Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 25
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 25 HÓTEL BORGARNES Sími 437 1119 hotelbo@centrum.is  Árshátíðir Ráðstefnur Fundir Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.isOD DI H F J 48 73 FLATEYINGURINN Ragnar Her- mannsson heimilismaður á Dval- arheimilinu Hvammi á Húsavík er kunnur í bænum fyrir útskurð sinn í tré og þykir býsna glúrinn á því sviði. En Ragnar er einnig hagur við smíðar og á dögunum kláraði hann bátslíkan sem hann hafði unnið að frá áramótum. Fyrirmyndin að bátnum er vél- báturinn Bjarmi TH 277 sem byggður var af Nóa bátasmið á Akureyri 1958. Bjarma byggði Nói fyrir þá feðga Hermann Jóns- son og syni hans, Ragnar og Jón, sem þá bjuggu enn í Flatey á Skjálfanda. Gerðu þeir bátinn út þaðan og síðan frá Húsavík eftir að flutt var í land, allt til ársins 1978 er hann var seldur. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Ragnar Hermannsson við „Bjarma TH 277“. Smíðaði bát á elliheimilinu Húsavík ÁRLEGUR lomberdagur var haldinn á Skriðuklaustri sl. laugardag. Á hann mættu 30 manns og spiluðu þetta 500 ára gamla spil í tólf tíma, þeir sem lengst sátu. Alls voru spiluð ríflega 1000 spil á deginum. Óvenjumargir ungir spilamenn tóku þátt í spilamennskunni og höfðu sumir komið alla leið frá Reykjavík til að vera með. Þeir eldri voru þó fjöl- mennari en aldursmunur á þeim yngsta og elsta var 71 ár. Gunnarsstofnun hefur undanfarin Frá vinstri: Eiríkur Guðmundsson Brimnesi, Guðjón Daníelsson Kolmúla, Hrafnkell Lárusson Gilsárteigi og Ármann Jóhannsson Stöðvarfirði. Lomberdagur á Skriðuklaustri Austur-Hérað tvö ár unnið markvisst að því að fjölga þeim sem spila þetta sagnaspil sem á rætur að rekja til Spánar. Ástæðan er m.a. sú að Gunnar Gunnarsson skáld var einn af þeim sem mikið spiluðu lomber fyrir miðja öldina síðustu, en þá var spilið vinsælt víða um land. Segja má að þetta starf stofnunarinn- ar sé nú farið að bera ávöxt þar sem yngra fólki hefur fjölgað í hópi spila- manna. Enn um stundir virðist þetta samt ætla að vera karlaspil því engin kona mætti á lomberdaginn að þessu sinni, segir í fréttatilkynningu frá Gunnarsstofnun. ÞAÐ þarf vart að lýsa því hve vatns- miklar ár hafa oft á tíðum gert mik- inn óskunda hér á landi, einkum þegar þær hafa brotið mikið af grónu landi, mest þá mikil flóð eru í þeim. Skaðinn hefur víða verið ómetanlegur og jarðir verið óbyggi- legar vegna þessa. Víða hafa verið gerðir miklir varnargarðar til að forða landspjöllum svo sem kunnugt er. Stóra-Laxá í Hreppum er ein þeirra áa sem hafa höggvið stór skörð í bakka sína á undanförnum árum og áratugum, einkum á neðstu svæðum hennar. Mikið hefur þó ver- ið gert til að varna landbroti sem borið hefur allgóðan árangur. Fyrir landi jarðarinnar Birtinga- holts er nú verið að vinna við að setja grjót á allnokkurn kafla og segir Ragnar Magnússon bóndi á jörðinni að þar hafi áin brotið 10 til 15 metra af landi á fáum árum. Grjóti er sturtað á bakkann sem síð- an er þakinn á fláa með grjóti niður að botni árinnar. Um 500 rúmmetr- ar verða settir á tvo kafla sem eru um 300 metra langir. Sumstaðar eru einnig settir varnargarðar út í árnar til að breyta straumi. Hvort tveggja hefur borið ágætan árangur en þetta er mikið verk og kostnaðar- samt. Hvítá brýtur mikið land Á jörðinni Hvítárholti, sem er hér í sveit, hefur Hvítá brotið mikið land síðustu áratugina, marga hektara, ef ekki tugi. Þar var einnig nú í vetur sett grjót á hluta af þeim bökkum sem eru að brotna niður. Mikið þyrfti þó enn að gera. Verulegt átak var gert í þessum efnum í fyrravet- ur fyrir landi jarðanna Syðra-Lang- holts við Stóru-Laxá og Auðsholts við Hvítá þó meira þurfi til. Árnar hér í Árnessýslu hafa verið fremur stiltar í vetur, ef svo má segja, engin stór flóð komið í þær undanfarna mánuði. Reyndir bænd- ur segja að klak hljóti að hafa heppnast vel hjá konungi fiskanna í haust vegna þessa frábæra tíðarfars sem verið hefur þennan vetur. Von- andi ber það góðan árangur á laxa- gengd næstu ára. Aðgerðir gegn landbroti Morgunblaðið/Sigurður SigmundssonGrjóti sturtað á bakka Stóru-Laxár til að koma í veg fyrir landbrot. Hrunamannahreppur Morgunblaðið/Atli Vigfússon Marteinn Gunnarsson á Hálsi er ánægður með nýja vagninn. TÆKNIVÆÐING í fjósum verður meiri og meiri eftir því sem árin líða og eru flestir bændur duglegir við að nýta sér þá margbreytilegu mögu- leika sem fyrir hendi eru. Nýlega tóku bændurnir á Hálsi í Köldukinn í notkun tölvustýrðan kjarnfóðurvagn sem getur ferðast sjálfur um fjósið og séð um að gefa kúnum þann fóðurbæti sem þær þurfa og fer hann allt að sex ferðir á sólarhring. Vagn sem þessi er mikið þarfaþing í básafjósum þar sem hann getur skammtað í sérstakan fóðurdall hjá hverri kú án nokkurra erfiðleika enda hefur þessi tækni verið notuð á Norðurlöndum um ára- bil þó hún hafi ekki náð hingað til lands að neinu marki fram að þessu. Að sögn Marteins Gunnarssonar bónda á Hálsi má búast við að kjarn- fóðurnýtingin verði mun betri eftir að vagninn hefur verið tekinn í notk- un auk þess sem reynsla er fyrir því að nytin í kúnum aukist. Í minni sínu geymir vagninn upplýsingar um hverja kú, en bóndinn sér um að slá inn allar breytingar á magni. Kjarnfóðurvagninn gengur á braut í fjósinu og getur sjálfur séð um að fylla sig aftur af fóðri þannig að hann verði tilbúinn með það magn sem þarf í hverja ferð og þegar fréttaritari Morgunblaðsins leit við í fjósin á Hálsi var ekki annað að sjá en að kýrnar væru ánægðar með þetta nýja tæki. Kjarnfóð- urgjöfin leikur einn Laxamýri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.