Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 59
X-Factor
X-Factor er hljómsveit frá Hvolsvelli skipuð þeim Þorgeiri Gísla Skúlasyni
gítarleikara, Jóni Antoni Bergssyni söngvara, Hermanni Eduardo Bonilla
söngvara, Arnóri Óla Ólasyni gítarleikara og Kristni Rey Þórðarsyni bassa-
leikara. Meðalaldur sveitarmanna er fimmtán ár en þeir leika metalrokk.
Betlehem
Úr rokkbænum Húsavík er rokksveitin Betlehem. Hana skipa Bjarni Sigur-
óli Jakobsson bassaleikari, Rafnar Orri Gunnarsson gítarleikari og söngv-
ari, Reynir Aðalsteinn Hannesson trommuleikari og Jakob Pálmi Pálmason
gítarleikari. Þeir eru allir fæddir 1988 nema Jakob sem fæddur er 1987.
Fjöllistahópurinn Mujaffa
Fjöllistahópurinn Mujaffa er sex manna sveit úr Hafnarfirði. Hana skipa
Freyr Árnason, sem leikur á trommur og bassa, Snorri Páll Jónsson, sem
syngur og leikur á gítar, Ingi Már Úlfarsson, sem leikur á trommur og
bassa, Eiríkur Rafn Stefánsson, sem leikur á trompet og hljómborð, Tóm-
as Ingi Þórðarson, sem leikur á hljómborð og syngur, og Ingimar And-
ersen, sem leikur á klarinett. Þeir segjast leika djassað hiphoprokk og
eru allir á sextánda árinu nema Eiríkur sem er að verða fimmtán.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 59
ÍSLENSKIR hönnuðir eru nú
staddir í París í tengslum við tísku-
viku þar í borg í samvinnu við Út-
flutningsráð Íslands. Væntanlegir
kaupendur og aðrir áhugasamir
geta litið hönnun frá Aftur, Scand-
inavian Tourist, Aurum, Ástu Guð-
mundsdóttur, Björgu Pjetursdóttur,
Sigrúnu Úlfarsdóttur, Ingibjörgu
Hönnu Pétursdóttir og Má Mí Mó.
Hönnunin er fjölbreytt, allt frá því
að notast við endurnýttan textíl
(Aftur), yfir í skartgripi (Aurum) og
föt úr sérunninni ull (Björg).
„Þetta er í fjórða skipti sem við för-
um með þennan hóp,“ segir Sigrún
Lilja Guðbjartsdóttir hjá Út-
flutningsráði, sem vill koma því á
framfæri að ferðin sé styrkt af iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytinu.
„Núna erum við ekki í galleríi eins
og venjulega heldur á faglegri sýn-
ingu, Showroom Hortensia de Hutt-
en,“ segir hún og bætir við að það
sé mikill munur. „Núna erum við á
einni af helstu sýningunum. Við
njótum góðs af heimsóknum til hol-
lenskra og japanskra merkja.
Kúnnarnir koma að heimsækja önn-
ur merki og sjá þennan íslenska hóp
í leiðinni,“ segir Sigrún og bætir við
að þetta auki sölumöguleikana.
Sýningin hófst í gær og verða allir
fyrrnefndir hönnuðir og merki á
staðnum þar til á sunnudag. Sigrún
Lilja segir að salan hafi strax farið í
gang en í afraksturinn kemur end-
anlega í ljós að sýningunni lokinni.
Íslenskir hönnuðir á tískuviku í París í fjórða sinn
Ein af helstu sýningunum
Hönnun úr fatalínu Aftur, „It’s
about time!“.
RADIO X
SV MBL
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Frábær svört
kómedía með
stór leikurunum
Jack Nicholson
og Kathy Bates
sem bæði fengu
tilnefningar til
Óskarsverðlaun-
anna í ár fyrir
leik sinn í mynd-
inni.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.
: .
: .2
Sýnd kl. 5 og 8. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5.30 og 10.30. B.i.16.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna,
þ.á.m. besta mynd og besti leikstjóri10
Frábær mynd frá leikstjóranum Martin Scorsese
HJ MBL
www.laugarasbio.is
Eingöngu sýnd um helgar
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
SV. MBL
HK DV ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
13
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m.
besta mynd
kvikmyndir.com
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna6
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 12.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
þ. á. m. besta mynd og aðalhlutverk kvenna
Nicole Kidman9
Margverðlaunuð stórmynd frá leikstjóra
Billy Elliot. Missið ekki af þessu
einstæða meistaraverki.
Ein rómaðasta mynd seinni ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 12
HJ MBL HK DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16.