Morgunblaðið - 30.01.2003, Síða 42

Morgunblaðið - 30.01.2003, Síða 42
DAGBÓK 42 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Víkverji skrifar... ÁLAGNINGARSEÐILL vegnafasteignagjalda er nýdottinn inn um lúguna hjá Víkverja og er skemmst frá því að segja að hann vakti litla kátínu á heimilinu. Krefst sveitarfélagið, Seltjarnarneskaup- staður, þess að Víkverji greiði 52.000 krónur, sem er hvorki meira né minna en 22.000 krónum hærri upphæð en hann greiddi vegna ná- kvæmlega sömu íbúðar árið 1999. Hækkunin nemur hvorki meira né minna en 72 prósentum! Víkverji leyfir sér að fullyrða að engin vara, þjónusta, gjald eða skattur hafi hækkað jafnmikið á sama tímabili. Þegar spurt er um ástæður fyrir þessari stökkbreytingu á fasteigna- gjaldinu er því svarað til að fast- eignamat íbúðarinnar hafi hækkað árið 2001. Þar var að verki Fast- eignamat ríkisins sem tók sig til og hækkaði fasteignamatið. Á sínum tíma var Víkverji ekki sáttur við hið nýja mat og ákvað að kæra. Sú ákvörðun var nú reyndar aðallega tekin vegna þess að aðgerðin fór í taugarnar á Víkverja. Rökstuddi hann kæruna m.a. með því að benda á að starfsmenn Fasteignamatsins hefðu aldrei stigið fæti inn í íbúðina og gætu því ómögulega lagt mat á ástand hennar, hvort parketið væri ónýtt vegna vatnsleka, sturtubotn- inn lekur eða eldhúsinnréttingin sviðin vegna óhapps við elda- mennskuna. Eins gæti vel verið að Víkverji hefði lagt í viðamiklar end- urbætur og t.d. lagt gólfflísar úr gulli. Kæran komst til skila en aldr- ei komu matsmenn og litu á heimili Víkverja. Engu að síður treystu þeir sér til þess að hækka fasteignamatið um nokkur hundruð þúsund! Starfs- menn Fasteignamatsins hljóta að vera með röntgenaugu til að geta metið íbúðina með svona mikilli ná- kvæmni frá götunni. ÞAÐ er þó ekki við Fasteignamatríkisins að sakast þó fast- eignagjöldin hafi hækkað. Fyrir hækkunina var fasteignamatið tals- vert á skjön við verð íbúða sem gat valdið vandræðum þegar fólk þurfti lán vegna íbúðarkaupa. Eðlilegast hefði verið að sveitarfélagið hefði lækkað skatthlutfall af fasteignum þannig að hærra fasteignamat hefði ekki leitt til hærri fasteignagjalda. Hvaða rök eru eiginlega fyrir því að Víkverji þurfi að greiða 72% hærri fasteignagjöld nú en árið 1999? Íbúðin hefur ekkert breyst (að und- anskildum nokkrum rispum í park- etinu) og ekki hefur þjónusta sveit- arfélagsins við Víkverja aukist. Það er ekki 72% dýrara að sjá Víkverja fyrir vatni eða 72% dýrara að við- halda götum í sveitarfélaginu svo einhver dæmi séu nefnd. Telji sveit- arfélagið sig þurfa hærri skatt- tekjur hefði að sjálfsögðu verið mun heiðarlegra að lækka fast- eignagjöldin til móts við hærra fast- eignamat en hækka þess í stað út- svarið. En líklega er til of mikils ætlast af sveitarfélögum að þau láti tækifæri til að afla sér hærri tekna sér úr greipum ganga. Morgunblaðið/Golli FYRIR skemmstu sýndi Ríkissjónvarpið heimild- armynd um Guðmund Pál Ólafsson, náttúrufræðing og einn helsta baráttu- mann fyrir verndun há- lendisins. Í myndinni framdi Guðmundur gjörn- ing sem lengi verður í minnum hafður og hefur efunarlaust haft áhrif, að minnsta kosti á þá er láta sig íslenska náttúru ein- hverju varða. Úr sinni fal- legu og stórmerku bók, Hálendið í náttúru Ís- lands, reif hann síður með ljósmyndum af þeim nátt- úruperlum sem hafa farið undir uppistöðulón eða verða eyðilagðar fyrir fullt og allt ef Kárahnjúkavirkj- un og virkjun Þjórsárvera verða að veruleika. Í einni svipan birtist manni hví- líka eyðileggingu ætlunin er að fremja á hálendinu, á einstæðri náttúrufegurð. Maður sat sem lamaður. Eyðileggingin verður – ef hún nær fram að ganga – meiri en mann hafði nokkru sinni órað fyrir. Það var ekki tilviljun að gjörningur þessi átti sér stað í Bókhlöðunni í Flatey þar sem fyrsta almenn- ingsbókasafn landsins reis uppúr miðri 19. öld. Það var heldur ekki tilviljun að Guðmundur lagði bók sína, áður en hann tók til að rífa úr henni, of- an á glerskáp er geymdi ljósrit af Flat- eyjarbók, einhverri mestu gersemi er við Íslendingar eigum. Við erum bókaþjóð og við förum vel með bækur. Skyldi nokkru sinni hvarfla að þeim er vilja eyðileggja dýr- mætar náttúruperlur fyrir skammtímagróða að eyðileggja dýrmæt handrit þótt dágóð fúlga væri í boði? Sigurður Jón Ólafsson, bókasafns- fræðingur. Blómakonur ER ekki einhver blómakona sem hefur áhuga á að skiptast á af- leggjurum? Ég hef nokkur pottablóm sem ekki hafa fengist hér á landi. Ég óska sérstaklega eftir bleiku þríburablómi (Bogomilla). Upplýsingar í síma 555 4215. Með húfu í tíma AF hverju mega strákar ekki vera með húfu inni í tíma? Sko, mér finnst þetta vera svindl. Hafþór vinur minn var með húfu inni í tíma og kennarinn sagði honum að taka húfuna af sér og síðan var stelpa með húfu í tíma og kennarinn horfði á hana og sá að hún var með húfu en hún sagði henni ekki að taka hana af sér. Þetta finnst mér svindl. Rúnar Árnason. Söngkona ársins HVERNIG gat það farið svo að Hera varð söngkona ársins þegar Birgitta Haukdal er (samkvæmt áhorfi og hlustun) besta og vinsælasta söngkona landsins í dag? Asi. Hrakfarir hestamanns ÉG las í Velvak- anda hrakfarir hestamanns er var að viðra sjálfan sig og hest sinn og var staddur í Elliðaár- dalnum. Þá vildi ekki betur til en svo að hesturinn fældist og hvarf af völdum þessara flugeldaglöðu er byrjuðu skothríð löngu fyrir áramót og var því látlaust haldið áfram. Það ætti flestum að vera ljóst að hestar og fleiri dýr tryllast við þessi ósköp en þessir skotglöðu náungar virðast ekkert vita um slíka hluti. Eigandinn virtist ekki hafa mjög miklar áhyggjur af hestin- um, tíndi til hvað hesturinn með öllum reiðtygjum hefði kostað. Ég hefði í hans sporum hugsað um afdrif hestsins hvað sem hefði orðið um það sem hestinum fylgdi. Ég þakka Sv.S. er skrif- ar um þetta eldflauga- brjálæði í Velvakanda 14. 1. Hann hefir rétta skoðun á þessum málum, en hér á landi vantar aga í þessu sem og fleiri málum. S.E. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Gjörningur Guð- mundar Páls Horft til norðurs yfir Dimmugljúf- ur og Kárahnjúka.     Athyglisverð ummæli voru höfð eftir Friðriki J. Arngrímssyni, fram- kvæmdastjóra Lands- sambands íslenzkra út- vegsmanna, hér í blaðinu sl. föstudag. Talað var við Friðrik í tilefni af ályktun stjórnar LÍÚ, sem m.a. fjallaði um erlendar fjár- festingar í sjávarútvegi. „Um erlendar fjárfest- ingar segir Friðrik að yrðu þær leyfðar, yrði niðurstaðan sú að stjórn- endur yrðu erlendir og arðurinn yrði fluttur úr landi til fjárfestinga í heimalandinu. Það yrði enginn munur á erlend- um fjárfestingum í ís- lenzkum sjávarútvegi og íslenzkum fjárfestingum í erlendum útvegi,“ sagði í frétt Morgunblaðsins.     Þeir, sem eru fylgjandi því að leyfa erlendar fjár- festingar í sjávarútvegi, hafa lengi haldið því fram – rétt eins og Friðrik J. Arngrímsson – að það sé enginn munur á erlend- um fjárfestingum í ís- lenzkum sjávarútvegi og fjárfestingum íslenzkra útgerðarfyrirtækja er- lendis. Þess vegna sé Ís- lendingum ekki stætt á að banna erlendar fjárfest- ingar hér á landi. Friðrik telur hins vegar erlendu fjárfestingarnar hér óæskilegar, en fjárfest- ingar Íslendinga í útlönd- um æskilegar – eða hvað?     Í ályktun stjórnar LÍÚ, sem var tilefni samtalsins við Friðrik, segir m.a.: „Með yfirráðum erlendra aðila yfir íslenskum sjáv- arútvegi er ljóst að arður Íslendinga af nýtingu sjávarauðlindarinnar verður minni en ella.“ Bera íslenzkir útgerð- armenn, sem fjárfesta er- lendis, það á borð fyrir þarlenda ráðamenn og viðskiptavini, að fjárfest- ingar Íslendinga í sjávar- útvegi þeirra séu vondar? Segja þeir t.d. við viðmæl- endur sína í Bretlandi og Þýzkalandi að arður Breta eða Þjóðverja af nýtingu sjávarauðlind- arinnar verði minni en ella vegna fjárfestinga Ís- lendinga í sjávarútvegi þessara ríkja? Kynna þeir það sem afleita breytingu að Íslendingar taki við framkvæmdastjórn í þýzkum og brezkum fyr- irtækjum og að íslenzku fyrirtækin njóti arðsins af fjárfestingu sinni? Vænt- anlega ekki.     Gagnkvæmni er lyk- ilorðið í alþjóðlegum við- skiptum. Rétt eins og sjávarútvegsfyrirtæki víða um heim sjá sér hag í því að fá inn íslenzka fjár- festa geta íslenzk sjáv- arútvegsfyrirtæki haft margvíslega hagsmuni af því að erlendir aðilar kaupi hlut í þeim. M.a. myndi það styrkja þau í síharðnandi alþjóðlegri samkeppni. Það er nefni- lega enginn munur á fjár- festingum Íslendinga er- lendis og fjárfestingum útlendinga á Íslandi, eins og Friðrik J. Arn- grímsson bendir réttilega á. STAKSTEINAR Góðir Íslendingar – vondir útlendingar Skipin Reykjavíkurhöfn: Freri kemur í dag, Dettifoss og Helgafell fara í dag. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 opin handavinnustofa, kl. 9–12.30 bókband og öskjugerð, kl. 9.45–10 helgistund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 opin smíða og handavinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–12 myndlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13 bók- band, kl. 14–15 dans. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Kl. 13 tréskurð- ur, kl. 14 bókasafnið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Damos. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10– 13, verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9 hárgreiðsla og opin handa- vinnustofa, kl. 9.30 danskennsla, kl. 14 söngstund. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9 gler- skurður, kl. 10 leikfimi, kl. 13.30 söngtími, kl. 15.15 dans, . Þorrablót verður föstud. 31. jan. kl. 18.30 Ræðumaður sr. Valgeir Ástráðsson, flutt verður minni karla og kvenna, Söngdís- irnar leiða fjöldasöng og syngja nokkur lög. Leynigestir koma í heimsókn. Dansað við undirleik Hljómsveitar Hjördísar Geirs. Uppl. í s. 568 3132 Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara í Kópavogi, Bingó í Gull- smára 13, föstud. 31. jan. kl. 14. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kl. 11 búta- saumur byrjendur, kl. 13 bútasaumur, málun og leikfimi karla. Skráning í leir- námskeið og postulíns- málun. Félagsvist í Garðabergi á morgun. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Pútt kl. 10, bingó 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Brids kl. 13. og bridsnámskeið kl. 19.30. Laugard.: Göngu- hrólfar og Hananú hóp- urinn úr Kópavogi hitt- ast í Ásgarði kl. 10. Gerðuberg, fé- lagsstarf, kl. 10.30 helgistund, frá hádegi vinnustofur opnar, kl. 13.15 félagsvist. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, kl. 9.05 og 9.50 leik- fimi, kl. 9.30 klippi- myndir, kl. 12.30 vefnaður, kl. 13 gler og postulínsmálun, kl. 15 enska, kl. 17 myndlist, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línudans. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handa- vinnustofan opin, kl. 13 brids. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna og perlu- saumur, og hjúkr- unarfræðingur á staðnum, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé- lagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 bútasaumur, kl. 10 boccia, kl. 13 handa- vinna, 13.30 félagsvist. Fótaaðgerðir, hár- greiðsla. Korpúlfar Grafarvogi samtök eldri borgara, hittast á fimmtudögum kl. 10, aðra hverja viku er púttað á Korpúlfs- stöðum en hina vikuna er keila í Keilu í Mjódd. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 13– 16.45 leir, kl. 10–11 ganga. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–15.30, handavinna, kl. 10–11 boccia, kl. 13–14 leik- fimi, kl. 13–16 kóræf- ing og mósaik. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9. 30 glerskurður og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerð og boccia æfing, kl. 13 hand- mennt og spilað. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leikfimi í Bláa salnum kl. 11. Sjálfsbjörg félag fatl- aðra, Hátúni 12, kl. 19.30 tafl. Kristniboðsfélag kvenna, Háaleit- isbraut 58–60. Bæna- stund kl. 17. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids að Gullsmára 13. Skrán- ing kl. 12.45, spil hefst kl. 13. Í dag er fimmtudagur 30. jan- úar, 30. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Því að ekki er Guðs ríki matur og drykkur, heldur réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda. (Róm. 14, 17.) 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT 1 duglaus maður, 8 fugl, 9 óframfærnir menn, 10 raklendi, 11 kremja, 13 fífl, 15 lífs, 18 lúin, 21 ætt, 22 bál, 23 fiskar, 24 hryssingslegt. LÓÐRÉTT 2 gangfletir, 3 garma, 4 haf, 5 land, 6 hæðum, 7 vex, 12 hestur, 14 andi, 15 ágeng, 16 bárur, 17 rusl, 18 matarsamtín- ingur, 19 heiðarleg, 20 dauft ljós. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 kólga, 4 flæsa, 7 impra, 8 úðinn, 9 lýk, 11 aðan, 13 stór, 14 áliti, 15 gnoð, 17 flas, 20 ógn, 22 Regin, 23 orkan, 24 aurar, 25 paufa. Lóðrétt: 1 keipa, 2 loppa, 3 aðal, 4 fjúk, 5 æsist, 6 agnar, 10 ýfing, 12 náð, 13 Sif, 15 gúrka, 16 orgar, 18 lukku, 19 senda, 20 ónar, 21 norp. Krossgáta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.