Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 41
Þrjú félög verða með í deild-arkeppninni í fyrsta skipti og
útlit er fyrir að það fjórða bætist
við á næstu dögum. Það er Knatt-
spyrnufélag Eskifjarðar, nýstofnað
félag. Hin nýju liðin eru Reykja-
víkurfélögin Afríka og Númi, sem
bæði koma úr utandeildinni, og
Snörtur á Kópaskeri.
Þá mæta fjögur félög til leiks á
ný eftir mislanga fjarveru. Freyr,
sameiginlegt lið Stokkseyringa og
Eyrbekkinga, lék síðast á Íslands-
móti fyrir 34 árum, og Drangur
frá Vík, sem reyndar hefur aðset-
ur í Kópavogi, var með fyrir 18 ár-
um. Reynir frá Árskógsströnd
kemur aftur eftir 12 ára hlé og
Hamar úr Hveragerði og Einherji
frá Vopnafirði eftir skemmri fjar-
veru.
Víkingur Ó. með á ný
Austanliðin Huginn og Höttur
eru aðskilin á ný en þau hafa verið
með sameiginlegt lið undanfarin ár
og þá kemur Víkingur úr Ólafsvík
inn á ný í staðinn fyrir sam-
bandsliðið HSH á Snæfellsnesi.
Riðlaskiptingin í deildinni er
sem hér segir:
A-riðill: BÍ (Ísafirði), Bolung-
arvík, Deiglan (Reykjavík), Drang-
ur (Vík/Kópavogi), Grótta (Sel-
tjarnarnesi), Númi (Reykjavík),
Skallagrímur (Borgarnesi), Vík-
ingur (Ólafsvík).
B-riðill: Afríka (Reykjavík), Ár-
borg (Selfossi), Freyr (Stokkseyri/
Eyrarbakka), Hamar (Hvera-
gerði), ÍH (Hafnarfirði), Leiknir
(Reykjavík), Reynir (Sandgerði),
Ægir (Þorlákshöfn).
C-riðill: Hvöt (Blönduósi),
Magni (Grenivík), Neisti (Hofsósi),
Reynir (Árskógsströnd), Snörtur
(Kópaskeri), Vaskur (Akureyri).
D-riðill: Einherji (Vopnafirði),
Fjarðabyggð (Neskaupstað/Eski-
firði/Reyðarfirði), Huginn (Seyðis-
firði), Höttur (Seyðisfirði), Leiknir
(Fáskrúðsfirði), Neisti (Djúpa-
vogi).
Knattspyrnufélag Eskifjarðar
bætist síðan við D-riðil ef það
verður með.
Þrjú lið sem voru með í fyrra
eru hætt en það eru Bruni frá
Akranesi, Efling úr Suður-Þing-
eyjarsýslu og Úlfarnir úr Reykja-
vík en síðastnefnda liðið flutti sig
reyndar yfir til ÍH.
Mikil fjölgun í 3. deildinni
LIÐUM í 3. deildarkeppni karla í knattspyrnu hefur fjölgað verulega
frá síðasta ári. Í fyrra léku 22 lið í deildinni en í ár verða þau 28 eða
29 talsins. Sem fyrr er leikið í fjórum riðlum og tvö efstu lið í hverj-
um fara í úrslitakeppni um sæti í 2. deild.
FÓLK
BJARKI Gunnlaugsson skoraði
tvö mörk fyrir Íslandsmeistara KR í
knattspyrnu sem unnu Hauka, 3:2, í
æfingaleik í Egilshöll í fyrrakvöld.
GONZALO Rodriguez, 18 ára
piltur, skoraði sigurmark Argentínu
sem vann Mexíkó, 1:0, í vináttu-
landsleik í Los Angeles í fyrrinótt.
Argentína, sem mætir Bandaríkj-
unum í Miami á laugardaginn, tefldi
fram mörgum nýliðum og lék án
leikmanna frá evrópskum liðum.
RICARDO Lavolpe, varamark-
vörður heimsmeistaraliðs Argent-
ínu árið 1978, stýrði landsliði Mexíkó
í fyrsta skipti, gegn sinni eigin þjóð,
og mátti þola tap. Lavolpe tók við af
Javier Aguirre seint á síðasta ári.
RUBEN Acosta, forseti Alþjóða
blaksambandsins, og Jean Pierre
Seppey, framkvæmdastjóri sam-
bandsins, hafa verið ákærðir fyrir
fjármálamisferli. Það var Mario
Goijman, forseti blaksambandsins í
Argentínu, sem lagði fram kæruna
en hún er tekin fyrir í Sviss þar sem
höfuðstöðvar Alþjóða blaksam-
bandsins eru í borginni Lausanne.
SVISSNESKA lögreglan heim-
sótti höfuðstöðvarnar óvænt í fyrra-
dag til að afla gagna í málinu. Ákær-
andi telur að 450 milljónir króna hafi
horfið úr sjóðum sambandsins og
bendir á að fasteign, sem blaksam-
bandið keypti til fjárfestingar, væri
nú í eigu eiginkonu Acosta forseta.
JAVIER de Pedro, leikmaður
spænska toppliðsins Real Sociedad,
á von á þungri refsingu frá spænska
knattspyrnusambandinu. De Pedro
steig ofan á leikmann Athletic
Bilbao, Javi Gonzalez, í viðureign
baskaliðanna í 1. deildinni um síð-
ustsu helgi og á yfir höfði sér leik-
bann, allt frá fjórum upp í 12 leiki.
Real Sociedad tapaði leiknum, 3:0.
Gert er ráð fyrir aðkeppnin verði haldin í
Belgrad í Serbíu 24. og 25.
maí í vor, en það hefur ekki verið
staðfest af Frjálsíþróttasambandi
Evrópu. Sigurður sagði að reiknað
væri með að senda 30 keppendur, 15
af hvoru kyni, og væri þetta í fyrsta
sinn sem FH sendi kvennalið í Evr-
ópukeppni félagsliða en ÍR-ingar
sendu kvennasveit sína til leiks fyrir
nokkrum árum.
Stjórn deildarinnar hefur þegar
sent tilkynningu um þátttöku á
mótinu og þegar hefur verið ræddur
kostnaður við ferðina og hvernig ná
á endum saman en endanlegur
kostnaður ræðst ekki fyrr en keppn-
isstaðir verða endalega ákveðnir.
Sigurður sagði ljóst yrði keppnin í
Belgrad þá fylgdi því mikill kostn-
aður vegna ferða þangað, en hann
vonast ennþá til að a.m.k. önnur
sveitin þurfi ekki að fara í svo langa
og kostnaðarsama ferð. Hann sagði
ennfremur að Hafnarfjarðarbær
styddi við bakið á íþróttafélögum í
bænum sem tækju þátt í Evrópu-
keppni félagsliða og sá styrkur væri
grunnurinn að því að þátttakan væri
möguleg.
„Þessi ferð kemur til með að vera
mjög góður undirbúningar fyrir þá
FH-inga sem koma til með að taka
þátt í Smáþjóðaleikunum sem haldn-
ir verða á Möltu viku eftir Evrópu-
keppnina,“ sagði Sigurður en FH-
ingar eiga stóran hóp landsliðs-
manna og má þar nefnda Höllu
Heimisdóttur, Íris Svavarsdóttur,
Silju Úlfarsdóttur, Þóreyju Eddu
Elísdóttur, Bjarni Þór Traustason,
Björgvin Víkingsson, Sveinn Þórar-
insson, Óðinn Björn Þorsteinsson,
Jónas Hallgrímsson, Ingi Sturla
Þórisson, svo einhverjir séu nefndir.
Þegar karlasveit FH tók þátt í
Evrópukeppninni 1992 stóð hún sig
vel og hafnaði í fjórða sæti í C-riðli af
átta sveitum, en keppnin fór fram í
Birmingham í Englandi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þórey Edda Elísdóttir, stangarstökkvarinn knái úr FH, verður
með í Evrópukeppni félagsliða í sumar.
FH-ingar
í Evrópu-
keppni
FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD FH hefur sett stefnuna á þátttöku í Evr-
ópukeppni félagsliða, en 11 ár eru liðin síðan félagið sendi síðast
sveit til þátttöku í Evrópukeppninni og þá aðeins karlasveit. Að
sögn Sigurðar Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar FH, hef-
ur stefnan verið sett á að senda bæði karla- og kvennasveit að
þessu sinni.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
SAMKVÆMT enskum fjölmiðlum
er útlit fyrir harðan slag Arsenal
og Manchester United, ekki bara
um enska meistaratitilinn í knatt-
spyrnu heldur einnig um brasilíska
sóknarmanninn Ronaldinho sem
leikur með París St.Germain í
Frakklandi.
Manchester United hefur lengi
haft augastað á Ronaldinho og sagt
er að Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri félagsins, hafi fylgst
með honum undanfarna sex mánuði
og ætli sér að kaupa hann í sumar.
Umboðsmaður Ronaldinhos hefur
staðfest fyrir nokkru að bæði Unit-
ed og Inter Mílanó á Ítalíu hafi sýnt
honum áhuga en ekkert hafi verið
ákveðið í þeim efnum.
Nú mun Arsenal vera komið í
slaginn og Arsene Wenger er sagð-
ur tilbúinn til að greiða vel á annan
milljarð króna fyrir þennan
skemmtilega sóknarmann sem lék
stórt hlutverk með Brasilíumönn-
um í lokakeppni HM síðasta sumar.
Wenger telur að það muni hjálpa
sér verulega að landar hans, Gil-
berto Silva og Edu, eru leikmenn
Arsenal, og hann sér Ronaldinho
sem verðugan arftaka Dennis Berg-
kamps á Highbury. ReutersRonaldinho er vinsæll og veit af því.
Man. Utd. og Arsenal
slást um Ronaldinho
ENSKA dagblaðið Express & Star segir
að kaupverðið á Skagamanninum Jóhann-
esi Karli Guðjónssyni sé tvær milljónir
punda, eða rúmar 250 milljónir króna.
Aston Villa hefur forkaupsrétt á honum í
sumar en eins og áður hefur komið fram,
er Graham Taylor, knattspyrnustjóri,
þegar farinn að þrýsta á stjórn félagsins
um að tryggja kaupin á honum.
Real Betis greiddi RKC Waalwijk um
350 milljónir fyrir Jóhannes Karl fyrir
hálfu öðru ári en leigði hann fyrir
skömmu til Aston Villa fyrir 20 milljónir
króna.
Jóhannes
Karl kostar
250 milljónir
Námskeiðið er fyrsti hluti í menntakerfi þjálfara og fer fram
í Íþróttamiðstöðinni Laugardal helgina 14.-16. febrúar nk.
Um er að ræða almennan hluta þjálfarastigs 1a sem er undanfari
annarra námskeiða sem síðar verður boðið uppá.
Námskeiðið er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað
leiðbeinendum barna í íþróttum.
Nemandi, sem lýkur þessu námskeiði ásamt því að ljúka
sérgreinahluta þjálfarastigs 1a, hlýtur réttindi sem aðstoðarmaður eða
leiðbeinandi hjá íþróttaskóla eða yngstu flokkum.
Skráning fer fram á skrifstofu ÍSÍ í síma 514 4000.
Netfang: andri@isisport.is
Skráningu þarf að vera lokið fyrir miðvikudaginn 12. febrúar nk.
Verð: 10.800 kr.
Nánari uppl. er hægt að nálgast á heimasíðu ÍSÍ, www. isisport.is
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir
Þjálfaranámskeið
Þjálfarastig 1a