Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 29 hugmynda um daglegt líf, frítíma o.s.frv. hins vegar. Sumar þeirra eru á mörkum tilbúinna ferðamanna- mynda og persónulegra mynda í ljósmyndaalbúmið heima, en setjum við okkur ekki einmitt í stellingar sem við höfum séð í ferðamanna- bæklingum þegar við tökum myndir á ströndinni? Á vissan hátt eiga myndir þeirra beggja meira sameig- inlegt með rithöfundunum sem nefndir voru í upphafi en tiltölulega hlutlausar portrettmyndirnar, þær ná að skapa ákveðinn heim sem lifn- ar við í huga áhorfandans, segja sögu. Kannski felst listin í því að segja sögu með ljósmynd í því að fela, sýna ekki, gefa í skyn, vinna á ákveðinn hátt gegn skráningarhæfi- leikum ljósmyndarinnar, rétt eins og í texta er oft það sem ekki er sagt áhrifaríkasti þátturinn. Ytri heimur Blaðaljósmyndarar þurfa sannar- lega að kunna að segja sögu í mynd- um sínum og það er einmitt það sem gerir sýningar Blaðaljósmyndara- félagsins og sýningu á myndum Ólafs K. Magnússonar í Gerðarsafni svo skemmtilegar, saga raunveru- leikans umhverfis okkur er sögð, skráð og sköpuð allt í senn. Ólafur K. Magnússon var braut- ryðjandi í sínu fagi eins og fram kom í Lesbók laugardaginn 1. mars síð- astliðinn og myndir hans segja und- antekingarlaust áhrifaríka sögu. Það er fengur í safni mynda hans í Myndasafni Mbl. á mbl.is. en í Gerð- arsafni eru tuttugu myndir úr safn- inu. Nú á dögum efast auðvitað enginn um hlutdrægnihæfileika ljósmynda sem oft á tíðum eru afar greinilegir á sýningunni á meðal ótal margs annars, hér má sjá ímyndasköpun af margvíslegu tagi, ljósmyndir með heimildagildi, portrettmyndir og fleira, margar þeirra kunnuglegar sem sýnir vel hversu blaðaljósmynd- ir eru lifandi þáttur í lífi okkar, þær lifa í minninu, hvort sem það er myndin af vinnustaðnum sem fylgist með handboltaleiknum, eða stjórn- málamenn í dagsins önn. Myndir Þorkels Þorkelssonar af stríðshrjáðum svæðum láta engan ósnortinn, sama hversu margar þeirra maður sér og hvað oft. Tal um óraunveruleika stríðs er að vissu leyti rétt en á sama tíma ætti ekki að vanmeta hæfileika okkar allra til samúðar. Í þættinum Víðsjá á Rás 1 um daginn var rætt um nýjustu bók Susan Sontag þar sem hún skrifar meðal annars um þetta efni, umfjöll- un fjölmiðla um stríðið. Nú hef ég ekki komið höndum yfir þessa bók ennþá, sem ber held ég nafnið Where the stress falls og er greina- safn um meðal annars fréttaflutning frá stríðinu í fyrrum Júgóslavíu. Þar heldur hún því fram að hugmynd- irnar um ofurraunveruleikann hafi verið orðum auknar, raunveruleik- inn hafi aldrei liðið undir lok og við ættum einmitt að efla og rækta með okkur samúð í stað þess að yppa öxl- um yfir óraunveruleika stríðs í fjar- lægu landi. Hlutverk ljósmyndara í fréttaflutningi verður ekki ofmetið og nú þegar hræðilegt stríð er í vændum munu þeir ná augum heimsins sem aldrei fyrr. Þá munu án efa margar myndir segja meira en þúsund orð. En kannski mun næsta kynslóð, hin einlæga kynslóð sem sýnir hreina samúð, líta sér fjær og bjarga heiminum. Grjótkast og táragas við Alþingishúsið 1949. Mynd eftir Ólaf K. Magnússon í Gerðarsafni. Ragna Sigurðardóttir Marietta eftir Orra. UPPBOÐSFYRIRTÆKIN Sothe- by’s og Christie’s brugðust í gær við málsókn gegn fyrirtækjunum, vegna meints samráðs, með sam- komulagi um að greiða 20 milljónir dollara hvort, eða rúmlega 1,5 milljarð króna. Upphæðin mun skiptast milli þeirra nokkur þúsund við- skiptavina sem stefndu fyrirtækj- unum eftir að bandaríski alríkis- dómstóllinn úrskurðaði í mars á síðasta ári að höfða mætti mál gegn meintu samráði þeirra utan Banda- ríkjanna fyrir bandarískum dóm- stólum. En áður hafði verið höfðað mál fyrir hönd 130.000 við- skiptavina fyrirtækjanna vegna samráðs þeirra innan Bandaríkj- anna og lauk þeim málaferlum í fyrra með því að Christie’s og Sotheby’s inntu af hendi alls 512 milljón dollara greiðslu. Samþykki bandarískir dómstólar sáttagjörðina lýkur þar með röð málaferla gegn fyrirtækjunum, en þess er skemmst að minnast að A. Alfred Taubman, fyrrum stjórn- arformaður Sotheby’s, var dæmdur í hálfs árs fangelsi 2001 vegna meints samráðs fyrirtækjanna. Reuters Uppboð hjá Sotheby’s í New York. Fyrirtækið hefur nú, ásamt Christ- ie’s, samþykkt að greiða kröfu- höfum í málaferlum sem stofnað var til gegn fyrirtækjunum 20 millj- ónir dollara. Christie’s og Sothe- by’s vilja sáttagjörð KRINGLUKAST Kringlunni - Smáralind Laugavegi 97 - Kringlunni - Smáralind Taurus ls bolur 1.490 990 One gallabuxur 6.990 1.990 Kim skyrta 3.990 1.990 Wharf peysa 5.490 3.990 o.fl. tilboð Tiny tunic 1.790 990 Fie bolur 1.490 990 Osaki skyrta 2.590 1.290 Camo bolur 1.990 1.290 Parrot toppur 2.990 1.290 o.fl. tilboð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.