Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 21
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 21 ÚTLIT er fyrir að SR-mjöl hf. taki að sér að reka bræðsluofn Als álvinnslu ehf. og taki helming mjölskemmu sinnar í Helguvík undir þá starfsemi. Framkvæmdastjóri SR-mjöls segir að með því að taka að sér þetta verk- efni sé unnt að halda mannskap milli loðnuvertíða. Forsvarsmenn Als álvinnslu ehf. hafa unnið að undirbúningi verk- smiðju í Helguvík þar sem ál yrði unnið úr álgjalli og brotaáli og munu fjárfestar af Suðurnesjum eiga veru- legan hlut í félaginu. Þeir kynntu áform sín fyrir væntanlegum fjár- festum á opnum kynningarfundi á veitingahúsinu Ránni í gær. Áhætta í lágmarki Félagið hefur gert verktakasamn- inga við álver Alcan í Straumsvík og Norðuráls á Grundartanga um að taka við álgjalli til endurvinnslu. Tryggir núverandi framleiðsla álver- anna auk brotaáls nýtingu á þriðjungi afkastagetu verksmiðjunnar sem fyr- irhugað er að setja upp. Keyptur verður bræðsluofn og tækni af evr- ópsku fyrirtæki sem endurunnið hef- ur álgjall samkvæmt þessari aðferð í sjö ár. Helgi Þór Ingason, formaður stjórnar Als álvinnslu, sagði að hag- kvæmniathugun sýndi að veruleg arðsemi yrði af eigin fé fyrirtækisins. Þá væri mikilvægt að með samning- um við álverin, tilboðum sem félagið hefði fengið í búnað verksmiðjunnar og fleira og væntanlegum samning- um við SR-mjöl hf. um reksturinn væri tryggt að áhættan af fyrirtæk- inu væri lítil. Áætlað er að fjögur til fimm störf skapist í upphafi við framleiðsluna og er þá miðað við að unnið verði úr um 6.000 tonnum af hráefni á ári. Með fullnýtingu verksmiðjunnar sem grundvallast gæti á innflutningi á hráefni og aukinni framleiðslu álver- anna myndi starfsmannafjöldinn þre- faldast. Ekki er gert ráð fyrir vinnslu úr álgjalli frá álveri Alcoa á Reyð- arfirði enda það ekki orðið að veru- leika. Helgi Þór segist þó hafa kynnt áform fyrirtækisins fyrir fulltrúum Alcoa. Stofnkostnaður verksmiðjunnar er áætlaður rúmar 200 milljónir kr. Fjármögnun hefur verið tryggð, að sögn Helga Þórs. Ekki hefur verið gefið upp hvaða fyrirtæki á Suður- nesjum gerast hluthafar, ekki mun vera búið að ganga endanlega frá því. Þó er ljóst að SR-mjöl hf. leggur fram hlutafé. Fer vel saman Þórður Jónsson, framkvæmda- stjóri SR-mjöls hf., segir að Alur ál- vinnsla sé talin áhugaverð fjárfest- ing, þótt hún sé ekki stór. Þá sjái SR-mjöl hag í því að taka að sér fram- leiðsluna í mjölskemmu sinni í Helgu- vík. Segir hann að húsnæðið sé til og starfsfólk. Loðna sé aðeins brædd í um tvo mánuði í verksmiðjunni og leitað hafi verið að verkefnum til að halda starfsmönnum þess á milli, til þess að komast hjá uppsögnum. Telur Þórður að framleiðsla á áli og mjöli fari vel saman. Hann svarar því neitandi þegar spurt er hvort hætta sé á mengun frá álbræðslunni í mjöl- ið, segir að mjölframleiðslunni stafi mun meiri hætta af sýklamengun úr umhverfinu. Á fundinum í gær varpaði Þórður fram þeirri hugmynd að hugsanlega mætti nota mjölskipin, sem venjulega koma tóm til landsins, til þess að flytja brotaál hingað til vinnslu. SR- mjöl hefur rekið loðnubræðslu á Reyðarfirði og á þar eignir. Segir Þórður að menn hafi nefnt það sem möguleika að nota mætti skemmu þar til að koma upp sambærilegri vinnslu á Austfjörðum, þegar álver rísi þar, ef starfsemin í Helguvík gengur vel. Álvinnsla sett upp í mjölskemmu SR-mjöls Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Helgi Þór Ingason sýnir skipulag verksmiðjuhússins. Helguvík BÆJARFULLTRÚAR Samfylk- ingarinnar hafa flutt tillögu í bæj- arstjórn Reykjanesbæjar um að bærinn standi fyrir námskeiðum um fíkniefnamál, fyrir fólk sem vinnur með börnum og unglingum. Tillagan var tekin fyrir í bæjar- stjórn í vikunni og samþykkt með at- kvæðum allra bæjarfulltrúa að vísa henni til bæjarráðs. Ólafur Thorder- sen sem mælti fyrir tillögunni segir að samstaða virðist um málið í bæj- arstjórn og vonast hann til að hún komist til framkvæmda. Ólafur segir að í þeirri umræðu sem fram fari í samfélaginu um fíkni- efnavandann hafi hann heyrt á fólki sem vinnur með unglingum að það hafi ekki næga þekkingu til að sjá þessi mál út. Því teldi hann mikil- vægt að bæta þar úr og væri þessi tillaga liður í því, slík námskeið gætu haft forvarnargildi og vonandi orðið til að hægt verði að grípa fyrr inn í atburðarásina. Hugmynd Samfylkingarinnar er að fjallað verði meðal annars um breytt hegðunarmynstur unglinga á aldrinum þrettán til átján ára sem leiðst hafa í fíkniefnaneyslu og ein- kenni þeirra sem eru í neyslu. Nám- skeiðin yrðu fyrir kennara og aðra starfsmenn skóla, þá sem starfa með unglingum í íþrótta- og tómstunda- starfi svo sem starfsmenn íþrótta- húsa og félagsmiðstöðva, og alla aðra sem starfa á einhvern hátt með ung- lingum á þessum aldri. Þá verði leitað eftir samstarfi við lögreglu, félagsmálayfirvöld og aðra þá aðila sem standa að forvarnar-, tómstunda- og íþróttamálum í bæj- arfélaginu. Uppbygging námskeiðs- ins yrði með þeim hætti, að það ætti erindi og næði til allra þeirra sem starfa með unglingum í Reykja- nesbæ. Hvetja til fræðslu um fíkniefni Reykjanesbær DIDDA og dauði kötturinn, ný ís- lensk barnamynd, verður frumsýnd í Keflavík í dag og almennar sýn- ingar hefjast síðan í Háskólabíói og Sambíóunum í Keflavík og Akur- eyri á morgun. Myndin gerist í Keflavík og er gerð eftir handriti Kristlaugar Maríu Sigurðardóttur sem jafn- framt er aðalframleiðandi mynd- arinnar. Didda og dauði kötturinn er fyrsta keflvíska bíómyndin, að því er fram kemur í tilkynningu frá að- standendum myndarinnar. Auk þess að gerast í Keflavík er hún framleidd þar og tekin, hljóðunnin á staðnum og jafnvel grafíska hönnunin er í höndum fyrirtækis í Keflavík. Loks er þess getið að Árni Sigfússon bæjarstjóri leikur hlut- verk lögregluvarðstjóra í myndinni og er sagður sýna stjörnuleik. Fyrsta kefl- víska bíó- myndin frumsýnd Keflavík ALEX, sem rekur bílahús og gisti- heimili við Aðalgötu í Keflavík, hefur fengið samþykki bæjarráðs Reykja- nesbæjar fyrir því að skipuleggja tjaldsvæði á lóð fyrirtækisins. Í erindi framkvæmdastjóra Alex til bæjarstjórnar kemur fram að mikilvægt sé að hafa tjaldsvæði bæj- arins sýnilegt frá Reykjanesbraut og tengja það meira Leifsstöð. Lóð bíla- húss Alex er einmitt við Reykjanes- brautina, steinsnar frá Leifsstöð. Þá vekur framkvæmdastjórinn at- hygli á því að fyrirtækið sé með að- stöðu í Leifsstöð og muni geta nýtt hana og starfsfólk sitt þar við mark- aðssetningu tjaldsvæðisins. Með því telur hann unnt að auka hlut Reykja- nesbæjar í móttöku þeirra erlendu ferðamanna sem til landsins koma. Tjaldsvæði hjá bílahúsi Keflavík STJÓRN Iðnþróun- arfélag Norðurlands vestra veitir árlega einu fyrirtæki, sem telst hafa skarað fram úr, hvatn- ingarverðlaun. Fyrir ár- ið 2002 varð Síld- arminjasafnið á Siglufirði fyrir valinu vegna þess dugnaðar og áræðis sem safnið hefur sýnt í starfsemi sinni. Guðmundur Skarp- héðinsson, formaður stjórnar Iðnþróun- arfélagsins, afhenti fyrir nokkru verðlaunin í safninu og tóku Örlygur Kristfinnsson og Hafþór Rósmundsson við þeim fyrir hönd stjórnar safnsins. Markmiðið með verð- laununum er eins og nafnið bendir til að hvetja til nýsköpunar en um leið að vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra. Í fréttatilkynningu segir m.a.: „Síldarminjasafnið er veglegur minnisvarði um merkilegan þátt í atvinnulífi Siglufjarðar og raunar landsins alls. Það er ánægjulegt til þess að vita að enn skuli vera til fólk sem með dugnaði og útsjón- arsemi vilji og geti hrint hug- myndum sínum í framkvæmd heilu bæjarfélagi til hagsbóta. Safnið skiptir miklu máli fyrir ferðaþjón- ustuna á Siglufirði enda hluti af þeirri afþreyingu sem ferðamenn leita eftir á ferð sinni um landið. Uppbygging Síldarminjasafnsins hefur verið hröð en vakið athygli og má benda á að í fyrra voru gest- irnir rúmlega sex þúsund manns. Aðstandendur safnsins eru öðr- um gott fordæmi um dugnað og út- sjónarsemi.“ Verðlaunagripurinn sem Síld- arminjasafninu var færður var gerður af leirlistakonunni Önnu Sigríði Hróðmarsdóttur í Varma- hlíð. Örlygur Kristfinnsson og Hafþór Rósmundsson tóku við hvatningarverðlaunum Iðnþróunar- félags Norðurlands vestra fyrir hönd Síldar- minjasafnsins á Siglufirði. Síldarminjasafnið fær hvatningarverðlaun Norðurland vestra BERGLIND Svavarsdóttir lögmað- ur hefur tekið við umboði Trygg- ingamiðstöðvarinnar á Húsavík af Jóni Þorgrímssyni sem verið hefur umboðsmaður félagsins til fjölda ára. Berglind rekur lögmannsstofu sína ásamt fasteignasölunni Eigna- þingi á Garðarsbraut 7 hér í bæ og þar verður TM-umboðið einnig til húsa. Berglind hefur ráðið Ragnar Þór Jónsson til starfa við TM-um- boðið og fasteignasöluna og hóf hann störf um síðustu mánaðamót. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Berglind Svavarsdóttir og Ragnar Þór Jónsson t.h. ásamt Gesti Helgasyni. Nýr umboðsmaður TM Húsavík Í LOK janúar var Sundlaug Vest- mannaeyja afhent stórgjöf. Er um að ræða að aðgengi laugargesta er stór- bætt og hefur öll aðstaða fatlaðra stórlagast. Byggðar voru tröppur til að ganga í laugina auk þess sem stólalyftu var komið fyrir. Fram- kvæmdir vegna þessa hafa staðið yf- ir frá því í byrjun mánaðarins. Við formlega afhendingu gjafarinnar voru samankomnir fulltrúar gef- enda, bæjarstjórinn í Vestmannaeyj- um auk nokkurra gesta. Gefendur eru Þroskahjálp í Vestmannaeyjum, Lionsklúbbur Vestmannnaeyja og Slysavarnadeildin Eykyndill. Morgunblaðið/Sigurgeir Bætt aðstaða fatlaðra Vestmannaeyjar LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.