Morgunblaðið - 06.02.2003, Page 38
DAGBÓK
38 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss kemur í dag.
Arnarfell og Goðafoss
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Polar Siglir kemur í
dag, Selfoss fór frá
Straumsvík í gær.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 9–12.30 bókband og
öskjugerð, kl. 9.45–10
helgistund, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13–16.30 opin
smíða– og handa-
vinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8.30–14.30 kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 13 bókband,
kl. 14–15 dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið op-
ið mánu– og fimmtu-
daga. Fimmtudagur:
kl. 13 tréskurður, kl. 14
bókasafnið, kl. 15–16
bókaspjall, kl. 17–19
æfing kór eldri borg-
ara í Damos.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 íkonagerð, kl. 10–
13, verslunin opin, kl.
13–16 spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 opin
handavinnustofa, kl.
9.30 danskennsla, kl.
14 söngstund.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Glerskurður
byrjar í dag.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 13.30 söngtími, kl.
15.15 dans.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 11 búta-
saumur (hægt er að
bæta við 3), kl. 13 mál-
un, bútasaumur og
leikfimi karla. Nýtt
námskeið í leirvinnslu
byrjar 10. febrúar kl.
12.30. Skráning í s.
820 8571.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pútt kl.
10, glerlist kl. 13, bingó
kl. 13.30. Rúta í Þjóð-
leikhúsið í kvöld kl. 19
frá Hjallabraut 33 og
19:15 frá Hraunseli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ.Fimmtud:
Brids kl. 13. Fram-
sagnarnámskeið hefst í
dag kl. 16.15, leiðbein-
andi Bjarni Ingvars-
son. Bridsnámskeið kl.
19.30.S. 588 2111.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.05 og 9.50 leik-
fimi, kl. 9.30 klippi-
myndir, kl. 12.30
vefnaður, kl. 13 gler og
postulínsmálun, kl. 15
enska, kl. 17 myndlist,
kl. 20 gömlu dansarnir,
kl. 21 línudans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13–16 handa-
vinnustofan opin, kl. 13
brids.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og perlu-
saumur og hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 10 boccia, kl. 11
leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 bútasaumur, kl. 10
boccia, kl.13 handa-
vinna, 13.30 félagsvist.
Korpúlfar Grafarvogi
samtök eldri borgara,
hittast á fimmtudögum
kl. 10, aðra hverja viku
er púttað á Korpúlfs-
stöðum en hina vikuna
er keila í Keilu í Mjódd.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa
og tréskurður, kl. 13–
16.45 leir, kl. 10–11
ganga. Messa kl. 10.30
sr. Kistín Pálsdóttir.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
15.30, handav. kl. 10–
11 boccia, kl. 13–14
leikfimi, kl. 13–16 kór-
æfing og mósaik.
Föstud.7. feb. kl. 13
verður lokað vegna
undirbúnings þorra-
blóts sem hefst kl. 17.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9.30 gler-
skurður og morg-
unstund, kl. boccia æf-
ing, kl. 13 handmennt
og spilað.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Bláa salnum
kl. 11.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Fundur í umsjá
Valgerðar Gísladóttur.
Heitt á könnunni frá
kl. 16.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13. Skrán-
ing kl. 12.45 spil hefst
kl. 13.
Kvenfélag Grens-
ássóknar, aðalfundur
verður mánud. 10. feb.
og hefst með sameig-
inlegu borðhaldi kl.
19.30. Þátttaka til-
kynnist til Kristrúnar,
s. 553 6911 eða Bryn-
hildar, s. 553 7057.
Kvenfélag Hallgríms-
kirkju. Fundur verður
í kvöld, kl. 20. Spilað
bingó.
Í dag er fimmtudagur 5. febrúar,
36. dagur ársins 2003. Agötu-
messa. Orð dagsins: Orð viturra
manna, sem hlustað er á í ró, eru
betri en óp valdhafans meðal
heimskingjanna.
(Préd. 9, 17.)
Krossgáta
LÁRÉTT
1 móka, 4 stúfur, 7 með-
fædd tönn í barni, 8
kvæði, 9 rekkja, 11 með-
vitund, 13 dyggur, 14
hestar, 15 verkfæri, 17
borðar, 20 eldstæði, 22
svæfill, 23 ganga, 24 ná-
lægt, 25 mannsnafni.
LÓÐRÉTT
1 atgervi, 2 víðan, 3
mjög, 4 brjóst, 5 fær af
sér, 6 magrar, 10 kostn-
aður, 12 máttur, 13 viður,
15 móskan, 16 bárur, 18
hillingar, 19 sefaði, 20
lykkja, 21 slysni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 gremjuleg, 8 arkar, 9 bælið, 10 róa, 11 garfa,
13 rýrar, 15 hafís, 18 subba, 21 tin, 22 ljóni, 23 æfing, 24
ósannindi.
Lóðrétt: 2 ríkar, 3 marra, 4 umbar, 5 eflir, 6 þang, 7 áð-
ur, 12 frí, 14 ýsu, 15 hóls, 16 Fróns, 17 stinn, 18 snæði,
19 blind, 20 agga.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
KUNNINGI Víkverja gerði nýlegaað umtalsefni hið ágæta verkefni
Auður í krafti kvenna. Velti kunn-
inginn fyrir sér hvort þessi auður
væri ekki örugglega karlkynsorð. Jú,
það hélt Víkverji, en þá vaknaði
spurningin hvers vegna talað var í
fjölmiðlum um forsvarsmenn Auðar-
verkefnisins. Var þá allur þessi auður
orðinn að kvenmannsnafninu Auði?
Hvaða Auður skyldi það nú vera?
x x x
ER nú ekki orðið tímabært að hættaað tala um Íslandsvini? Víkverja
finnst þetta bera vott um minnimátt-
arkennd gagnvart útlendingum. Þarf
eitthvað að verðlauna útlendinga með
svona nafngift og þakka þeim fyrir að
ómaka sig hingað? Ef þeir koma
hingað oftar en einu sinni hlýtur það
að vera vegna þess að þeim finnst það
eftirsóknarvert. Og þá á ekki að láta
eins og þeir séu að gera okkur eða
landi voru einhvern greiða. Veri þeir
bara velkomnir en hættum þessari
vitleysu með Íslandsvini.
x x x
VÍKVERJI hlustaði á útvarpslýs-ingu Adolfs Inga Erlingssonar á
leik Íslendinga og Júgóslava um 7.
sætið á HM. Víkverji hefði svo sem
getað fært sig að sjónvarpsviðtæk-
inu, en svo ágæt var lýsing Adolfs
Inga að Víkverji gat ekki slitið sig frá
útvarpslýsingunni og tók því útvarpið
fram yfir sjónvarpið í þetta skiptið.
Horfði síðan á leikinn í sjónvarpinu
eftir miðnættið og hafði bara gaman
af.
x x x
ÞAÐ var óvenjumikið um fjöldaslysí heiminum um síðustu helgi. 25
fórust í hótelsprengingu í Lagos, 33 í
hótelbruna í Kína, 45 í lestarslysi í
Zimbabve og 18 í sprengingu í Afgan-
istan á föstudaginn. Svo fórust geim-
fararnir sjö í Bandaríkjunum á laug-
ardaginn. Ekki er Víkverja kunnugt
um að þjóðir heims hafi sent sam-
úðaróskir nema í síðastnefnda tilvik-
inu. A.m.k. sá Víkverji ekki neitt um
það í fjölmiðlum. Sama er að segja
um minningarathafnir vegna þessara
slysa. Hvernig stendur á þessu?
x x x
HÚN vakti athygli rannsókn EmilsEinarssonar á fölskum játn-
ingum grunaðra sakamanna. Tveir af
hverjum átta játuðu á sig brot sem
þeir höfðu ekki framið. Og algengast
var að þeir væru að hylma yfir með
öðrum. Víkverji veltir því fyrir sér
hvort samheldnin og bræðralagið séu
svona rík í undirheimunum að menn
fórni sér fyrir aðra. Eða eru hótanir
hluti af þessu? Má ætla að þeir sem
gefa falska játningu séu það lágt sett-
ir í stigveldi undirheimanna að þeir
verði að taka á sig sök, að öðrum
kosti verði þeim stútað af félögum
sínum? Hvers vegna voru þeir að
hylma yfir með öðrum?
x x x
SIGURJÓN M. Egilsson á Frétta-blaðinu hefur a.m.k. tvisvar skrif-
að um tilraunir sínar til að létta sig.
Víkverja langar til að hjálpa og bend-
ir Sigurjóni hér með á vitamin.is þar
sem Ragnar Hafsteinsson, öðru nafni
„letispillirinn“, hefur komið með frá-
bærar ráðleggingar handa fólki ein-
mitt eins og Sigurjóni.
Reuters
Voru send samúðarskeyti vegna
sprengingarinnar í Lagos?
Staða öryrkja
KÆRI Velvakandi.
Mig langar dálítið að
fjalla um stöðu öryrkja á Ís-
landi, almennt í dag, og elli-
lífeyrisþega. Ég skil bara
ekki hvernig ríkisstjórnin
og þjóðfélagið almennt get-
ur komið svona fram við
yngri og eldri sem eiga það
svo sannarlega skilið að fá
hærri greiðslu. Við lifum
ekki á þessum bótum út
mánuðinn. Þannig er það
með, held ég, okkur öll.
Um mánaðamót fáum við
bætur okkar en hvað höfum
við eftir þegar búið er að
borga reikningana? Síðan
þarf að sækja lyfin. Svo gæti
eitthvað bilað í eldhúsinu.
Þá bætist sá reikningur við.
Börnin mín eru sem betur
fer uppkomin en ég man
tímana tvenna. Það var allt
öðruvísi að lifa hér áður fyrr
og enginn veit fyrirfram
hvenær hann missir sína
heilsu. Því að þetta fólk, sem
var líka einu sinni ungt, hef-
ur allt unnið baki brotnu og
þetta er árangurinn, vegna
alltof mikils vinnuálags og
greinilegra áfalla í lífinu
getur þetta fólk ekki unnið í
dag þótt það langitil þess.
Ég er ein af þeim.
Maðurinn er ekki gerður
úr stáli heldur holdi og blóði
og enginn mannslíkami er
eins. Ég bara man það að
allt fólk sem er óvinnufært
vegna krónískra sjúkdóma,
frá hvirfli til ilja og skyndi-
lega bætist eitthvað við. Þá
eru það bílslysin og fleira
eins og andstyttingar, veiru-
sýkingar og alls konar pest-
ir. Nú, svo er flensan komin.
Þá er annað sem ég vil
taka fram að ég þekki
marga öryrkja og ellilífeyr-
isþega sem hafa ekki krónu í
höndum sér fram að mán-
aðamótum og líður illa
vegna peningaskorts. Það
var maður sem skrifaði
grein í Morgunblaðið um
daginn sem sagði að lág-
launafólk, öryrkjar og ellilíf-
eyrisþegar eigi að fá minnst
150 þús. krónur á mánuði og
það skattfrjálst. Flest okkar
geta ekki unnið þótt við
reyndum. Við megum ekki
gefast upp og verðum að
hafa bein í nefinu til að
standast álagið. Það hlýtur
vonandi eitthvað að gerast á
þessu ári. Mér finnst að tími
sé kominn til að skilningur
fáist í þessu máli.
Monika Pálsdóttir.
Þakkir til
Kringlubóns
FYRIR stuttu létum við
hjónin þrífa bílinn okkar hjá
Kringlubóni. Bíllinn var
eins og nýr á eftir. Þarna
eru vandvirkir menn að
störfum.
Kristján og María.
Tapað/fundið
Fljúgandi sokkabuxur
BARNA sokkabuxur fund-
ust fyrir utan Hagkaup í
Skeifunni sl. föstudag. Upp-
lýsingar í síma 557 2743.
Elísabet.
Dýrahald
Kisustrákar
fást gefins
TVEIR gráir kisustrákar,
10 vikna, fást gefins. Vel
upp aldir og kassavanir.
Upplýsingar í síma 587 8119
og 847 9557.
Snati er týndur
SNATI hvarf frá heimili
sínu á Austur-Héraði 13.
janúar, hann er svartur og
hvítur og ómerktur. Þeir
sem hafa orðið hans varir
vinsamlegast hringi í síma
552 6657 eða 849 7377.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is Nú þegar Ingibjörg Sól-rún Gísladóttir hefur
lokið störfum sem borg-
arstjóri og hefur innreið
sína í landsmálin vakna
að sjálfsögðu spurningar
um stjórnmálaskoðanir
hennar. Þar er margt á
huldu, en á vafalaust eftir
að koma fram í kosninga-
baráttunni.
Framundan eru tímar,þar sem máli skiptir
að vel sé haldið á fjár-
málum ríkisins. Ingibjörg
Sólrún hefur ekki gefið
neinar yfirlýsingar um
hvernig hún hyggist haga
þeim, komist hún í þá að-
stöðu að ráða ríkissjóði.
Hins vegar hefur hún
auðvitað haft opinbert
vald í rúmlega átta ár,
sem borgarstjóri Reyk-
víkinga.Vissulega hefur
hún ekki verið einráð í
stjórn borgarinnar, en
sem borgarstjóri hlýtur
hún að bera ábyrgð á
gjörðum R-listameirihlut-
ans á þessum rúmu átta
árum.
Staðreyndin er sú, aðsíðan 1994 hafa
skuldir Reykjavík-
urborgar aukist um 50
milljarða króna. Hreinar
skuldir eru 415 þúsund
krónur á mann. Borgin
hefur þanist út í góð-
ærinu. Þegar tekju-
skattsprósenta ríkisins
lækkaði hækkaði útsvars-
hlutfallið hjá borginni á
móti. Reykjavíkurborg
hefur hafið ýmiss konar
atvinnurekstur, eins og
Línu.net-ævintýrið sýnir,
á meðan ríkið hefur t.a.m.
dregið sig úr banka-
rekstri.
Auðvitað hafa ríkisút-gjöld líka hækkað.
Ríkisvaldið hefur þó verið
rekið með afgangi, vegna
aukinna skatttekna og
tekna af sölu eigna.
Hækkun ríkisútgjalda er
ámælisverð, en dregur
ekki úr ábyrgð stjórn-
enda Reykjavíkurborgar.
Það er frekar auðveltað vera góður borg-
arstjóri í tvö kjörtímabil,
með því að taka lán og
framkvæma. Vandamál
geta verið í rekstrinum
án þess að það veki sér-
staka athygli. Lántökur
eru bara tölur á blaði. Af-
leiðingarnar koma ekki
fram fyrr en seinna, þeg-
ar kominn er tími til að
borga niður skuldirnar.
Umsvif og fjöldi fram-kvæmda er ekki
mælikvarði á störf opin-
berra aðila. Víst er það
þægilegt, þegar okkur er
veitt ókeypis þjónusta,
eða stórlega niðurgreidd.
Mælikvarðinn á gæði op-
inberrar starfsemi er hins
vegar fólginn í því hvað
hún kostar.
Það er hægt að fjár-magna halla á rekstri
opinberra fyrirtækja ansi
lengi, en einhvern tímann
kemur að skuldadögum.
Ef tekjur af fram-
kvæmdum standa ekki
undir stofn- og rekstr-
arkostnaði þarf að hækka
skatta. Eða taka fleiri
lán.
STAKSTEINAR
Dómur reynslunnar
EFTIR að hafa lesið þess-
ar eilífu athugasemdir
um um þetta svokallaða
„eldflaugabrjálæði“
finnst mér eins og svo oft
áður að málin séu ekki
hugsuð til enda. Flug-
eldasala á Íslandi er að-
eins leyfð eina viku á ári
og er þetta svo gríðarleg
fjáröflun til björg-
unarsveita og ungmenna-
félaga að ég efast hrein-
lega um að umræddir
aðilar næðu endum sam-
an ef þetta væri tekið frá
þeim. Einhver myndi nú
opna sig ef það væri farið
að sækja þetta í buddu
skattborgara líka. Menn
ættu nú að vita að dýrin
eru hrædd við þessa
björtu hávaðasömu hluti
sem þau skilja ekki. Ég
persónulega er eigandi
hunds sem er mjög
hræddur við sprengingar.
En ég gerði einfaldlega
ráðstafanir til að draga
úr áhrifum þeirra á hann.
Vil ég benda fólki á það
að oft er betra að hugsa
málin til enda og hefur
mjög mikið borið á því að
það sé ekki gert.
S.P.
Eldflaugabrjálæði