Morgunblaðið - 13.03.2003, Síða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 41
✝ Skjöldur Krist-inn Þorláksson
fæddist á Siglufirði
30. mars 1937. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Suðurnesja 1. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Þorlák-
ur Guðmundsson, f.
22. júlí 1894, d. 5.
júlí 1994, og Guðrún
Jóhannsdóttir, f. 6.
júní 1896, d. 5. apríl
1963. Þorlákur og
Guðrún eignuðust 10
börn. Þau eru: Ingi-
mar, f. 23. júní 1924,
Guðrún Jóhanna, f. 18. júní 1925,
Ingiberg Andrés, f. 7. ágúst 1926,
d. 9. apríl 1963, Pálína Sigrún, f.
21. apríl 1928, Súsanna, f. 17.
apríl 1929, Sveinn Jóhann, f. 7.
júní 1930, Pétur Þór, f. 22. ágúst
1932, d. 7. apríl 1953, Karl Ás-
mundur Hólm, f. 5. janúar 1935,
Sigurður Snorri, 3. apríl 1936, og
Skjöldur, sem hér er minnst.
Hálfbróðir Skjaldar, sammæðra,
var Friðgeir Gíslason, f. 1. maí
1923, d. 14. febrúar 1991.
Hinn 31. desember 1961
kvæntist Skjöldur Heiði Guð-
mundsdóttur, f. 26.
desember 1941, d.
10. júlí 1999. Þau
eignuðust þrjú börn.
1) Sólveig, f. 24 apr-
íl 1966, gift Rúnari
Ingibergssyni, f. 26.
júlí 1963. Þau eiga
þrjú börn. 2) Arnar,
f. 3. nóvember 1967,
kvæntur Sigríði Þ.
Vigfúsdóttur, f. 17.
apríl 1969. Þau eiga
tvö börn. 3) Guð-
björg, f. 3. desem-
ber 1973. Hún á eitt
barn.
Skjöldur lærði hárskeraiðn á
Siglufirði. Hann rak ásamt öðr-
um rakarastofu á Hótel Sögu.
Síðar opnaði hann rakarastofu í
Ytri-Njarðvík. Síðan snéri hann
sér að kaupmennsku og vann í
Friðjónskjöri í Ytri-Njarðvík og í
Kaupfélaginu eftir það í fjölda-
mörg ár. Hann keypti og rak
Brautarnesti í Keflavík fram til
ársins 2000.
Jarðarför Skjaldar fór fram í
kyrrþey frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 6. mars síðastlið-
inn.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Kæri vinur og frændi. Þá ert þú
farinn í ferðina löngu eftir stutta
sjúkdómslegu á Sjúkrahúsi Suð-
urnesja. Margar minningar komu
upp í huga minn þegar ég fékk
andlátsfréttina. Hugur minn flögr-
aði út og suður án þess að ég næði
nokkurri kyrrð á hann. Ég trúði
varla þessari frétt þó svo að ég
vissi í hvað stefndi.
Það er ekki nema vika síðan ég
sat hjá þér. Þá spjölluðum við um
eitt og annað. Þú talaðir um að nú
loksins hefðir þú ætlað að taka þér
gott frí og fara til útlanda og
heimsækja son þinn sem er við
nám í Danmörku. Einnig ætlaðir
þú að fullgera hús afa og ömmu
sem þú festir kaup á fyrir nokkr-
um árum. Þú varst farinn að
hlakka svo til að sinna þessu, en
svona er lífið, enginn ræður sínum
næturstað.
Þú varst bæði fallegur og góður
frændi og ég gleðst yfir að hafa átt
þig í okkar stóra frændgarði. Þeg-
ar ég var unglingur sátum við oft
saman og töluðum um lífið fram-
undan. Þú varst 6 árum eldri en ég
og vildir því gefa mér góð ráð og
talaðir af mikilli visku um hættur
heimsins og einnig gæði hans.
Þú varst listapenni og skrifaðir
margar sögur en flestar voru fyrir
skúffuna. Þó tókst mér að væla
það út að fá þig til að lesa eina og
eina sögu. Yfirleitt voru þetta hug-
ljúfar sögur tveggja persóna sem
hittust og vefir þeirra spunnust
misvel og persónurnar tókust á í
blíðu og stríðu, rétt eins og í lífinu
sjálfu en enduðu yfirleitt vel – í
fullkominni hamingju öndvert við
það sem oft á tíðum er í raunveru-
leikanum.
Í desember 1961 giftist þú Heiði
Guðmundsdóttur sem lést 10. júlí
1999. Þið eignuðust þrjú yndisleg
börn. Það fyrsta fæddist það ár
sem ég varð ekkja með tvö börn.
Þið reyndust mér miklir vinir í
raun. Við héldum alltaf góðu sam-
bandi og fórum oft í ferðalög og
útilegur með hópinn okkar og hitt-
umst í afmælum og á jólum og oft
var setið og spjallað yfir kaffibolla
og stundum tekið í spil. Já, ég
gæti endalaust skrifað, en geymi
því meira í hjarta mér.
Seinni árin vorum við meira í
símasambandi enda ég flutt frá
Suðurnesjum. Samtal okkar teygð-
ist oft í 1 – 1 1/2 klukkustund. Efst
á lista voru börnin okkar. Við
skiptumst á að segja hvort öðru af
högum þeirra. Enda voru þér þínir
nánustu mikilvægastir í lífinu og
þú barst hamingju þeirra fyrst og
fremst í brjósti þér. Það er því
mikill missir fyrir börn þín og
barnabörn að sjá á eftir þér. En
minning þeirra um góðan föður og
afa mun hjálpa þeim að horfa fram
á við.
Elsku frændi, nú hefur þú hitt
Heiðu þína á ný. Þú sagðir við mig
í síðustu heimsókn þegar við
kvöddumst: „Takk fyrir komuna
Gunna mín. Þegar þú kemur
upp....,“ og þú bentir upp í loftið,
„..skal ég standa fremstur með
faðminn opinn og taka vel á móti
þér.“ Þú vissir alveg hvert stefndi.
Elsku frændi, þú kvaddir þennan
heim með reisn og æðruleysi.
Vertu sæll og hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Ég bið algóðan Guð að styrkja
og styðja börnin þín.
Farðu í friði.
Þín frænka og vinur,
Guðrún Jóhannesdóttir.
SKJÖLDUR
ÞORLÁKSSON
✝ Anna KristínJónsdóttir fædd-
ist í Hörgsdal í V-
Skaftafellssýslu 6.
febrúar 1916. Hún
lést á hjúkrunarheim-
ilinu Eir hinn 5. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru hjónin
Jón Bjarnason, (f.
14.4. 1887, d. 10.12.
1977) og Anna Krist-
ofersdóttir, (f. 15.4.
l891, d. 27.1. l967).
Anna var sjötta í röð
fimmtán systkina og
með henni eru ellefu
þeirra látin. Börn Jóns og Önnu
auk Önnu Kristínar voru: Ragnar
Friðrik (f. 3.5. l908, d. 5.4. l988),
Helga (f. 26.4. l909, d. 12.3. l992),
Kristjana ( f. 23.9. l910, d. 19.4.
l925), Bjarni ( f. 16.11. l911, d. 2.1.
l999), Sigrún ( f. 23.12. l912, d. 30.4.
l973), Kristófer (f.
31.7. l914, d. 23.7.
l997), Jakob (f. 6.3.
l917, d. 25.11. l999),
Ólafur (f. 6.3. l919),
Hermann Guðjón ( f.
25.5. l921, d. 14.9.
l997), Páll (f. 26.l0.
l922, d. 13.5. 2000),
Rannveig (f. 20.12.
l924), Halldór (f. 9.3.
l926), Kristjana (f.
3.4. l927), Ólafía Sig-
ríður (f. 21.5. l929, d.
1.6. l984), Eiginmað-
ur Önnu Kristínar
var Sigurður Sig-
urðsson (f. 29.10. l916, d. 1.12.
l996). Fósturdóttir Önnu Kristínar
og Sigurðar er Stella H. K. Sigurð-
ardóttir (f. 9.9. l953).
Útför Önnu Kristínar fer fram
frá Kópavogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan l5.
Í dag kveð ég hana ömmu mína
með miklum söknuði og eftirsjá. Þó
finnst mér gott að þú fékkst loks að
hvílast og ferð til hans afa sem er
örugglega glaður að fá þig.
Ég á margar góðar minningar úr
Fögrubrekkunni. Þangað var alltaf
gott að koma. Þegar við Einar
bróðir minn komum í bæinn gistum
við alltaf hjá þér og afa, og þú hafð-
ir mikið fyrir okkur. Þegar við kom-
um í kringum jól varstu búin að búa
til ís handa okkur og faldir möndlu í
honum. Á páskum fengum við sér-
stök páskaegg, þau voru búin til úr
umbúðum af sokkabuxum! Og að
sjálfsögðu var búið að fylla þessar
umbúðir af sælgæti. Þetta voru
bestu páskaeggin.
Það er mér ofarlega í minni
hversu hraust og liðug þú varst allt-
af.
Ég man til að mynda hvað ég
varð rosalega hissa að sjá þig í
fyrsta skipti gera æfingar með
morgunútvarpinu, það var alveg
merkilegt hvað þér tókst að beygja
þig og teygja. Við fórum oft í sund
saman í gömlu Kópavogslauginni
og það vantaði ekki, þú syntir eins
og selur. Við áttum líka skemmti-
legar stundir austur á Mosum. Þá
fengum við Einar iðulega að gista
hjá ykkur og fengum þá að vera
uppi á lofti því það var mest spenn-
andi.
Ég átti með þér ómetanlega
stund þegar ég sat hjá þér á mið-
vikudaginn og er ég þakklát fyrir
að hafa getað verið hjá þér. Þú
varst svo falleg og friðsæl og virtist
vera sátt við að fara.
Elsku amma mín, það var ynd-
islegt að þekkja þig. Skilaðu kveðju
minni til hans afa.
Þín
Kristjana.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar og Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald,
hinum megin birtan er.
Höndin, sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sig. Kr. Pétursson.)
Hvíl í friði, elsku Anna mín.
Þín dóttir
Stella.
Kæra Anna amma mín, ég er
þakklát að þú sért komin til hans
afa, vegna þess að þú varst svo lasin
og saknaðir hans mikið. Ég mun
sakna þín líka. Ég las bæn í lestr-
arbókinni minni og ætla að láta
hana fylgja hér því mér finnst hún
svo falleg.
Kristur minn, ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu.
Gerðu svo vel, og geymdu mig,
Guð, í skjóli þínu.
Þín
Aníta Sól.
ANNA KRISTÍN
JÓNSDÓTTIR Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-amma,
HELGA JÓNA ELÍASDÓTTIR
fv. skólastjóri og organisti
á Þórshöfn,
Hringbraut 50, Reykjavík,
sem andaðist laugardaginn 8. mars sl., verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
14. mars kl. 13.30.
Pálmi Ólason, Elsa Þ. Axelsdóttir,
Sigríður Óladóttir, Gunnar Sigurbjörnsson,
Davíð Ólason, Kristjana Friðriksdóttir,
Gyðríður Elín Óladóttir, Gerðar Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR MARGRÉT
ÞORSTEINSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi laugar-
daginn 8. mars.
Jarðarförin verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík mánudaginn 17. mars kl. 13.30.
Bryndís Magnúsdóttir, Úlfar Hinriksson,
Magnús Örn Úlfarsson.
Elskulegur eiginmaður, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÓLAFUR JÓNAS SIGURÐSSON,
Þrastarstíg 9,
áður Grýtubakka 6,
er látinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Auður Gunnarsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HARALDUR ÁRNASON,
Sæviðarsundi 92,
er látinn.
Erna Erlendsdóttir,
Árni Björn Haraldsson, Lena Haraldsson,
Jón Ingi Haraldsson, Sigrún Erlendsdóttir,
Svanbjörg Helga Haraldsdóttir,
Hildigunnur Haraldsdóttir, Ásgeir Sverrisson,
Auður Ingibjörg Haraldsdóttir, Ólafur Valsson,
Gunnlaugur Brjánn Haraldsson, Arndís Eir Kristjánsdóttir
og barnabörn.