Morgunblaðið - 13.03.2003, Qupperneq 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 47
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt
Kynnum OROBLU vorvörurnar
í dag kl. 13-17 í Lyf og heilsu Austurveri
og kl. 14-18 á Melhaga, á morgun kl. 14-18
í Lyf og heilsu Kringlunni og Austurstræti.
Glæsilegur kaupauki
af verslað er tvennt frá Oroblu
Lagersala
Dömu- • Herra- • Barnafatnaður
Þekkt vörumerki – frábært verð
Opið:
Mánudaga-föstudaga 12-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 13-16
Hefst í dag að Vatnagörðum 14
kl. 12.00
Myndavíxl
Við myndbirtingu með frétt af
andláti Ivars Hansen, forseta
danska þjóð-
þingsins, í erlend-
um fréttum
Morgunblaðsins í
gær, urðu þau
leiðu mistök að
andlit rangs
manns var tekið
út úr stærri
mynd, þar sem
þeir voru báðir.
Myndin sem birtist er af sænska
þingforsetanum Björn von Sydow.
Rétta myndin birtist hér. Beðizt er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Ivar Hansen
Rabbað um hár á rabbfundi
Rannsóknastofu í kvennafræð-
um í dag, fimmtudaginn 13. mars
kl. 12–13, í stofu 101 í Lögbergi.
Þorgerður Þorvaldsdóttir, kynja-
og sagnfræðingur, flytur erindið: „Í
hár saman – kynjamenning á hár-
greiðslu- og rakarastofum“. Fjallað
verður um ímynd hárgreiðslu-
kvenna og rakara og það hvernig
kyngervi markaði bæði starfsævi
og kjör beggja stétta.
Í DAG
Samtökin 7́8 verða með hádeg-
isfyrirlestra í Háskóla Íslands í
samvinnu við félagsvísindadeild
Háskóla Íslands, Mannréttinda-
skrifstofu Íslands og FSS, Félag
samkynhneigðra og tvíkyn-
hneigðra stúdenta, á morgun,
föstudaginn 14. mars kl. 12, í stofu
101 í Odda, Háskóla Íslands. Er-
indi flytur Ragnar Aðalsteinsson
hæstaréttarlögmaður. Mun hann
gera grein fyrir merkingu hug-
taksins „mannleg virðing“ í skiln-
ingi lögfræðinnar og hvaða þýð-
ingu það hefur við túlkun á þeim
mannréttindum sem lýst er í
stjórnarskrám ríkja og alþjóð-
legum sáttmálum. Að honum lokn-
um gefst áheyrendum kostur á að
bera fram spurningar og taka þátt
í stuttum umræðum.
Álfagöngur í Hafnarfirði. Sig-
urbjörg Karlsdóttir leiðsögumaður
býður upp á ferðir um álfaslóðir í
Hafnarfirði yfir vetrartímann og
verða þær ferðir alla föstudaga kl.
14. Tekur ferðin um hálfa aðra
klukkustund. Brottför er tryggð,
en þó er æskilegt að bóka með
fyrirvara. Ferðin kynnir þjóðtrú
Íslendinga um álfa, dverga og
huldufólk. Sagðar eru sögur á
völdum áningastöðum, gamlar og
nýjar, auk þess sem sögu Hafn-
arfjarðar eru gerð skil. Ferðin
kostar kr. 1.800 og er álfakort
innifalið. Bókun og nánari upplýs-
ingar fást hjá Upplýsingamiðstöð
Hafnarfjarðar, Vesturgötu 8 eða í
síma.
Stofnfundur Femínistafélags Ís-
lands verður haldinn á morgun,
föstudaginn 14. mars kl. 20–22, í
sal Miðbæjarskólans, Fríkirkju-
vegi 1, Reykjavík. Allir velkomnir.
Flutt verða stutt ávörp og stefna
félagsins rædd. Femínistafélag Ís-
lands verður umræðuvettvangur
og baráttutæki íslenskra fem-
ínista. Félagið verður frjáls og
óháður vettvangur með það að
markmiði að efla gagnrýna og
femíníska umræðu á öllum sviðum
þjóðlífsins, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á MORGUN
Lýst eftir
vitnum
FÖSTUDAGINN 7. mars klukkan
10.02 var tilkynnt um árekstur
tveggja bifreiða á Breiðholtsbraut
við afrein af Reykjanesbraut við mis-
læg gatnamót yfir Reykjanesbraut.
Bifreiðinni NG-239, sem er
dökkgrá Daewoo Nubira-fólksbif-
reið, var ekið austur Nýbýlaveg og
síðan austur Breiðholtsbraut. Bif-
reiðinni UA-993 sem er dökkblá
Opel Astra-fólksbifreið var ekið
norður Reykjanesbraut og aðrein að
Breiðholtsbraut. Ökumenn greinir á
um stöðu umferðarljósa þegar
áreksturinn varð. Vitni eru vinsam-
lega beðin um að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík.
ÞAÐ voru félagar úr Víkurdeild
Rauða kross Íslands sem afhentu
félagsmiðstöðinni OZ í Vík í Mýr-
dal nýtt 6 feta biljarðborð sem
gjöf frá félaginu, en félagsmið-
stöðin hefur húsnæði í félags-
heimilinu Leikskálum og hafa
ýmis fyrirtæki í Vík styrkt fé-
lagsmiðstöðina með því að gefa
þangað tæki, t.d. gaf Bygging-
arfélagið Klakkur félagsmiðstöð-
inni 28 tommu sjónvarpstæki
núna nýverið.
Krakkarnir úr fimmta, sjötta
og sjöunda bekk Grunnskóla Mýr-
dalshrepps voru mjög ánægð með
að fá þetta biljarðborð og stilltu
sér upp í kring um það ásamt
starfsmanni félagsmiðstöðvar-
innar og þremur stjórnarmönnum
deildarinnar.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Biljarðborðið ásamt glöðum hóp barna, Rauðakrossfélögum og starfsmanni OZ.
Félagsmiðstöðin OZ
eignast biljarðborð
Fagradal. Morgunblaðið.
Íslenska
kennd í Was-
eda-háskól-
anum í Tókýó
ÍSLENSK stjórnvöld hafa ákveðið
að styrkja íslenskukennslu við Was-
eda-háskólann í Tókýó í Japan.
Kennslan hefst við upphaf sumar-
misseris nú í apríl. Þetta er byrj-
endakennsla í íslensku máli. Einnig
gefst nemunum tækifæri til að hlýða
á fyrirlestra um íslenska menningu.
Waseda-háskóli er einn virtasti
einkaháskólinn í Japan. Skólinn
bauð upp á kennslu í íslenskum fræð-
um þar til prófessor Sadoa Morita
fór á eftirlaun fyrir nokkrum árum.
Manabu Miyagi dósent mun annast
íslenskukennsluna nú en hún er und-
ir umsjón prófessors Masao Iwai.
Waseda-háskóli hefur gert sam-
starfssamning við Háskóla Íslands.
Rektor Háskólans heimsótti skólann
á sl. hausti. Skólinn hefur heitið fyr-
irgreiðslu vegna japönskukennslu
við Háskóla Íslands en hún hefst á
haustmisseri 2003. Japönsk stjórn-
völd styðja kennsluna fjárhagslega.
Íslandsmeistaramót í samkvæm-
isdönsum með frjálsri aðferð verður
haldið í Laugardalshöllinni í Reykja-
vík, laugardag, 15. mars kl. 13, húsið
opnar kl. 12. Keppt verður til Ís-
landsmeistaratitils á samanlögðum
árangri í standarddönsum og suður-
amerískum dönsum, auk þess fer
fram keppni í samkvæmisdönsum
með grunnaðferð og danssýningar.
Einnig mun fara fram bikarmeist-
aramót í línudönsum.
Fimm erlendir dómarar dæma
keppnina en að öðru leyti eru það fé-
lagar dansíþróttafélaganna sem
vinna við mótahaldið.
Börn fædd árið 1997 eða síðar fá frí-
an aðgang að mótinu og 67 ára og
eldri. Aðgangseyrir er kr. 1.200 fyrir
aðra, segir í fréttatilkynningu.
Nærhópur fyrir syrgjendur sem
misst hafa ástvini í sjálfsvígi verð-
ur stofnaður á fræðslufundi Nýrrar
dögunar, samtökum um sorg og sorg-
arviðbrögð, fimmtudaginn 20. mars
kl. 20–22, í Safnaðarheimili Háteigs-
kirkju, 2. hæð. Erindi heldur Guðrún
Eggertsdóttir djákni sem einnig mun
vera leiðbeinandi hópsins. Allir vel-
komnir. Starf nærhópsins hefst
þriðjudaginn 25. mars kl. 20–21.30 og
verður hann í Grafarvogskirkju á
þeim tíma fram í maí. Mælt er með að
í það minnsta hálft ár sé liðið frá
missi, segir í fréttatilkynningu.
Skráning er hjá Nýrri dögun, nydog-
un@sorg.is og á fundinum 20. mars.
Á NÆSTUNNI
Fundur um
stefnu NATO og
aðsteðjandi ógnir
„NÚVERANDI stefna NATO og að-
steðjandi ógnir“ heitir fyrirlestur
sem Nicola de Santis, yfirmaður Mið-
jarðarhafsmálefna NATO í Brussel,
flytur á sameiginlegum fundi Sam-
taka um vestræna samvinnu (SVS)
og Varðbergs, mánudaginn 17. mars
nk. og hefst hann klukkan 17:30 í
Skála á Hótel Sögu.
„Afstaða einstakra NATO-ríkja
með eða á móti fyrirhugaðri innrás
Bandaríkjanna í Írak, hefur valdið
deilum meðal bandamanna í Atlants-
hafsbandalaginu, sem ekki sér enn
fyrir endann á. Vegna þess hve við-
kvæmt ástandið er í þessum heims-
hluta hafa samtökin fengið Nicola de
Santis til að koma hingað til lands til
þess að greina frá ástandinu eins og
það er, séð frá bæjardyrum banda-
lagsins,“ segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu.
De Santis er ítalskur stjórnmála-
fræðingur sem starfað hefur hjá Atl-
antshafsbandalaginu í Brussel frá
árinu 1991, en hann var ráðinn þang-
að af Manfred Woerner, þáverandi
framkvæmdastjóra bandalagsins. De
Santis hefur gegnt nokkrum veiga-
miklum störfum hjá NATO sem flest
snúast um öryggis- og varnarmál
bandalagsins við Miðjarðarhafið og í
Austurlöndum nær. Áður en hann hóf
störf hjá NATO var hann meðal ann-
ars blaðamaður og ráðgjafi hjá
ítalska þinginu í Róm. Hann er með-
limur í International Institute of
Strategic Studies (IISS) í Bretlandi,
Italian Institute of International
Affairs (IAI) í Róm og World Fed-
eration of the Italian Press Abroad.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki
um varnar- og öryggismál sem snerta
heill Evrópu.