Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Áður en þú deyrð, færðu að sjá SV MBLRadío X KVIKMYNDIR.IS SV MBL HK DV  SG Rás 2 Radio X Sýnd kl. 10.15. B.i. 16.  ÞÞ Frétta- blaðið Sýnd kl. 6 og 9. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Hlaut 2 Golden Globe verðlaun, bresku BAFTA kvikmyndaverðlaunin og Silfurbjörninn á kvikmyndahátíðinni í Berlin. Óskarsverðlaunaleikarnir Nicolas Cage og Meryl Streep fara á kostum í myndinni. Frá höfundum og leikstjóra „Being John Malkovich“. Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem BESTA ERLENDA MYNDIN Yndislega svört kómedía frá meistara Kaurismaki. Einstök kvikmynd sem hefur heillað áhorfendur jafnt sem gagnrýnendur, um heim allan, og sópað til sín verðlaunum. i l rt í fr i t r ri i. i t i f r ill rf r j f t r r, i ll , til í r l . Mynd eftir Aki Kaurismäki Sýnd kl. 6, 8 og 10. 1/2 H.L. Mbl.  H.K. DV  RadíóX 1/2 Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 H.L. Mbl. 1/2 H.K. DV  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 12. Vinsælasta myndin í Bandaríkjunum. 2 vikur á toppnum. Stútfull af topp tónlist og brjálæðri spennu. ÁLFABAKKI / KRINGLAN / KEFLAVÍK EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8, OG 10.10. B. I. 16. 1/2 H.L. Mbl. 1/2 HELL is for Heroes tilheyrir nýrri bylgju breskra rokksveita sem leita ekki síst yfir Atlantshafið eftir innblæstri. Þannig skima þeir félagar í Hell is for Heroes, líkt og land- ar þeirra Hundred Reasons, í áttina að til- finningaheitum rokkböndum eins og At the Drive In og The Icarus Line þótt grunninn megi reyndar finna víðar. Hin goðsagna- kennda sænska sveit Refused er ekki langt undan og svo ber þetta að sjálfsögðu allt að brunni óþekktustu áhrifavalda melódísks samtímarokks, Hüsker Dü. Hell is for Heroes hefur verið á miklum þönum undanfarin misseri og leikið með sveitum eins og Papa Roach, Alien Ant Farm og A. Bresku blöðin eru vonbjört fyrir hönd sveitarinnar og Rock Sound segir þetta klárlega vera efnilegasta band Bret- lands í dag. Kerrang og NME eru á svip- uðum nótum og Rock Sound og lofsama kraftinn sem frá sveitinni stafar. Hljómsveitin var stofnuð í Camden, Lundúnum, um sumarbil 2000 og er byggð að nokkru leyti á rústum Symposium, rokk- sveitar sem lagði upp laupana við lok síðasta árþúsunds eftir tvo stóra hljómdiska. HIFH-liðar ákváðu svo í desember sama ár að leggja bandið fyrir sig, sögðu upp dag- vinnunni og skelltu sér á þjóðveginn með Icarus Line og skyldum sveitum. Þar hafa þeir verið meira og minna síðan … Skottið á Justin Blaðamaður náði í skottið á Justin þar sem hann var á miðju tónleikaferðalagi og náði að leggja fyrir hann fáeinar spurningar. – Þið eruð búnir að vera á fullu undan- farna mánuði er það ekki? „Jú það er rétt. Og enn sér ekki fyrir end- ann á því!“ – Þið unnuð plötuna ykkar með sama fólki og stóð að Shape of Punk to Come … með Refused (’98) sem hefur í sögunnar rás orðið að einhvers konar heilögum kaleik hjá leit- andi rokksveitum? „Laukrétt. Það var einfaldlega frábært að fá tækifæri til að vinna með þeim Pelle (Henricsson) og Eskil (Lövström). Plötuna tókum við svo upp í LA.“ – Nú er oft talað um bönd eins og Hundred Reasons og Icarus Line í sömu andrá og ykkur. Finnst þér það óþægilegt? „Alls ekki og ég skrifa fúslega undir það að við erum með svipaða nálgun og þessar sveitir. Við bæði virðum þessar hljómsveitir og „fílum“.“ – Þið leggið áherslu á að spila sem mest? „Já. Þar byggjum við upp okkar aðdá- endahóp og þannig viljum við hafa það. Okk- ur finnst mikilvægt að vera sem mest í bein- um tengslum við fólkið og vinna okkur inn virðingu þannig; frekar en í gegnum blöð, ljósmyndir eða eitthvað slíkt.“ Með Mínus og Brain Police – Á heimasíðu ykkar grínist þið með að þið séuð búnir að selja sál ykkar til EMI. Er erfitt að gefa út hjá stórfyrirtæki en halda um leið í listrænan metnað? „Ja (hlær). Hvað listræna metnaðinn varðar er það lítið mál. EMI-menn vissu að hverju þeir væru að ganga, þess vegna höfðu þeir samband við okkur. Það er úti- lokað að við förum að haga okkar seglum eftir þeirra vindi.“ Um upphitun í kvöld sjá Mínus og Brain Police. Mínus er nú um stundir á kafi í hljóð- versvinnu vegna þriðju breiðskífu sinnar og Brain Police leggur sömuleiðis í sína aðra bráðlega. Þannig að fastlega má búast við því að nýtt efni frá þeim fái að hljóma í kvöld. Hell is for Heroes á Gauknum Hetjurokkið hið nýja Breska rokksveitin Hell is for Heroes hefur fengið sterk við- brögð í heimalandinu að undanförnu vegna fyrstu stóru plötu sinnar, The Neon Handshake. Arnar Eggert Thoroddsen kynnti sér feril þessarar ungu sveitar og ræddi stuttlega við söngvarann Justin Schlosberg vegna hingaðkomu sveitarinnar. Ljósmynd/Tom Sheehan Hell is for Heroes þykir eitt kraftmesta tónleikaband Breta í dag. The Neon Handshake er komin út. Húsið opnað kl. 21 í kvöld. TENGLAR ......................................................... www.hell-is-for-heroes.net arnart@mbl.is KÍNVERSK stjórnvöld hafa bannað rokkhljómsveitinni Roll- ing Stones að leika fjögur þekkt lög þegar hljómsveitin held- ur tónleika í Shanghai og Peking í apríl. Fá Rollingarnir ekki að leika „Brown Sugar“, „Honky Tonk Woman“, „Beast of Burden“ og „Let’s Spend the Night Togeth- er,“ að sögn Chen Jixin, yfirmanns fyrirtækisins sem skipuleggur tónleikana. Chen sagði að lögin fjögur hefðu einnig verið afmáð af safnplötunni 40 Licks, sem gefin var út í tilefni af 40 ára starfsafmæli Rolling Stones, áður en platan var gefin út í Kína fyrr á þessu ári. Það var í fyrsta skipti sem plata með Rolling Stones var gefin út í Kína en sjóræningjaútgáfur af Stones-plötum fást víða í Shanghai og Peking. Chen sagðist ekki vita hvers vegna stjórnvöld hefðu bannað lögin fjögur. Í kínverska menningarmálaráðuneyt- inu vildi enginn tjá sig um málið, að sögn BBC. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Rolling Stones sætir rit- skoðun. Árið 1967 kom hljómsveitin fram í sjónvarpsþætti Eds Sullivans í Bandaríkjunum og söng lagið „Let’s Spend The Night Together,“ eða „Eyðum nóttinni saman“. Í þætt- inum söng Mick Jagger hins vegar: „Let’s spend some time to- gether,“ eða „Verjum smá tíma saman“. Jagger undirbýr sextugsafmælið Mick Jagger, söngvari sveitarinnar, verður sextugur 26. júlí í sumar og ætlar að halda upp á afmælið í Prag þar sem hljómsveitin verður á tónleikaferðalagi. Hljóm- sveitin heldur nú upp á 40 ára starfsafmæli með tón- leikaferð um heiminn og Vaclav Havel, fyrrver- andi forseti Tékklands, sendi Rolling Ston- es persónulegt bréf þar sem hann bauð hljómsveitinni að halda tónleika í Tékklandi í sumar. Búist er við að Havel verði við- staddur tónleikana. Rolling Stones bannað að leika fjögur lög Stones ritskoðaðir í Kína Mick Jagger á sviði Budokan í Tókýó en Stones komu nýlega fram í Japan. RAFSVEITIN AmPop verður með síðbúna útgáfu- tónleika á Grandrokk í kvöld, vegna plötu sinnar Made for Market, sem út kom stuttu fyrir jól. Að sögn Birgis Hilm- arssonar, söngvara, mun trommari Náttfara, Nói, leika með þeim en einnig Prince Valium sem ætlar að spila á hljómborð ásamt öðr- um helmingi AmPop, Kjart- ani F. Ólafssyni. Þetta verða fyrstu tónleikar AmPop sem verða „100% læf“ eins og Birgir orðar það. Sveitin er svo á leið til Bretlands í maí í tveggja vikna hljómleikaferðalag og þess má geta að Made for Market er plata vikunnar á Rás 2. Með AmPop spila plötu- snúðar frá Thule. Tónleikarnir eru liður í Rokk á Grandrokk röðinni en tvö kvöld að auki eru áætluð í þessari viku, á föstudag og laugardag. Á föstudagskvöldið verður skemmtun á veg- um íslensku plötuútgáfunnar New Icon. I.L.O., Blake, Funky Moses, Lewis Copeland, Tommi White, Buckmaster (GusGus) og VJ Optimus leika. Á laugardaginn leikur bandaríska harð- kjarnasveitin Artimus Pyle ásamt Innvortis og Lunchbox. Allir tónleikar hefjast kl. 23. AmPop með tónleika á Grandrokk AmPop: Kjartan og Birgir. 100% lifandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.