Morgunblaðið - 13.03.2003, Side 44
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghóp-
ur undir stjórn Kára Þormar organista.
Kaffi og með því eftir sönginn. Allir vel-
komnir. Biblíulestur kl. 20 í safnaðar-
heimilinu. Lúkasarguðspjall lesið og
skýrt. Allir velkomnir. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu
Lækjargötu 14a. www.domkirkjan.is
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur máls-
verður í safnaðarheimili að stundinni lok-
inni.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Eldri
borgara starf. Á morgun kl. 13.30 sam-
vera í Setrinu (brids aðstoð).
Vinafundir í febrúar og mars. Spjallfund-
ur kl. 14 með sr. Tómasi og Þórdísi þjón-
ustufulltrúa. Kaffi á eftir.
Landspítali Háskólasjúkrahús, Grensás.
Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Kjartan Örn Sig-
urbjörnsson.
Langholtskirkja. Kl. 10–12 foreldra- og
ungbarnamorgunn. Söngstund með Jóni
Stefánssyni. Umsjón hefur Ágústa Jóns-
dóttir. Kaffisopi. Kl. 12.10 lestur Pass-
íusálma og bænagjörð í Guðbrandsstofu
í anddyri.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel
kirkjunnar frá kl. 12–12.10. Að stundinni
lokinni er léttur málsverður á kostnaðar-
verði í safnaðarheimilinu. Einfalt, fljót-
legt og innihaldsríkt. Alfa-fundur í safn-
aðarheimilinu kl. 20. (Sjá síðu 650 í
Textavarpi).
Neskirkja. Nedó, unglingaklúbbur, kl.
17. 10. bekkur og eldri. 8. og 9. bekkur
kl. 19.30. Munda og Hans.
Félagsstarf aldraðra laugardaginn 15.
mars kl. 14. Óvissuferð. Kaffiveitingar.
Þátttaka tilkynnist í síma 511 1560 milli
kl. 10–13 til föstudags. Allir velkomnir.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Breiðholtskirkja. Biblíulestarar kl. 20–
22 á vegum Leikmannaskóla kirkjunnar
og Reykjavíkuprófastsdæmis eystra sem
bera heitið Ábyrgð og frelsi í boðun ritn-
ingarinnar. Kennari er sr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson héraðsprestur dr.theol.&
dr.theol.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kirkjustarf aldraðra, Leikfimi ÍAK
kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. Ung-
lingakór Digraneskirkju kl. 17–19. (Sjá
nánar: www.digraneskirkja.is)
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og
helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12.
Starf fyrir 8–10 ára stúlkur kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Foreldrarmorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir, ýmiskonar fyrirlestrar. Alltaf
heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir
7–9 ára börn kl. 17.30–18.30. Kirkju-
krakkar í Grafarvogskirkju kl. 17.30–
18.30 fyrir 7–9 ára. Æskulýðsfélag í
Grafarvogskirkju fyrir 8. bekk kl. 20–22.
Æskulýðsfélag í Engjaskóla kl. 20–22
fyrir 9. og 10. bekk.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í
dag kl. 14.30–17 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
17. Fyrirbænaefnum má koma til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deginum
og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og
bera þar fram áhyggjur sínar og gleði.
Bænarefni eru skráð í bænabók kirkj-
unnar af prestum og djákna. Boðið er
upp á molasopa og djús að lokinni
stundinni í kirkjunni.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheim-
ilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–
18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl.
13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman í
notalegu umhverfi og eiga skemmtilega
samverustund. Barnastarf fyrir 10–12
ára börn í dag kl. 17.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir
10–12 ára kl. 16.30–18.
Lágafellskirkja. Barnastarf Láfellskirkju,
kirkjukrkkar, er í Varmárskóla í dag fyrir
6–7 ára börn kl. 13.15 og 8–9 ára börn
kl. 14.30. Umsjón Þórdís djákni. TTT-
starf Lágfellskirkju er í dag, fimmtudag,
kl. 16. Mikið fjör, mikið gaman. Allir
krakkar á aldrinum 10–12 ára velkomnir.
Safnaðarstarf Lágafellskirkju. Æskulýðs-
starfið Sound. Æskulýðshópurinn okkar
er með fundi alla fimmtudaga kl. 17. Frá-
bær hópur fyrir frábært ungt fólk í 8.–10.
bekk. Safnaðarstarf Lágafellskirkju.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Keflavíkurkirkja. Minningarstund um
Jónas Waldorff Einarsson, Álsvöllum 4,
Keflavík, sem lést í bílslysi við Vogaaf-
leggjara 9. mars sl. Safnast verður sam-
an í Kirkjulundi kl. 16. Fjallað um áfalla-
hjálp og síðan verður gengið yfir í kirkju
þar sem tendruð verður ljósabæn og
beðið fyir ástvinum Jónasar, skólafélög-
um og fermingarsystkinum.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Stoð og styrking
fundur fimmtudaginn 13 . mars kl. 13.
Síðasti fyrirlestur vetrarins og er það
Katrín Erla Kjartansdóttir nuddmeistari
sem kynnir NLP-árangur í lífi og starfi. Á
eftir verða fyrirspurnir. Mjallhvít og
koma í heimsókn. Kaffi á könnunni og
eru allir velkomnir. Spilakvöld aldraðra
og öryrkja fimmtudaginn 13. mars kl. 20.
í umsjá félaga úr Lionsklúbbi Njarðvíkur,
Ástríðar Helgu Sigurðardóttur og sr. Bald-
urs Rafns Sigurðssonar. Natalía Chow
organisti leikur á orgel við helgistund að
spilum loknum.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn í safnaðarheimilinu. Sr.
Kristján Björnsson. Kl. 14.30 helgistund
á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
KFUM & K. Fimmtudagur 13. mars kl.
20:00. Kristniboðsvikaí húsi KFUM og
KFUK á Holtavegi 28. Allt á iði hjá Lúk-
asi. Kvöldstund með tilvísun í kvikmynd-
ina „Jesús“ sem byggð er á Lúkasarguð-
spjalli. Upphafsorð: Haukur Árni
Hjartarson. Sönghópur Ragnhildar syng-
ur. Hugleiðing: Ragnar Gunnarsson. Kaffi
eftir samkomuna. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í kapellu kl. 12. Léttur hádegis-
verður á vægu verði í Safnaðarheimili eft-
ir stundina.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.15
krakkaklúbbur, 4. og 5. bekkur. Kl.
19.30 söngæfing fyrir unglinga. Kl.
20.30 unglingasamvera.
Safnaðarstarf
MINNINGAR
44 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HINIR almennu fundir hjá
Stoð og styrkingu hafa verið
vel sóttir á þessu fyrsta starfs-
ári og einnig þeir vönduðu fyr-
irlestrar sem hafa verið flutt-
ir. Nú er komið að síðasta
fyrirlestri þessa vetrar en
hann verður 13. mars kl. 13. í
kirkjunni. Katrín Erla Kjart-
ansdóttir nuddmeistari mun
þá kynna NLP-árangur í lífi
og starfi. Á eftir verða fyr-
irspurnir og Mjallhvít og ,
koma í heimsókn. Kaffi á
könnunni og eru allir vel-
komnir. Helgistund að fundi
loknum.
Baldur Rafn Sigurðsson.
Stoð og styrk-
ing í Ytri-
Njarðvíkur-
kirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
KIRKJUSTARF
Móðurbróðir minn
Gunnlaugur Jónasson
var jarðsunginn frá
Njarðvíkurkirkju 21.
febrúar og langar mig
að minnast hans með örfáum orð-
GUNNLAUGUR
JÓNASSON
✝ GunnlaugurJónasson fæddist
á Eiði á Langanesi 2.
maí 1940. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja hinn 13.
febrúar síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Ytri Njarð-
víkurkirkju 21. febr-
úar.
um. Minningar mínar
um Gulla frænda
tengjast mest
bernskuárunum þegar
systkini mömmu
bjuggu öll á litlum
bletti á Húsavík. Við
Laufey dóttir hans
hlaupandi á milli húsa
og oftar en ekki var
komið við hjá ömmu og
afa á Héðinsbraut.
Gulli var þægilegur
maður að umgangast
og sótti ég mikið í að
koma á heimili hans og
Önnu, þau hjónin gáfu
sér alltaf tíma til að spjalla við okk-
ur krakkana og var alltaf stutt í kát-
ínuna. Það voru því ófá skiptin sem
ég fékk að gista í Baldursbrekkunni
og kallaði hann mig oft flökku-
kindina fyrir vikið. En síðan fluttu
fjölskyldurnar suður ein og ein og
fjarlægðirnar á milli heimilanna
urðu meiri.
Eftir það hitti ég Gulla helst þeg-
ar fjölskyldan kom saman til veislu-
halda af einhverju tilefni. Mér
fannst Gulli samt alltaf eins, ald-
urinn bar hann vel og fasið var allt-
af það sama, hægur, ljúfur og stutt í
stríðnina og brosið.
Elsku frændi, takk fyrir allt og
hvíl í friði.
Kæra Anna, Laufey, Sveinbjörg ,
Bylgja, Borgar Már og fjölskyldur.
Ég votta ykkur mína dýpstu samúð
og bið Guð að styrkja ykkur á þess-
um erfiðu tímum.
Þín frænka
Jóney.
Elsku frændi. Ég
ætlaði ekki að trúa
mínum eigin eyrum,
þegar mér var sagt að
þú værir farinn. Þú
sem varst alltaf svo hress, en ég veit
að núna ertu kominn til foreldra
þinna og margra þinna vina og það
er örugglega glatt á hjalla hjá ykkur.
Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú
gerðir fyrir foreldra mína, það er
ógleymanlegt, elsku frændi. Eitt er
sem ég gleymi aldrei, það var gaml-
árskvöld og þú komst heim til okkar
og sagðir að nú væru álfarnir sem
voru úti á Nesi búnir að kveikja ljós-
in hjá sér, upp alla hlíðina. Og þeir
SNÆBJÖRN
GUNNAR
GUÐMUNDSSON
✝ Snæbjörn Gunn-ar Guðmundsson
fæddist á Skjaldvar-
arfossi hinn 9. marz
1924. Hann lést á
heimili sínu 2. febr-
úar síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Hagakirkju
á Barðaströnd 8.
febrúar.
voru búnir að því, þetta
var rosalega mikið æv-
intýri fyrir okkur
krakkana. Þá varst þú
búinn að fara út á Nes
og setja kyndla upp alla
hlíð til að gleðja okkur,
þú vildir öllum svo vel.
Elsku frændi, ég þakka
fyrir að hafa fengið að
vera í þinni návist þeg-
ar ég var barn.
Elsku Unnur, Torfi,
Helga og börn, megi
guð gefa ykkur styrk í
þessum mikla missi.
Elsku frændi, guð
varðveiti þig, minningin um þig
gleymist ei.
Kveðja,
Guðný Gísladóttir frá
Hreggstöðum.
Mig langar að minnast Gunnars
með nokkrum línum þótt ég trúi því
varla ennþá að hann sé farinn frá
okkur, það er mikill missir fyrir þá
sem þekktu hann. Það eru orð að
sönnu að hann Gunni var þúsund-
þjalasmiður, allt sem hann tók sér
fyrir hendur var klárað með snilld.
Gunni minn, ég gleymi því nú aldrei
þegar þú varst að hjálpa okkur Gísla
að byggja húsið á Hreggsstöðum, þú
vannst dag og nótt svo við gætum
verið komin í húsið fyrir jólin með
börnin, þér tókst það eins og allt
annað. Þú varst ekki að eyða tím-
anum í að fara til læknis ef þú skarst
þig, þú bara saumaðir sárið sjálfur.
Börnunum mínum fannst alltaf svo
gaman er þú komst til okkar, því þú
fannst upp á svo mörgu skemmti-
legu. Þig munaði ekki um að ganga
hálfa ströndina á kafi í snjó ef ein-
hver þurfti hjálp. Þakka þér fyrir allt
sem þú hefur gert fyrir mig, það
gleymist aldrei. Ég verð þér ævin-
lega þakklát, elsku Gunni. Mig lang-
ar að kveðja þig með þessum vísum:
Þökkum greiða og þægindi
það sem eyðist varla.
Ástarheiða atlæti
sem á okkar leiðir falla.
Minningin er mér svo kær
í mínu þróast geði.
Þegar ég er farinn fjær
finn ég best hvað skeði.
(Gísli Gíslason.)
Guð blessi þig og varðveiti, elsku
vinur,
Kveðja,
Marta Þórðardóttir
frá Hreggsstöðum.
Hún birtist einn
góðan veðurdag eins
og sólargeisli á skrif-
stofu minni hjá Fé-
lagsstarfi aldraðra í Kópavogi.
Hafði heyrt að þar vantaði hár-
greiðslukonu og datt í hug að
kynna sér málið. Hún var hár-
greiðslumeistari og hafði rekið
stofu í mörg ár, meira að segja í
Kópavogi. Við tókum tal saman.
Fljótlega komumst við að því að
Eyrarbakki skipaði háan sess í
RAGNHILDUR
VALGERÐUR
JOHNSDÓTTIR
✝ Ragnhildur Val-gerður Johns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 19. júní
1946. Hún andaðist á
líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
hinn 13. febrúar síð-
astliðinn og var útför
hennar gerð frá Bú-
staðakirkju 24. febr-
úar.
huga okkar beggja,
þótt við hefðum ekki
þekkst fyrr. Samtal-
inu lauk á þann veg að
hún réð sig um
óákveðinn tíma „til
reynslu“ eins og hún
orðaði það. Reynslu-
tíminn varði einn ára-
tug, eða þar til á síð-
asta vori er heilsan
brást.
Ragnhildur hafði
hlotið marga góða
kosti í vöggugjöf. Hún
var dugmikil, áræðin,
glaðsinna og fé-
lagslynd. Regluleg kjarnakona.
Enn fremur: Hún elskaði náung-
ann og hafði að leiðarljósi boðskap-
inn um trúna, vonina og kærleik-
ann.
Talía var hennar dýrmæta vin-
kona. Enda hafði hún sungið í
mörgum kórum og þegar hún kom
til okkar í FAK stundaði hún söng-
nám við Tónlistarskóla Kópavogs.
Ég minnist þess að þar var frum-
fluttur jólasöngleikur undir stjórn
Önnu Júlíönu Sveinsdóttur og þar
skilaði Ragnhildur hlutverki sínu
með prýði.
Þjónusta hennar og umhyggja
fyrir öldnu viðskiptavinunum var
nánast takmarkalaus. Kæmu upp
veikindi eða erfiðleikar þá kom hún
með tólin sín og hressti upp á sál
og líkama. Von hennar og gleði var
smitandi og ekki taldi hún sporin
eftir sér. Þessarar þjónustu nutum
við hjónin í ríkum mæli og fengum
aldrei fullþakkað.
Vissulega höfðu skipst á skin og
skúrir hjá henni eins og oft vill
verða. En nú virtust góðu árin
fram undan. Tími til að sinna hugð-
arefnum, ferðast, gleðjast með fjöl-
skyldunni, sinna börnum og barna-
börnum. En þá barði vágesturinn
mikli enn einu sinni að dyrum og í
þetta sinn varð engrar undankomu
auðið.
Við trúum því að Drottinn hafi
staðið á ströndinni hinum megin og
mælt: „Gott, þú góði og trúi þjónn,
gakk inn til fagnaðar herra þíns. –
Í húsi mínu eru mörg híbýli, sjá, ég
hefi búið yður stað.“
Eldri kynslóðin í Kópavogi sakn-
ar hennar sárlega, skarðið er vand-
fyllt. En henni tókst að fá bestu
vinkonu sína til að taka við, þannig
að umhyggja hennar fylgir okkur
enn um sinn. Við þökkum allar
góðu stundirnar.
Guð blessi minningu góðrar
konu. Guð blessi ástvini hennar
alla og gefi þeim náð til að minnast
sólskinsstundanna sem skinið hafa
á samleiðinni eins og skínandi
demantar.
Anna Sigurkarlsdóttir.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.