Morgunblaðið - 30.01.2003, Side 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 19
TILBOÐ á
metsölu-sjálfsræktarbókum
Gerðu það bara Lögmál andans Fyrirgefningin Hjálpaðu sjálfum þér Rétt matreiðsla fyrir
þinn blóðflokk
Jafnvægi í gegnum
orkustöðvarnar
Tilboð:
kr. 1.590.
Fullt verð kr. 1.990.
Tilboð:
kr. 1.590.
Fullt verð kr. 1.990.
Tilboð:
kr. 1.590.
Fullt verð kr. 1.990.
Tilboð:
kr. 1.990.
Fullt verð kr. 2.490.
Tilboð:
kr. 1.990.
Fullt verð kr. 3.490.
Tilboð:
kr. 1.100.
Fullt verð kr. 1.390.
Mál og menning: Laugavegi, Síðumúla 11, Hlemmi,
Mjódd og Hamraborg.
Penninn-Eymundsson: Reykjavík - Kringlunni, Austurstræti,
Smáralind, Hafnarfirði, Akureyri.
Betra líf: Kringlunni.
Upplýsingar um sjálfsræktarnámskeið á:
www.blodflokkar.is og www.hellnar.is
ÞÆR ráðstafanir Borgarbyggðar að
lengja sumarlokun leikskólans
Klettaborgar um tvær vikur og
hækka jafnframt leikskólagjöldin um
5% mælast ekki vel fyrir, ef marka
má viðbrögð foreldra. Foreldrafélag
leikskólans stóð fyrir opnum fundi í
Félagsbæ nýlega og fékk fulltrúa
bæjarráðs, þau Helgu Halldórsdótt-
ur, Þorvald Jónsson og Finnboga
Rögnvaldsson auk Páls Brynjarsson-
ar bæjarstjóra, til að sitja fyrir svör-
um.
Leikskólinn mun verða lokaður frá
14. júlí til 11. ágúst. Þetta er sam-
kvæmt upplýsingum sveitarstjórnar-
manna Borgarbyggðar aðallega gert
til að lækka útgjöld sveitarfélagsins
um sem nemur 1.450.000 krónum. Til
að koma til móts við þá foreldra sem
ekki geta tekið sumarfrí á þessum tíma
er í athugun að styrkja starf gæsluvall-
arins. Á fundinum var farið yfir rök
með og á móti sumarlokun og ljóst að
málið varðar einnig vinnustaði því for-
svarsmenn nokkurra vinnustaða voru
boðaðir á fundinn og bentu á þá ókosti
sem lokunin hefur í för með sér. Nið-
urstaða fundarins var sú að fulltrúar
foreldrafélagsins yrðu hafðir með í
ráðum við skipulagningu á gæsluvell-
inum í sumar, framvegis yrðu ákvarð-
anir teknar í samráði við foreldra og
sumarlokun yrði endurskoðuð að ári.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Mótmæla sumarlokun og
hækkun leikskólagjalda
Borgarnes
VEIÐAR á hörpudiski í Breiða-
firði hafa dregist stórlega saman
á allra síðustu árum. Á fiskveiði-
árinu 2000–2001 var úthlutað
tæplega 1715 tonnum af hörpu-
skel til fyrirtækja/útgerða í
Grundarfirði. Árið 2001–2002 var
úthlutunin rúm 1393 tonn og árið
2002–2003 var úthlutunin komin
niður í 857,4 tonn. Skerðingin á
tveimur árum er skv. þessu 50%.
Horfur komandi fiskveiðiárs
2003–2004 eru enn dekkri. Skv.
upplýsingum úr sjávarútvegs-
ráðuneytinu verður ekki úthlutað
aflamarki í hörpuskel fyrr en nið-
urstöður liggja fyrir úr rannsókn-
um á árinu 2003. Ætlunin er að
skip fari til rannsókna í apríl og
aftur í september 2003 og að
fyrst eftir að þær niðurstöður
liggja fyrir verði tekin ákvörðun
um skelveiðarnar. Ljóst er því að
úthlutun mun ekki liggja fyrir við
upphaf komandi fiskveiðiárs og
að vertíðin mun ekki hefjast hinn
1. september eins og fyrri ár.
Hugmyndum hefur m.a. verið
varpað á loft um að engar veiðar
fari fram á því ári. Uggur er í
sveitarstjórnarmönnum í Stykk-
ishólmi og Grundarfirði vegna
þeirra áhrifa sem svo mikil
skerðing hefur á atvinnulíf stað-
anna. Hörpuskel er nánast alfarið
unnin á Snæfellsnesi og allur
landaður afli er unninn á stöð-
unum.
Grundarfjörður er því eitt
tveggja byggðarlaga á landinu
þar sem veiðar og vinnsla byggja
að svo miklu leyti á skelveiðunum
sem raun ber vitni. Sjávarútvegs-
nefnd Alþingis fundaði um málið í
vikunni og hafði nefndin óskað
eftir því að fá á fundinn til sín
fulltrúa skelfiskvinnslu og -veiða
hér í Breiðafirði, auk fulltrúa
bæjarstjórna. Á fundinn fóru
fimm fulltrúar Grundfirðinga, þar
af tveir bæjarfulltrúar, auk full-
trúa úr Stykkishólmi.
Framtíð skelveiða á
Breiðafirði rædd
Grundarfjörður
ÚTVARP Kántrýbær var um tíma
sent út á Reykjavíkursvæðinu í
samvinnu við Skjá 1, því samstarfi
lauk skyndilega eftir Versl-
unarmannahelgina 2001. Margir
aðdáendur Útvarps Kántrýbæjar
urðu fyrir miklum vonbrigðum
þegar útsendingum var hætt. Um
þessar mundir er verið að skoða
tilboð í sendi og ódýrari leið er að
opnast fyrir flutning á útvarps-
merkinu til Reykjavíkur. Verið er
að kanna áhuga einstaklinga á
Reykjvíkursvæðinu til þess að ger-
ast styrktaraðilar með 500 kr mán-
aðarlegum boðgreiðslum.
Að sögn Guðmundar Ólafssonar
á Skagaströnd, áhugamanns um
kántrýútvarp, vantar aðila sem eru
tilbúnir að eiga og reka sendinn
sem er um 2000W og kostar um 3,5
miljónir, en þau mál eru í vinnslu.
„Eigendurnir geta aflað auglýs-
inga og fengið hlut af innkomu til
þess að greiða niður sendinn. Það
væri okkur sem stöndum að þessu
verkefni mikil ánægja ef þeir sem
hafa áhuga á að styrkja okkur
hefðu samband, en best væri ef við
gætum fengið nokkra einstaklinga
til að vera tengiliðir og sjá um að
afla styrktaraðila. Hugmyndin er
að styrktaraðilarnir stofni með sér
félag eða einhverskonar samtök
með virkri stjórn sem gæti haldið
utan um pakkann,“ sagði Guð-
mundur Ólafsson að lokum.
Allar útsendingar Útvarps
Kántrýbæjar liggja niðri í janúar
til marsloka, vegna sparnaðar.
Leita styrktaraðila á
höfuðborgarsvæðinu
Blönduós
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Útvarp Kántrýbær hyggur á landvinninga
TVÖ loðnuskip komu til Þórs-
hafnar á þriðjudaginn með um
2200 tonn og var landað úr þeim
báðum í einu í gegnum nýtt lönd-
unarkerfi. Bergur VE landaði um
1100 tonnum sem mest fór í
bræðslu og Júpíter var einnig
með rúm 1100 tonn og þar af
fara í frystingu um 140 tonn fyrir
Rússlandsmarkað.
Á Þórshöfn vinna núna allir
sem vettlingi geta valdið því sól-
arhringsvaktir eru í bræðslunni
og verða einnig í frystihúsinu á
meðan loðnufrysting stendur yfir.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Tveir í einu í löndun; Bergur VE og Júpíter með rúm 2.200 tonn.
Allt á fullu í loðnunni
Þórshöfn
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík