Morgunblaðið - 13.03.2003, Side 46
DANS
46 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HÓPUR AF danspörum úr Dans-deild ÍR tók stefnuna á Tralee áÍrlandi undir lok febrúar og tókþar þátt í sterkri alþjóðlegri dans-
keppni.
Tralee er vinalegur bær, sunnarlega á vest-
urströnd Írlands, lítið stærri en Akureyri. Þar
var danskeppnin Celtic Classic nú haldin í
fjórða sinn. Að sögn keppnishaldaranna,
Tommy Shaugnessy og Ann Gibson, fjölgar
þeim ár frá ári sem sækja þessa keppni og í ár
voru á sjötta hundrað pör mætt til leiks.
Margar þjóðir eiga fulltrúa í þessari keppni,
en flestir koma frá Rússlandi, Ítalíu, Eng-
landi, Þýskalandi, Danmörku og svo auðvitað
Íslandi, en þaðan komu 10 pör að þessu sinni.
Dómgæslan var í góðum höndum, því 33 dóm-
arar frá 13 löndum dæmdu keppnina. Meðal
dómaranna var Árni Þór Eyþórsson frá Ís-
landi, en hann hefur nýlega lokið alþjóðlegu
danskennaraprófi með dómararéttindum.
Keppnin var haldin á Brandon hótelinu í
Tralee. Þar voru aðstæður mjög góðar og
keppnin ákaflega vel skipulögð. Tímaáætlanir
stóðust vel, keppni í einstökum greinum gekk
vel fyrir sig og öll úrslit lágu fyrir um leið og
keppni lauk.
Augnakonfekt fyrir dansáhugafólk
Sjálf keppnin hófst fimmtudaginn 20. febr-
úar, en þann dag var ekki keppt í keppn-
isgreinum Íslendinganna. Dagurinn var því
notaður til æfinga og hvíldar. Föstudaginn 21.
febrúar byrjaði síðan fjörið með því að keppt
var í þremur suður-amerískum dönsum í
flokki 12-15 ára unglinga. Mættu 30 pör til
leiks, þar af 8 íslensk. Þarna voru mörg mjög
góð pör á ferðinni og íslensku pörin stóðu sig
vel. Leikar fóru þannig hjá íslensku pörunum
að Þorleifur Einarsson og Ásta Bjarnadóttir
urðu í 8.-9. sæti, Aðalsteinn Kjartansson og
Edda Guðrún Gísladóttir í 13. sæti, Stefán
Claessen og María Carrasco í 15. sæti, Alex-
ander Mateev og Erla Björg Kristjánssdóttir í
18. sæti, Jón Þór Jónsson og Laufey Karls-
dóttir í 20. sæti, Karl Bernburg og Ása Karen
Jónsdóttir í 21. sæti, Jón Eyþór Gottskálksson
og Elín Helga Jónsdóttir í 22. sæti og Valdi-
mar Elí Kristjánsson og Rakel Guðmunds-
dóttir í 24. sæti. Sigurvegararnir voru frá
Rússlandi.
Keppni í þremur sígildum samkvæmis-
dönsum kom næst og voru það 26 pör sem
hófu keppnina. Þar voru sömu íslensku pörin
aftur mætt til leiks, en algengt er að pör keppi
aðeins í annarri hvorri greininni. Þessari
keppni lauk þannig að Þorleifur og Ásta urðu í
11. sæti, Karl og Ása Karen í 13. sæti, Stefán
og María í 14. sæti, Aðalsteinn og Edda í
17.-18. sæti, Jón Þór og Laufey í 19. sæti, Jón
Eyþór og Elín Helga í 20. sæti, Valdimar og
Rakel í 21.-22. sæti ásamt Alexander og Erlu.
Það var par frá Ítalíu sem sigraði.
Um kvöldið var meðal annars keppt í svo-
kölluðum „Rising Star“ flokki í sígildum sam-
kvæmisdönsum og þá var einnig opin meist-
arakeppni í sýningardönsum, en þar átti
Ísland ekki fulltrúa. Þarna var á ferðinni sann-
kallað augnakonfekt fyrir dansáhugafólk.
Tvöfaldur sigur hjá Þorleifi og Ástu
Laugardagurinn 22. febrúar var erfiðasti
keppnisdagurinn fyrir íslenska hópinn og
byrjaði dagurinn snemma. Fyrst var keppt í
forkeppni í sígildum samkvæmisdönsum í
flokki 12-15 ára og voru 16 pör skráð til leiks. Í
úrslitum dönsuðu 7 pör og gerðu Þorleifur og
Ásta sér lítið fyrir og sigruðu. Jón Þór og
Laufey urðu í 2. sæti, Stefán og María í 4.
sæti, Jón Eyþór og Elín Helga í 5. sæti og Að-
alsteinn og Edda í 7. sæti. Næst var keppt í
opnum flokki 14-15 ára í sígildum samkvæm-
isdönsum. Þar voru 17 pör skráð og besta ár-
angri íslensku paranna náðu Þorleifur og
Ásta, en þau náðu inn í sex para úrslit og end-
uðu í 3. sæti. Í opnum flokki 12-13 ára náði
ekkert íslensku paranna inn í úrslit í sígildu
samkvæmisdönsunum og kom styrkleiki par-
anna sem þar kepptu verulega á óvart.
Nú var komið að keppni í suður-amerískum
dönsum. Fyrst var keppt í forkeppninni og
voru 17 pör skráð í þá keppni. Inn í úrslit náðu
sex pör og aftur urðu Þorleifur og Ásta sig-
urvegarar. Í 2. sæti voru Aðalsteinn og Edda,
Stefán og María í 3. sæti, Karl og Ása Karen í
4. sæti og Jón Þór og Laufey í 6. sæti. Í opnum
flokki 14-15 ára í suður-amerískum dönsum
voru 23 pör skráð og náðu Stefán og María inn
í 10 para úrslit og höfnuðu í 8. sæti og Þorleif-
ur og Ásta inn í úrslit og enduðu í 4. sæti. Frá-
bær árangur það, miðað við styrkleika par-
anna. Í opnum flokki 12-13 ára í suður-
amerískum dönsum náði ekkert íslensku par-
anna inn í úrslit.
Opna Celtic meistarakeppnin í suður-
amerískum dönsum í flokki 12-15 ára var næst
á dagskrá. Þetta var gríðaleg sterk keppni og
voru 38 pör skráð. Ekkert íslensku paranna
náðu inn í undanúrslit. Þorleifur og Ásta voru
reyndar mjög nálægt því og enduðu í 13. sæti.
Um kvöldið var keppt í flokki fullorðinna og
var eitt íslenskt par þar meðal þátttakenda,
þau Sigrún Kjartansdóttir og Eggert Claes-
sen. Þau dönsuðu mjög vel og sýndu að þau
eru stöðugt að bæta sig. Það dugði þó ekki til
að komast áfram, enda við mikið af frábærum
dönsurum að etja. Hápunktur kvöldsins var
síðan keppnin í suður-amerískum dönsum í
flokki atvinnumanna. Þvílíkur dans hefur
sjaldan sést.
Miklar framfarir í dansíþróttinni
Síðasti keppnisdagurinn rann nú upp og var
fyrsta keppni íslensku paranna Opna Celtic
meistarakeppnin í flokki 12-15 ára í sígildum
samkvæmisdönsum. Til leiks voru mætt 31
par og var greinilegt að mörg þeirra voru sig-
urviss. Þetta var mjög hörð keppni og náðu
Þorleifur og Ásta, Stefán og María, Jón Þór og
Laufey, Karl og Ása Karen inn í 20 para úrslit,
en ekkert þeirra náði að komast lengra.
Um kvöldið var keppt í Opnu alþjóðlegu
keppninni í suður-amerískum dönsum í flokki
áhugamanna. Þetta var eiginlega hápunktur
allrar keppninnar, þar sem til leiks voru mætt
mörg af bestu pörum heimsins í þessari
keppnisgrein. Alls voru 102 pör skráð, þar af
eitt frá Íslandi, þau Elísabet Haraldsdóttir og
Robin Sewell. Það er skemmst frá því að segja
að þau dönsuðu frábærlega vel og náðu inn í
12 para undanúrslit, sem verður að teljast frá-
bær árangur í svo sterkri keppni.
Það voru ánægðir, en þreyttir dansarar sem
lögðu af stað heimleiðis snemma á mánudags-
morguninn. Mikið hafði verið dansað og marg-
ir náð góðum árangri. Það fer hins vegar ekki
á milli mála að dansíþróttinni fleygir áfram er-
lendis og verða íslenskir dansarar að hafa sig
alla við til að fylgja þeirri þróun eftir. Við eig-
um mikið af góðum efnivið sem halda þarf vel
utan um og hvetja til dáða. Aðeins þannig get-
um við tekið þátt í alþjóðasamfélagi dansara
með fullri reisn.
Íslenskir
dansarar
gera það
gott á
Írlandi
Alþjóðlega danskeppnin
Celtic Classic fór fram í
Tralee á Írlandi fyrir
skemmstu og voru tíu íslensk
pör meðal þátttakenda.
Aðalheiður Karlsdóttir
fylgdist með keppninni.
Þorleifur Einarsson og Ásta Bjarnadóttir dönsuðu frábær-
lega vel og náðu mjög góðum árangri.
Stefán Claessen og María Carrasco í léttri latínsveiflu. Þau
hafa bætt sig mikið í suður-amerískum dönsum undanfarið.
Hópurinn frá Íslandi var glæsilegur og stóð sig vel í alþjóðlegu danskeppninni í Tralee á Írlandi.
Karl Bernburg og Ása Karen Jónsdóttir eru aðeins 12 ára og
nýbyrjuð að dansa saman og eiga framtíðina fyrir sér.