Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 43
DAGBÓK
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 30.
janúar, er áttræður Bjarni
Ólafsson, fyrrverandi Póst-
og símstjóri í Ólafsvík,
Grundarbraut 22, Ólafsvík.
Eiginkona hans er Marta
Kristjánsdóttir. Þau eru að
heiman í dag.
50 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 2. febrúar
verður fimmtugur Sig-
mundur Stefánsson, Reyr-
haga 3, Selfossi. Af því til-
efni taka hann og eiginkona
hans, Ingileif Auðunsdóttir,
á móti ættingjum og vinum,
í samkomuhúsinu Stað,
Eyrarbakka, laugardaginn
1. febrúar n.k frá kl. 19:00.
UM leið og blindur kem-
ur upp í þremur gröndum
horfir suður fram á létt
verk og hverdagslegt, en
spilið tekur á sig nýja og
skemmtilegri mynd þegar
austur finnur snjalla vörn í
öðrum slag:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ Á5
♥ G52
♦ KD10983
♣42
Suður
♠ D832
♥ ÁK4
♦ G65
♣KDG
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 lauf 1 grand
2 lauf 3 grönd Pass Pass
Pass
Austur vekur á Stand-
ard-laufi, sem oft er þrílit-
ur, og barátta vesturs í tvö
lauf er byggð á veikum
spilum og góðum stuðn-
ingi. Útspilið er lauftía,
sem austur tekur strax
með ás og leggur frá sér
spilin. Eftir dágóða um-
hugsun dregur hann fram
spaðakónginn! Það var og.
Þetta er óbein árás á
tígulinn í borði, svo vænt-
anlega er austur með ás-
inn þriðja í tígli og hyggst
dúkka tvisvar. Sagnhafi
sér þá átta slagi, eða tvo á
hvern lit, og besti mögu-
leikinn á þeim níunda ligg-
ur í því að endaspila aust-
ur og láta hann gefa á
hjartagosann í borði:
Norður
♠ Á5
♥ G52
♦ KD10983
♣42
Vestur Austur
♠ 964 ♠ KG107
♥ 9763 ♥ D108
♦ 4 ♦ Á72
♣109873 ♣Á65
Suður
♠ D832
♥ ÁK4
♦ G65
♣KDG
Öruggast er að dúkka
spaðakónginn. Austur spil-
ar spaða áfram og nú eru
tveir slagir sóttir á tígul.
Suður tekur síðan á spaða-
drottningu og KD í laufi
áður en hann sendir aust-
ur inn á tígulás. Austur
fær fjóra slagi í allt, en
neyðist til að spila frá
hjartadrottningunni í lokin
og gefa úrslitaslaginn í
borði.
Góð vörn og gott and-
svar hjá sagnhafa.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
DRAUMUR HJARÐSVEINSINS
Í birkilaut hvíldi ég bakkanum á,
þar bunaði smálækjar spræna.
Mig dreymdi, að í sólskini sæti ég þá
hjá smámey við kotbæinn græna.
Og hóglega í draumnum með höfuð ég lá
í hnjám hinnar fríðustu vinu,
og ástfanginn mændi eg í augun hin blá,
sem yfir mér ljómandi skinu.
- - -
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 g6 5. Rc3
Bg7 6. Be3 Rf6 7. Bc4 Da5
8. O-O O-O 9. Bb3 d6 10.
h3 Bd7 11. He1 Rxd4 12.
Bxd4 Bc6 13. Rd5 Bxd5
14. exd5 Hfe8 15. c4 a6 16.
He3 Rd7 17. Bxg7 Kxg7
18. Dd4+ f6
19. Hae1
Kf7 20. Dh4
Rf8 21. f4
Hac8 22. f5
b5 23.
fxg6+ hxg6
24. Bc2
Hxc4
Staðan
kom upp á
Skákþingi
Reykjavík-
ur sem
stendur nú
yfir. Jón
Viktor
Gunnarsson
(2405) hafði
hvítt gegn
Eiríki Björnssyni (1995).
25. Bxg6+! Rxg6 svartur
yrði mátaður eftir
25...Kxg6 26. Hg3+ Kf5
27. Dh5+. Í framhaldinu
er staða hans einnig gjör-
töpuð. 26. Dh7+ Kf8 27.
Dxg6 Dd2 28. Dh6+ Kf7
29. Hxe7+ og svartur
gafst upp enda fátt til
varnar eftir 29... Hxe7 30.
Dh7+ Kf8 31. Dxe7+ Kg8
32. De8+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 30.
janúar, er fimmtug Drífa
Antonía Ragnarsdóttir,
framkvæmdastjóri á
Djúpavogi. Drífa tekur á
móti gestum á heimili sínu
annað kvöld.
95 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudag-
inn 31. janúar, verður 95
ára Páll Sveinsson, Löngu-
hlíð 3. Hann býður fjöl-
skyldu sinni, vinum og
vandamönnum í kaffi kl.
15–18 á afmælisdaginn. Páll
afþakkar blóm og gjafir en
bendir þeim á sem vilja
gleðja hann að láta Blindra-
félagið njóta þess, reikn: Ís-
landsbanka 515-26-400160.
Bankastræti 11
sími 551 3930
Útsala
20-50%
afsláttur
Nýbýlavegi 12, Kóp.,
sími 554 4433.
Enn meiri afsláttur
Opið frá kl. 10—18
Laugardaga frá kl. 11—15
Allir velkomnir
FRÉTTIR
HINN 10. desember
tóku krakkarnir í 7.R í
Digranesskóla þátt í
verkefninu Dagblöð í
skólum. Að lokinni
verkefnaviku með dagblöð í
kennslutímum komu þau í skoð-
unarferð á Morgunblaðið ásamt
kennara til fá nánari innsýn í
hvernig hlutirnir ganga
fyrir sig á Morg-
unblaðinu. Morgublaðið
þakkar 7.R kærlega
fyrir komuna og vonar
að heimsóknin hafi orðið þessum
hressu krökkum bæði til gagns og
gamans.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostn-
aðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað.
Samþykki afmæl-
isbarns þarf að
fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer. Fólk getur
hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú tekst á við lífið af skyn-
semi og trúir á réttlætið.
Þér finnst gaman að byggja
upp eitthvað nýtt. Það
eru umbrotatímar
framundan í lífi þínu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú skalt reyna að hjálpa
vini í raun í dag og átt
auðvelt með að taka þarfir
annarra fram yfir þínar
eigin.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þig langar til að bjarga
heiminum í dag og finnur
til mikillar meðaumkunar
gagnvart þeim sem minna
mega sín. Leitaðu að tæki-
færi til að hjálpa öðrum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Í dag er heppilegt að
ræða við aðra um frum-
spekileg málefni, trúmál
og heimspeki. Hugur þinn
flýgur hátt og sér frábær
tækifæri.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú vilt nýta eign sem þú
átt með öðrum eða sam-
eiginlegan sjóð til að að-
stoða einhvern. Ræddu við
aðra til að fá fram skoðun
þeirra á málinu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú finnur fyrir viðkvæmni
gagnvart vini eða félaga í
dag. Þetta er jákvætt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú reynir að hjálpa sam-
starfsmönnunum í dag og
leggur ýmislegt á þig til
þess.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert í rómantísku skapi
og vildir helst leika í
Hollywood-kvikmynd með
ástinni þinni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Í dag er gott að slappa af
og gera sem minnst. Þér
er skapi næst að dreyma
dagdrauma og hvíla þig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú skalt forðast áfengi og
lyf í dag. Líkami þinn á
erfiðara en venjulega með
að vinna úr slíku.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þig langar til að eyða pen-
ingum í einhvern lúxus-
varning í dag. Þar sem þú
hefur í hjarta þínu andúð
á eyðslusemi ættir þú að
bíða 1-2 daga og sjá hvort
þér hafi snúist hugur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert næmari en venju-
lega á annað fólk í dag. Þú
virðist gera þér grein fyr-
ir því hvernig því líður og
lest nánast hugsanir þess.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ættir að treysta eðl-
isávísuninni í dag því hún
leiðir þig á réttar brautir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.isMoggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.