Morgunblaðið - 06.02.2003, Side 11

Morgunblaðið - 06.02.2003, Side 11
MÁL MAGNÚSAR LEÓPOLDSSONAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 11 Í RANNSÓKN sérstaks saksóknara kom ekkert fram sem bendir til þess að lögreglumenn í Keflavík sem önn- uðust frumrannsókn á hvarfi Geir- finns Einarssonar árið 1974 hafi ætl- að að láta leirmynd af manni sem talinn var tengjast málinu, líkjast Magnúsi Leópoldssyni. Orðrómur, söguburður eða annað varð ekki til þess að Magnús Leópoldsson var handtekinn, heldur framburður þriggja sakborninga í Geirfinnsmál- inu. Þá er ekki annað að sjá en að Magnús hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli mjög ríkra rannsóknarhagsmuna og það framlengt af sömu ástæðum. Þetta er niðurstaða rannsóknar Láru V. Júlíusdóttur, sem var sett sem sérstakur saksóknari til að ann- ast opinbera rannsókn á tildrögum þess að Magnús Leópoldsson, sem þá var framkvæmdastjóri skemmti- staðarins Klúbbsins, var á sínum tíma grunaður um aðild að hvarfi Geirfinns og látinn sæta gæsluvarð- haldi í 105 daga á fyrri hluta árs 1976. Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra afhenti Magnúsi skýrsluna í gær en þá voru rúmlega 29 ár liðin frá því hann var hnepptur í gæslu- varðhald. Í skýrslunni kemur fram að til- drög rannsóknarinnar voru þau að 19. apríl 1998 fór Magnús fram á það við dómsmálaráðuneytið að það hlut- aðist til um að athugun yrði gerð á staðhæfingum vitna í heimildar- myndinni „Aðför að lögum“. Þar var því haldið fram að lögreglumenn hafi í árslok 1974 gerst sekir um tilbúning sönnunargagna til að bendla Magnús við hvarf Geirfinns. Lögum um með- ferð opinberra mála var breytt til að rannsóknin gæti farið fram og var Lára skipuð sérstakur saksóknari til að annast rannsóknina 25. maí 2001. Baldvin Einarsson, lögreglufulltrúi í Reykjavík, var henni til aðstoðar. Allir þættir Keflavíkur- rannsóknarinnar kannaðir Skýrsla Láru V. Júlíusdóttur er tæplega 100 blaðsíður. Stærstur hluti hennar fjallar um aðdraganda þess að gerð var leirmynd, sem byggð var á lýsingu vitna á manni sem kom í Hafnarbúðina í Keflavík 19. nóvember 1974, og hvernig staðið var að gerð hennar. Maðurinn fékk að hringja frá Hafnarbúðinni en um svipað leyti fékk Geirfinnur símtal sem varð til þess að hann yfirgaf heimili sitt og hefur ekki sést síðan. Ákveðið var að rannsaka alla þætti hinnar svokölluðu Keflavíkur- rannsóknar sem hófst eftir að Geir- finnur hvarf. Rætt var við flesta sem komu að rannsókninni og tilurð leir- styttunnar könnuð ítarlega. Rétt er að geta þess að leirmyndin var fyrst sýnd í fjölmiðlum fljótlega eftir hvarf Geirfinns í lok árs 1974 en Magnús var handtekinn í lok janúar 1976. Strax árið 1977 komu fram ásak- anir um að stuðst hefði verið við ljós- myndir af Magnúsi við gerð leir- myndarinnar. Afgreiðslukona í Hafnarbúðinni, var yfirheyrð vegna málsins fyrir Sakadómi Reykjavíkur það ár og aftur árið 1979 þegar Rannsóknarlögregla ríkisins rann- sakaði tilurð leirmyndarinnar. Í bæði skiptin sagði afgreiðslukonan að ekkert samráð hefði verið haft við sig við gerð leirmyndar af mannin- um sem kom í Hafnarbúðina umrætt sinn. Hjá RLR sagðist hún hafa ver- ið reið vegna þess að hún hafi séð að myndin var búin til eftir mynd af Magnúsi Leópoldssyni, en áður hefðu Haukur Guðmundsson, lög- reglumaður og Magnús Gíslason fréttaritari Vísisi verið búnir að elta sig og sýna sér mynd af Magnúsi Leópoldssyni og spyrja sig hvort hún væri ekki lík manninum sem kom í Hafnarbúðina til að hringja. Um hafi verið að ræða myndir af mörgum mönnum í ýmsum stærðum og gerðum, þ. á m. mynd af Magnúsi Leópoldssyni. Fljótlega eftir að rannsókn á hvarfi Geirfinns hófst var þess freistað af rannsóknarað- ilum að gera andlitsmynd af mann- inum í Hafnarbúðinni. Afgreiðslu- konan og 16 ára stúlka, sem einnig var stödd í búðinni, veittu aðstoð sína, en voru ekki ánægðar með út- komuna. Í kjölfarið var leitað til Rík- eyjar Ingimundardóttur og Magnús- ar Gíslasonar til að gera myndir. Lára bendir á að í fyrri leirmyndarann- sókninni árið 1979 megi ætla að lögreglan í Keflavík hafi stuðst við ljósmyndir af einhverjum mönn- um, án þess þó að gruna þá sérstak- lega um að vera valdir að hvarfi Geirfinns, enda hafi verið lítill til- gangur í að teikna upp grunaða af ljósmyndum og bæta síðan inn í ein- hverjum atriðum. „Ef menn hefðu talið Magnús Leópoldsson vera manninn sem kom í Hafnarbúðina hefði verið einfaldara að láta vitni bera kennsl á hann í sakbendingu eða á ljósmyndum,“ segir í skýrsl- unni. „Hins vegar þykir ljóst að Ríkey notaðist síðan við eigin teikningar þegar hún mótaði hið svokallaða leir- höfuð. Það mun ekki vera óþekkt að vitni segi að hinn grunaði líkist ein- hverjum þekktum aðila og lögregla vinni síðan út frá þeirri hugmynd um útlit mannsins. Ekki er loku fyrir það skotið að slíkt hafi gerst þegar umræddar teikningar voru gerðar í mannshvarfsrannsókninni.“ Valtýr Sigurðsson, sem þá var lög- lærður fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Keflavík, taldi útilokað að ljósmynd hafi verið til af Magnúsi á lögreglu- stöðinni í Keflavík áður en leirmynd- in var birt, annars hefði lögreglan ekki síðar þurft að leita eftir mynd- inni hjá þáverandi yfirlögregluþjóni í Kópavogi. Haukur Guðmundsson bar á sama veg, myndin af Magnúsi hafi borist eftir að bent hafði verið á hann í kjölfar birtingar á leirmynd- inni. Hann lagði áherslu á að Magn- ús hefði enga sérstaka meðferð feng- ið hjá lögreglunni í Keflavík og á þessu stigi aldrei verið grunaður um aðild að hvarfi Geirfinns. Telur að ljósmynd af Magnúsi hafi borist lögreglu fyrr John Hill, sem þá var lögreglu- varðstjóri hjá lögreglunni í Keflavík, minnist þess í skýrslutöku í nóvem- ber 2001 að hann hafi séð ýmsar myndir á borði Hauks Guðmunds- sonar, að hann telur áður en leir- myndin var gerð. John taldi að ein myndin hefði verið af Magnúsi Leó- poldssyni og mundi einnig eftir mynd af frægum íslenskum knatt- spyrnumanni. Þá sagðist hann jafn- vel hafa verið búinn að heyra nafn Magnúsar nefnt áður í sambandi við Klúbbinn og smygl á spíra sem átti að tengjast þeim veitingastað. Þetta hefði verið mikið áhugamál hjá Hauki Guðmundssyni áður en rann- sókn á hvarfi Geirfinns hófst. Ríkey Ingimundardóttir sagði í skýrslutöku 14. nóvember 2001 að það hefði verið algjörlega hennar hugmynd að gera leirstyttuna. Að- dragandinn hefði verið sá að þáver- andi eiginmaður hennar, Kjartan Sigtryggsson, þá lögreglumaður í Keflavík, hafi spurt hana hvort hún væri til í að teikna mynd af mann- inum sem kom í Hafnarbúðina til að hringja. Eftir að hafa gert fjölda teikninga sem sjónvarvottar voru ekki nægilega ánægðir með hafi hún ákveðið að móta myndina í leir enda hefði hún verið betri í slíku en að teikna. Einnig væri þægilegra að breyta leirmynd eftir fyrirsögn vitna heldur en eftir teikningu. Við gerð myndar- innar ræddi hún við tvær konur sem höfðu séð umræddan mann. Þriðja konan hefði ekki viljað koma að þessu og borið við minnis- leysi. Aðspurð kvaðst Ríkey ekki kannast við að hafa fengið í hendur ljósmynd- ir af manni eða mönnum frá lög- reglunni í Kefla- vík. Þetta stang- ast á við fyrri framburð hennar en í skýrslutöku hjá RLR kvaðst hún hafa „fengið sendar ljósmyndir af mönnum og ljósmyndir af andlits- pörtum, þ. á. m. augum.“ Ríkey taldi sig ekki hafa áður séð tvær ljós- myndir af Magnúsi sem voru meðal rannsóknargagna í Geirfinnsmálinu, hún hefði ekki heyrt á hann minnst meðan á þessu stóð og reyndar taldi hún Magnús ekki líkjast leirmynd- inni. Hugmyndir kvikna um tengsl Að sögn Valtýs Sigurðssonar lauk Keflavíkurrannsókninni formlega í júní 1975 án þess að nokkur aðili hafi verið yfirheyrður, grunaður um að- ild að hvarfi Geirfinns. Hins vegar voru nokkrir yfir- heyrðir vegna þess að þeir voru grunaðir um að vera maðurinn sem hringdi úr Hafnarbúðinni. Magnús Leópoldsson var ekki þeirra á meðal. Fram kom hjá Valtý að hann fór með öll rannsóknargögn í ferðatösku til ríkissaksóknara í jan- úar 1976. Hann fullyrti hins vegar að þetta hefði með engum hætti tengst upphafi Reykjavíkurrannsóknarinn- ar og gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Magnúsi Leópoldssyni 26. janúar 1976. Í niðurstöðum Láru segir hún að aðeins finnist gögn um að ein ábend- ing varðandi Magnús Leópoldsson hafi borist til lögreglu eftir að leir- myndin var birt. Ekkert bendi til að fleiri ábendingar hafi borist. Hins vegar sé ljóst að nafn Klúbbsins kom inn í umræðu um málið strax á fyrstu dögum rannsóknarinnar, þ.e. í framburði vitna um ferð Geirfinns í Klúbbinn tveimur dögum fyrir hvarf hans. Um svipað leyti var spíra að reka á land á Suðurnesjum. „Ekki er óvarlegt að álykta að einhverjar hugmyndir kynnu að hafa kviknað varðandi tengsl þar á milli sem hafi síðan leitt af sér sögusagnir sem mögnuðust með tímanum og náðu hámarki fljótlega eftir handtöku Magnúsar,“ segir þar. Lára taldi á hinn bóginn sennilegt að lögregla hefði lagt út í alla þá vinnu sem tengdist gerð teikninga og mótun umræddrar leirmyndar ef hún hefði verið sannfærð um sekt Magnúsar. „Það hefði verið fljótlegra, öruggara, árangursríkara og þægilegra að not- ast við hefðbundnar aðferðir við uppljóstrun brota,“ segir í skýrsl- unni. Fangaverðir yfirheyrðu sakborninga Í umfjöllun um tildrög þess að Magnús var handtekinn og færður í gæsluvarðhald er einnig fjallað tals- vert um sögusagnir sem gengu um tengsl Klúbbsins við hvarf Geirfinns. Lára telur að gagnrýna megi rann- sóknaraðila í Keflavík fyrir að veita fjölmiðlum of mikið aðgengi að upp- lýsingum þótt ekki sé hægt að full- yrða að sú upplýsingagjöf hafi með einum eða öðrum hætti ýtt undir þessar sögusagnir. Bent er á að handritaðir minnismiðar sem taldir eru vera frá fyrstu frásögnum Erlu Bolladóttur og Sævars Ciesielski, sem bendluðu Magnús við málið, hafi verið gefnar án þrýstings eða áhrifa frá rannsóknaraðilum. Auk þess hafi Kristján Viðar Viðarsson borið um þátt Magnúsar. Gerð er athugasemd við þátt fangavarða í Síðumúlafangelsinu en fyrirliggjandi gögn eru sögð benda til þess að þeir hafi ekki einungis verið að ræða skipulega við sakborn- inga um málsatvik heldur hafi þeir einnig stundað einhverskonar yfir- heyrslur og látið viðkomandi síðan undirrita framburði sína. „Þetta hlýtur að veikja tiltrú manna á hinni svokölluðu harðræðisrannsókn sem fór fram í lok Geirfinnsmálsins. Þessi gögn, sem stöfuðu frá fanga- vörðum, voru hins veg- ar ekki lögð fyrir dóm og misvísandi skýring gefin á því,“ segir í skýrslunni. Þáttur fangavarðanna var þó talinn liggja utan rannsóknarinnar. Undirmönnuð rannsókn Um ástæður þess að gæsluvarð- haldsvist Magnúsar Leópoldssonar var svo löng sem raun ber vitni, seg- ir í skýrslunni að ekki sé annað að sjá en litið hafi verið til ríkra rann- sóknarhagsmuna við rannsókn á al- varlegu sakarefni þegar hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hið sama ætti við um framlengingu varðhaldsins. Allan tímann á meðan hann sat í fangelsi hafi rannsókn- araðilum verið að berast ábendingar sem tengdust Magnúsi beint eða óbeint. Tekið er fram að svo virðist sem rannsóknin hafi verið undir- mönnuð fram á sumar 1976 þegar ákveðið var að stofna sérstaka rann- sóknarnefnd. Í skýrslunni segir að mikill þrýstingur hafi verið frá fjöl- miðlum og stjórnmálamönnum og án efa hafði það áhrif á gang mála. Það hafi hins vegar ekki haft áhrif á gæsluvarðhaldið eða lengd þess. Ætluðu ekki að láta leir- myndina líkj- ast Magnúsi Morgunblaðið/Þorkell Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra afhenti Magnúsi Leópoldssyni (t.v.) skýrslu sérstaks saksóknara í gær. Viðstaddur var Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Magnúsar. Nafn Klúbbsins, þar sem Magnús Leó- poldsson var framkvæmdastjóri, kom inn í umræðu um Geirfinnsmálið strax á fyrstu dögum rannsóknarinnar. Einhverjar hug- myndir kunna að hafa kviknað um tengsl þar á milli sem síðan leiddu af sér sögusagn- ir er mögnuðust með tímanum. Í skýrslunni segir Lára V. Júlíusdóttir að það hafi vak- ið athygli hennar og fleiri að háralag leirstyttunnar er öfugt miðað við skiptingu Magnúsar Leópoldssonar og flestra annarra. Það sama gildi um teikningarnar tvær og svonefnda raðmynd sem er fyrirliggjandi í málinu. „Þetta samræmi milli teikninganna og leir- myndarinnar vekur athygli og erfitt er að trúa því að bæði Magnús [Gíslason] og Ríkey [Ingimundardóttir] hafi gert slík mistök ef þau hafa stuðst á annað borð við ljósmyndir af Magnúsi við gerð sinna teikninga en ljóst þykir að Ríkey gerði leirmyndina eftir sínum teikningum.“ Ljósmyndin til vinstri er af Magnúsi Leópoldssyni 29 ára gömlum, um það leyti sem hann losnaði úr 105 daga gæsluvarðhaldi árið 1976. Hárgreiðsla hans mun hafa verið talsvert í tísku á þessum tíma. Rannsókn á tildrögum þess að Magnús Leópoldsson var handtekinn vegna Geirfinnsmálsins Aðeins ein ábending barst um Magnús Auðveldara að beita hefð- bundnum aðferðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.