Morgunblaðið - 06.02.2003, Síða 1

Morgunblaðið - 06.02.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 35. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 mbl.is Myrkir músíkdagar Spjallað um stef og stefleysur, hljóma og kadensur Listir 22 Litagleði og kynþokki Tískuhönnun og ekki síður fyrirsæturnar hafa vakið athygli í Brasilíu Fólk 46 Stefnan tekin á Aþenu Íslensku dómararnir á HM voru meðal fimm bestu para í Portúgal Íþróttir 40 Powell gerði á fundinum grein fyrir því sem hann kallaði „sannanir“ um að Írakar væru brotlegir við ályktanir SÞ og að þeir ættu samstarf við al- Qaeda-hryðjuverkasamtökin. Lagði hann fram gervihnatta- myndir máli sínu til stuðnings og lék hljóðupptökur sem hann kvað m.a. sanna að Írakar hefðu komið efna- vopnum undan vopnaeftirlitsmönnum og að þeir ynnu að þróun eldflauga sem bryti í bága við samþykktir SÞ. Powell sagði að „safn staðreynda og uggvænlegt hegðunarmynstur“ væru staðfesting þess að Írakar væru brotlegir við ályktanir öryggisráðs- ins, sem gera ráð fyrir afvopnun þeirra og að þeir sýni vopnaeftirlits- mönnum samstarfsvilja. Hann spilaði m.a. upptöku af samtali tveggja ír- askra herforingja 26. nóvember sl. þar sem þeir voru að ræða væntan- lega heimsókn Mohameds ElBar- adeis, yfirmanns Alþjóðakjarnorku- málastofnunarinnar, í bækistöðvar annars þeirra. B er hershöfðingi og hafði hann – að sögn Powells – áhyggjur af því að A væri með ólög- legan vopnabúnað. A: „Við erum með breyttan vagn [hreyfanlega efnavopna- verksmiðju]. Hvað gerum við ef þeir sjá hann?“ B: „Þú varst ekki með breyttan vagn, er það? Þú hefur ekki einn slíkan?“ A: „Jú, ég er með einn.“ B: „Hvaða vagn, hvar fékkstu hann?“ A: „Úr vinnubúðunum, hjá Al Kendi-fyrirtækinu.“ B: „Hvað segirðu?“ A: „Frá Al Kendi.“ B: „Ég kem og heimsæki þig í fyrramálið. Ég hef áhyggjur. Þið eruð allir ennþá með eitthvað.“ A: „Við fluttum allt á brott. Hér er ekkert lengur.“ Frakkar vilja efla eftirlitið Ræða Powells stóð í tæpar níutíu mínútur og eftir að hann hafði lokið máli sínu tóku fulltrúar annarra ríkja, sem sæti eiga í öryggisráðinu, til máls. Ekki var að sjá að málflutning- ur Powells hefði orðið til þess að menn skiptu um skoðun í málinu en margir þeirra, sem til máls tóku, sögðu að skoða yrði þau gögn betur, sem Powell lagði fram. Af þeim þjóðum, sem eiga sæti í ör- yggisráðinu, hafa aðeins Bretar lýst yfir stuðningi við þá stefnu Banda- ríkjanna að afvopna Íraka með valdi, ef með þarf. Aðrar þjóðir, þ.á m. Frakkar, töldu ræðu Powells hins vegar sýna að herða ætti á vopnaeft- irlitinu til muna. Dominque de Villepin, utanríkis- ráðherra Frakklands, útilokaði þó ekki að Frakkar, sem hafa neitunar- vald í öryggisráðinu, yrðu reiðubúnir til að samþykkja beitingu hervalds þegar ljóst væri orðið að enginn ann- ar kostur væri í stöðunni. „Við fluttum allt á brott“ Colin Powell segir ljóst að Írak sé brot- legt við ályktun SÞ COLIN Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði að grípa til aðgerða til að bregðast við „kerfisbundum“ tilraunum Íraka til að fela vopnabúr sín fyrir vopnaeftirlitsmönnum SÞ. „Við samþykkt- um ályktun hér á þessum vettvangi í haust til að gefa Írak loka- tækifæri [til að afvopnast]. Írak hefur ekki nýtt sér þetta loka- tækifæri,“ sagði Powell á fundi öryggisráðsins í gær. AP Fulltrúar í öryggisráði SÞ hlýddu af athygli á Colin Powell er hann kynnti meint sönnunargögn Bandaríkjastjórnar um brot Íraka á ályktun ráðsins. RAGNAR G. Kristjánsson, sendiráðunautur fastanefndar Íslands hjá Sameinuðu þjóðun- um, segir loft hafa verið lævi blandið á fundi öryggisráðs SÞ í gær. Fundurinn hafi verið raf- magnaður en of snemmt væri að meta áhrif hans á gang mála í Íraksdeilunni. „Ég hef verið hér í New York í tæp tvö ár og á þeim tíma hef- ur margt gerst; fundur í fyrra um Alþjóðasakamáladómstól- inn var stormasamur, að ekki sé talað um fundinn í kjölfar árásanna á Bandaríkin 11. september 2001, en ég hef aldr- ei séð jafn mikið fjölmiðlafár í kringum einn fund og þennan,“ sagði Ragnar, sem sat fundinn fyrir Íslands hönd. Ragnar sagðist jafnframt aldrei hafa séð jafn margt fólk í fundarsal öryggisráðsins. Bæta hefði þurft við stólum í salinn og takmarka varð aðgang þess fólks, sem starfar í höfuðstöðv- um SÞ. Ragnar sagði fundarmenn hafa hlustað af mikilli athygli á Colin Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna. „Það er oft þannig á fundum öryggis- ráðsins að fólk er mikið á ferð- inni, fer inn og út úr fundar- salnum. Ég tók hins vegar sérstaklega eftir því að það var óvenju lítið um þetta núna. Menn sátu sem fastast þessar fjórar klukkustundir sem fund- urinn stóð. Viðstaddir hlustuðu mjög gaumgæfilega á alla um- ræðuna, bæði ræðu Powells og þeirra sem tóku til máls á eftir honum.“ Aldrei séð slíkt fjöl- miðlafár Reuters Colin Powell sagði Íraka eiga milt- isbrandsbirgðir en ekki þyrfti mik- ið af honum til að bana fólki. Sameinuðu þjóðunum. AFP, AP.  Saddam/26 COLIN Powell lét bregða upp á skjá samtölum milli foringja í írösku sérsveitunum, Lýðveld- isverðinum. Eitt þeirra var á þessa leið: A: „Nefnið þetta ekki, nefnið þetta ekki.“ B: „Þetta orð, þetta orð. Ég skil.“ A: „Taugagas, taugagas. Hvenær sem um það er að ræða.“ B: „Ég skil.“ A: „Hvenær sem um það er að ræða.“ B: „Í þráðlausum fjarskipta- boðum, í fjarskiptaboðum.“ A: „Taktu eftir. Í þráðlausum fjarskiptaboðum.“ B: „Þráðlausum. Ég skil.“ Powell sagði, að skipunin stafaði augljóslega af því, að Írakar hefðu óttast, að þráðlausu samtölin væru hleruð. Sú hefði líka verið raunin. „Nefnið þetta ekki“ ÍRAKAR fóru í gær hörðum orðum um ræðu Colins Powells, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, í örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna en þeir sögðu að um „dæmigert bandarískt sjónarspil“ hefði verið að ræða með tilheyrandi „brellum“. Sögðu Írakar að Powell hefði engar sannanir fært fram um meint brot Íraka gegn ályktun öryggisráðsins, heldur ein- göngu ósannar ásakanir. Amr al-Saadi hershöfðingi, ráð- gjafi Saddams Husseins Íraksfor- seta, gerði lítið úr hljóðupptökum af samtölum íraskra embættismanna, sem Powell spilaði og sagði að gæfu til kynna að Írakar feli vopnabúr sín fyrir vopnaeftirlitsmönnum SÞ. Sagði hann að „hvaða þriðja flokks leyniþjónusta sem er“ hefði getað framleitt þessar upptökur. Mohammed Al-Douri, sendiherra Íraka hjá SÞ, tók í sama streng. „Það kom ekkert nýtt fram, ein- ungis hljóðupptökur sem ekki er hægt að sanna að séu ósviknar,“ sagði hann. Þá sagði hann augljóst að markmið Powells hefði verið að að reyna að réttlæta hernaðarað- gerðir gegn Írak sem engin réttlæt- ing væri fyrir. Al-Douri hafnaði því einnig að tengsl væru milli íraskra stjórn- valda og al-Qaeda-hryðjuverkasam- takanna. „Ef við ættum í samskipt- um við al-Qaeda og við teldum það samband af hinu góða þá myndum við ekki hika við að viðurkenna það,“ sagði hann. Írakar hafna fullyrð- ingum Bandaríkjanna Kalla ræðu Powells „banda- rískt sjónarspil“ Bagdad. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.