Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 43
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 43  VALA Flosadóttir, stangar- stökkvari úr ÍR, lyfti sér yfir 4,10 metra á boðsmóti í Chicago um síð- ustu helgi. Þetta var fyrsta mót hennar á þessu ári, en hún ætlar ekki að taka þátt í mörgum mótum innan- húss í vetur heldur einbeita sér að utanhúss keppnistímabilinu sem nær hámarki á HM í París í ágúst. Hanna Mia Persson frá Svíþjóð stökk hæst á mótinu í Chicago, 4,20 metra.  ÞÓRÐUR Guðjónsson og félagar hans í Bochum voru slegnir út af Kaiserslautern í 8-liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í knatt- spyrnu í gær. Staðan eftir venjuleg- an leiktíma var 2:2 og 3:3 eftir fram- lengingu. Þórður kom inn á sem varamaður á 80. mínútu og skoraði eitt marka sinna manna úr víta- spyrnukeppninni.  JONATHAN Woodgate verður ekki í liði Newcastle þegar það sækir fyrrum félaga hans í Leeds heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þann 22. febrúar. Leeds óskaði eftir því við Newcastle að hann kæmi ekki aftur á Elland Road svona skömmu eftir hið umdeilda brotthvarf hans þaðan. Newcastle samþykkti það en Woodgate, sem er að jafna sig eftir meiðsli, átti ágæta möguleika á að ná leiknum.  LEEDS freistaði þess að ná sams konar samkomulagi við West Ham vegna Lee Bowyers en forráðamenn West Ham harðneituðu að hlusta á slíkt. West Ham sækir Leeds heim á laugardaginn, með Bowyer innan- borðs.  STUÐNINGSMENN Leeds ætla að efna til ýmiss konar mótmæla á leiknum við West Ham. Þeir eru æfir yfir því að búið sé að selja flesta bestu menn liðsins og krefjast af- sagnar Peters Ridsdales, stjórnar- formanns félagsins.  MARK Viduka, framherji Leeds United, þarf að taka út þriggja leikja bann eftir að aganefnd enska knatt- spyrnusambandsins ákvað að verða ekki við beiðni um að fella niður rauða spjaldið sem Viduka fékk að líta á í leiknum við Gillingham á dög- unum.  PETER Hoekstra, sóknarmaður- inn leikni, verður að öllu óbreyttu ekki í liði Stoke City þegar það tekur á móti Eiði Smára Guðjohnsen og fé- lögum í Chelsea í 16 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knatt- spyrnu um aðra helgi. Hoekstra er kominn í eins leiks bann og tekur það út gegn Chelsea, nema til komi færslur á leikjum í millitíðinni.  LEE Mills, lánsmaður frá Cov- entry, og Frazer Richardson, láns- maður frá Leeds, geta heldur ekki leikið með gegn Chelsea. Mills lék með Coventry í 3. umferð keppninn- ar og Leeds vill ekki leyfa Richard- son að spila þar sem liðið gæti þurft að grípa til hans síðar í keppninni.  PETER Schmeichel, markvörður Manchester City, er vongóður um að geta mætt fyrrum félögum sínum í Manchester United en liðin eigast við í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford á sunnudaginn. Schmeichel hefur misst úr síðustu þrjá leiki City vegna meiðsla í kálfa en hann er á batavegi að sögn Kevins Keegans, knattspyrnustjóra félagsins.  UNITED hefur harma að hefna því City hafði betur í leik liðanna á Maine Road í haust, 3:1, en 33 ár eru liðin síðan Manchester City hafði betur í báðum deildarleikjum lið- anna á sama tímabili.  TOTTENHAM ætlar að bjóða Teddy Sheringham að framlengja samning við félagið um eitt ár. Sher- ingham, sem verður 37 ára gamall í apríl, hefur staðið fyrir sínu með Lundúnarliðinu á leiktíðinni og hef- ur skorað 8 mörk í 26 leikjum.  GUÐFINNUR Kristmannsson skoraði 5 mörk fyrir Wasaiterna sem tapaði fyrir Alingsäs, 27:22, í sænsku 1. deildinni í handknattleik í gær. FÓLK Gústaf Adolf Björnsson, þjálfariHauka, var að vonum kátur með sínar stúlkur í leikslok. „Við byrjuðum ekki nógu vel í upphafi leiks, vorum með alltof mikið af töpuðum boltum og að mínu mati var bara of mikill æsingur í lið- inu. Við áttum ágætis möguleika til að koma okkur í góð færi og klára þetta en töpuðum boltanum of oft á leiðinni upp völlinn. Svo er það út úr okkar leik og við fórum að skila þessu með mörkum. Þá vorum við komin inn í þann leik sem við vorum að leita eftir, að spila þétta vörn, verja teiginn og fá boltann í hraða- upphlaup og eftir það fór að skilja á milli liðanna,“ sagði Gústaf. En í lok leiks, þegar þið eruð kom- in með góða forystu, þá setur þú inn unga og óreynda leikmenn. Var það einhver fyrirfram ákveðin taktík af þinni hálfu? „Nei nei, FH-ingar eru vinir okk- ar. Við komum úr sama bæjarfélagi og við vildum skilja vel við í þessum leik. Eina markmið okkar í þessum leik var að vinna og koma okkur í Höllina.“ Reyndum að halda í trúna Kristín Guðjónsdóttir, fyrirliði FH, var vonsvikin í lok leiks. „Við spiluðum ágætlega fyrstu 20 mínút- ur leiksins en svo var eins og við hættum gjörsamlega og við gerðum ekkert af viti síðustu 10 mínútur fyrri hálfleiks. Við vissum það alveg þegar við komum út eftir leikhlé að þótt við værum 5 mörkum undir þá væri leikurinn alls ekki búinn en svo þegar við byrjuðum seinni hálfleik- inn alveg eins og hálfvitar og fengum á okkur tvö, þrjú mörk strax, þá var þetta náttúrlega bara búið. Við reyndum samt að halda í trúna, bik- arleikir eru alltaf bikarleikir, en þetta tókst samt ekki núna,“ sagði Kristín Guðjónsdóttir, fyrirliði FH. Höfum verið að bæta okkur „Í rauninni er fimm marka munur, þegar upp er staðið, ekki mikið, sér- staklega ekki þegar horft er til þess hvernig leikurinn þróaðist. Við byrj- uðum reyndar mjög illa en náðum mest tveggja stafa tölu á þær og auð- vitað hefðum við átt að halda því út. En FH-liðið er gott lið og við hleypt- um þeim óþarflega mikið inn í leikinn aftur í lokin,“ sagði Harpa Melsted, fyrirliði Hauka, í leikslok. „Það komu kaflar í þessum leik þar sem við spiluðum mjög vel. Vörn- in small og þá komu hraðaupphlaup- in og við sýndum að við höfum bætt okkur í sókninni jafnt og þétt í vetur, og leikur okkar er að verða betri.“ Þið keyrið á 9 leikmönnum stærst- an hluta þessa leiks og eruð búin að fá Brynju Steinsen aftur í liðið, hvers virði er það fyrir ykkur? „Það munar rosalega miklu. Við höfum verið mjög óheppnar með meiðsli og það er ómetanlegt að fá Brynju aftur inn, eins og Nínu Björnsdóttur, sem komu þegar það var kallað á þær. Þær eru okkur ómetanlegar og þótt þær hafi ekki æft á fullu með okkur í vetur þá vita það allir að þetta eru stelpur sem kunna þetta og eftir smátíma verða þær 100% klárar. En Brynja er okkur mikill styrkur. Hún er mjög sterk félagslega, hún er mik- ill leiðtogi og hún hjálpar mér mjög mikið. Hún er óhrædd við að segja manni til og maður hlustar hvað hún er að segja. Hún á örugglega eftir að hjálpa okkur mjög mikið á loka- sprettinum,“ sagði Harpa. Eitt skref í átt- ina að bikarnum ÞAÐ var mikil gleði í herbúðum Hauka eftir sigurinn á FH í undan- úrslitum í bikarkeppni kvenna í handknattleik í gærkvöld í Kapla- krika. Haukar fá úr því skorið í kvöld hverjir andstæðingar þeirra í úrslitunum verða, þá eigast ÍBV og Stjarnan við í Eyjum. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar ÓLAFUR Þór Gunnarsson knattspyrnumarkvörður er orðinn löglegur með Vals- mönnum en gengið var frá fé- lagaskiptum hans í gær. Eins og fram kom í Morgunblaðinu á laugardag gekk hann til liðs við Valsmenn frá ÍA í kjölfarið á því að Þórður Þórðarson kom til Skagamanna frá KA. Ólafur skrifaði undir tveggja ára samning við Hlíðarenda- félagið og getur leikið með því gegn Létti í lokaumferð riðla- keppninnar í Reykjavíkur- mótinu annað kvöld en þar hafa Valsmenn þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum. Ólafur löglegur með Val CRYSTAL Palace stal heldur betur senunni í gærkvöldi, með því að slá Liverpool út í 4. um- ferð bikarkeppninnar og það á Anfield. Palace, sem leikur í 1. deild, sigraði, 2:0, en liðin höfðu áður gert markalaust jafntefli á Shelhurst Park. Jul- ian Gray skoraði fyrra markið á 55. mínútu og þrátt fyrir að Dougie Freedman, liðsmanni Palace, væri vikið af velli á 70. mínútu bættu þeir marki við, eða réttara sagt Stephen Henchoz sem varð fyrir því óláni að skora í eigið mark á 79. mínútu. Crystal Palace mætir Leeds í 5. umferð keppninnar. Liverpool slegið út KRISTJÁN Halldórsson hand- knattleiksþjálfari skrifar í dag undir tveggja ára samning við danska kvennaliðið Skovbakken/ Brabrand. Kristján er þjálfari karlaliðs Haslum í Noregi en tekur við danska liðinu í sumar. Haslum vildi gera við hann nýjan samning og eins var hann með tilboð frá norska kvennaliðinu Bækkelaget en eftir að hafa velt málunum vel fyrir sér ákvað hann að ganga til samnings við Skovbakken/ Brabrand. Mikill hugur er í forráðamönn- um danska liðsins, sem kemur frá Árósum og leikur líklega undir merkjum Århus á næstu leiktíð. Til stendur að styrkja leik- mannahóp félagsins og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er klásúla í samningi Kristjáns um að fengnir verði þrír sterkir leikmenn á alþjóðamælikvarða til liðsins. Kristján hefur gert góða hluti með lið Haslum á leiktíðinni en með liðinu leika þrír Íslendingar, Daníel Ragnarsson, Heimir Örn Árnason og Theodór Valsson. Lið- ið lék í 1. deildinni fyrir áramót og vann sér sæti í millikeppni deild- arinnar. Þar er liðið í góðri stöðu og stendur vel að vígi um að kom- ast í úrslitakeppni um norska meistaratitilinn. Verði liðið í einu af fjórum efstu sætunum í úr- slitakeppninni vinnur það sér sæti í úrvalsdeildinni. Kristján til Danmerkur SÖREN Hermansen, nýi Daninn í knattspyrnuliði Þróttar úr Reykja- vík, sagði í samtali við danska blaðið Århus Stiftstidende í gær að hann væri með svipuð laun hjá Þrótti og gengur og gerist í dönsku úrvals- deildinni. Þá kemur fram að hann eigi umtalsverð laun inni hjá belg- íska félaginu Mechelen, sem er gjaldþrota og hann reikni ekki með að þau skili sér. Hermansen er frá Árósum og lék bæði með AGF og Aarhus Fremad þar í borg en síðan með Lyngby og Mechelen í Belgíu, eins og áður hef- ur komið fram í Morgunblaðinu. Hann sagði við blaðið að sig og eig- inkonu sína hefði langað til að prófa fleira áður en hann legði knattspyrnuskóna á hilluna, ekki síst vegna þess að börnin þeirra væru enn ekki komin á skólaaldur. „Ég er orðinn 32 ára og því kom- inn tími til að huga að lokum ferils- ins. Kannski spila ég eitt tímabil í Danmörku, eftir að við komum aftur heim í lok þessa árs, jafnvel með Lyngby í 2. deildinni,“ sagði Her- mansen, en fram kemur að samn- ingur hans við Þrótt sé til 1. októ- ber. Þjálfar yngri leikmenn Í greininni er sagt að markmið Þróttara sé að festa sig í sessi sem nýliðar í efstu deild og liðið sé skip- að áhugamönnum, ef Hermansen og írskur leikmaður (Charlie McCor- mick) séu undanskildir. Liðið æfi því aðeins á kvöldin en Hermansen muni taka þátt í þjálfun ungra leik- manna hjá félaginu. Laun hans séu ágæt þó ekki sé um atvinnu- mennsku að ræða á Íslandi. „Knattspyrnumenn hér æfa mest- allt árið þótt meistarakeppnin sé stutt. Hér eru góðar upphitaðar knattspyrnuhallir og í þeim eru spil- uð hin ýmsu mót,“ segir Daninn um aðstæður á Íslandi. Svipuð laun hjá Þrótti og í Danmörku Morgunblaðið/Árni Sæberg Harpa Melsted úr Haukum brýtur sér hér leið framhjá Dröfn Sæmundsdóttur og skorar eitt níu marka sinna gegn FH í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.