Morgunblaðið - 06.02.2003, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 06.02.2003, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. COLIN Powell, utanríkis-ráðherra Bandaríkjanna,ávarpaði síðdegis í gæröryggisráð Sameinuðu þjóðanna og gerði þar grein fyrir því sem hann nefndi „sannanir“ fyrir því að stjórn Saddams Husseins Íraks- forseta hefði brotið gegn ályktunum Sameinuðu þjóðanna og ætti sam- starf við hryðjuverkamenn. Ræða Powells var af mörgum fréttaskýr- endum á Vesturlöndum talin ein sú mikilvægasta sem bandarískur ráða- maður hefur flutt á síðari tímum. Í ræðu Powells, sem stóð í tæpar 90 mínútur, fjallaði hann einkum um meinta viðleitni Íraksstjórnar til að hindra vopnaeftirlit í Írak, skipu- lagðar blekkingar Íraka í því efni, framleiðslu Saddams Husseins á sýkla- og efnavopnum og áætlanir um þróun kjarnorkuvopna. Þá rakti Powell tengsl Íraks- stjórnar við hryðjuverkahópa þ.á m. al-Qaeda. Powell lagði fram gervi- hnattamyndir máli sínu til stuðnings og lék hljóðupptökur sem hann kvað m.a. sanna að Írakar hefðu komið efnavopnum undan eftirliti og að þeir ynnu að þróun eldflauga sem brytu í bága við samþykktir Samein- uðu þjóðanna. Vísaði hann nokkrum sinnum í ræðu sinni til þess að tilteknar upp- lýsingar hefðu landflótta menn úr her Saddams Husseins veitt. Tók ráðherrann fram að hann gæti, ör- yggisins vegna, ekki birt tilteknar upplýsingar um brot Íraka. Hreyfanlegar efnavopnaverksmiðjur Powell spilaði fyrir fulltrúa í ör- yggisráðinu upptöku af samtali tveggja íraskra herforingja og eru þeir að ræða væntanlega heimsókn Mohameds ElBaradeis, yfirmanns Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinn- ar, í bækistöðvar annars þeirra (A). Sá seinni, B, er hershöfðingi og hann hefur áhyggjur af því að A sé með ólöglegan vopnabúnað. A: „Við erum með breyttan vagn [hreyfanlega efnavopnaverk- smiðju]. Hvað gerum við ef þeir sjá hann?“ B: „Þú varst ekki með breyttan vagn, er það? Þú hefur ekki einn slíkan?“ A: „Jú, ég er með einn.“ B: „Hvaða vagn, hvar fékkstu hann?“ A: „Úr vinnubúðunum, hjá Al Kendi-fyrirtækinu.“ B: „Hvað segirðu?“ A: „Frá Al Kendi.“ B: „Ég kem og heimsæki fyrramálið. Ég er áhyggj Þið eruð allir ennþá með hvað.“ A: „Við fluttum allt á bro ekkert lengur.“ Powell lét flytja upptöku tali milli foringja (A og B sérsveitunum, Lýðveldisv inum. A: „Nefnið þetta ekki, ne þetta ekki.“ B: „Þetta orð, þetta orð. É A: „Taugagas, taugagas. Hvenær sem um það er að ræða.“ B: „Ég skil.“ A: „Hvenær sem um það er að ræða.“ B: „Í þráðlausum fjarskip boðum, í fjarskiptaboðum A: „Taktu eftir. Í þráðlau fjarskiptaboðum.“ B: „Þráðlausum. Ég skil. Powell sagði, að skipun augljóslega af því, að Írak óttast, að þráðlausu samtö hleruð. Sú hefði líka verið r Powell vék að tilraunu með lífefnavopn og sagði vi menn hefðu dáið í tilraun vopnakerfi árið 1998. Sa Íraka eiga minnst sjö fæ „Saddam h hann verðu Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir marg sannað að stjórnvöld í Írak hafi brotið gegn ály unum SÞ og eigi samstarf við hryðjuverkamen Í RÆÐU sinni í öryggisráðinu ígær sagði Colin Powell, utan-ríkisráðherra Bandaríkjanna,að Saddam Hussein réði ekki aðeins yfir miltisbrandi, heldur hefði hann skipað fyrir um rannsóknir á mörgum öðrum eitur- og lífefna- vopnum og látið þróa aðferðir til dreifa þeim yfir byggð ból eða koma þeim fyrir í vatnsveitukerfum. Sagði hann, að Íraksher réði nú yfir líf- efnavopnum, sem nægðu til að búa út 16.000 eldflaugar. Í máli sínu rakti Powell einnig þær blekkingar, sem Írakar hefðu beitt varðandi efnavopnaframleiðslu og efnavopnaeign sína í meira en 10 ár. Sýndi hann myndir því til sönn- unar, meðal annars af efnavopna- geymslum og af stöðvum, sem not- aðar voru til að dreifa hráefnum í vopnin til annarra staða, og af mikl- um umsvifum við geymslurnar áður en von var á vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna. Þegar þeir komu síðan á vettvang var búið að flytja allt á burt, sótthreinsa stöðv- arnar eða jafnvel búið að ryðja þeim um koll með jarðýtum og skipta um jarðveg. „Vopnageymslurnar voru tandur- hreinar þegar vopnaeftirlitsmenn komu á vettvang og ekkert að finna. Þetta vekur því miður óþægilegan grun um, að Írakar hafi verið varaðir við,“ sagði Powell. „Lygar frá upphafi“ Powell sagði, að skýrsla Íraka um efnavopn sín væri „lygar frá upphafi til enda“: „Við teljum það varlega áætlað, að Írakar ráði yfir 100 til 500 tonnum af hráefnum í efnavopn. Þeir eiga efnavopn í 16.000 eldflaugar. Saddam Hussein hefur látið rann- saka fjöldann allan af eitur- og líf- efnavopnum, sem geta valdið sjúk- dómum, þar á meðal kolbrandi, svartadauða, taugaveiki, stífkrampa, kóleru og blóðsótt, og hann ræður jafnvel yfir búnaði til að framleiða bólusóttarsýkilinn,“ sagði Powell og minnti á, að Írakar hefðu á sínum tíma viðurkennt að hafa framleitt 8.500 lítra af miltisbrandi en sér- fræðingar Sameinuðu þjóðanna hefðu áætlað, að þeir hefðu framleitt 25.000 lítra. Powell sagði, að Írakar hefðu þró- að margar aðferðir við að dreifa hættulegum lífefnum, í lofti og vatni, og meðal annars hefðu þeir breytt eldsneytisgeymum Mirage-þotna í því skyni. Lét Powell sýna mynd, sem tekin var fyrir nokkrum árum, en á henni er verið að gera tilraunir með að úða yfir land. „Við skulum hafa þrennt í huga: Saddam Hussein hefur no vopn gegn annarri þjóð; ha notað þau gegn sínu eigin f an í fyrri heimsstyrjöld hef ríki haft meiri reynslu af þessara vopna en Írak.“ Hvar er VX-taugaga Powell minnti á, að það h Íraka mörg ár að viðurkenn hefðu framleitt fjögur ton banvæna VX-taugagasi e einn dropi af því nægir til mann. Hefðu Írakar vi þetta vegna upplýsinga frá Kamal, tengdasyni Sadd Samsett mynd, sem Powell sýndi í gær. Til vinstri er mynd af efn hreinsunar eða afeitrunar fari eitthvað úrskeiðis. Var hún tekin desember síðastliðinn. Þá voru bifreiðar vopnaeftirlitsmanna Sa engin efnavopn enda var þá búið að flytja allt burt, sem í geymslu „Efnavopn í 16.000 RÆÐA POWELLS Colin Powell, utanríkisráð-herra Bandaríkjanna, flutti ígær ræðu hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í New York þar sem hann lagði fram ítarlegar upplýsingar um gereyðingavopn Íraka, brot þeirra á skilmálum ályktana öryggisráðsins og síend- urteknar tilraunir til að villa um fyrir vopnaeftirlitsmönnum eða meina þeim aðgang að upplýsing- um. Líklega hefur ekki verið beðið eftir neinni ræðu hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna með jafnmik- illi eftirvæntingu frá því Adlai E. Stevenson, þáverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, hélt ræðu í miðri Kúbu- deilunni, þar sem hann lagði meðal annars fram njósnamyndir er sýndu að Sovétmenn væru að koma upp kjarnorkueldflaugum á Kúbu. Að mörgu leyti voru hins vegar ræður Powells og Stevensons ólík- ar. Stevenson sannaði fyrir um- heiminum að sovésku eldflaugarnar væru á Kúbu. Margt bendir til þess að Írakar eigi umfangsmikið vopna- búr efna- og lífefnavopna. Það hafa eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna sjálfir skjalfest. Það liggur einnig fyrir að Saddam Hussein, leiðtogi Íraks, hefur neitað að afvopnast og virðist þess í stað hafa haldið áfram þróun og smíði gereyðingavopna. Ræðu Powells var ætlað að sann- færa heiminn um að brot Saddams væru það umfangsmikil og alvarleg að ekki yrði lengur komist hjá því að grípa til aðgerða, með vopnavaldi ef þörf krefur. Upplýsingarnar sem Stevenson lagði fyrir öryggisráðið áttu sinn þátt í að afstýra kjarnorkustyrjöld. Upplýsingarnar sem Powell lagði á borðið í gær munu líklega sannfæra marga um að ekki sé hægt að treysta á samvinnu af hálfu Sadd- ams. Powell rakti í löngu máli, studdu gervihnattamyndum og upptökum af samtölum yfirmanna í íraska hernum, hvernig Írakar hafa haldið áfram að þróa fram efna- og lífefna- vopn þrátt fyrir yfirlýsingar um annað. Hann lagði fram upplýsing- ar, sem benda til að Írakar hafi markvisst reynt að hylma yfir vopnasmíði sína með því að færa efni og búnað skömmu áður en vopnaeftirlitsmenn mættu til að rannsaka viðkomandi staði. Hann sagði Bandaríkin hafa upplýsingar um að Saddam hefði hótað íröskum vísindamönnum og þeim og fjöl- skyldum þeirra verið hótað lífláti ef þeir veittu vopnaeftirlitsmönnum upplýsingar. Hann taldi vísbend- ingar vera um að Írakar væru enn að vinna að smíði kjarnorku- sprengju og koma sér upp búnaði til að auðga úran. Þá sagði utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna sterkar vísbendingar um að samstarf væri á milli Íraka og lykilmanna í hryðju- verkasamtökunum al-Qaeda. Í rúman áratug hefur átt sér stað togstreita milli Íraka og Sameinuðu þjóðanna vegna þeirra skilmála sem Írökum voru settir við lok Persa- flóastríðsins. Vopnaeftirlitsmenn, sem sinntu störfum í Írak lungann úr síðasta áratug, hafa lagt fram ít- arlegar upplýsingar um vopnaeign og þróun Íraka. Þeir yfirgáfu hins vegar Írak í lok ársins 1998 þar sem þeim var meinað að sinna störfum sínum líkt og þeir vildu. Það var ekki fyrr en í lok síðasta árs, eftir að öryggisráðið samþykkti harðorða ályktun, að þeim var hleypt inn í Írak á nýjan leik. Powell benti rétti- lega á að með samþykkt ályktunar öryggisráðsins númer 1441 í nóv- ember síðastliðnum var sönnunar- byrðinni velt yfir á Íraka. Powell sagði að með ályktuninni hefði Írök- um verið veitt lokatækifæri til að fara eftir fyrri ályktunum ráðsins. „Írakar létu þetta síðasta tækifæri sér úr greipum ganga,“ sagði Powell. Hann benti réttilega á að hlutverk vopnaeftirlitsmanna er að hafa eftirlit með afvopnun Íraka, ekki að sinna rannsóknarlögreglu- störfum og reyna að hafa uppi á vopnum sem Írakar reyna að fela. Ræða Powells mun ekki sannfæra alla um réttmæti þess að hefja stríð til að afvopna Íraka. Þótt ekki sé ágreiningur um að Írakar hafi gerst brotlegir við samþykktir öryggis- ráðsins er deilt um hvort sú ógn, sem stafar af Írak, réttlæti stríð og hvort hægt sé að ná fram markmið- inu um afvopnun með öðrum leið- um. Það verður vissulega erfiðara eft- ir ræðu Powells að halda því fram að vopnaeftirlitsmenn SÞ eigi að fá lengri tíma. Spyrja má: Lengri tíma til hvers? Ef Írakar eiga ekki sam- vinnu við vopnaeftirlitsmennina í stað þess að hindra störf þeirra og villa um fyrir þeim er óvíst að nokk- ur árangur náist. Ef rétt er að lyk- ilgögnum hafi verið komið fyrir á heimilum vísindamanna og íraskra embættismanna eiga þá eftirlits- menn að fara inn á þúsundir einka- heimila í leit að gögnum? Ef rétt er að lífefnavopn Íraka séu þróuð í færanlegum rannsóknarstofum, sem ekið er um á pöllum flutninga- bíla og lesta, er þá nokkur von til að þær muni nokkurn tímann finnast? Bandaríkjastjórn virðist þegar hafa gert upp hug sinn um að ekki sé réttlætanlegt að halda þessum leik áfram. Eftir nokkra daga verða bandarískar hersveitir reiðubúnar að hefja árás á Írak. Það eina sem virðist geta komið í veg fyrir að sú verði raunin er að Írakar taki að endingu upp samvinnu við Samein- uðu þjóðirnar. Ekkert bendir hins vegar til að það sé að gerast. Á næstu dögum og vikum verður rætt um það á vettvangi öryggis- ráðsins hvernig taka eigi á málum Íraks. Mikilvægt er að samkomulag náist um lausn deilunnar, hver sem hún verður. Ef öryggisráðið nær ekki að leiða mál þetta til lykta, eft- ir allt sem á undan er gengið, er hætta á að það verði áhrifalítið í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.