Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 33 ráðsins verði hlítt með sameiginlegum aðgerð- um, þá mun vald örygg- isráðsins aukast og heim- urinn verða öruggari. Ekki má gleyma því að deilan um Írak er ekki í tómarúmi. Það sem ger- ist þar hefur djúp áhrif á önnur mikilvæg mál. Því víðtækari samstaða sem næst í Íraksmálinu þeim mun meiri möguleiki verður á því að við getum tekið höndum saman aft- ur og tekið á áhrifaríkan hátt á öðrum deilumálum í heiminum sem brýnt er yrst og fremst átökum Ísr- estínumanna. Við vitum öll réttlát lausn á þeirri deilu raunverulega von um var- öðugleika í þessum heims- rt alþjóðasamfélaginu tekst til í Íraksmálinu mun hafa á getu þess til að bregðast ni á Kóreuskaga sem er ekki gjuefni. Og það mun hafa aunir okkar til að leiða til lykta deilumál og átök sem valda svo miklum þjáningum í Afríku og draga úr líkunum á stöðugleika og þróun sem álfan hefur svo mikla þörf fyrir. Stríð er ekki eina plágan sem heims- byggðin stendur frammi fyrir. Hvort sem þjóðir heims verjast hryðjuverka- starfsemi eða berjast gegn fátækt, fá- fræði og sjúkdómum þurfa þær að vinna saman, og þær geta gert það á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Hvern- ig sem Íraksdeilan verður leyst verða Sameinuðu þjóðirnar jafnþýðingarmikl- ar og þær eru nú. Við verðum að gera allt sem við getum til að viðhalda ein- ingu þeirra. Síðustu mánuði höfum við séð út um allan heim að ekki aðeins ríki, heldur einnig þjóðir, telja það afar mikilvægt að tekið sé á deilumálunum innan Sam- einuðu þjóðanna og öryggisráðsins, sem sameiginlegs vettvangs til að tryggja frið. Þegar aðildarríki ráðsins taka þessa afdrifaríku ákvörðun í vikunni vona ég að þau gleymi ekki því að þjóð- ir heims hafa sett heilagt traust sitt á þau og sýni að þau séu traustsins verð. rðun Höfundur er framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Reuters ið í höfuðstöðvum SÞ í New York. VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð hefur sett sér það bar- áttumarkmið að mynduð verði vel- ferðarstjórn í landinu að loknum kosningum í vor. Að undanförnu höf- um við verið að gefa þessu baráttu- máli okkar inntak, tíunda nokkur brýnustu verkefnin sem slíkrar rík- isstjórnar bíða á sviði velferðarmála. Þetta vorum við m.a. að gera á vel heppnuðum flokksráðsfundi og fram- bjóðendaráðstefnu um sl. mán- aðamót. Að sjálfsögðu eru mörg önnur bar- áttumál okkur ofarlega í huga. Má þar nefna breyttar áherslur og vinnu- brögð á sviði umhverfismála, ekki síst hvað varðar framtíð hálendisins, fjölbreytni og nýsköpun í atvinnu- og byggðamálum í stað hinnar blindu og einhæfu þungaiðnaðarstefnu stór- iðjuflokkanna, svo og aðrar áherslur í utanríkis- og friðarmálum, þar sem VG hafnar t.d. alfarið fylgispekt við fyrirhugað árásarstríð Bandaríkja- manna í Írak. Næst á dagskrá: Réttlæti VG leggur mikla áherslu á að bæta stöðu þeirra sem lakast standa, s.s. aldraðra, öryrkja og atvinnulausra. Þar viljum við innleiða nýja hugsun og nýja hugtakanotkun, taka upp „samfélagslaun“ í stað núverandi bóta. Samfélagslaun þurfa að taka mið af vandaðri lífskjarakönnun og vera í samhengi við raunverulegan framfærslukostnað. Við viljum létta sköttum af lægstu launum og launum upp að meðaltekjum með breyttri álagningu tekjuskatts. Við viljum afla tekna í sameiginlega sjóði til að standa undir brýnum verkefnum í velferðarsamfélaginu með réttlátu skattkerfi og frábiðjum okkur ódýr loforð um allsherjar skattalækkanir rétt fyrir kosningar. VG vill t.d. öðru- vísi álagningu fjármagnstekjuskatts þar sem fyrst kemur frítekjumark gagnvart hóflegum almennum sparn- aði, en síðan stighækkandi skattpró- senta með hækkandi tekjum. Sérstakan forgang í stefnu okkar hafa aðgerðir til að gera íslenskt samfélag fjölskylduvænna en það er í dag. Það er staðreynd að fjöldinn all- ur af venjulegu launafólki á í miklum erfiðleikum með að ná endum saman. Kemur þar margt til, m.a. aukin skattbyrði undafarin ár vegna þess að skattleysismörk hafa ekki fylgt verðlagsþróun. Aukin gjaldtaka á ýmsum sviðum hefur komið til sög- unnar, húsnæðisöflun er dýr og mikil jaðaráhrif í skattkerfinu geta valdið því að fólk festist í fátæktargildru. Leikskóli án endurgjalds Tillaga okkar um leikskóla án end- urgjalds hefur vakið verðskuldaða at- hygli. Rekstur leikskóla á vegum sveitarfélaga kostar í heild sinni um 8½ milljarð króna og þar upp í taka sveitarfélögin 2,4 milljarða í leik- skólagjöld. Okkar takmark er að þessi gjaldtaka hverfi með sameig- inlegu átaki ríkis og sveitarfélaga. Ríkið leggi fram allt að 1.800 millj- ónum króna, þ.e. ¾ hluta kostnaðar- ins en sveitarfélögin það sem á vant- ar eða 600 milljónir. Á móti kemur að samkvæmt tillögum okkar í húsnæð- ismálum yfirtekur ríkið greiðslu húsaleigubóta og þar sparast útgjöld hjá sveitarfélögunum sem nemur 850–900 milljónum króna. Sveit- arfélögin kæmu því vel út úr þessum pakka í heild, enda þörf á að bæta af- komu þeirra. Þetta svigrúm gætu sveitarfélögin m.a. nýtt til þess að auka framboð á leikskólaplássum. Það er hárrétt hjá leiðarahöfundi Morgunblaðsins föstudaginn 7. mars sl. að samhliða aðgerðum af því tagi sem okkar stefna gerir ráð fyrir þarf að bæta úr þörf fyrir leikskólapláss þar sem bið er eftir slíku. Við bend- um einnig á að leikskólinn er nú skil- greindur sem hluti af skólakerfinu og það er rökrétt þróun að þetta skóla- stig verði í aðalatriðum fjármagnað með sameiginlegum skatttekjum og án endurgjalds fyrir notendurna eins og skólastigin þar fyrir ofan. Þessi aðgerð verður mikilvægur stuðn- ingur við ungar barnafjölskyldur sem eru að klífa erfiðasta hjallann í sam- bandi við húsnæðismál, með námslán á bakinu og annað í þeim dúr. Átak í leikskólamálum er líka liður í barátt- unni fyrir jafnræði kynjanna á vinnu- markaði. Í húsnæðismálum ríkir ófremdar- ástand, ekki síst á höfuðborgarsvæð- inu. Skal engan undra eins og rík- isstjórnir hafa að undanförnu gengið fram í þeim efnum m.a. með end- urteknum vaxtahækkunum. Við vilj- um að núverandi vaxtabætur sem ríkið greiðir og húsaleigubætur sem sveitarfélögin greiða verði samein- aðar á einum stað í húsnæðisframlög innan skattkerfisins og fulls jafn- ræðis gætt milli þeirra sem eru að byggja eða kaupa húsnæði og hinna sem leigja. Einnig viljum við að ríkið leggi fram stofnframlög í stórátaki um byggingu félagslegs leiguhús- næðis. Tillögur um slíkt hafa legið á borði ríkisstjórnarinnar eða í skúffu félagsmálaráðherra og ekkert orðið úr efndum. Stofnstyrkir yrðu hvetj- andi og gerðu það fýsilegra að ráðast í byggingu slíks húsnæðis og hús- næðið gæti orðið á viðráðanlegri kjörum og leigan lægri en ella. Við teljum einnig að leita eigi samstarfs við lífeyrissjóðina um að koma í auknum mæli inn í fjármögnun hús- næðislánakerfisins. Lífeyrissparn- aður landsmanna yrði þannig vel geymdur á tiltölulega öruggan hátt og lífeyrissjóðirnir leggðu lið mik- ilvægum félagslegum málaflokki. Snúum við blaðinu Markmið baráttu okkar fyrir myndun velferðarstjórnar er skýrt. Við viljum snúa við blaðinu eftir rúm- an áratug undanhalds og varnarbar- áttu á sviði velferðarmála á Íslandi. Einkavæðing, gjaldtaka ýmiss konar og hreinn og beinn niðurskurður hafa sett mark sitt á alla umræðu. Við vilj- um hefja nýtt skeið uppbyggingar og framfara í sögu hins íslenska velferð- arsamfélags og markmiðið er öflugt samábyrgt velferðarsamfélag í anda þess besta sem þekkist að norrænni fyrirmynd. Velferðarstjórn í vor, það er málið. Velferðarstjórn í vor Eftir Steingrím J. Sigfússon „Við viljum snúa við blaðinu eftir rúman áratug undanhalds og varnarbaráttu á sviði velferðarmála.“ Höfundur er formaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs. Í UMRÆÐUM um ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í Borgarnesi 10. febrúar síðastliðinn segir hún og mál- svarar hennar, að gagnrýnendur hafi ekki áttað sig á meginboðskapnum. Hann hefði ekki verið að ýta undir gróusögur eða dylgja um ámælisverða stjórnarhætti Davíðs Oddssonar heldur árétta mikilvægi leikreglna. Ekkert sé mikilvægara fyrir íslenska þjóðfélagið um þessar mundir en skýrar leikreglur og að stjórnmálamenn fari eftir þeim. Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi, sem fullyrti á miðopnu Morgunblaðsins í september, að Ingibjörg Sólrún yrði áfram borgarstjóri og færi ekki í þing- framboð, kvaddi sér líka hljóðs um leik- reglurnar á sama stað í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag og sagði: „Heiðarlegir stjórnmálamenn vilja heldur ekki liggja undir dylgjum og ámæli um ómálefnalegar afgreiðslur eða fyrirgreiðslu. … Það er þetta sem knýr á um að setja stjórnmálastarfi landsins almennar leikreglur, gagn- sæjar og skýrar.“ Gildi leikreglna um starf stjórnmála- manna er mikið, enda hef ég staðið að því undanfarin ár að samþykkja fjöl- mörg lagafrumvörp um þær. Hefur Davíð Oddsson verið flutningsmaður hinna merkustu þeirra sem forsætis- ráðherra, það er stjórnsýslulaganna og upplýsingalaganna. Undir hans forystu var rekið smiðshöggið á þessa merku lagabálka, sem höfðu verið ár og jafnvel áratugi að velkjast milli ráðherra. Við mótun R-listans á sínum tíma, var valdakerfi hans sniðið í kringum Ingibjörgu Sólrúnu og ráðskast um það í bakherberbergjum þriggja eða fjög- urra stjórnmálaflokka, áður en hið póli- tíska meistarastykki var kynnt. Setti hún skilyrði eftir eigin hagsmunum. Hefðu leikreglurnar ekki verið samdar að kröfum hennar, hefði Ingibjörg Sól- rún ekki farið í framboð. Fyrir ári valdi Ingibjörg Sólrún síðan Dag B. Eggertsson á grundvelli eigin leikreglna og án samráðs við aðra til að skipa 7. sætið fyrir framan sig á R-list- anum. Ingibjörg Sólrún lét ekki spá Dags um, að hún sæti sem borgarstjóri, ræt- ast. Hún hafði leikreglur R-listans að engu og bauð sig fram til þings. Þá var samherjum hennar í R-listanum loks nóg boðið eins og frægt varð. Ingibjörg Sólrún varð talsmaður og forsætisráðherraefni Samfylking- arinnar eftir baktjaldamakk og án þess að haft væri fyrir því að taka um það ákvarðanir á vettvangi framkvæmda- stjórnar fylkingarinnar eða í þing- flokknum. Össur Skarphéðinsson lét sig hafa það að kynna svilkonu sína sem hæstráðanda til sjós og lands í Samfylk- ingunni í síðdegiskaffi á Hótel Borg sunnudag einn í janúar. Eftir að Ingibjörg Sólrún fékk því framgengt, að hún yrði kynnt sem for- sætisráðherraefni, var ljóst, að hún vildi ekki heldur viðurkenna leikreglur stjórnarskrárinnar. Þær gera ekki ráð fyrir því, að neinn sé í kjöri sem for- sætisráðherraefni, hvorki í alþing- iskosningum né endranær. Undrar nokkurn, að leikreglur fyrir stjórnmálamenn séu Ingibjörgu Sól- rúnu efst í huga, þegar hún flytur jómfrúræðu sína sem talsmaður Sam- fylkingarinnar og forsætisráð- herraefni? Að fara að eigin leikreglum Eftir Björn Bjarnason „Áhugi Ingi- bjargar Sólrúnar á leikreglunum er ekki skrýtinn.“ Höfundur er alþingismaður og borgarfulltrúi. um milli þeirra sem starfa á m. Verði handvalið að hætti ráðherra Sjálfstæðisflokksins aðurinn meta virði þeirrar að- leyfið veitir í hækkuðu virði ækis sem happið hlýtur. bera á ekki að mismuna þegn- með slíkum hætti. Það er ein- eið fær við að leysa úr því hver essi réttindi. Hún er fólgin í sem starfa á þessum markaði hvers virði aðstaðan er sem r og keppi um leyfin á jafnræð- i. nnum leikreglum hafnað sráðherra tók við niðurstöðum efndar með mikilli viðhöfn á sínum tíma og lýsti því yfir að þær væru afar merkilegar og stjórnvöldum mik- ilvægar til stefnumótunar hvað varðar nýtingu auðlinda í framtíðinni. Hvaða leið ætti nú að verða fyrir valinu í farsímamál- inu ef litið er til tillagna auðlindanefnd- arinnar? Er á því einhver vafi? Nei, það er alveg skýrt í tillögum nefndarinnar að besta leiðin og aðalniðurstaða hennar hvað varðar allar auðlindir í þjóðareign er talin vera að leyst verði úr því með venju- legum og hefðbundnum hætti á markaði þar sem jafnræðis er gætt hverjir fái að nýta auðlindir og efnahagslega aðstöðu sem ríkið úthlutar. Hver er ástæðan fyrir því að þegar á stjórnvöld reynir eftir að tillögur auðlindanefndar liggja fyrir eru tillögurnar látnar lönd og leið? Svarið er fólgið í áhrifavaldi sérhags- munaafla inni í Sjálfstæðisflokknum. Þar á bæ finnst valdamönnum eðlilegt að deila og drottna. Þeim finnst við hæfi að ráða- menn flokksins velji hverjir hljóti feitustu bitana úr sameiginlegum kjötkötlum þjóð- arinnar. hagsmuna? di á a.“ Höfundur er alþingismaður og frambjóðandi í fyrsta sæti Samfylking- arinnar í Norðvesturkjördæmi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.