Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 70. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Morðið á Palme Skaut Pettersson Palme fyrir mistök? 18 Gettu betur Í kvöld mætast MA og MR í fjórðungsúrslitum Sjónvarp 63 BREZK stjórnvöld lögðu í gær fram lista yfir afarkosti sem Íraksstjórn skuli gert að hlíta, vilji hún komast hjá því að vera beitt hervaldi til að láta öll gereyðingarvopn sín af hendi. Brezkir og bandarískir ráðamenn unnu í gær að endurorðun nýrrar álykt- unartillögu um Íraksmálið í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, og var ráðið kallað saman til fundar í gærkvöld til að ræða til- löguna. Í endurbættu tillögunni, sem AP-frétta- stofan fékk afrit af, er fallið frá dagsetning- unni 17. marz sem lokafresti fyrir Íraka að hlíta til fulls afvopnunarkröfum SÞ. Afarkostalistann, sem nær yfir sex atriði, lögðu Bretar fram í þeirri von að það mætti verða til að skera á þann hnút sem Íraks- málið er komið í á vettvangi öryggisráðsins, en sá hnútur hefur sett forsætisráðherrann Tony Blair í erfiða stöðu heima fyrir, eink- um vegna vaxandi innanflokksgagnrýni á einarðan stuðning hans við herskáa stefnu Bandaríkjastjórnar í málinu. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði að Bandaríkjastjórn vænti þess enn að atkvæði verði greidd um nýja ályktun fyrir vikulokin. AP Mohammed Al-Douri, sendiherra Íraks hjá Sameinuðu þjóðunum (t.h.), leggur við hlustir á fundi öryggisráðsins í gærkvöld. Bretar kynna nýja afarkosti Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP. Fallið frá 17. marz sem lokafresti til afvopnunar  Þrýst á Blair/16 DÖNSK málnefnd, hin danska hliðstæða Ís- lenzkrar málnefndar, varar við því að fari svo sem horfir muni dansk- an brátt aðeins vera notuð til heimilisbrúks en enskan ráða ríkjum á vinnustöðum og á öðr- um opinberum vett- vangi í landinu. Eftir því sem greint var frá í dagblaðinu MetroXpress hvetur nefndin mennta- málaráðherrann Brian Mikkelsen og þjóð- þingið til að grípa til ráðstafana til að hamla á móti undanhaldi móðurmálsins. „Haldi þessi þróun áfram hættum við á að danskan hljómi aðeins yfir kvöldverð- arborðinu, eða þegar við setjumst með vin- um inn í stofu. Enska er á góðri leið með að verða ráðandi úti um allt samfélagið að öðru leyti,“ segir formaður Danskrar mál- nefndar, Niels Davidsen-Nielsen prófessor. Enska ógnar dönskunni Brian Mikkelsen ZORAN Djindjic, forsætisráðherra Serbíu, var í gær skotinn til bana úr fyrirsát fyrir utan stjórnarráðs- byggingu í Belgrad. Er þetta í fyrsta sinn sem evrópskur ríkis- stjórnarleiðtogi er myrtur frá því Olof Palme, þáverandi forsætisráð- herra Svíþjóðar, var skotinn í febr- úar 1986. Talsmenn Serbíustjórnar sögðu í gærkvöld að grunur léki á því að hópur sem Milorad nokkur Lukovic fer fyrir, betur þekktur undir við- urnefninu Legija, bæri ábyrgð á til- ræðinu. Lukovic er fyrrverandi for- ingi í sérsveit serbnesku lögregl- unnar. Áhyggjur af óstöðugleika Með morðinu á Djindjic blossuðu aftur upp áhyggjur af óstöðugleika á Balkanskaga, einkum og sér í lagi í tengslum við skipulagða glæpa- starfsemi. Ríkisstjórnin ákvað í kjölfar morðsins að lýsa yfir neyðar- ástandi um allt landið, í því skyni að kæfa hugsanleg uppþot og átök, en það er enn fjarri því að gróið sé um heilt milli fylkinga þótt tvö ár séu liðin frá því Slobodan Milosevic var steypt af leiðtogastóli Júgóslavíu. Djindjic, sem gegndi forystuhlut- verki við að steypa Milosevic, varð fyrir skothríð leyniskyttna á bíla- stæði við stjórnarráðsbyggingu í miðborg Belgrad um hádegisbilið í gær. Hann var lýstur látinn skömmu eftir komuna á sjúkrahús. Reyndust byssukúlur hafa lent bæði í kviðarholi og baki, eftir því sem Nebojsa Covic aðstoðarforsæt- isráðherra skýrði frá. Að sögn lög- reglu særðist einn lífvarða Djindjic. Tveir menn voru handteknir í kjölfarið, að sögn vitna. En lögregl- an var greinilega ekki viss um að sér hefði tekizt að hafa hendur í hári til- ræðismannanna og hóf skipulagða leit að þeim um allt landið. Settir voru upp vegartálmar í Belgrad og öll áætlanaumferð rútubíla, járn- brautarlesta og flugvéla frá höfuð- borginni var stöðvuð. Natasa Micic, starfandi forseti Serbíu, vísaði til þess að stjórn- skipulagi landsins væri hætta búin er hann lýsti yfir neyðarástandi. Með því er hernum fengið lögreglu- vald, svo að hermenn geta handtek- ið hvern sem grunur fellur á, án handtökuheimildar. Lýsti forsetinn jafnframt yfir þriggja daga þjóðar- sorg. Leiðtogar ríkja heims hörmuðu morðið í gær. George Robertson, framkvæmdastjóri NATO, sagði morðið sýna að „and-lýðræðisleg öfl og öfgar“ séu enn sterk í Serbíu. Neyðarástandi lýst yfir um alla Serbíu Fv. lögreglufor- ingi grunaður um morð á for- sætisráðherra Athvarf Koberlings Náttúra Loðmundarfjarðar kveikjan að verkunum Listir 27 TÖLVUR kosta innan við þriðjung af því sem þær kost- uðu fyrir sex árum, samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Sjónvörp, útvörp, myndbandstæki og hljómflutningstæki hafa einnig lækkað verulega í verði á und- anförnum árum. Samkvæmt mælingum vísi- tölunnar hafa tölvur lækkað um 71,5% í verði á undan- förnum sex árum. Á sama tímabili hefur verðlag að með- altali hækkað um 27% og í hlutfalli við það kosta tölvur ekki nema tæplega fjórðung af því sem þær kostuðu fyrir sex árum. Í því sambandi er rétt að hafa í huga að þarna er að hluta til um svonefnda gæða- leiðréttingu að ræða, þ.e.a.s. það er ekki bara horft til þess verðs sem um er að ræða held- ur einnig til þess hvað kaup- andinn fær fyrir peningana og það vegið inn í verðmæling- una. Svipað kemur í ljós þegar verðþróun á sjónvörpum, út- vörpum og myndbandstækjum er skoðuð. Sjónvörp, mynd- bandstæki og útvörp hafa lækkað í verði um 41,5% á undanförnum sex árum og er verðlækkunin mest framan af tímabilinu. Ef mið er tekið af verðlagshækkuninni á tíma- bilinu er um að ræða rúmlega helmings verðlækkun á tíma- bilinu. Hljómflutningstæki hafa lækkað heldur minna en sjón- vörpin, eða um rétt rúm 30%. Í hlutfalli við verðlag er lækk- unin um 45%. Tölvur hafa lækkað um 70% í verði á sex árum Sjónvörp hafa lækkað um rúm 40%                             !"  #         !" #  Á þessari mynd úr myndbandsupptöku sjást lífverðir Zorans Djindjic, forsætisráðherra Serbíu, bisa við að koma helsærðum ráðherranum aftur inn í bíl til að bruna með hann á sjúkrahús um hádegi í gær. Tvær leyniskyttur með öfluga riffla sátu fyrir Djindjic uppi á þaki húss til móts við stjórnarráðs- bygginguna í miðborg Belgrad. Tilræðismennirnir komust undan í rauðum bíl, að sögn vitna. Fyrirsát við stjórnarráðið í Belgrad Reuters Belgrad. AP, AFP.  Baráttumaður/18 ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.