Morgunblaðið - 06.02.2003, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.02.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ UPPLAGSEFTIRLIT Verslunar- ráðs Íslands hefur tekið saman eft- irfarandi upplýsingar um seld ein- tök af Morgunblaðinu og prentun og dreifingu Fréttablaðsins: „Fréttablaðið er nú í fyrsta skipti þátttakandi í Upplagseftirliti Verslunarráðs Íslands, en frá upp- hafi hefur Morgunblaðið eitt nýtt sér þessa þjónustu. Annars vegar er um að ræða eft- irlit með seldum eintökum Morg- unblaðsins fyrir tímabilið júlí – desember 2002 og hins vegar í fyrsta skipti upplýsingar um prentun og dreifingu Fréttablaðs- ins. Tölur Fréttablaðsins eru fyrir tímabilið október til desember en þeir gerðu samning við Verslunar- ráðið í lok september 2002. Við skoðun á upplagi Morgun- blaðsins síðari helming liðins árs, júlí til desember 2002 í samræmi við reglur Upplagseftirlits VÍ, var staðfest að meðaltalssala blaðsins á dag var 53.612 eintök. Sama tíma árið 2001 var meðaltalssalan 54.687 eintök á dag. Ofangreindar upplýs- ingar eru staðfestar með skoðun bókhaldsgagna Morgunblaðsins. Við skoðun á prentuðu upplagi af Fréttablaðinu fyrir tímabilið október – desember 2002, var stað- fest að prentuð blöð á tímabilinu voru að meðaltali 86.700 á dag. Fréttablaðinu er ýmist dreift með útburði í hús með bréfberum eða með því að blöðin eru lögð fram til dreifingar í verslunum og fyrir- tækjum. Samkvæmt upplýsingum frá blaðinu var dreifingin eftirfar- andi: Dreifð blöð með blaðberum á Stór-Reykjavíkursvæðinu, og á Akureyri, 76.403. Blöð lögð fram til dreifingar á Stór-Reykjavíkur- svæðinu, á Akureyri og á lands- byggðinni, 9.711. Samtals var dreifingin því 86.114 eintök. Um er að ræða meðaltalstölur hvers dags á tímabilinu. Upplagseftirlit Verslunarráðs- ins annast einnig eftirlit og stað- festingu upplags prentmiðla fyrir útgefendur, sem óska eftir því og gangast undir eftirlitsskilmála. Trúnaðarmaður eftirlitsins er Reynir Vignir löggiltur endurskoð- andi hjá PricewaterhouseCoopers og umsjónarmaður er Sigríður Ásthildur Andersen lögfræðingur VÍ.“ Upplagseftirlit Verslunarráðs Íslands júlí til desember 2002 Morgunblaðið selt í 53.612 eintökum FJÖLSKYLDA Gunnlaugs Briem, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, færði landbúnaðarráðuneytinu málverk af Gunnlaugi að gjöf í gær. Garðar Briem, sonur Gunnlaugs, segir að faðir sinn hafi fengið verkið í afmælisgjöf frá helstu samstarfs- mönnum þegar hann varð fimm- tugur 5. febrúar 1973. Síðustu æviár föðurs síns hafi komið til tals innan fjölskyldunnar að sómi yrði að verk- inu á veggjum stjórnarráðsins þar sem Gunnlaugur starfaði þangað til hann var orðinn sjötugur. Í máli Guðna Ágústssonar kom fram að þá hafði Gunnlaugur unnið fyrir 33 ráð- herra. Fyrst hóf Gunnlaugur störf í at- vinnumálaráðuneytinu í gamla tukt- húsinu sem nú hýsir forsætisráðu- neytið. Eftir að Arnarhvoll var byggður var ráðuneytinu skipt í landbúnaðar-, sjávarútvegs- og iðn- aðarráðueyti. „Í hans hlut féll land- búnaðarráðuneytið að því talið er vegna þess að landbúnaðarmálin hafi helst snert hann,“ segir Garðar. Gunnlaugur var mikill áhugamað- ur um skógrækt og las mikið að sögn Garðars. Þó hélt hann sig fyrir utan ýmiss konar félagsstarf þar sem honum þótti það ekki fara saman við embættisstörfin. Garðar segir föður sinn hafa haft mikinn áhuga á starfi sínu og með honum starfað fjöldinn allur af góðum mönnum sem enn minnist hans. Gáfu landbúnaðarráðuneytinu málverk af Gunnlaugi Briem Vann fyrir 33 ráðherra Morgunblaðið/Golli Garðar Briem, Hrafnhildur Briem, Guðrún Briem og Þráinn Þórhallsson ásamt Guðmundi B. Helgasyni og Guðna Ágústssyni ráðherra. TÓMAS Ingi Olrich menntamálaráðherra hefur ákveðið að báðum tilboðunum sem bárust í bygg- ingu rannsókna- og nýsköpunarhúss við Háskól- ann á Akureyri skuli hafnað, útboðið afturkallað og framkvæmdin boðin út að nýju með þátttöku sömu aðila og áður. Tvö tilboð bárust í byggingu hússins að undangengnu lokuðu forvali, annars vegar frá Ístaki og Nýsi og hins vegar frá Íslensk- um aðalverktökum (ÍAV), ISS á Íslandi og Lands- afli. Tómas Ingi segir að nýtt útboð gæti farið fram þegar í þessum mánuði. Þótt verkið yrði í meginatriðum boðið út óbreytt, verði gerðar breytingar á útboðsskilmálum. Tómas Ingi sagði að útboðsferlið tæki um tvo mánuði og hann sagði að því stefnt að hefja framkvæmdir í sumar og ljúka þeim haustið 2004. Þá sagði hann að skuld- bindingar þeirra ráðuneyta og stofnana sem komu að verkefninu verði með sama hætti og í fyrra út- boði. Framkvæmd á annan milljarð króna Hér er um svonefnda einkaframkvæmd að ræða upp á vel á annan milljarð króna. Til stóð að hefja framkvæmdir við byggingu hússins sl. sumar. Sér- stök valnefnd valdi tilboð ÍAV og samstarfsaðila en í kjölfarið kærðu Ístak og Nýsir útboðið til kærunefndar útboðsmála, sem úrskurðaði tilboð ÍAV og samstarfsaðila ógilt. Hann sagði að nefnd um byggingu rannsókna- hússins hefði farið yfir málið og endurmetið tilboð Ístaks og Nýsis en ekki hefði verið ástæða til að endurmeta tilboð ÍAV, þar sem það hafi verið ógilt með úrskurði kærunefndar. „Það var niðurstaða nefndarinnar að tilboð Ístaks og Nýsis uppfyllti ekki markmið útboðsins, hvað varðar verð og gæði og verulegir annmarkar væru á þeirri lausn sem tilboðið byggist á. Þá liggur fyrir að þar sem að- eins er um eitt gilt tilboð að ræða, er samanburður á tilboðum útilokaður og mat á því hvaða lausnir eru bestar ekki framkvæmanlegt. Af þeirri ástæðu einni er hægt að hafna tilboðinu, m.a. sam- kvæmt gengnum dómum Evrópudómstólsins.“ Báðum tilboðum í byggingu rannsókna- og nýsköpunarhúss við HA hafnað Verkið boðið út aftur síðar í þessum mánuði „ÞAÐ er alveg ljóst að ráðherra ferðamála hefur áhuga á að leita leiða til þess fjölga ferðamönnum til landsins. Það höfum við gert og það hefur tekist býsna vel,“ segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Hann telur þó fátt benda til þess að kostnaður vegna flugvallargjaldsins bægi frá farþegum: „Það blasir við samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum að Keflavíkurflugvöllur sker sig ekki úr í gjaldtöku miðað við aðra flugvelli. Vegna fullyrðinga á Alþingi er rétt að vekja athygli á því að farþega- skatturinn á Kaupmannahafnarflug- velli er 90 krónur danskar eða um þúsund íslenskar krónur og í Frank- furt er skatturinn hærri en hér eða um 1.280 krónur.“ Sturla segir ljóst að Íslendingar verði að líta á flugvallarkerfið hér sem nokkra heild. „Keflavíkur- flugvöllur yrði ekki rekinn nema vegna þess að flugvellirnir í Reykjavík, á Ak- ureyri og Egils- stöðum eru til staðar sem vara- vellir. Ef þeir væru aðeins not- aðir fyrir flug- vélar í innan- landsflugi væri uppbygging flug- vallanna miklu ódýrari. Þarna er ég ekki bara að ræða um vellina sjálfa heldur og flugöryggið og á þetta verður að líta sem heild.“ Sturla segir að menn hafi verið að vinna í því að bregðast við athuga- semdum ESA vegna farþegaskatts- ins en hafi ekki talið skynsamlegt að fjalla mikið opinberlega um þá kosti sem séu til staðar meðan þær deilur standi. „Ég hef þó bent á að það yrði að jafna gjaldtökuna en þá verða menn jafnframt að taka mið af því grundvallaratriði að innanlandsflug- ið getur ekki tekið á sig hækkun. Menn eru loksins farnir að ná árangri þar þannig að flugið sé rekið nálægt núllinu. Það er því mjög erfitt að ætla að ganga til þess verks að hækka farþegaskatt í innanlands- flugi um kannski 500-600%. Ég tel að það sé ekki inni í dæminu.“ Tryggja þarf fjármuni „Þá vaknar auðvitað,“ segir Sturla, „spurningin um þá leið sem Morgunblaðið fagnar í leiðara, þ.e. að lækka gjaldið í millilandafluginu. Samgönguráðherra stendur þar frammi fyrir því að búið er að af- greiða fjárlög en samkvæmt fjárlög- um er gert ráð fyrir að farþegagjald- ið standi undir rekstri flugvallanna. Það er gersamlega óábyrgt að tala um að lækka flugvallarskattinn án þess að tryggðir séu fjármunir til þess að reka flugvellina því þá myndi vanta rúman hálfan milljarð frá skattgreiðendum til þess að reka flugvallarkerfið innanlands. Þannig að þetta er ekki eins einfalt og menn vilja vera láta.“ Lækkun skatta í millilandaflugi Kostar hálfan milljarð króna Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ♦ ♦ ♦ LAND Rover Discovery-jeppinn sem fór niður um vök á Hafravatni á mánudagskvöld náðist á þurrt í gærkvöld eftir heils dags björg- unaraðgerðir. Kafað var með of- urtóg niður að jeppanum og það tengt við Range Rover- og Humm- er-jeppa í landi með 4 og 6 tonna spilbúnað. Discovery-jeppinn var á hvolfi á 10 metra dýpi og var byrjað á því að koma honum á hjólin þar sem hann lá á vatnsbotninum. Síðan var hann dreginn á land um 40 metra vegalengd undir 15–20 cm þykkum ís og tekinn upp um vök nálægt landi sem söguð var út með keðju- sög. Köfunarþjónusta Árna Kóps- sonar sá um aðgerðir og sagðist Árni aldrei á ferli sínum hafa notað aðra eins aðferð, en hún hafi legið í augum uppi og ekkert annað komið til greina. Vel gekk að draga jepp- ann á land en undir það síðasta var um mjög brattan fláa að fara og reyndi það verulega á Range Rov- er-jeppann. Discovery-jeppinn mun ekki vera mjög mikið skemmdur og á að vera hægt að koma honum aft- ur í gagnið eftir fáeinar vikur að lokinni sérstakri hita- og þurrk- meðferð. Jeppinn í Hafra- vatni kom- inn á þurrt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.