Morgunblaðið - 30.01.2003, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 30.01.2003, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Sími 588 1200 Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga www.isb.is Vertu með allt á hreinu 2003 ÍSLENDINGAR sigruðu Pólverja með fjögurra marka mun, 33:29, í gærkvöld og tryggðu sér sæti með- al átta efstu þjóðanna á heims- meistaramótinu í handknattleik í Portúgal. Íslenska liðið er komið með fjög- ur stig í riðlinum og leikur við Spánverja í kvöld kl. 20.30 og er það hreinn úrslitaleikur um hvort liðið leikur um verðlaunasæti á mótinu. Sjö efstu sætin á mótinu gefa þátttökurétt á Ólympíu- leikunum í Aþenu 2004. Morgunblaðið /RAX Komnir í hóp átta bestu í heimi  HM í handbolta/B1–8 FORELDRAR í Skagafirði gætu á næstunni átt von á að þurfa að greiða 1.000 krónur sæki þeir börnin of seint í leikskólann. Farið verður fram á greiðsluna komi það ítrekað fyrir að börnin séu sótt of seint. Fræðslu- og menningarnefnd Skagafjarðar hefur sam- þykkt erindi leikskólastjóra sveitarfé- lagsins þessa efnis og og mun byggðaráð taka málið fyrir á fundi í næstu viku. Leik- skólastjórum hefur verið falið að kynna fyr- irhugaða gjaldtöku og reglur fyrir for- eldrum leikskólabarna. Fimm leikskólar eru í Skagafirði. Góð reynsla á Ólafsfirði „Við lítum ekki á þetta sem fjáröflun fyrir leikskólann heldur aðferð til þess að reyna að koma í veg fyrir að við þurfum sjálf að borga yfirvinnu vegna barna sem eru leng- ur en umsaminn vistunartími segir til um,“ kannski verið sneggri að drífa í því.“ Kristrún segir að búið sé að reyna að beita öðrum aðferðum en að leikskólastjór- ar í Skagafirði hafi verið sammála um að fara nú þessa leið. „Það á eftir að taka þetta fyrir í byggða- ráði en við munum ekki fara af stað með þetta fyrr en við erum búin að kynna þetta mjög vel fyrir foreldrum.“ Að sögn Kristrúnar gæti gjaldtakan hugsanlega komið til framkvæmda 1. mars. Þess má geta að Morgunblaðið greindi frá því á dögunum að sveitarfélög í Dan- mörku vilja að þingið samþykki lög sem heimili þeim að sekta foreldra um 500 danskar krónur, u.þ.b. 5.500 íslenskar krón- ur, komi þeir of seint að sækja börn á leik- skóla. Það er sama upphæð og danskir öku- menn þurfa að borga ef þeir fá stöðumælasekt. segir Kristrún Ragnarsdóttir, leik- skólastjóri á Furukoti á Sauðárkróki. Segir hún nokkuð algengt að börn séu sótt of seint á leikskóla og sé vandamálið þekkt alls staðar á landinu. Kristrún segir það alltaf geta komið fyrir að foreldrar komi stöku sinnum aðeins of seint að sækja börnin og þess vegna verði þeim gefin tvö tækifæri. Í þriðja skipti í hverjum mánuði sem barnið er sótt of seint verður gjaldið innheimt. Engu skiptir þá hvort barnið er sótt fimm mínútum eftir umsaminn vistunartíma eða klukkutíma að sögn Kristrúnar. Hún segir gjaldtöku sem þessa þekkta t.d. á Ólafsfirði og hafi gefið þar mjög góða raun. „Áður en við skrifuðum fræðslu- og menningarnefnd bréf leituðum við okkur upplýsinga annars staðar á landinu. Flestir virðast vilja fara þessa leið en við höfum Foreldrar borgi sekt sæki þeir börnin of seint FULLTRÚAR þýska fyrirtæk- isins RAG Traiding hafa verið í sambandi við forsvarsmenn Norðuráls á Grundartanga um möguleika á að selja rafskaut til álversins í tengslum við fyrirhugaða stækkun þess. Eins og fram kom í blaðinu í gær hefur þýska fyrirtækið sýnt áhuga á að reisa rafskautaverksmiðju í Hvalfirði með 340 þúsund tonna framleiðslugetu. „Við höfum hitt þá þrisvar sinnum en þeir voru hér til að kynna sér aðstæður. Það kom fram á fundi í gær [þriðjudag] að þeir hafa áhuga á að grunnurinn að rekstrinum yrði framleiðsla fyrir Fjarðarál og stækk- unina hjá okkur ef nægilegri stærðarhagkvæmni yrði náð,“ segir Ragnar Guðmundsson framkvæmdastjóri Norðuráls. Að sögn Ragnars hafa Þjóðverjarnir einnig sýnt áhuga á að framleiða rafskaut vegna núverandi fram- leiðslu álversins síðar meir þegar gildandi samningur um innflutning rafskauta rennur út. Ræða við Norðurál um sölu rafskauta  Rafskautaverksmiðja/12 Í FYRRA voru nýskráð 3.120 einkahlutafélög hjá fyrirtækjaskrá Hagstofu Íslands en það jafngildir um 67% fjölgun nýskráninga frá árinu 2001 en þá var 1.871 nýtt fé- lag skráð. Hátt í 400 ný einkahlutafélög stofnuð um smábátaútgerð Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni sýnir sundurliðun yf- irflokka atvinnugreina að ný- skráningar hafi öll árin 1998–2002 flestar verið í yfirflokknum fast- eignaviðskipti, leigustarfsemi og ýmiss konar sérhæfðri þjónustu en í þann flokk falla m.a. atvinnu- greinar eins og rekstur eignarhaldsfélaga, leiga atvinnu- húsnæðis, hugbúnaðargerð, rekstrarráðgjöf og tækniráðgjöf arkitekta og verkfræðinga. Ný- skráningar í þessum yfirflokki at- vinnugreina voru 882 í fyrra eða 28% af heildarnýskráningum allt árið í fyrra. Af einstökum atvinnugreinum voru nýskráningar flestar í flokknum smábátaútgerð (389) og jukust því næst í leigu atvinnu- húsnæðis (259), þá í húsbygging- um og annarri mannvirkjagerð (215), því næst í rekstri eignar- haldsfélaga (116) og matsölustaða (105). Hlutfallslega jukust nýskrán- ingar í fiskveiðum einna mest eða um 331%, þá í landbúnaði, dýra- veiðum og skógrækt eða um 153% og í heilbrigðis- og félagsþjónustu eða um 124%. Af landsvæðum voru langflestar nýskráningar á höfuðborgarsvæð- inu árið 2002, alls 1.286 eða 69% allra nýskráninga í fyrra. Suður- land var með næstflestar nýskrán- ingar eða 114 (6,1%), en fæstar á Norðurlandi vestra (50 eða 2,7%). Af þeim tuttugu atvinnugrein- um þar sem mest var um nýskrán- ingar var landsbyggðin með meira en helming nýskráninga í aðeins fjórum atvinnugreinum. Þessar atvinnugreinar eru smá- bátaútgerð, útgerð fiskiskipa yfir tíu brúttólestum, akstur flutninga- bíla og leiga á vinnuvélum með stjórnanda. Skráð einkahluta- félög 3.120 í fyrra 331% fjölgun í fiskveiðum KOSTNAÐUR við nýtt launakerfi borgarfulltrúa Reykjavíkur, sem samþykkt var að greiða eftir frá 1. júlí á síðasta ári, hefur farið fram úr áætlunum. Launanefndin, sem vann upphaflega að breyting- unum, hefur endurskoðað launakerfið og lagði í gær fram breytingar til að lækka launakostnað. Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, sem á sæti í nefndinni ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Ingu Jónu Þórðardóttur, segir að fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar hafi sýnt talsverða hækkun á launalið fyrir setu í borgarstjórn og nefnd- um á vegum borgarinnar. Upphaflega hafi ekki staðið til með kerfisbreytingunni að hækka laun heldur færa launakerfið nær því sem gerðist á Alþingi og að meira jafnræði væri með launagreiðslum hinna kjörnu full- trúa. Síðan þá hafa borgarfulltrúar þegið föst laun fyr- ir störf sín í ákveðnu hlutfalli af þingfararkaupi, auk sérstaks álags fyrir setu í borgarráði og formennsku í nefndum. Sigrún segir að einhverjar forsendur, sem ekki var gert ráð fyrir, hafi skekkt útreikninga og ekki hafi all- ar upplýsingar legið fyrir þegar þessi vinna fór fram, eins og skipan borgarfulltrúa í nefndir, fjöldi áheyrn- arfulltrúa og innkomur varamanna. Laun borgar- fulltrúa lækka ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.