Morgunblaðið - 06.02.2003, Síða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Nú verður þú að slá hana eldsnöggt í hausinn, hún svindlar.
Málþing um stjórnun, fagstéttir og kynferði
Kynjafræðilega
sjónarhornið
Rannsóknarstofnun íkvennafræðumverður með mál-
þing um stjórnun, fag-
stéttir og kynferði á morg-
un. Einn fyrirlesara er
Dagbjört Þyrí Þorvarðar-
dóttir, hjúkrunarforstjóri
við Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga á Húsavík.
– Hvert er tilefni þessa
málþings?
„Efni málþingsins er að
ræða um stjórnun, fag-
stéttir og kynferði og að
kynna rannsóknir sem
gerðar hafa verið á kven-
stjórnendum í heilbrigðis-
kerfi, menntakerfi og fé-
lagsþjónustu.“
– Hver er tilurð þessa
málþings og hverjar verða
þar helstu áherslur?
„Rannsóknum á vinnu kvenna
og karla út frá kynjasjónarmiði
hefur fjölgað mikið síðustu árin.
Þessar rannsóknir hafa að mestu
beinst að stjórnendum fyrirtækja
og stofnana þar sem konur eru í
minnihluta og mismunun gagn-
vart þeim. Á þessu málþingi
verða kynntar rannsóknir sem
gerðar hafa verið á vinnustöðum
þar sem konur eru í meirihluta.
Fjallað verður um vinnuumhverfi,
samskipti og stjórnun stofnana
skoðuð út frá kynjafræðilegu
sjónarhorni.“
– Hverjir tala og um hvað?
„Guðný Guðbjörnsdóttir pró-
fessor mun segja frá rannsóknum
sínum á kvenstjórnendum í
menntakerfinu og tengja niður-
stöður sínar við fræðilega um-
ræðu um kynjaðar hugmyndir um
leiðtoga og stjórnendur. Steinunn
Hrafnsdóttrir, lektor í félagsráð-
gjöf, mun fjalla um vinnuum-
hverfi stjórnenda í félagsþjón-
ustu. Erindið byggist á rannsókn
hennar á vinnuumhverfi stjórn-
enda í félagsþjónustu hér á landi.
Þóra Margrét Pálsdóttir sálfræð-
ingur mun kynna rannsókn sína á
viðhorfum starfshópa á sjúkra-
húsdeild til samskipta og sam-
vinnu í ljósi þeirrar verkaskipt-
ingar og þrepakerfisstýringar
sem fyrir hendi er á sjúkrahús-
um. Dr. Þorgerður Einarsdóttir
mun flytja erindi sem kallast
„Elítismi“, vald og lýðræðisleg
fagmennska. Þar ræðir hún um
þýðingu kynferðis í rannsóknum
á sérfræðihópum.Ég mun flytja
erindi sem ég nefni „Karlinn í
brúnni“ og fjallar um rannsókn
mína á áhrifum kynferðis á
stjórnun sjúkrahúsa.“
– Segðu okkur frá erindi þínu,
um hvað það fjallar og hvaða at-
huganir og rannsóknir þar eru að
baki.
„Í erindi mínu kynni ég rann-
sókn sem ég gerði árið 2001 og
var lokaverkefni mitt til meistara-
gráðu við háskólann í York. Til-
gangur rannsóknarinnar var að
skoða stjórnun sjúkrastofnana út
frá kynjafræðilegu sjónarhorni og
einnig að athuga hvort kynferði
hafi áhrif á þá togstreitu sem
gætt hefur milli lækna
og hjúkrunarfræðinga.
Heilbrigðisþjónustan
einkennist af kynja-
skiptingu fagstétta þar
sem 98% starfandi
hjúkrunarfræðinga á Íslandi eru
konur, mikill meirihluti starfs-
fólks heilbrigðisþjónustunnar er
konur, en karlar eru í meirihluta í
læknastétt. Ennfremur voru allir
framkvæmdastjórar sjúkrahúsa
karlmenn á þeim tíma sem rann-
sóknin var gerð. Athuguð voru
viðhorf kvenstjórnenda innan
lækninga og hjúkrunar til stjórn-
unar auk þess að greina viðhorf
þeirra til togstreitunnar sem gætt
hefur milli fagstéttanna. Helstu
niðurstöður gefa til kynna að tog-
streita milli lækna og hjúkrunar-
fræðinga snýst um völd. Því er
haldið fram að baráttan um völdin
sé kynjuð og að valdapýramídi
sjúkrahúsa sé í raun kynjaður.
Undanfarin ár hefur mikil áhersla
verið lögð á hagræðingu og
styrka stjórnun inan heilbrigðis-
kerfisins. Segja má að hinn harði
stjórnunarstíll hafi verið innleidd-
ur inn í heilbrigðiskerfið, kerfi
þar sem um 80% starfsmanna eru
konur. Karlar sitja í valdamestu
stöðunum og konur í stjórnunar-
stöðum bera hitan og þungann af
heimilisstörfum og uppeldi barna
sinna.“
– Þetta er á vegum Rannsókn-
arstofu í kvennafræðum, eiga þá
konur einar erindi á málþingið?
„Nei, alls ekki. Allir sem hafa
áhuga á samskiptum, stjórnun og
jafnréttismálum eiga erindi á
þingið. Sérstaklega getur þingið
höfðað til stjórnenda, því hingað
til hafa jafnréttismál ekki verið
nægilega á dagskrá hjá æðstu
stjórnendum og segja má að
ákveðin kynjablinda einkenni
stjórnun fyrirtækja og stofnana.“
– Hvað eru eiginlega kynja-
fræði?
„Svo notuð séu orð
dr. Þorgerðar Einars-
dóttur er kvennafræði
fræðasvið sem felur í
sér kynjafræðilega
nálgun á viðfangsefni
nánast allra fræðigreina. Þetta
fræðasvið er að þróast sem sjón-
arhorn innan hinna ýmsu fræði-
greina þar sem kynjafræðilegt
sjónarhorn er samþætt fræði-
greininni en líka sem sjálfstætt
fræðasvið þar sem eru að þróast
sérstakar kenningar og aðferðar-
fræði. Það er fátt sem hefur eins
mótandi áhrif á líf okkar en það
hvort við fæðumst karl eða kona.“
Dagbjört Þyrí Þorvarðardóttir
Dagbjört Þyrí Þorvarðar-
dóttir er fædd í Reykjavík 1958.
Stúdent frá MR 1979 og BSc í
hjúkrunarfræði frá HÍ 1985.
Lauk námi í heilsuhagfræði frá
Endurmennt HÍ 1996 og námi í
rekstri og stjórnun í heilbrigð-
isþjónustu frá sama skóla 1998.
MA í kvennafræði og stjórnun
frá Háskólanum í York 2002.
Hjúkrunarfræðingur og aðstoð-
ardeildarstjóri á hjartadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur 1985–92
og deildarstjóri 1992–94. Stund-
arkennari við HÍ 1985–1992 og
lektor við Háskólann á Akureyri
1996–97. Hjúkrunarforstjóri við
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
frá 1998. Gift Guðna Kristinssyni
lyfjafræðingi og eiga þau þrjú
börn.
… viðhorf
þeirra til tog-
streitunnar