Morgunblaðið - 06.02.2003, Page 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 37
FASTEIGNASALAN GIMLI – GRENSÁSVEGI 13
SÍMI 570 4800 • FAX 570 4810
TRAUST ÞJÓNUSTA Í 20 ÁR
ÁRNI STEFÁNSSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
GIMLI GIMLI
STÆRRI EIGNIR
HVASSALEITI - NÝTT Á SKRÁ Sér-
lega glæsilegt og fallega innréttað 271,1 fm
milliraðhús á þremur hæðum með innbyggð-
um bílskúr. Rúmgóð svefnherbergi og bað-
herbergi endurnýjað, m.a. granít á gólfi.
Samliggjandi stofur og arinn í annarri; útg. í
vesturgarð úr stofu. Í kjallara er búið að inn-
rétta unglingaaðstöðu. Stórglæsileg eign á
eftirsóttum stað. Verð 28,8 millj.
DEILDARÁS Vorum að fá í einkasölu gott
tveggja hæða 278 fm einbýli. NEÐRI HÆÐ:
Stórt forstofuherb., 30 fm bílskúr, baðherb.,
þvottahús og geymslur. EFRI HÆÐ: Fjögur
rúmgóð herb., sjónvarpsherb., eldhús og
stofa með útg. á suð-vestursvalir. Glæsilegt
útsýni. Áhv. 4,3 millj. Verð 25,9 millj.
GLÓSALIR - GLÆSIEIGN Vorum að
fá í einkasölu glæsilegt 192 fm parhús á
tveimur hæðum á fallegum útsýnisstað í
þessu eftirsótta hverfi í Kópavogi. Fjögur
rúmgóð svefnherb. Glæsilega innr. bað-
herb. með hornbaðkari. Húsið er fullbúið
með bráðab. gólfefnum. Að utan er húsið
fullbúið. Allar innréttingar er sérsmíðaðar
og glæsilegar. Laus fljótlega. Verð 24 millj.
HÆÐIR
HÁVALLAGATA - SKIPTI Vorum að
fá í einkasölu glæsilega og mikið endurnýj-
aða 107 fm efri hæð og ris á þessum eftir-
sótta stað við Landakot. Tvær stórar stofur
með fallegum bogaglugga og miklu útsýni.
Tvö rúmgóð herb. Parket og flísar á gólf-
um. Hús fengið gott viðhald. SKIPTI EIN-
GÖNGU Á EINBÝLI Á SELTJARNARNESI
EÐA VESTURBÆ. Uppl. gefur Sveinbjörn í
s. 693 2916.
STANGARHOLT - LAUS STRAX
Neðri hæð í tvíbýli ásamt tveimur her-
bergjum í kjallara, alls 103 fm. Eikarparket
á gólfum. Í kjallara eru tvö rúmgóð her-
bergi með sérinngangi og aðgangi að bað-
herbergi. Rafmagn hefur verið endurnýjað.
Verð 13,5 millj. Áhv. 4,6 millj.
4RA-5 HERB.
HRAUNBÆR - MEÐ AUKAHER-
BERGI Vorum að fá í einkasölu bjarta og
rúmgóða 120 fm íbúð á annarri hæð í ný-
viðgerðu fjölbýli. Íbúðin skiptist í stóra
stofu, gott eldhús og 3 góð herbergi. Bað-
herbergi og 14 fm herb. í kjallara. Íbúðin er
öll nýtekin í gegn s.s gólfefni og innrétting-
ar. Parket, dúkar og flísar á gólfum. Húsið
er klætt að utan m. Steni. Verð 13,6 millj.
HRÍSRIMI - LAUS STRAX - LYKL-
AR Á GIMLI Glæsileg 4ra herb. íbúð á
2. hæð í fallegu fjölbýli. Sérsmíðaðar innr.
Flísar á gólfi. Innan íbúðar er þvottahús.
Suðursvalir. Stæði í bílageymslu. Íbúð sem
er þess virði að skoða. Áhv. húsbréf og
viðbótarlán 9,7 millj. Verð 12,9 millj.
MIÐBÆR - LAUS STRAX - LYKL-
AR Á GIMLI Björt og afar rúmgóð 125
fm 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi
byggðu 1985 auk stæðis í bílskýli. Íbúðin er
staðsett í húsi á horni Vitastígs og Lauga-
vegar. Innan íbúðar eru þrjú mjög stór og
rúmgóð svefnherbergi; hjónaherbergið er
með sérbaðherbergi og fataskáp og gengt
út á flísalagðar suðursvalir. Verð 17,0 millj.
Áhv. 1,1 millj. byggsj.
ÞINGHÓLSBRAUT - KÓPAV. Nýtt á
skrá vel skipulögð 63 fm risíbúð í tvíbýli á
þessum eftirsótta stað. Þrjú svefnherbergi
og stofa. Búið er að endurn. ofna og ofna-
lagnir ásamt rafmagnstöflu. Kubbaparket
og flísar á gólfi. Verð 10,5 millj. Áhv. 6,5
millj.
3JA HERB.
KARFAVOGUR - SÉRINNGANGUR
Einstaklega björt og rúmgóð 74 fm íbúð í
risi í þríbýli. Íbúðin er mikið endurn. s.s.
innréttingar, skápar, gólfefni, rafmagn,
gluggar og gler. Íbúðinni fylgir sérbíla-
stæði. Frábær staðsetning innst í botn-
langa. Verð 11,9 millj. Áhv. 7,0 millj.
SELJENDUR Í FOSSVOGI ATHUGIÐ!
Höfum fjársterka kaupendur að einbýli eða raðhúsi með innbyggðum bílskúr. Um er
að ræða ríflegan afhendingartíma t.d. um mitt næsta sumar. Óskað er eftir eignum á
verðbilinu 25-35 millj. Ef þú ert í söluhugleiðingum hafðu þá samband við Hákon eða
Grétar á skrifstofu Gimlis.
Þorrablót
Hátíðarfatnaður
íslenskra karlmanna
Hátíðarfatnaður íslenskra
karlmanna hefur notið mikilla
vinsælda frá því farið
var að framleiða hann.
Færst hefur í vöxt að íslenskir
karlmenn óski að klæðast
búningnum á tyllidögum, svo
sem við útskriftir, giftingar,
á 17. júní, þorrablót,
við opinberar athafnir hérlendis
og erlendis og við öll önnur
hátíðleg tækifæri.
Herradeild Laugavegi, sími 511 1718.
Herradeild Kringlunni, sími 568 9017.
P
ó
st
se
n
d
u
m
Hátíðarföt
með vesti
100% ull
skyrta, klútur og næla
kr. 36.900
Allar stærðir til
46— 64
98—114
25— 28
Fræðafundur um þátttöku al-
mennings í ákvörðunum um um-
hverfismál, verður haldinn á veg-
um Lagastofnunar Háskóla Íslands
í samvinnu við umhverfisráðu-
neytið, föstudaginn 7. febrúar nk. í
hátíðasal Háskólans í aðalbyggingu
skólans, kl.12.15 og er stefnt að því
að honum ljúki kl. 14.00. Af þessu
tilefni kemur hingað til lands og
heldur fyrirlestur á fundinum dr.
Jonas Ebbesson dósent í umhverf-
isrétti við Stokkhólmsháskóla. Fyr-
irlestur hans fjallar um þátt-
tökurétt almennings í ljósi reglna
Árósamningsins frá 1998 um að-
gang að upplýsingum, þátttöku al-
mennings í ákvarðanatöku og að-
gang að réttlátri málsmeðferð í
umhverfismálum. Einnig flytja er-
indi á fundinum Aðalheiður Jó-
hannsdóttir lögfræðingur og sér-
fræðingur í umhverfisrétti og
Eiríkur Tómasson prófessor við
lagadeild HÍ. Erindi Aðalheiðar
fjallar um þátttöku almennings í
ákvörðunartöku sem lýtur að ein-
staka framkvæmdum samkvæmt ís-
lenskum rétti. Eiríkur fjallar um
rétt almennings til að bera ákvarð-
anir stjórnvalda um umhverfismál
undir dómstóla í ljósi íslenskra rétt-
arfarsreglna. Að loknum erindum
frummælenda verða fyrirspurnir og
umræður. Fundurinn er opinn öll-
um, segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlestraröð um fötlunarrann-
sóknir Gretar L. Marinósson dós-
ent í sérkennslufræði við Kenn-
araháskóla Íslands, heldur erindið
„Hvernig verða flokkar sérþarfa til
í grunnskóla?“ í stofu 101 í Odda,
Háskóla Íslands, föstudaginn 7.
febrúar kl. 12-13. Erindið er byggt
á doktorsritgerð um viðbrögð
grunnskóla við fjölbreytileika nem-
enda en gagna í hana var aflað með
langtíma etnografískri rannsókn á
einum skóla hér á landi. Fyrirlest-
urinn er hluti af fyrirlestraröð um
fötlunarrannsóknir sem Uppeldis-
og menntunarfræðiskor við Fé-
lagsvísindadeild Háskóla Íslands
gengst fyrir á Evrópuári fatlaðs
folks 2003 í samstafi við Lands-
samtökin Þroskahjálp og Ör-
yrkjabandalag Íslands. Frekari
upplýsingar er að finna á vefslóð-
inni: http://www.hi.is/~rannvt/.
Fundurinn er öllum opinn.
Kynna lífsstefnu og hug-
myndafræði Damanhur
Í Valchiusella-dalnum við rætur
ítölsku Alpanna er Damanhur þar
sem frá árinu 1977 hefur verið mið-
stöð rannsókna á andlegum málum.
Í Damanhur búa nálega þúsund
manns. Damanhur hefur eigin
stjórnarskrá, eigin mynt, skólakerfi
og dagblað og þar starfa fulltrúar
fimmtíu mismunandi starfsgreina.
Í Damanhur eru stundaðar rann-
sóknir á fjölmörgum sviðum, allt frá
athugun á samfélagsmálum til
rannsókna á óhefðbundinni orku,
listum og eðlisfræði, svo að dæmi
séu tekin.
Tveir kennarar frá Damanhur eru í
heimsókn á Íslandi þessa dagana.
Þeir munu kynna lífsstefnu og hug-
myndafræði Damanhur föstudag-
inn 7. febrúar. Kynningin verður í
Ljósheimum, Brautarholti 8, (2.hæð
til vinstri) og hefst hún kl. 20:00.
Allir sem áhuga hafa eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir og er aðgang-
ur ókeypis.
Í DAG
Íslandsmeistaramótið í sam-
kvæmisdönsum fer fram í Laug-
ardalshöllinni í Reykjavík sunnudag-
inn 9. febrúar. Þetta er fyrsta
Íslandsmót vetrarins og verður
keppt í 5 sígildum dönsum og 5 suð-
ur-amerískum dönsum, en auk þess
fer fram keppni í samkvæmisdönsum
með grunnaðferð og danssýningar
hjá flokkum þeirra sem eru að hefja
þjálfun í dansi. Þátttakendur frá 7 fé-
lögum eru skráðir til móts. Fimm er-
lendir dómarar munu dæma á keppn-
inni. Laugardalshöllin verður opnuð
kl. 12, en formlega hefst keppnin kl.
13 með innmars allra þátttakenda og
síðan mun heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, Jón Kristjánsson,
ávarpa og setja mótið.
Á NÆSTUNNI
MENNINGARMÁLANEFND
Reykjavíkur heldur opinn fund í
Ráðhúsinu í hádeginu á morgun,
föstudag, kl. 12–13.30, um opinbera
stefnu um Listasafn Reykjavíkur og
not af sýningarsölum borgarinnar.
Fundurinn er ætlaður öllum sem
vilja kynna nefndinni sjónarmið
varðandi þá stefnu sem nú gildir um
Listasafn Reykjavíkur og sýninga-
hald þess, auk nota af sýningarsölum
sem safnið hefur yfir að ráða. Þetta
er boðaður aukafundur nefndarinnar
í tilefni af mikilli umræðu að und-
anförnu um sýningarsali í borginni.
Nefndin hefur falið Eiríki Þorláks-
syni, forstöðumanni Listasafnsins,
að útskýra þá stefnu sem mótuð er
og honum falið að fylgja varðandi
sali safnsins í upphafi fundar. Að
öðru leyti verða umræður frjálsar
undir stjórn formanns nefndarinnar,
Stefáns Jóns Hafstein.
Opinn fundur
um listasöfn
borgarinnar
Vinna í hálfan annan mánuð
Í frétt um framleiðslu parkets á
Húsavík í Morgunblaðinu mánudag-
inn 3. febrúar segir að eftir sé hálfs
mánaðar vinna við að klára það hrá-
efni sem til er en rétt er að það er
tekur um 11⁄2 mánuð að klára þetta.
Ólafur H. er Óskarsson
Viðmælandi Morgunblaðsins í við-
tali á bls. 8 í gær heitir Ólafur H.
Óskarsson, ekki Ólafsson eins og þar
stóð, og er það leiðrétt hér með og
Ólafur beðinn velvirðingar. Einnig
leiðréttist, að hann lauk BA-prófi í
þýsku og landafræði frá Háskóla Ís-
lands en ekki Háskólanum í Stutt-
gart.
LEIÐRÉTT
Á AÐALFUNDI starfsmannafélags
Móa, sem haldinn var í Móastöðinni
30. janúar 2003, var samþykkt að fé-
lagið sendi frá sér ályktun um að fé-
lagið harmi hvernig samkeppnisaðili
Móa hf., Reykjagarður hf., geri „allt
til að sverta fyrirtækið og starfs-
menn þess í augum almennings, í
skjóli þess að Móar eiga í tíma-
bundnum rekstrarerfiðleikum“, seg-
ir í tilkynningu frá starfsmanna-
félaginu.
Í ályktuninni segjast starfsmenn
Móa vera sakaðir um þjófnað á
vörum Reykjagarðs á þeim tíma
sem Móar slátruðu fyrir Reykja-
garð. „Allir sem til málsins þekkja
vita að ónákvæmar skráningar
Reykjagarðs-fólks eru skýringin á
„óeðlilegri rýrnun“ á þeirra vörum.
Fyrir dómstólum liggja gögn sem
sýna svart á hvítu að eftir að við tók-
um við skráningum eru hlutirnir í
lagi, frávik ætíð undir 1%,“ segir í
ályktuninni.
Þá segir að starfsmönnum Móa
þyki ólíðandi að Reykjagarður „ljúgi
að almenningi og segi í fjölmiðlum
að Móar hafi sexfaldað framleiðslu
sína og offramleiðsla á kjúklinga-
kjöti sé Móum að kenna. Árið 2000
framleiddu Móar 920 tonn, 2001
1.063 tonn og 2002 1.221 tonn sem er
15% aukning milli beggja áranna.
Framleiðsluaukning kjúklingakjöts
á Íslandi milli áranna 2001 og 2002
var hins vegar 19%. Sérhver maður
sér að Móar draga niður meðaltalið
á landsvísu milli áranna 2001 og
2002 en ekki öfugt, hvað þá sexföld-
un eins og Reykjagarður hefur hald-
ið fram í fjölmiðlun. Móar hf. hafa
hins vegar undirbúið framleiðslu-
aukningu til að geta mætt aukinni
neyslu á kjúklingum. Starfsmenn
Móa bera fullt traust til eigenda
Móa um að meta framleiðslumagn
hverju sinni þannig að ekki verði
skortur á kjúklingum eins og gerðist
á síðasta ári, okkur og neytendum til
leiðinda og ama.“
Segja ónákvæma skráningu
vera skýringuna á rýrnun
ÞEGAR fréttaritari átti leið austur
fyrir Kirkjubæjarklaustur í fyrra-
dag var mikil hálka mest alla leið-
ina, vegurinn víða ein glæra. Vega-
gerðin var þó að reyna að bæta
ástandið með því að skrapa svellið
með veghefli til að matta það. Þetta
er mikil nákvæmnisvinna því ef
hefiltönninni er beitt of hraustlega
er alltaf hætta á að skemma klæðn-
inguna á veginum. Þessi heflun var
óneitanlega til bóta þó að enn sé
ástandið mjög varasamt.
Mikið að
gera hjá
vegheflum
Fagradal. Morgunblaðið
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Jón Hjálmarsson veghefilstjóri úr Vík skrapar svellið á þjóðvegi 1.