Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 54
ÍÞRÓTTIR
54 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ALEKSANDERS Petersons, hand-
knattleiksmaður hjá Gróttu/KR fer
til Þýskalands í næstu viku til þess
að skoða aðstæður hjá 2. deildarlið-
inu SV Post Schwerin. Petersons fer
utan á fimmtudaginn, daginn eftir
að Grótta/KR leikur við Selfoss í 1.
deild karla.
Post Schwerin er um þessar
mundir í öðru sæti norðurhluta
þýsku 2. deildarinnar, einu stigi á
eftir Stralsunder. Liðið var í 1.
deildinni í fyrra en féll sl. vor.
Stefna forráðamenn liðsins á að end-
urheimta sætið í efstu deild og takist
það vilja þeir með öllum ráðum
styrkja sveit sína. Petersons hefur
einnig verið orðaður við þýsku liðin
Grosswallstadt og Friesenheim.
Petersons
til Schwerin
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Stjarnan – Grótta/KR 30:35
Ásgarður, 1. deild karla, Essodeildin, mið-
vikudagur 12. mars 2003.
Gangur leiksins: 2:0, 3:2, 5:3, 5:5, 8:5, 10:8,
11:10, 14:12, 14:15, 15:15, 16:16, 16:18, 17:22,
19:24, 22:24, 23:29, 25:29, 25:31, 28:32, 30:35.
Mörk Stjörnunnar: Vilhjálmur Halldórsson
7/3, David Kekelia 5, Arnar Agnarsson 5,
Þórólfur Nielsen 5/1, Zoltán Belánýi 4,
Kristján Kristjánss. 3, Björn Friðrikss. 1.
Varin skot: Árni Þorvarðarson 5, Guð-
mundur K. Geirsson 1 (1 til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Gróttu/KR: Aleksandrs Petersons 9,
Páll Þórólfss. 9/6, Sverrir Pálmason 4, Gísli
Kristjánss. 3, Davíð Ólafsson 2, Magnús A.
Magnússon 2, Einar B.Árnason 1.
Varin skot: Kári Garðarsson 21 (þar af 7 til
mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Ólafur Haraldsson og Guðjón L.
Sigurðsson.
Áhorfendur: 129.
Staðan:
Valur 23 16 5 2 634:507 37
Haukar 23 17 1 5 697:559 35
ÍR 23 17 1 5 681:595 35
KA 23 14 3 6 633:590 31
HK 23 13 3 7 646:607 29
Fram 23 12 4 7 594:559 28
Þór 23 13 1 9 646:618 27
Grótta/KR 22 12 1 9 578:522 25
FH 22 11 2 9 588:569 24
Stjarnan 23 6 2 15 614:678 14
ÍBV 23 6 2 15 552:653 14
Afturelding 22 5 3 14 538:584 13
Víkingur 23 1 3 19 566:722 5
Selfoss 22 0 1 21 529:733 1
1. deild kvenna:
Fylkir/ÍR – FH 22:27
Fylkishöll:
Mörk Fylkis/ÍR: Hekla Daðadóttir 8, Hulda
Karen Guðmundsdóttir 4, Tinna Jökulsdótt-
ir 4, Sigurbirna Guðjónsdóttir 4, Valgerður
Árnadóttir 1, Soffía Rut Gísladóttir 1.
Mörk FH: Dröfn Sæmundsdóttir 7, Harpa
Vífilsdóttir 5, Björk Ægisdóttir 5, Sigrún
Gilsdóttir 4, Berglind Björgvinsdóttir 4,
Eva Albrechtsen 1, Sigurlaug Jónsdóttir 1.
Þýskaland
Nordhorn - Flensburg........................... 32:29
Pfullingen - Lemgo ................................ 30:38
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
C-RIÐILL:
Real Madrid - AC Milan ............................ 3:1
Raúl Gonzalez 12., 56., Jose Maria Guti 85. -
Rivaldo 81. - 78.000.
Dortmund - Lokomotiv Moskva .............. 3:0
Torsten Frings 39., Jan Koller 58., Marcio
Amoroso 66. - 48.000.
Staðan:
AC Milan 5 4 0 1 5:3 12
Real Madrid 5 2 2 1 8:6 8
Dortmund 5 2 1 2 7:5 7
Lokomotiv 5 0 1 4 3:9 1
Síðasta umferð 18. mars:
Lokomotiv Moskva - Real Madrid
AC Milan - Dortmund
D-RIÐILL:
Juventus - Deportivo La Coruna............. 3:2
Ciro Ferrara 12., David Trezeguet 63., Igor
Tudor 90. - Diego Tristan 34., Roy Makaay
51. - 25.070.
Manchester United - Basel....................... 1:1
Gary Neville 53. - Christian Gimenez 14. -
Staðan:
Man. Utd 5 4 1 0 11:3 13
Juventus 5 2 1 2 10:9 7
La Coruna 5 1 1 3 5:8 4
Basel 5 1 1 3 3:9 4
Síðasta umferð 18. mars:
Basel - Juventus
Deportivo La Coruna - Manchester United
England
1. deild:
Sheffield United - Burnley........................ 4:2
Portsmouth - Norwich............................... 3:2
Reading - Wolves ....................................... 0:1
2. deild:
Swindon - Cheltenham .............................. 0:3
Holland
De Graafschap - Utrecht........................... 1:0
Austurríki
Pasching - Ried .......................................... 3:0
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Washington - Orlando ........................106:105
Cleveland - Miami...................................75:77
Indiana - New Orleans ...........................71:81
New York - Memphis .............................85:87
Milwaukee - San Antonio ...................102:105
Chicago - LA Lakers ............................116:99
Denver - Toronto ....................................95:87
Seattle - Portland....................................77:92
Golden State - Phoenix.........................113:98
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni karla, Intersportdeildin, 8-
liða úrslit:
Grindavík: UMFG - Hamar..................10.15
DHL-höllin: KR - UMFN.....................19.15
Í KVÖLD
Staðan í riðlinum er nú þannig aðUnited er með 13 stig og var
öruggt áfram fyrir leikinn í kvöld.
Juve er með 7 stig og Deportivo og
Basel 4. Basel tekur á móti Juve í síð-
ustu umferðinni og Deportivo á móti
United. Úrslit síðari leiksins skipta
engu máli því Juventus er með betri
árangur en Deportivo verði liðin jöfn
að stigum. Basel á hins vegar mögu-
leika með því að leggja Juve 4:0.
Leikurinn í Tórínó var skemmti-
legur og opinn. Gestirnir byrjuðu bet-
ur en heimamenn komust yfir
snemma leiks en gestunum tókst að
jafna fyrir hlé og komast yfir í upp-
hafi síðari hálfleiks. Heimamenn jöfn-
uðu og allt stefndi í jafntefli og dóm-
arinn bætti þremur mínútum við
leiktímann vegna tafa. Þegar rúmar
tvær mínútur voru liðnar af þeim
tíma skoraði Tudor sigurmarkið,
fimmtán mínútum eftir að hann kom
inn á sem varamaður. Juventus fagn-
aði ógurlega enda er þetta fyrsti sig-
ur liðsins á Deportivo í síðustu fimm
leikjum.
Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, hefur lýst
því yfir að hann sé ekki með nægilega
sterkan og öflugan hóp til að standa í
baráttu á öllum vígstöðvum. Hann
gat þó leyft sér að hafa nokkra af lyk-
ilmönnum sínum á varamannabekkn-
um í gærkvöld þegar United tók á
móti Basel. Fabian Barthez var ekki í
leikmannahópnum, Roy Carroll stóð í
markinu og Lopez Felipe Ricardo var
varamarkvörður og með honum á
bekknum voru meðal annars David
Beckham, Ryan Giggs, Paul Scholes
og Ruud van Nistelrooy.
Gestirnir komust yfir snemma
leiks og höfðu eitt mark yfir í leikhléi
en Gary Neville jafnaði snemma í síð-
ari hálfleik.
Kieran Richardson, 18 ára ungling-
ur, var í byrjunarliði United að þessu
sinni, en honum hefur verið líkt bæði
við Beckham og Giggs og víst er að
Ferguson hefur mikla trú á pilti sem
hann krækti í frá West Ham. Hann
náði sér hins vegar ekki á strik í gær
og það fór vel á því að hann skipti við
Giggs í leikhléinu. Scholes og Beck-
ham komu síðan inn á þegar korter
var eftir, en allt kom fyrir ekki.
United var búið að tryggja sig
áfram fyrir leikinn og lagði því ekki
mikla áherslu á hann.
Tudor hetja
Juventus
KRÓATÍSKI miðjumaðurinn Igor Tudor gerði sigurmark Juventus er
liðið tók á móti Deportivo í D-riðli Meistaradeildarinnar. Markið kom
á síðustu sekúndum leiksins og Juve vann 3:2 og er nokkuð öruggt
með að komast áfram úr riðlinum ásamt Manchester United sem
gerði 1:1 jafntefli við Basel á Old Trafford.
AC Milan hafði unnið alla sína leikifyrir viðureignina í Madríd í
gærkvöld og var þegar komið í 8-liða
úrslit. Real hafði hinsvegar allt að
vinna og komst í góða stöðu, 2:0, með
tveimur mörkum frá Raúl. Sá piltur
hefur nú gert 41 mark í meistaradeild
Evrópu og 25 ára að aldri er hann
markahæsti leikmaður hennar frá
upphafi. Sjö markanna hefur þessi
dýrlingur stuðningsmanna Real
Madrid skorað í keppninni í vetur.
Rivaldo, sem mátti sæta púi áhorf-
enda allan tímann, enda fyrrum
Barcelona-leikmaður, minnkaði
muninn fyrir AC Milan tíu mínútum
fyrir leikslok. Guti svaraði, 3:1, eftir
frábæran undirbúning Zinedines
Zidanes, sem lagði upp tvö mark-
anna.
Roberto Carlos, bakvörðurinn
snjalli hjá Real Madrid, fékk að líta
gula spjaldið þegar hann hlýddi ekki
aðstoðardómara sem vildi fá hann í
níu metra fjarlægð frá boltanum í
aukaspyrnu. Þar með verður Carlos í
banni í lokaleiknum í Moskvu og
munar um minna.
„Við ætluðum að spila vel hér í
Madríd þótt við værum komnir
áfram, en Real þurfti virkilega á sigri
að halda og við réðum ekki við það.
Þetta er frábært lið sem verðskuldar
að fara áfram. En við fengum ágætis
æfingu fyrir nokkra af okkar leik-
mönnum sem ekki hafa spilað mikið
að undanförnu,“ sagði Carlo Ancel-
otti, þjálfari AC Milan. Lið hans hafði
ekki fengið á sig mark í fjórum leikj-
um í riðlinum, þegar það mætti til
leiks í Madríd.
Amoroso frábær
í sigri Dortmund
Torsten Frings kom Dortmund yf-
ir gegn Lokomotiv rétt fyrir hlé og
Jan Koller skoraði, 2:0, í byrjun síð-
ari hálfleiks. Litlu munaði þó að
Rússarnir jöfnuðu metin nokkrum
andartökum áður. Marcio Amoroso
innsiglaði síðan öruggan sigur þýska
liðsins en Dortmund, sem varð Evr-
ópumeistari 1997, lék í gærkvöld sinn
150. leik í Evrópukeppni.
„Ég hefði verið mjög sáttur við 1:0
sigur en 3:0 sýnir hve sannfærandi
við vorum. Amoroso átti frábæran
leik, sem og Christoph Metzelder en
hann leikur jafnvel alls staðar á vell-
inum. Við eigum enn ágæta mögu-
leika á að komast áfram, það er í okk-
ar höndum að knýja fram sigur og
síðan kemur í ljós hvað hann gefur
okkur. Það er engin uppgjöf í okkar
röðum,“ sagði Matthias Sammer,
þjálfari Dortmund.
Einvígi Real
Madrid og
Dortmund
REAL Madrid og Borussia Dortmund bítast um sæti í átta liða úrslit-
um meistaradeildar Evrópu í lokaumferð C-riðilsins í næstu viku.
Bæði lið unnu nokkuð örugga sigra í gærkvöld, Real lagði AC Milan,
3:1, í Madríd og Dortmund sigraði gesti sína, Lokomotiv frá
Moskvu, 3:0. Real Madrid er stigi á undan Dortmund en verður að
vinna í Moskvu til að ná örugglega öðru sæti riðilsins. Fatist
spænska liðinu flugið nær Dortmund öðru sætinu með því að sigra
AC Milan á Ítalíu.
RÓBERT Gunnarsson átti enn einn
stórleikinn með Århus GF í danska
handboltanum í gærkvöld. Róbert
skoraði 10 mörk þegar lið hans sigraði
Aalborg HSH, 35:33, í bikarkeppninni
og komst með því í 16 liða úrslit. Þor-
varður Tjörvi Ólafsson lét sitt ekki
eftir liggja og skoraði 4 mörk fyrir
Århus GF í leiknum. Liðin tvö eru í 4.
og 5. sæti úrvalsdeildar og berjast þar
um að komast í úrslitakeppni fjögurra
liða um meistaratitilinn.
RÚNAR Sigtryggsson skoraði 3
mörk fyrir Ciudad Real í gærkvöld
þegar lið hans vann stórsigur, 33:19, á
Cangas í spænsku 1. deildinni í hand-
knattleik. Ciudad Real er í öðru sæti
deildarinnar, þremur stigum á eftir
Barcelona en með jafnmörg stig og
Portland sem burstaði Teucro, 36:19.
HRAFNHILDUR Skúladóttir
skoraði 8 mörk, tvö þeirra úr vítaköst-
um, fyrir lið sitt, Tvis/Holstebro,
gegn Slagelse í dönsku úrvalsdeild-
inni í handknattleik í gærkvöld. Mörk
hennar dugðu þó skammt því Slag-
else vann stórsigur á útivelli, 41:28.
HAFDÍS Hinriksdóttir skoraði eitt
mark fyrir GOG sem vann Odense á
útivelli, 33:16. Slagelse er efst í deild-
inni með 34 stig en GOG er í fjórða
sæti með 29. Tvis/Holstebro er í 11.
og næstneðsta sæti með aðeins 5 stig
og er fallið ásamt Odense.
LEMGO færðist enn nær þýska
meistaratitlinum í handknattleik í
gærkvöld þegar liðið sigraði Pfulling-
en, 38:30, á útivelli. Markus Baur
skoraði 11 af mörkum Lemgo.
FLENSBURG, eina liðið sem úr
þessu getur ógnað Lemgo, tapaði fyr-
ir Nordhorn, 32:29, og þar með mun-
ar sex stigum á liðunum. Jan Filip
skoraði 7 mörk fyrir Nordhorn og
Ljubomir Vranjes 6 en Lars-Krogh
Jeppesen gerði 8 fyrir Flensburg.
MARCELLO LIPPI, þjálfari Juv-
entus, var að vonum ánægður með
sigur sinna manna í gærkvöld og
sagði að þegar liðið léki svona væri
úrslit í þess höndum, ekki mótherj-
anna. „Við vitum að Juve hefur ekki
náð sínu besta enn. Við erum á réttri
leið,“ sagði Lippi.
FERNANDO Redondo, leikmaður
AC Milan, fékk frábærar móttökur í
Madríd í gærkvöld þegar hann lék
þar gegn Real Madríd. Redondo spil-
aði með Real í fimm ár áður en hann
fór til ítalska félagsins, þar sem hann
missti tæp tvö úr vegna meiðsla sem
hann hlaut rétt eftir komuna þangað.
ALEKSANDRS Petersons, stór-
skytta í Gróttu/KR, skoraði mark
gegn Stjörnunni í gærkvöld sem sum-
ir fréttamenn vildu skrá sem hálft
hraðaupphlaup. Í sókn Stjörnunnar
fór fast skot í stöng og að miðju þar
sem Petersons var að stíga inn á eftir
að hafa afplánað tveggja mínútna
brottvísun, hann þakkaði pent fyrir
sig, rauk upp það sem eftir var af vell-
inum og skoraði.
FÓLK
ALLSHERJARNEFND Alþingis
samþykkti á fundi sínum í gær að
mæla með að nokkrir erlendir rík-
isborgarar fengju íslenskan rík-
isborgararétt. Í þeim hópi eru þrír
íþróttamenn, handknattleiksmað-
urinn Jaliesky Garcia Padron úr
HK, handknattleikskonan Alla
Gokorian hjá ÍBV, og körfuknatt-
leiksmaðurinn Keith Vassell, sem
leikur með Hamri í Hveragerði.
Alla, sem er rússnesk, hefur búið
hér á landi síðan 1998 er hún kom til
liðs við Valsstúlkur. Eftir eitt ár þar
fór hún til Gróttu/KR og var með
liðinu í þrjú ár áður en hún gekk til
liðs við Eyjastúlkur fyrir yfirstand-
andi tímabil.
Garcia, sem er frá Kúbu, er öflug
rétthent skytta og hefur verið með
markahæstu leikmönnum Íslands-
mótsins síðustu þrjú tímabil. Garcia
hefur verið orðaður við íslenska
landsliðið og svo gæti farið að hann
léki sinn fyrsta landsleik þegar um
aðra helgi þegar Ísland mætir
Þýskalandi í vináttulandsleik ytra.
Vassell kom hingað til lands árið
1998 og lék með KR-ingum í körf-
unni. Hann lék í eitt ár með vest-
urbæjarfélaginu, var ekki ráðinn ár-
ið eftir en kom síðan á ný og lék í tvö
keppnistímabil með liðinu og þjálf-
aði jafnframt kvennalið félagsins um
tíma. Hann hóf yfirstandandi keppn-
istímabil ekki hér á landi en kom til
landsins um áramótin og hefur leik-
ið með Hamri í Hveragerði síðan.
Alla, Garcia og Vassell
fá ríkisborgararétt