Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Á ALÞINGI er nú til umræðu frum- varp Guðna Ágústssonar landbún- aðarráðherra um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði. Gangi eftir að frumvarpið verði afgreitt sem lög verður innleidd tilskipun ESB um flutninga á laxfiskum, en samkvæmt lögum og reglugerðum ESB er ekki skylt að setja eldislax í sóttkví og heimilt er að flytja hann án tak- markana á milli landa. Við aðild að EES-samningnum var Íslandi veitt undanþága frá fyrr- nefndri reglugerð ESB, en sú und- anþága rann út í janúarlok í fyrra. Er því um það bil ár síðan und- anþágan féll úr gildi og er þess nú krafist af hálfu ESB að tilskipunin verði tekin upp hér á landi. Í þing- plöggum frá landbúnaðarráðherra er lögð áhersla á að nauðsynlegt sé að fella innflutningsbannið úr gildi vegna þess að það stríði gegn til- skipun ESB, en hins vegar sé gert ráð fyrir því í frumvarpinu að land- búnaðarráðherra setji með reglu- gerð, byggðri á tilskipun 91/67/ EBE, með síðari breytingum, ákvæði sem nauðsynleg eru með til- liti til smitsjúkdómahættu vegna innflutnings sem leyfður verður á grundvelli þessara laga. Náttúruhamfarir Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga, sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi lagabreyting gæti hæglega kallað náttúruhamfarir yfir laxastofna hér á landi. „Þetta frumvarp kemur okk- ur gersamlega í opna skjöldu. Við áttum ekki von á því að þetta mál yrði afgreitt á þessu þingi og sér- staklega ekki núna undir lok þings þegar mál eru mörg hver ekki að fá eðlilega umfjöllun vegna vinnuhrað- ans. Það verður róið að því öllum ár- um að þetta frumvarp verði ekki að lögum enda stóralvarlegt mál á ferð- inni. Samkvæmt lögum og reglu- gerðum ESB er ekki skylt að setja eldislax í sóttkví og heimilt er að flytja hann á milli landa, svo og þann búnað sem notaður er við eldið. Með því að innleiða tilskipun ESB erum við að opna fyrir allt sem við höfum óttast mest í sambandi við sjókvía- eldi. Notkun brunnbátanna svoköll- uðu, seiðaflutningabátanna, sem eru þekktir smitberar. Það er gefið grænt ljós á flutning landa á milli á lifandi fiski sem þarf ekki í sóttkví og við þurfum að treysta alfarið á þau vottorð sem honum fylgja að ut- an. Samkvæmt þeim er hann sjúk- dómalaus þangað til hann sýkist í eldisstöðinni. Það gerist í eldisstöð- inni en ekki á pappírnum og þá er skaðinn skeður.“ Ótrúleg áhætta Óðinn sagði ennfremur, að með þessu frumvarpi væri verið að taka „ótrúlega áhættu með þessa auðlind okkar sem villti laxinn er“ eins og hann komst að orði og sagði svo: „Við eigum hiklaust að leggja meiri vinnu í að halda sérstöðu okkar í stað þess að opna landið fyrir vanda- málum sem þekkt eru í Evrópu. Við höfum rætt við þingmenn og land- búnaðarnefndarmenn og látið þá skoðun í ljós að fráleitt sé annað en að við fáum að tjá okkur um frum- varpið sem hagsmunaaðilar og að Landssamband veiðifélaga veiti um- sögn sína um það. Það er óþolandi að reynt sé að lauma svona mik- ilvægu máli þegjandi og hljóðalaust í gegnum þingið í þeirri von að það taki enginn eftir því,“ sagði Óðinn. Illt mál og óviðráðanlegt að mati landbúnaðarráðherra „Þetta er illt mál og óviðráðan- legt,“ segir Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra. „Við undirritun EES-samningsins skuldbundu ís- lensk stjórnvöld sig til að innleiða þessa tilskipun. Undanþága var felld úr gildi 30. júní og því ríkir hér óvissa. Klögumálin ganga yfir okkur og málið er að færast á slæmt stig fyrir stjórnvöld. Alvarlegast í mál- inu er hættan á að hingað berist smitsjúkdómar í lifandi fiski með innflutningi sjávardýra án takmark- ana. Ég tel mikilvægast að vinna úr okkar stöðu, koma okkur frá kæru- málum og koma okkur upp vörnum til að hindra að við fáum hingað sýkta stofna. Sem landbúnaðarráð- herra hefur mér þótt óhjákvæmi- legt, vegna kærumála ESA, að málið færi fyrir þingið og hef því lagt það fram til þess að koma þessum sjón- armiðum á framfæri. Ég er algjör- lega sammála laxveiðimönnum um að hingað megi hvorki koma brunn- bátar né laxastofnar sem valda okk- ur hættu. Ég tel það versta valkost- inn að búa við það ástand eins og það er komið þegar búið er að fella undanþáguna úr gildi. Þess vegna vantar okkur nýtt skjól sem frum- varpið gerir ráð fyrir, til að standa vörð um þann hreinleika og sérstöðu sem við búum við og höfum varð- veitt.“ Frumvarp leyfir inn- flutning á lifandi eldislaxi Morgunblaðið/Ágúst Starfsmenn Sæsilfurs gera fyrstu eldiskvína í Norðfirði tilbúna. NEYTENDAVERND er aukin í frumvarpi til laga um vátrygginga- samninga sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Þannig er upplýsinga- skylda tryggingafélaga aukin og takmarkaðar heimildir félaganna til að slíta samningi hvort sem er á miðju tímabili eða við endurnýjun vátryggingasamnings. Í frumvarpinu er að finna ákvæði um upplýsingaskyldu vátrygginga- félaga, einkum við gerð vátrygg- ingasamninga, en í núverandi lögum eru engin ákvæði um skyldu trygg- ingafélaga til að veita upplýsingar, eingöngu um skyldur þess sem kaupir sér tryggingu. Er trygginga- félögum einnig gert skylt að upp- lýsa í vátryggingaskírteini hvaða varúðarreglur séu í samningnum sem geti leitt til takmörkunar á ábyrgð félagsins. Frumvarpið bann- ar að félagið beri fyrir sig fyrirvara vegna brota á varúðarreglum, ef ekki er við vátryggðan að sakast eða ef sök hans er óveruleg. Þá er hugtakið „varúðarreglur“ skýrt víð- tækar en gert er í núgildandi lögum. Í frumvarpinu er jafnframt að finna reglur um uppsögn vátrygg- ingasamninga þannig að sá tryggði hefur mikið svigrúm til að slíta samningi af sinni hálfu en miklar takmarkanir eru á heimildum fé- lagsins til að slíta vátryggingasamn- ingi, ekki einungis á tímabilinu, heldur líka við endurnýjun hans. Þá eru sett inn ákvæði um að vátrygg- ingafélög geti ekki krafið þann sem óskar eftir persónutryggingu um heilsufarsupplýsingar er lúta að erfðafræðilegum þáttum. Í athugasemdum með frumvarp- inu segir að ljóst megi vera að mörg atriði í frumvarpinu muni leiða til nokkurs kostnaðarauka fyrir trygg- ingafélögin, verði frumvarpið að lögum. Á móti komi að gera megi ráð fyrir að skýrari og ítarlegri reglur um ýmis atriði muni leiða til fækkunar ágreiningsmála og þar með til minni kostnaðar sem tengist þeim. „Verður að telja að aukin neytendavernd sé samfélaginu til hagsbóta þegar til lengri tíma er lit- ið,“ segir í athugasemdum með frumvarpinu. Neytendavernd við gerð vátryggingasamninga aukin Í FYRRA urðu tvö dauðsföll vegna sjóslysa sem komu til kasta rann- sóknarnefndar sjóslysa. Þá varð og banaslys þegar erlendur sjómaður féll milli skips og bryggju í íslenskri höfn. Til samanburðar má nefna að árið 2001 voru dauðaslysin sjö en þrjú árið 2000. Þetta kemur m.a. fram í skýrslu samgönguráðherra, Sturlu Böðvars- sonar, um störf rannsóknarnefndar sjóslysa. Skýrslunni hefur verið dreift á Alþingi. Í skýrslunni kemur fram að rann- sóknarnefnd sjóslysa hafi rannsakað fjögur mál vegna skipa sem höfðu sokkið hér við land og ellefu mál vegna skipa sem höfðu strandað. Í 103 af þeim 149 málum sem komu til kasta rannsóknarnefndarinnar í fyrra urðu slys á fólki og eru það nokkru fleiri tilvik en mörg undan- farin ár. Í fyrra urðu þannig slys á fólki í 63 tilvikum. Heildarfjöldi mála er engu að síður svipaður og verið hefur að teknu tilliti til bættra til- kynninga um slys, einkum úr vöru- flutningageiranum. Fleiri tilvik á sjó þar sem slys urðu á fólki ÞINGMENN Vinstrihreyfingarinn- ar – græns framboðs gagnrýndu við upphaf þingfundar á Alþingi í gær að þingsályktunartillaga þeirra um að ríkisstjórnin beiti sér gegn áformum um innrás í Írak hefði ekki fengist afgreidd úr utanrík- ismálanefnd Alþingis fyrr um morguninn. Þingmenn stjórnar- meirihlutans höfnuðu því að tillagan yrði afgreidd úr nefndinni. Þar með fer hún ekki til síðari umræðu á Al- þingi. Í umræddri tillögu VG segir m.a.: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn- inni að koma þeirri afstöðu á fram- færi á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna og annars staðar þar sem við á, að leita skuli allra leiða til að af- stýra innrás í Írak, þar á meðal að veita vopnaeftirlitsmönnum Sam- einuðu þjóðanna nægan tíma til að ljúka störfum sínum.“ Utanríkisnefnd taki sjálfstæða afstöðu til mála Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG, benti á að eins og stað- an væri núna í Íraksdeilunni snerist málið um það hvort það væri rétt- lætanlegt að ráðast á Írak á allra næstu dögum eða ekki. Hann sagði að það þyrfti að ræða þessi mál og að fram þyrfti að koma hvar Ísland stæði í þessu máli. Ögmundur Jón- asson, þingflokksformaður VG, tók í sama streng. Í máli Halldórs Ásgrímssonar ut- anríkisráðherra kom fram að um- rædd afgreiðsla málsins hefði ekki verið rædd í ríkisstjórn. Utanrík- ismálanefnd tæki sjálf afstöðu til afgreiðslu mála. Þá sagði hann ljóst að meirihluti þingsins útilokaði ekki valdbeitingu í Írak. Davíð Oddsson forsætisráðherra tók í sama streng. Hann benti m.a. á að Saddam Hussein Íraksforseti væri kannski mesti óvinur írösku þjóðarinnar um þessar mundir. Hann sagði ennfremur að margoft hefði komið fram hjá utanríkisráð- herra að hann og íslenska ríkis- stjórnin hefði vilja fara með frið- samlegum hætti gagnvart Hussein en „þó með fullum þunga hótana“ eins og forsætisráðherra orðaði það. Gagn- rýndu málsmeð- ferð ar Framsóknarflokks, Samfylkingar og einn fulltrúi Frjálslyndra skipuðu meirihlutann. Að sögn Þorgerðar K. Gunnarsdóttur, Sjálfstæðisflokki, formanns allsherjarnefndar, vildu sjálfstæðismenn afgreiða frumvarp- ið út úr nefndinni til umræðu og af- greiðslu á þinginu, þar sem um starfsréttindamál væri að ræða. „Við teljum, að fyrst búið er að heimila öðrum háskólum en Háskóla Íslands að útskrifa lögfræðinga, þá sé eng- um stætt á því að hafa ákvæði þess efnis í lögmannalögum að eingöngu lögfræðingar frá Háskóla Íslands geti orðið lögmenn,“ segir hún. „Það er einhugur í allsherjarnefnd um að BREYTINGAFRUMVARP Sól- veigar Pétursdóttur dómsmálaráð- herra um lögmenn verður ekki af- greitt á yfirstandandi þingi eftir ákvörðun meirihluta allsherjar- nefndar þingsins um að vísa frum- varpinu til umsagnar hagsmuna- aðila. Umdeildasta breytingin sem frumvarpið hefur í för með sér er sú að Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri og Viðskiptaháskólinn á Bifröst fá að útskrifa lögmenn líkt og Háskóli Íslands. Ágreiningur var milli fulltrúa stjórnarflokkana um afgreiðslu málsins frá nefndinni og lentu sjálf- stæðismenn í minnihluta, en fulltrú- frumvarpið verði einhvern tíma að lögum, þótt sjálfstæðismenn vilji að það gerist strax á þessu þingi.“ Jónína Bjartmarz, Framsóknar- flokki og varaformaður allsherjar- nefndar, sagðist fagna fjölbreytni á sviði laganáms, en hins vegar hefði frumvarpið komið of seint fram og ekki hefði unnist tími til að setja það í hefðbundna þinglega meðferð og senda það út til umsagnar. Sagði hún að rétt væri að nýta sumarið til þess og að ná fram sátt milli háskólanna. „Ég held að ágreiningur milli skól- anna þjóni engum tilgangi heldur verða menn að ná sátt um efnislegar lágmarkskröfur,“ sagði hún. Lögmannafrumvarpið ekki afgreitt á þessu þingi SJÁVARÚTVEGSNEFND Alþingis mælir með samþykkt þingsályktunartillögu um að nefnd verði skipuð til að meta kosti og galla færeyska fisk- veiðistjórnarkerfisins. Hjálmar Árnason, þingmaður Fram- sóknarflokksins, lagði tillöguna upphaflega fram á Alþingi fyr- ir jól. Í nefndaráliti sjávarútvegs- nefndar segir að margir í þjóð- félaginu hafi lagt til að tekið verði upp hið færeyska kerfi hér á landi. „Engin úttekt hef- ur hins vegar verið gerð á því í samanburði við núverandi fyr- irkomulag fiskveiða á Íslandi,“ segir í álitinu. „Nefndin telur mikilvægt að slík úttekt verði framkvæmd þannig að hægt verði að bera saman kerfin tvö með hliðsjón af sem flestum þáttum, svo sem þjóðhagslegri hagkvæmni, áhrifum á byggð- ir, fiskgengd, tengslum vinnslu og útgerðar, brottkasti, veið- arfærum, stærð fiskiskipa o.s.frv.“ Niðurstaða kynnt í nóvember Nefndin leggur til í fram- haldinu að þingsályktunartil- laga Hjálmars verði samþykkt. Auk þess leggur hún til að sjávarútvegsráðherra kynni Alþingi niðurstöðu nefndarinn- ar eigi síðar en 1. nóvember 2003. Kostir og gallar verði metnir ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.