Morgunblaðið - 06.02.2003, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 39
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú skilur aðra og átt gott
með samskipti. Þú ert því
sterkur stjórnandi og góð
fyrirmynd annarra. Þú
veist af þessu því þig langar
til að bæta heiminn og
mannleg samskipti.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú finnur sigurvissu og sjálfs-
öryggi. Nýttu þetta sem mest
þú mátt. Biddu um það sem
þú vilt fá.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert í heimspekilegum hug-
leiðingum í dag. Þú vilt ræða
mikilvæg málefni en jafn-
framt eiga stund í næði og
einrúmi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vinkona þín gæti reynst þér
hjálpleg í dag. Þú þarft að
slaka á spennunni gagnvart
maka eða einhverjum sem er
þér náinn. Það kann að hjálpa
til að ræða málin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Daginn er kjörinn til við-
ræðna við yfirmann eða for-
eldri. Sýndu þolinmæði og
umburðarlyndi gagnvart
sjónarmiðum sem eru önnur
en þín eigin. Enda er lífið ekki
annaðhvort svart eða hvítt,
það er fullt af gráum blettum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gerðu eitthvað smávegis í dag
sem fær þig til að finnast þú
vera í fríi. Slakaðu á, daðraðu,
spjallaðu við ókunnuga og
vertu ferðamaður í eigin borg.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur sterka löngun til að
skipuleggja líf þitt betur.
Dagurinn í dag er kjörinn til
að gefa sér tíma til að greiða
reikninga og huga að sameig-
inlegu eignahaldi og skuldum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Sýndu öðrum þolinmæði í
dag. Þú þarft að búa yfir sér-
staklega miklu umburð-
arlyndi í dag og vilja til mála-
miðlana.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert fús til að kljást við mál-
in af hörku í dag. Þú ert stað-
ráðin(n) í að koma einhverju í
verk. Frábært! Láttu verða af
því.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þetta verður góður dagur!
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sýndu fjölskyldunni þol-
inmæði og þeim sem þú býrð
með. Ekki reyna að þvinga
skoðunum þínum upp á aðra.
Taktu því rólega og farðu að
með gát í dag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Talaðu við systkin og ættingja
í dag varðandi hópskemmtun
og starf. Þú hefur sérstaklega
mikla hæfileika núna til að
eiga samskipti við annað fólk.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú finnur til mikils metnaðar
núna. Þér er mikið í mun að
koma fjármálunum í gott horf.
Ígrundaðu leiðir til að auka
tekjurnar í framtíðinni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
FOSSANIÐUR
Þá væri, Sjáland, sælla hér
sumarið þitt og blómin,
ef þú gætir gefið mér
gamla fossaróminn.
Hefði allur auður þinn
eitthvað slíkt að bjóða,
léti ég fyrir lækinn minn
leikhússönginn góða.
Þó að vanti þennan nið,
þér finnst ekki saka.
Engir hérna utan við
eftir þessu taka.
– – –
Þorsteinn Erlingsson
LJÓÐABROT
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3
c6 4. a4 g6 5. Be2 Dc7 6.
Be3 Bg7 7. h4 h5 8. Rh3
a6 9. f3 Bxh3 10. Hxh3
Rbd7 11. g4 hxg4 12. fxg4
a5 13. Hb1 0–0–0 14. b4
axb4 15. Hxb4 Da5 16.
Db1
Staðan kom upp á Skák-
þingi Reykjavík-
ur sem lauk fyrir
skömmu. Krist-
ján Örn Elíasson
(1790) hafði
svart gegn Guð-
jóni Heiðari Val-
garðssyni (1950).
16 … Rxe4! Með
þessu vinnur
svartur skipta-
mun en í fram-
haldinu tefldi
hann ekki nógu
nákvæmt og að
lokum lék hann
manni beint ofan
í og tapaði skák-
inni. 17. Rxe4 c5 18. Bd2
cxb4 19. Bxb4 Da7 20. c3
f6 21. a5 Rb8 22. Rg3 Rc6
23. a6 bxa6 24. Dxg6 Rxb4
25. cxb4 Bh6 26. De4 Db7
27. d5 Kb8 28. Dd4 Hc8
29. Rf5 Hc1+ 30. Kf2 Da7
31. Dxa7+ Kxa7 32. Rxe7
He8 33. Rc6+ Kb7 34. Ha3
Hc2 35. Rd4 Be3+?? 36.
Hxe3 og svartur gafst upp.
Undanúrslit Íslandsmóts-
ins í atskák hefjast í dag
kl. 20.00 í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
SUÐUR horfir á átta
slagi í þremur gröndum og
tvo kónga til hliðar sem
gætu hvor um sig gefið ní-
unda slaginn.
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ K874
♥ 1083
♦ KD75
♣94
Suður
♠ Á5
♥ K75
♦ ÁG10983
♣K8
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 2 tíglar
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Í flestum tilfellum fengi
suður úrslitaslaginn á silf-
urfati í útspilinu, en því er
ekki að heilsa hér, því vest-
ur kemur út með spaða-
drottningu. Hvernig á að
spila?
Þetta er í stuttu máli
spurning um það á hvorn
kónginn eigi að spila,
hjartakóng eða laufkóng.
Hjartað er sterkara og því
virðist skynsamlegt að velja
þann lit, en í raun er tölu-
vert meira vit í því að spila
á laufkónginn. Ástæðan er
þessi: Ef ásarnir eru báðir
á sömu hendi skiptir engu
máli hvað gert er – spilið er
unnið ef austur á ásana, en
tapað ef vestur er með þá.
Eigi austur hjartaás og
vestur laufás dugir ekki að
spila hjarta með bestu vörn.
Austur getur tekur strax á
ásinn og spilað laufi. Á hinn
bóginn gæti sagnhafi ráðið
við þá stöðu þegar austur á
laufás og vestur hjartaás:
Norður
♠ K874
♥ 1083
♦ KD75
♣94
Vestur Austur
♠ DG109 ♠ 632
♥ Á642 ♥ DG9
♦ 2 ♦ 64
♣D1063 ♣ÁG752
Suður
♠ Á5
♥ K75
♦ ÁG10983
♣K8
Jafnvel þótt austur rjúki
upp með laufásinn og spili
hjartadrottningu vinnur
sagnhafi spilið, því vörnin
fær í mesta lagi þrjá slagi á
hjarta.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 5. maí 2002 í Aðventista-
kirkjunni þau Guðbjörg Elín Guðmundsdóttir og Helgi Þór
Helgason.
VIRGIL Sandberg, 21 árs,
búsettur í Bandaríkjunum,
hefur áhuga á að eignast ís-
lenska pennavini.
Virgil Sandberg,
2176 Berlín Drive,
Marne, Mi, 49435.
zombieplat-
ter23@hotmail.com
FABIO Bianchi óskar eft-
ir íslenskum pennavinum.
Hann safnar símakortum og
frímerkjum.
Fabio Bianchi,
Via alla Torre 20,
CH-6850 Mendrisio (Ti),
Switzerland.
MAI Hori, 19 ára stúlka
frá Japan, óskar eftir ís-
lenskum pennavinum. Hún
hefur áhuga á að fræðast um
Ísland.
Mai Hori,
Juhmonji 68,
Haguro-machi,
Higashitagawa-guh,
Yamagata 997-0127,
Japan.
BRANDON Wlasak, 15
ára piltur í Bandaríkjunum,
óskar eftir íslenskum penna-
vinum á svipuðum aldri.
Brandon Vlasak,
1687 Buckhingham
Path,
Fariboult, MN 55021,
U.S.A.
PENNAVINIR
MEÐ MORGUNKAFFINU
Vill herrann hafa það stutt yfir eyrunum?
Bridsfélag Selfoss
og nágrennis
Áfram var haldið við að spila í að-
alsveitakeppninni 30. janúar sl. Úr-
slit í 4. umferðinni urðu þessi:
Sigfinnur og fél. – Garðar og félagar 13-17
Ólafur og fél. – Brynjólfur og félagar 20-10
Þórður og félagar – Anton og félagar 12-18
Höskuldur og fél. – Kristján og félagar22-8
Þegar mótið er rúmlega hálfnað,
eftir 4 umferðir, þá er staðan þessi:
Ólafur og félagar 78
Höskuldur og félagar 68
Garðar og félagar 67
Brynjólfur og félagar 62
Þórður og félagar 58
Sigfinnur og félagar 50
Kristján og félagar 47
Anton og félagar 47
Í samanburði á árangri einstakra
para að loknum 8 hálfleikjum er
staða efstu para þessi (svigatalan er
fjöldi spilaðra hálfleikja):
Ólafur Steinas. – Guðjón Einarss. 17,75 (8)
Brynjólfur Gestss. – Guðm. Theod.17,25 (8)
Garðar Garðarss. – Auðunn Herm.17,14 (6)
Gísli Haukss. – Magnús Guðm. 17,10 (8)
Sigfinnur Snorras. – Eyjólfur Sturl.16,46
(8)
Fimmta umferð í aðalsveita-
keppninni verður spiluð fimmtu-
daginn 6. febrúar nk.
Bridsfélag
Kópavogs
Spennan gæti ekki verið meiri í
aðalsveitakeppninni þegar einu
kvöldi er ólokið og nú er bara að sjá
hverjir hafa sterkustu taugarnar
fyrir lokaátökin!
Staða efstu sveita:
Sigfús Örn Árnason 132
Jón Steinar Ingólfsson 128
Ragnar Jónsson 127
Valdimar Sveinsson 110
Vinir 110
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Nýbýlavegi 12, Kóp.,
sími 554 4433.
Síðustu dagar útsölunnar
Útsölunni lýkur á laugardaginn
Opið frá kl. 10—18
laugardaga frá kl. 11—15
Allir velkomnir
Flúor fyrir alla,
unga sem aldna
www.tannheilsa.is
Laugavegi 1 • sími 561 7760
Útsölulok
50-70% afsláttur