Morgunblaðið - 06.02.2003, Page 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 17
STJÓRN Strætó bs. hefur ákveðið
að hætta akstri næturvagna og hefur
sú ákvörðun þegar tekið gildi. Á sín-
um tíma var ákveðið að aka á þremur
leiðum aðfaranætur laugardags og
sunnudags, samtals þrjár ferðir á
hverri leið.
Um síðustu helgi var heildarinn-
koman í næturakstri á þremur leið-
um nálægt tíu þúsund krónum.
„Við teljum okkur hreinlega ekki
stætt á því að halda þessu lengur úti
á þessum nótum,“ segir Ásgeir Ei-
ríksson, framkvæmdastjóri Strætó
bs.
„Þessi vagnar eru meira og minna
tómir og einungis örfáir sem notfæra
sér þessa þjónustu. Við erum auðvit-
að hér á bæ stöðugt að velta fyrir
okkur hvernig hagræða megi í
rekstrinum og þetta er ein af þeim
leiðum sem menn sáu að hægt væri
að fara,“ segir Ásgeir.
Í tilkynningu frá Strætó bs. segir
að með tilkomu rýmri reglna um af-
greiðslutíma skemmtistaða hafi eft-
irspurn eftir þjónustu næturvagna
minnkað umtalsvert.
Morgunblaðið/Golli
Á sínum tíma var ákveðið að aka á þremur leiðum aðfaranótt laugardags
og sunnudags, samtals þrjár ferðir á hverri leið.
Strætó bs. hættir akstri næturvagna
Heildarinnkoman var 10
þús. kr. um síðustu helgi
Höfuðborgarsvæðið
BORGARFULLTRÚAR Sjálf-
stæðisflokks hafa í hyggju að
leggja fram tillögu í fræðsluráði
þess efnis að samkeppnisstaða
einkarekinna og borgarrekinna
skóla verði jöfnuð og að borgin
greiði sama framlag með öllum
grunnskólabörnum. Kynntar
voru hugmyndir þess efnis á
fundi borgarstjórnar fyrir viku.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
sem sæti á í fræðsluráði, segir
að í raun sé verið að mismuna
nemendum samkvæmt því fyr-
irkomulagi sem nú sé í gildi.
Í svari forstöðumanns fjár-
málasviðs borgarinnar við fyrir-
spurn fulltrúa D-lista í fræðsluráði
um stuðning borgarinnar við einka-
reknu grunnskólana kemur fram að
Reykjavíkurborg greiðir 228 þúsund
krónur með hverju barni í einka-
reknum skólum á meðan kostnaður á
nemanda í almennum grunnskólum
er að jafnaði um 400 þúsund krónur
og er þá meðtalinn fastur kostnaður
við reksturinn. Hins vegar sé kostn-
aður sem almennur grunnskóli fái á
nemanda samkvæmt reiknilíkani um
170–210 þúsund krónur. Dýrara sé
því í raun fyrir borgina að sam-
þykkja framlag með nemanda í
einkaskóla fremur en að taka nem-
andann í einhvern hinna almennu
skóla. Það eigi þó aðeins við ef ekki
þurfi að byggja nýjan skóla eða
stækka núverandi skóla til að taka
við nemendum úr einkaskólunum.
Hæpið sé að skólarnir geti í dag tek-
ið við öllum nemendum einkaskól-
anna án stækkunar húsnæðis. Í
svari forstöðumanns fjármála-
sviðs kemur jafnframt fram að
framlag borgarinnar á nem-
anda í einkaskóla hafi hækkað
um 115% á fimm árum.
Úttekt gerð á fjárhag
einkaskólanna
Á fundi fræðsluráðs 20. jan-
úar sl. óskuðu fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks jafnframt eftir
upplýsingum um fjárhags- og
rekstrarstöðu Ísaksskóla sem
átt hefur í töluverðum rekstr-
arerfiðleikum að undanförnu.
Formaður fræðsluráðs óskaði
bókað að í upphafi árs hafi
hann ásamt borgarstjóra átt
fund með forráðamönnum skólans
og var í framhaldinu settur á lagg-
irnar vinnuhópur sem falið var að
kanna og gera úttekt á fjárhagsstöðu
einkaskólanna. Í svari forstöðu-
manns fjármálasviðs borgarinnar
kemur fram að samkvæmt niður-
stöðu rekstrarreiknings Ísaksskóla
skólaárið 2001–2 var 24 milljóna
króna tap á rekstrinum og eigið fé
skólans lækkaði úr 101 m.kr. í 77
m.kr.
Sjálfstæðisflokkur vill jafna samkeppnisstöðu
borgarrekinna og einkarekinna skóla
228 þúsund greidd með
nemanda í einkaskóla
Morgunblaðið/Ásdís
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, segir að í raun sé verið að mis-
muna nemendum með því að greiða mismun-
andi framlag til skólanna.
Reykjavík
MAGNÚS Sædal Svavarsson, bygg-
ingarfulltrúi Reykjavíkurborgar,
segir að skipulagslegar forsendur
þurfi að vera fyrir hendi til að hægt
sé að nýta fyrrum atvinnuhúsnæði
undir íbúðarhúsnæði, það þurfi að
vera í samræmi við aðalskipulag og
deiliskipulag á viðkomandi svæði.
Samkvæmt skilgreiningu aðalskipu-
lags megi megi gistiheimili vera á at-
vinnusvæðum en ekki varanlegt
íbúðarhúsnæði.
Í Morgunblaðinu í gær var greint
frá því að að Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins hyggst kanna eldvarnir í
óleyfilegu íbúðarhúsnæði á höfuð-
borgarsvæðinu og beita jafnvel dag-
sektum eða rýma húsnæði þar sem
ástandið er mjög slæmt. Snýr þetta
einkum að atvinnuhúsnæði sem fólk
hefur nýtt undir íbúðarhúsnæði í
trássi við lög.
Spurður hvort hægt sé að breyta
skipulagi í hverfum eins og Höfða-
hverfi í Reykjavík og öðrum hverfum
sem teljast til atvinnusvæða, til þess
að gera fólki kleift að hafa þar fasta
búsetu, segist Magnús telja að það
geti reynst erfitt að öllu óbreyttu.
Auk þess sem breyta þurfi skipulagi
þurfi að huga að ýmiss konar þjón-
ustu sem þurfi að vera fyrir hendi í
hverfinu, t.d. að sjá börnum fyrir
skólavist og huga að lóðum með tilliti
til leiksvæða.
Íbúðir koma í stað
kaupmannsins á horninu
Tugir umsókna berast til bygging-
arfulltrúa á ári hverju þar sem óskað
er eftir að breyta atvinnuhúsnæði í
íbúðarhúsnæði. Magnús segir að í
hverfum þar sem gert sé ráð fyrir
blandaðri byggð atvinnu- og íbúðar-
húsnæðis sé gjarnan sótt um að
breyta gömlu verslunarhúsnæði í
íbúðir. Þetta eigi t.d. við um gömul
og rótgróin hverfi borgarinnar þar
sem kaupmaðurinn á horninu var áð-
ur. Þá sé nokkuð um það að stærra
verslunarhúsnæði sé breytt í íbúðir,
t.d. við Leirubakka í Breiðholti.
Byggingarfulltrúi um íbúðarhúsnæði í rótgrónum atvinnuhverfum
Erfitt að heimila íbúðar-
byggð á atvinnusvæði
Morgunblaðið/Jim Smart
Leirubakki er dæmi um hverfi þar sem fleiri íbúðir koma í stað verslana.
Reykjavík
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að
fela bæjarstjóra að ganga til samn-
inga við Gagarín ehf. um gerð marg-
miðlunarefnis fyrir landnámsbæinn
Hofsstaði. Í minnisblaði upplýsinga-
stjóra bæjarins segir að markmið
verkefnisins sé fyrst og fremst að
opna glugga að horfnum tíma og
þeim aðstæðum sem fyrstu íbúar
Hofsstaða bjuggu við. Miðað er við
að efnið verði tilbúið í júní nk.
Fornleifarannsóknir hafa sýnt
fram á að byggð hafi verið í landi
Hofsstaða frá fyrstu tíð Íslands-
byggðar. Þar er nú minjagarður þar
sem fólk getur skoðað gamlar rústir.
Rústirnar eru á lóð Tónlistarskóla
Garðabæjar skammt frá Garðatorgi.
Að sögn Guðfinnu B. Kristjánsdótt-
ur, upplýsingastjóra Garðabæjar, er
ráðgert að margmiðlunarefni með
upplýsingum um fornminjarnar
verði aðgengilegt á snertiskjám sem
felldir verða inn í minjagarðinn.
Samið um
gerð margmiðl-
unarefnis um
Hofsstaði
Garðabær