Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 49
ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10
KEFLAVÍK
/ Sýnd kl. 5. ísl. tal. / Sýnd kl. 8. Enskt. tal. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 5 og 7.
ÁLFABAKKI KRINGLANÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 5, 7, 8, 9 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14.
Inni
held
ur e
fni s
em
þú h
efði
r ald
rei
feng
ið a
ð sj
á í
sjón
varp
i.
Sjúklegasta grínmynd ársins er komin í bíó.
Kvikmyndir.is
Radíó X
AKUREYRI KEFLAVÍK
tt logo 210TAK
tt logo 1688DYR
tt logo 4603GLE
Til a› fá tákn e›a tón í símann sendir›u SMS,
dæmi: tt logo 961BIO í 1848.
tt logo 4616GLE
tt logo 6775AST
tt logo 6753AST
tt logo 782TAG
tt logo 20322ANN
tákn skammval
GET THE PARTY STARTED
Pink
GET OVER YOU
Sophie Ellis Bextor
CALL ME
Moroder
tt ton 121POP
tt ton 122POP
tt ton 5DIS
tónn skammval
N‡justu
tónar og tákn
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
8
3
5
2
/ sia
.is
tt logo 105TEI
tt logo 2613BIL
JUST LIKE A PILL
Pink
ÉG SJÁLF
Írafár
LIFE IS LIFE
Hermes House Band & DJ Ötzi
IN THE SUMMERTIME
Mungo Jerry
tt ton 114POP
tt ton 117POP
tt ton 75ISL
tt ton120POP
fiessir tónar og tákn eru eingöngu fyrir Nokia-síma. Hver sending kostar 59 kr.
Kíktu á vit.is til a› sjá fleiri
tóna og tákn.
Ná›u flér strax í heitustu táknin og svölustu tónana í GSM-símann flinn.
Í hverri viku bætast vi› n‡ tákn og n‡ir tónar.
DILEMMA
Nelly ásamt Kelly Rowland tt ton 112POP
IN MY PLACE
Coldplay tt ton 119POP
THE TIDE IS HIGH
Atomic Kitten tt ton 116POP
SJÖ greinar í útbreiddasta dagblaði
Lettlands eru afrakstur mán-
aðarheimsóknar blaðamannsins
Ievu Pukite og ljósmyndarans
Kaspars Goba til Íslands í haust.
Greinarnar birtust í aukablaði
Diena, tímaritsútgáfu er fylgir með
blaðinu á laugardögum. Greinarnar
fá gott pláss í blöðunum og gerði
Ieva mat, hesta, heita vatnið og
Vestmannaeyjar að umfjöllunarefni
sínu, svo eitthvað sé nefnt.
Skortur á upplýsingum
Ieva segir það hafa verið mjög
gaman að fylgjast með viðbrögðum
fólks við Íslandsgreinunum. „Ég
vissi ekki að það væri svona mikill
skortur á upplýsingar um Ísland í
Lettlandi. Ég var spurð að mörgu
um Ísland,“ segir hún. Spurning-
arnar eins og: „fórstu að synda í
Geysi?“ og „varstu ekki að frjósa úr
kulda?“ segir Ieva vitna um van-
þekkingu landa sinna á Íslandi.
Mesta athygli í Lettlandi vakti þó
viðtal hennar við Hildi Rúnu
Hauksdóttur, móður hinnar þekktu
söngkonu, Bjarkar Guðmunds-
dóttur. Viðtalið rataði á forsíðu og
bárust blaðinu margar athugasemd-
ir vegna þessa. Rætt var við Hildi
Rúnu m.a. um náttúruvernd.
„Ég get sjálf ekki gert upp á
milli greinanna og viðfangsefna en
fólk virðist hafa haft einna mest
gaman af greininni um móður
Bjarkar,“ segir Ieva.
Á forsíðu aukablaðsins, sem er
dreift í um 70.000 eintökum, stend-
ur: „Bjorkas mammas dumpigums“.
Fyrstu tvö orðin skila sér en Ieva
upplýsir að þriðja orðið þýði „upp-
reisnargjarn“ og vísar það til bar-
áttu hennar gegn Kárahnjúkavirkj-
un.
Blaðið fékk mikil viðbrögð við
greininni og segir Ieva að lesendur
hafi sérstaklega verið að lýsa yfir
stuðningi við málstað hennar. „Les-
endur sögðu hana dæmi um hversu
mikið ein manneskja getur gert, til
dæmis hvað varðar umhverf-
isvernd,“ segir Ieva og spyr um
nýjustu fréttir af Kárahnjúkavirkj-
un.
Ieva og Kaspars heimsóttu virkj-
anaslóðir og segir það hafa haft
mikil áhrif á sig. „Ég held að grein-
in hafi verið tilfinningaríkari en
margar aðrar því við höfðum séð
svæðið í raun,“ segir hún.
Hún segist hafa haft afskaplega
gaman af því að sjá norðurljós á
meðan á dvöl hennar stóð. „Ég sá
þau einu sinni í Lettlandi þar sem
þau eru mjög sjaldgæf. Lettar trúa
því að norðurljós boði stríð þannig
að það er ágætt að þau sjáist ekki
oftar,“ segir Ieva og hlær.
Ieva segir að hún hafi rætt við
prófessor í landafræði í háskólanum
í Riga og hann hafi upplýst hana
um það að nemendur hans hafi
stuðst við Íslandsgreinar hennar í
prófsvörum. „Þetta sýnir að það
hafi virkilega verið skortur í land-
inu á upplýsingum um Ísland,“ seg-
ir hún.
Íslensk listahátíð í Riga?
Á döfinni er að halda einhvers
konar íslenska listahátíð í Riga á
næsta ári, upplýsir Ieva. Hún segir
að hugmyndin sé að halda íslenska
kvikmyndahátíð og tengja hana
öðrum uppákomum. Yrði hátíðin
haldin á vegum Norrænu ráðherra-
nefndarinnar en ekkert sé enn
ákveðið.
Ieva segir að eftir að greinaflokk-
urinn birtist hafi skrifstofu nefnd-
arinnar í Riga borist fjölmargar
fyrirspurnir um Ísland, þannig að
greinilegt er að skrif hennar hafa
vakið áhuga margra á landinu.
Þetta er þó ekki það eina sem
Ieva hefur fengist við að und-
anförnu. Hún dvaldi í þrjá mánuði á
síðasta ári í Ástralíu og skrifaði
greinar um landið líkt og hún gerði
um Ísland. Hún fer í næsta mánuði
til tveggja mánaða dvalar og ætlar
að gefa út bók um landið. „Ég er
komin með útgefanda og ætla að
einbeita mér að málefnum frum-
byggja,“ segir hún.
Ieva lætur þar ekki staðar numið
en hún ætlar einnig að skrifa grein
um Ísland í flugvélablað lettneska
flugfélagsins.
Ieva og Kaspars eru að vinna í að
gefa út bók um Ísland á lettnesku
með myndum Kaspars og texta
Ievu. Hún minnist á að Kaspars
hafi komið áður til landsins, árið
1998, en vinnu við bókina sé enn
ekki lokið og útgáfusamningur ekki
í höfn.
Sækjast sér um líkir
„Einn mánuður var rétt svo nóg
til að byrja að skilja Ísland. Þegar
ég fór hafði ég það á tilfinningunni
að þetta væri bara byrjunin. Ég
reyndi að gera skrifin persónuleg
og forðast staðalmyndir um landið,“
segir hún.
„Okkur fannst mjög gaman á
landinu. Við eigum eftir að koma
aftur,“ segir Ieva fyrir sína hönd og
Kaspars.
„Kannski er eitthvað líkt með
hugsanahætti Letta og Íslendinga.
Ég held það,“ hugleiðir Ieva.
Hún er þakklát öllum, sem hjálp-
uðu henni á meðan á heimsókn
hennar stóð og vill skila kveðju frá
Lettlandi.
Enn fjölgar
Íslandsvinum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljósmyndarinn Kaspars Goba og blaðamaðurinn Ieva Pukite dvöldu í
einn mánuð á Íslandi síðasta haust. Afraksturinn var greinaflokkur um
Ísland í lettnesku dagblaði.
Viðtal við Hildi Rúnu Hauksdóttur,
móður Bjarkar, vakti mikla athygli
í Lettlandi en hún komst á forsíðu
fylgirits dagblaðsins Diena.
Ísland fær góða landkynningu í Lettlandi