Hún segir samkomusal
skólans nýtast illa vegna þess að
hann er ekki áfastur sjálfri skóla-
byggingunni. Með tengibyggingu
yrði nýting hans mun betri.
„Það er verið að brýna menn um
að taka þennan skóla inn í áætl-
un,“ segir Guðrún og bendir á að
Seljaskóli hafi verið inn í fimm ára
byggingaáætlun sem gerð var árið
1998. Skömmu síðar hafi farið
fram ákveðin hönnunarvinna en í
framhaldinu hafi skólinn verið tek-
inn út af áætluninni. „Þessu var
öllu ýtt út af borðinu vegna þess
að menn lögðu svo mikla áherslu á
einsetningu skólanna. Seljaskóli
datt alveg út vegna þess að hann
gat leyst einsetninguna án þess að
byggt væri við hann.“
Að sögn Guðrúnar vildu foreldr-
ar vekja athygli á þessu enda hafi
það sýnt sig að það borgi sig að
ræða við ráðamenn til að ná fram
með málefni. „Við fengum t.d. fund
með forstöðumanni Fasteignastofu
í nóvember og þá loksins gátum
við sett upp leiktæki sem nem-
endur höfðu hannað og beið eftir
að fá að komast á leikvöllinn. Það
var búið að sækja styrktarfé til
fyrirtækja til að smíða þetta tæki
en það var ekki hægt að koma því
upp. Það þarf einfaldlega oft veru-
legan þrýsting á menn til að málin
klárist,“ segir hún.
Vilja tengibygg-
ingu við Seljaskóla
Henný Gestsdóttir, formaður foreldrafélags
Seljaskóla, afhendir Stefáni Jóni Hafstein,
formanni fræðsluráðs, undirskriftalistana.
Breiðholt
Morgunblaðið/Kristinn