Morgunblaðið - 06.02.2003, Page 12
MÁL MAGNÚSAR LEÓPOLDSSONAR
12 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSANLEGT er að nýfallinn
dómur viðskiptadómstóls í Svíþjóð
um að bann við áfengisauglýsingum
brjóti gegn reglum Evrópusam-
bandsins muni hafa áhrif hér á landi.
Sænski dómstóllinn komst að þeirri
niðurstöðu að sænsku lögin væru
marklaus þar sem þau brjóti gegn
reglum ESB um frjálst flæði vöru og
þjónustu um innri markað sam-
bandsins.
Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri í
dómsmálaráðuneytinu, segir að Ís-
lendingar séu aðilar að sömu reglum
í gegnum EES-samninginn. Hann
telur hins vegar líklegra að dómur
Evrópudómstólsins frá mars 2001,
þar sem niðurstaðan varð sú að til-
teknar greinar í Rómarsáttmála úti-
lokuðu ekki bann við áfengisauglýs-
ingum, hafi áhrif hér á landi heldur
en það hvernig Svíar túlki lög sín.
Að sögn Stefáns skoðaði vinnu-
hópur frá embætti ríkislögreglu-
stjóra á sínum tíma dóm Evrópu-
dómstólsins. Vinnuhópurinn var
settur á laggirnar í mars 2000 til að
gera úttekt á brotum á lögum er
banna áfengisauglýsingar og gera
tillögur um viðbrögð við slíkum brot-
um. Skilaði hópurinn skýrslu undir
lok 2001. „Við höfum verið að ráð-
færa okkur við ríkissaksóknara um
það hvernig væri best að taka á slík-
um brotum og hvort þetta kallaði á
einhverjar breytingar á áfengislög-
um og með hvaða hætti,“ segir Stef-
án.
Hann segir líklegra að dómur
Evrópudómstólsins muni hafa áhrif
hérlendis heldur en það hvernig Sví-
ar túlki sín lög. Hann bendir á að
dómar hafi gengið hér þar sem menn
hafi verið sakfelldir vegna brota
gegn því ákvæði áfengislaga er kveð-
ur á um bann við áfengisauglýsing-
um. „Mér er ekki kunnugt um það,
að menn hafi beðið um ráðgefandi
álit EFTA-dómsólsins í þessum mál-
um. Af okkar hálfu höfum við verið
að skoða málin sérstaklega í ljósi nið-
urstöðu Evrópudómstólsins.“
Kann að hafa
áhrif hér á landi
Auglýsingabann talið brjóta ESB-reglur
ÞAÐ er nauðsynlegt að allir sem
málið skoða átti sig á því að þetta er
skýrsla um rannsókn. Þetta er ekki
dómur eða formlegur úrskurður. Og
þó að það sé ekkert athugavert við
það að saksóknarinn, Lára V. Júl-
íusdóttir, dragi saman sínar niður-
stöður af rannsókninni sem eru
hennar eigin ályktanir, þá hafa þær
ekki mikla þýðingu fyrir málið. Það
sem hefur þýðingu er frásögnin af
rannsókninni á hvarfi Geirfinns og
þeim atriðum sem komu í ljós við
rannsókn saksóknarans,“ segir Jón
Steinar Gunnlaugsson, lögmaður
Magnúsar Leópoldssonar.
Hann fagnar því framtaki stjórn-
valda að láta rannsóknina fara fram
og af því eigi þau sóma skilinn.
Jón Steinar segir að skýrslan
staðfesti að aðeins hafi komið fram
ein ábending um Magnús eftir að
rannsókn hófst á hvarfi Geirfinns
Einarssonar árið 1974. Þá komi líka
fram í vitnisburði lögreglumanns að
lögreglan í Keflavík hafði ljósmynd-
ir af Magnúsi áður en leirmyndin
var gerð. Það sé ljóst að strax í upp-
hafi hafi Klúbburinn verið tengdur
þessari rannsókn. Hvarf Geirfinns
hafi verið sett í samhengi við smygl
á spíra sem starfsmenn Klúbbsins
og Geirfinnur áttu að hafa verið við-
riðnir. Magnús hafi því verið tengd-
ur við málið án þess að fyrir því
væru forsvaranlegar ástæður.
Þá sé gerðin á leirmyndinni
hreinasti farsi. Jón Steinar bendir á
framburð Valtýs Sigurðssonar, sem
þá var fulltrúi bæjarfógetans í
Keflavík, um fund með sérfræðing-
um Sakadóms Reykjavíkur þar sem
borið var undir þá hvort það væri í
lagi að birta leirmyndina. Niður-
staðan hafi orðið sú að myndin var
birt „enda talið að ekki yrði komist
nær lýsingu á manninum en þó hafði
komið fram á fundinum að leir-
myndin þótti ólík þeim myndum
sem fyrir lágu í málinu og gerðar
höfðu verið eftir fyrirsögn vitna.
Þegar leirmyndin var síðan birt í
fjölmiðlum hafi verið tekið fram að
myndin væri talin líkjast manninum
í Hafnarbúðinni samkvæmt lýsingu
sjónarvotta,“ eins og segir í skýrsl-
unni.
Jón Steinar spyr hvers vegna í
ósköpunum myndin hafi verið birt
úr því hún væri ekki talin líkjast
manninum.
Spurður um hvað taki nú við segir
Jón Steinar að aldrei hafi staðið til
að málaferli hlytust af rannsókninni.
Hún hafi eingöngu haft þann tilgang
að leiða sannleikann í ljós.
Jón Steinar Gunnlaugsson um rannsóknarskýrsluna
Tengdur við málið
strax í upphafi
Segir gerð leir-
myndarinnar
hreinan farsa
FRÉTTIR