Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 53
MICHAEL Owen, fram-
herji Liverpool og enska
landsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur sent varn-
armönnum skýr skila-
boð; „Ég á enn fimm ár í
að ná fram mínu besta“
segir Owen sem hefur
skorað 20 mörk á tíma-
bilinu, þar af tvær
þrennur og á dögunum
jafnaði hann met Ian
Rush þegar hann skor-
aði sitt 20. mark í Evr-
ópukeppninni.
Fyrsta Evrópumarkið skoraði
hann á Parkhead, heimavelli Celtic
í Skotlandi fyrir sjö árum, en ein-
mitt á þeim velli verður hann í eld-
línunni í kvöld þegar
Celtic og Liverpool eig-
ast við í fyrri viðureign
liðanna í 8-liða úrslitum
UEFA-keppninnar.
Owen hefur verið
heitur upp á síðkastið,
fjögur mörk hefur hann
skorað í jafnmörgum
leikjum.
„Ég veit tíu sinnum
meira núna um stöðu
framherja heldur en ég
gerði þegar ég hóf feril
minn með Liverpool og
ég reikna ekki með að komast á há-
tind ferils mín fyrr en eftir sex til
sjö ár,“ segir Owen, sem er 23 ára
gamall.
Owen sendir varnar-
mönnum aðvörun
FÓLK
SUNDERLAND skuldar Rangers
enn þrjár millj. punda, um 370 millj.
króna, vegna kaupanna á norska
framherjanum Tore Andre Flo í
haust, en það er tæplega helmingur
þeirrar upphæðar sem Sunderland
samþykkti að greiða fyrir Flo. Félag-
ið á erfitt með að standa í skilum og
bauð Rangers á dögunum að fá leik-
menn upp í skuldina en David
Murray, forseti Rangers, hefur af-
þakkað það. „Hafi Sunder land ekki
að fullu gert upp við okkur eftir þrjár
vikur þá förum við í hart,“ segir
Murray.
SEPP Blatter forseti Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, FIFA, segist
vera á móti því að liðunum sem keppa
í úrslitakeppni HM í Þýskalandi árið
2006 verði fjölgað úr 32 í 36. Knatt-
spyrnusamband Suður-Ameríku hef-
ur sent inn beiðni til FIFA að liðun-
um verði fjölgað í 36. Beiðnin verður
tekin fyrir á fundi framkvæmda-
stjórnar FIFA í maí.
FRANZ Beckenbauer sem stýrir
væntanlegu mótshaldi á HM í Þýska-
landi segir að ekkert sé því til fyr-
irstöðu að þátttökuþjóðirnar verði 36
í stað 32 en það sé ekki Þjóðverja að
ákveða það heldur FIFA.
UEFA, Knattspyrnusamband Evr-
ópu, hefur ákveðið að fara ofan í
saumana á kvörtun sem borist hefur
frá Newcastle eftir viðureign liðsins
við Inter Mílánó í meistaradeildinni í
fyrrakvöld. Haldið er fram að Christ-
ian Vieri hafi haft uppi niðrandi um-
mæli í garð Lomana LuaLua vegna
litarháttar hans. Allt slíkt er litið afar
alvarlegum augum hjá UEFA.
EMILE Heskey verður sennilega
klár í slaginn í kvöld þegar Liverpool
mætir Celtic í UEFA-bikarnum, en
hann hefur ekkert leikið síðan hann
meiddist í úrslitaleik enska deildabik-
arsins gegn Manchester United á
dögunum.
ALEKSANDR Rymanov, þjálfari
þýska handknattleiksliðsins GWD
Minden, var í gær leystur undan
störfum. Áður hafði verið ákveðið að
Rymanov héldi ekki áfram með liðið á
næstu leiktíð, en nú er ljóst að Rym-
anov stýrir ekki Minden-liðinu í þeim
leikjum sem eftir eru, en það er í mik-
illi fallhættu eftir að margir leik-
manna liðsins hafa verið fjarri góðu
gamni á leiktíðinni vegna meiðsla, þar
á meðal Gústaf Bjarnason landsliðs-
maður.
RYMANOV var þjálfari GWD
Minden í fjögur ár, lengur en nokkur
annar þjálfari sem unnið hefur hjá fé-
laginu.
GARETH Farrelly, framherji hjá
Bolton Wanderers, var í gær orðaður
við Íslendingafélagið Stoke City, sem
leitar að liðsstyrk fyrir lokasprettinn í
ensku 1. deildinni í knattspyrnu.
Farrelly hefur fengið fá tækifæri með
Bolton í deildinni, gert eitt mark í
átta leikjum, en hefur skorað grimmt
fyrir varalið félagsins að undanförnu.
UNDIRBÚNINGUR Portúgala á
Evrópukeppni landsliðs í knatt-
spyrnu, sem fer fram í Portúgal
næsta sumar, er í fullum gangi.
Eins og var tekið upp á EM í Eng-
landi 1996, verður leikið í fjórum
fjögurra þjóða riðlum og komast
tvær efstu þjóðirnar úr hverjum
riðli áfram. Búið er að ákveða að
leikirnir fjórir í 8-liða úrslitum
fara fram á fjórum dögum, en
ekki tveimur eins og á EM í Hol-
landi og Belgíu 2000.
Leikið verður á tíu völlum í átta
borgum í Portúgal, en aldrei áður
hefur verið leikið á svo mörgum
völlum í svo mörgum borgum á
EM. Borgirnar sem leikirnir fara
fram í eru Braga, Guimaraes,
Porto, Aveiro, Coimbra, Leiria,
Lissabon og Faro.
Leikið
í átta
borgum í
Portúgal
hvernig liðin leika um þessar
mundir gæti ég átti von á að þetta
verði jafnasta rimman. En ég hall-
ast að því að Haukar vinni 2:1 og
sú tilfinning er fyrst og fremst
vegna þess að Haukar hafa Stevie
Johnson. Það verður erfitt fyrir
Tindastól að finna einhvern sem
ræður við hann, en ef þeir finna
leið til að gera það þá eru þeir í
góðum málum, en ég sé það bara
ekki gerast. Michail Antropov er
auðvitað hávaxinn en hann mun
ekki dekka Johnson og þótt hann
taki einhver fráköst hefur það
ekkert að segja fyrir Johnson.
Drengurinn er með ótrúlegar töl-
ur, bæði innan teigs, utan teigs og
úr vítum auk þess sem hann tekur
fullt af fráköstum, enda mjög lík-
amlega sterkur.
Eins og staðan er núna þá er
mikil stemmning hjá Haukunum,
yngri mennirnir leika vel og það er
líka gaman að sjá hvernig Marel
Guðlaugsson hefur leikið, hann
hefur leikið mun betur í vetur en
undanfarin ár. Halldór Krist-
mannsson kemur líka mjög sterk-
ur inn í þetta hjá Haukum,“ segir
Bárður.
KR – Njarðvík 0:2
Hér mætast liðin í fjórða og
fimmta sæti og að þessu sinni á
KR heimaleikjaréttinn, sem hefur
ekki gerst oft undanfarin ár.
„Þessir leikir eru mikið spurninga-
merki og ég held það megi segja
að þetta velti allt á KR-ingunum.
Það er eitthvað basl á þeim um
þessar mundir og ég held að þetta
geti orðið einhver höfuðverkur fyr-
ir hann Inga Þór þjálfara. Ég hall-
ast að því að Njarðvíkingar taki
þetta 2:0 og það byggi ég fyrst og
fremst á að KR-ingar reyna mikið
að koma boltanum inn á Darrell
Flake, sem hefur verið þeirra
sterkasti hlekkur í vetur, en
Njarðvíkingar eru gríðarlega
sterkir fyrir inni í teignum. Auk
þess virðist nýi útlendingurinn,
Gregory Harris, falla vel að leik
liðsins og virðist hleypa nýju blóði
í liðið. Hann er með mjög góðar
tölur úr þeim leikjum sem hann
hefur spilað.
Ekki má gleyma Teiti, hann er
alveg ótrúlegur og virðist alls ekki
á leið í „Old boys“ ef marka má
hvernig hann lék í vetur. Það er
ótrúlegt hvað einn maður getur
breytt heilu liði og hann er örugg-
lega sá leikmaður sem hefur hvað
mest áhrif á sitt lið í sögu körfu-
boltans hér á landi. Hann er alveg
einstakur,“ segir Bárður.
Ekki boðið upp
á nýjungar
Bárður sagðist ekki eiga von á
að liðin átta kæmu með miklar
nýjungar eða gerðu miklar breyt-
ingar fyrir leikina í úrslitakeppn-
inni. „Núna leggjast menn fyrst og
fremst yfir ákveðin lið, fara niður í
leikkerfin og finna veikleikana og
reyna að finna hvernig nýta megi
það til fullnustu. Ef til vill koma
liðin með eitthvað nýtt í sókninni
en það er þó ekki víst. Keflavík
kemur örugglega ekki með mikið
nýtt, þeir eru með svo mikið af
skyttum og Saunders og Damon
þar að auki,“ segir Bárður.
Morgunblaðið/Sverrir
Damon Johnson, leikmaðurinn sterki hjá Keflavík, er lyk-
ilmaður liðsins og á eftir að verða ÍR-ingum erfiður.
Morgunblaðið/Kristinn
Stevie Johnson hefur verið öflugasti leikmaður Haukaliðsins.
Hér á hann í höggi við ÍR-inginn Hreggvið S. Magnússon.
Owen