Morgunblaðið - 30.01.2003, Side 40

Morgunblaðið - 30.01.2003, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Á BAKSÍÐU Morgunblaðsins laugardaginn 18. janúar síðastlið- inn gat að líta fallega ljósmynd tekna í Bakkafjöru við Kvíá í Öræfum. Á myndinni stendur mað- ur við leifar flaksins af togaranum Clyne Castle sem strandaði í fjör- unni árið 1919. Í myndatexta er þess getið að Kvískerjabræður hafi bent á að hugsanlega mætti farga úreltum skipum með því að hleypa þeim í brimgarðinn á þessum slóð- um. Mig langar að prjóna við þessa hugmynd þeirra bræðra og fara með hana svolítið lengra – uppí fjöruna. Samkvæmt úttekt Morgunblaðs- ins frá 9. janúar sl. liggja á annað hundrað verkefnalaus og úrelt skip í höfnum landsins „og valda höfn- unum verulegum kostnaði, auk þess sem af þeim stafar meng- unarhætta og óprýði. Fá úrræði eru til að farga þessum skipum en samkvæmt íslenskum lögum er óheimilt að sökkva úr sér gengnum skipum í sæ.“ Förgun skipanna í brotajárn mun kosta allt að þúsund milljónum króna og mun í mörgum tilfellum falla á hafnirnar þar sem útgerðir skipanna eru gjaldþrota. Einar K. Guðfinnsson og Krist- ján Pálsson hafa lagt fram á Al- þingi tillögu um breytingu á lögum um varnir gegn mengun sjávar þar sem leyft yrði að sökkva skipunum í sjó fyrir árslok 2004, sem er síð- asti mögulegi frestur til slíks sam- kvæmt alþjóðasamningum. Kostur- inn við þessa hugmynd er að kostnaður við förgunina er lítill en gallinn er sá að Íslendingar hafa á alþjóðavettvangi barist einarðlega gegn því að hverskonar úrgangi sé varpað í hafið. Stór skipakirkju- garður á hafsbotni gæti vakið önn- ur hugrenningatengsl hjá fiskkaup- endum og ferðamönnum en sú ímynd hreinleika sem við höfum kostað svo miklu til að skapa. Mín hugmynd er sú að skipin verði dregin uppá land í einhverri fjöru og látin standa þar þangað til sjór, regn og sandfok sverfa þau niður í sandinn. Samkvæmt ljós- myndinni á baksíðu Morgunblaðs- ins gæti það tekið um hundrað ár. Hugmyndin er sú að taka öll skipin upp á sama stað. Yfir hundrað skip í einni fjöru væri stórkostlegt sjón- arspil. Með árunum yrði staðurinn jafnvel enn áhugaverðari þegar tímans tönn tekur að vinna á skip- unum. Það mætti hugsa sér að grafa skurði fram í sjó og draga skipin þar upp á stórstraumsflóði, eins langt og þau ná. Sum mætti draga beint upp í sandinn eða lyfta þeim á land með krönum. Kostnaðurinn væri mun minni en að rífa skipin í brotajárn og þau væru okkur nýt- ari en liggjandi á hafsbotni. Að ganga um þennan skipaskóg væri líkast því að ganga um á hafs- botni. Ég er viss um að ferðamenn, bæði innlendir og erlendir, myndu flykkjast á þennan sérstaka stað og hann yrði áreiðanlega vinsæll af kvikmyndagerðarmönnum og ljós- myndurum heimsins. Hér er komið tækifæri á sviði menningartengdr- ar ferðaþjónustu sem hægt er að vinna með á margvíslegan hátt. Nú er bara að sjá hvort eitthvert byggðarlag eigi fjöru og þá fram- kvæmdagleði sem þarf til að hrinda hugmyndinni í framkvæmd. BJÖRN BR. BJÖRNSSON, áhugamaður um menningartengda ferðaþjónustu. Skipaskógur Frá Birni Br. Björnssyni: Frá austanverðu Vatnsnesi í Húnavatnssýslu. Skipin eru rúmlega þrjátíu en úrelt skip í höfnum landsins eru á annað hundrað talsins. Ljósmynd/Björn Rúriksson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.