Morgunblaðið - 16.03.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
STRÍÐ Á NÆSTU DÖGUM?
Yfirlýsingar ýmissa áhrifamanna í
gær bentu til að líkur væru á að
Bandaríkjamenn réðust inn í Írak á
allra næstu dögum. Javier Solana,
utanríkismálastjóri Evrópusam-
bandsins, sagðist „ekki mjög bjart-
sýnn“ á að komist yrði hjá átökum
og Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði líkurnar á stríði
hafa aukist. Bandaríkjamenn hafna
málamiðlunartillögu sem fulltrúi
Chile í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna lagði fram á föstudag um að
Saddam Hussein Íraksforseta yrðu
gefnar þrjár vikur til viðbótar til að
hlíta ályktunum SÞ um afvopnun.
Skrifað undir samninga
Alain J.P. Belda, forstjóri og
stjórnarformaður Alcoa, undirritaði
í gær samninga við stjórnvöld,
Landsvirkjun og Fjarðabyggð
vegna álvers Alcoa í Fjarðabyggð.
Undirritun samninga fór fram við
hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á
Reyðarfirði þar sem meðal við-
staddra voru íbúar Austfjarða, ráð-
herrar, þingmenn og fulltrúar fjöl-
margra fyrirtækja, m.a. ítalska
verktakafyrirtækisins Impregilo.
Alþingi lýkur störfum
Alþingi lauk störfum í fyrrinótt og
kemur það ekki saman fyrr en að
loknum kosningum 10. maí nk. Hafði
þessi lokafundur Alþingis á kjör-
tímabilinu staðið nánast samfleytt í
sautján klukkutíma.
Djindjic kvaddur
Zoran Djindjic, forsætisráðherra
Serbíu, var í gær borinn til grafar í
Belgrad. Þúsundir manna fylgdu
ráðherranum hinsta spölinn. Djindj-
ic var skotinn til bana sl. miðvikudag
og hafa um 180 manns verið hand-
tekin í tengslum við morðið.
Sölumaður
Þekkt vélaverslun leitar að sölumanni með sér-
svið í sölu á síum í heildsölu og beint til stór-
notenda.
Aðeins maður með þekkingu á síum kemur
til greina. Gott starf og vinnuaðstaða.
Vinsamlega leggið inn upplýsingar á augldeild
Mbl. eða í box@mbl.is, merktar: „Sölumaður
— 13448“, fyrir föstudaginn 21. mars.
Sjúkraþjálfarar
Sunnuhlíð óskar eftir
sjúkraþjálfurum til starfa.
Sunnuhlíð eru 72 hjúkrunarrými og 18 dag-
vistarrými og auk þess reka Sunnuhlíðarsam-
ökin 108 þjónustuíbúðir fyrir aldraða.
Um er að ræða þjónustu við íbúa hjúkrunar-
eimilisins, vistmenn dagvistar, íbúa í þjón-
stuíbúðum Sunnuhlíðarsamtakanna og fleiri.
Sjúkraþjálfunin er vel tækjum búin og fyrir-
ugað er að flytja starfsemina í nýtt og glæsi-
egt húsnæði á næstunni.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Árnason,
ramkvæmdastjóri, í síma 560 4100,
etfang johann@sunnuhlid.is
Kjötiðnaðarmenn
Ferskar kjötvörur hf. óska eftir að ráða kjötiðn-
aðarmenn til starfa við verkstjórn í kjötvinnslu
fyrirtækisins hér í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 21. mars nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
fyrirtækisins í Síðumúla 34 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörn Sigurbergs-
son, framleiðslustjóri, í síma 588 7580 eða 660
6320 frá kl. 08:00 til 16:00 virka daga.
Upplýsingar um fyrirtækið er að finna á heima-
síðu þess www.ferskar.is .
Störf í grunnskólum
Reykjavíkur
Hagaskóli, sími 535 6500
Eðlis- og efnafræði í 8-9. bekk.
Ýmsar greinar í 9-10. bekk.
Umsóknarfrestur til 28. mars 2003.
Rimaskóli, símar 567 6464 og 897 9491
Vegna forfalla er laus staða umsjónarkennara
út skólaárið. Kennslugreinar: Samfélagsfræði
og eðlisfræði á unglinga- og miðstigi.
Lausar stöður
skólaárið 2003-2004
Hvassaleitisskóli, sími 570 8800
Náttúrufræðikennsla í 8-10. bekk.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskóla
stjóri viðkomandi skóla.
Umsóknir ber að senda til skóla.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar
við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um laus störf og grunn-
skóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir
www.grunnskolar.is.
Sölumaður óskast
Sölumaður, kunnur auglýsingasölu, óskast
já fyrirtæki í upplýsingamiðlun ferðamála.
Reynsla af sölu- og markaðsmálum æskileg.
Heilt eða hlutastarf er í boði. Frjáls vinnutími.
arið verður með allar upplýsingar sem
rúnaðarmál.
Upplýsingar sendist til auglýsingadeildar Mbl.,
merktar: „1717“, eða á box@mbl.is .
Sunnudagur
16.mars 2003
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8,656 Innlit 16.017 Flettingar 64.959 Heimild: Samræmd vefmæ
Morgunblaðið/RA
Bjartsýni á Austurlandi / 10 – 13
ferðalögKrít sælkerarSítrónur allt árið börnÆvintýri í Afríku bíóValdís Óskarsdóttir
Byggt í Skuggahverfi
Fjölbýli í elsta úthverfi Reykjavíkur
Nýtt fjölbýlis
húsahverfi rís
í miðborg
Reykjavíkur.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
16. mars 2003
Yf ir l i t
Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs-
ingablaðið „Öryggi í stað áhættu“ frá
Securitas. Er því dreift um allt land.
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 49
Hugsað upphátt 27 Myndasögur 50
Listir 27/31 Bréf 50/51
Af listum 28 Dagbók 52/53
Birna Anna 28 Krossgáta 54
Forystugrein 32 Leikhús 56
Reykjavíkurbréf 32 Fólk 56/61
Skoðun 34/36 Bíó 58/61
Minningar 44/49 Sjónvarp 62
Þjónusta 40 Veður 63
* * *
FERÐALAG tveggja manna sem
ætluðu að stytta sér leið á föstudag, á
leiðinni frá Siglufirði til Bifrastar í
Borgarfirði, þykir með allmiklum
ólíkindum. Mennirnir tóku ranga
beygju stuttu eftir að þeir óku af
Norðurlandsvegi og í stað þess að aka
eftir Reykjabraut og þaðan aftur á
Norðurlandsveg, beygðu þeir inn á
Kjalveg og voru komnir langleiðina
að Hveravöllum þegar fólksbíll þeirra
festist loks í snjóskafli.
Að sögn Hermanns Ívarssonar,
varðstjóra lögreglunnar á Blönduósi,
lögðu mennirnir af stað frá Siglufirði
um hádegisbil. Um klukkan tvö ræddi
annar þeirra við konu sína í síma og
kvaðst vera að aka meðfram Blöndu.
Ekkert heyrðist meira í þeim þann
daginn og á áttunda tímanum um
kvöldið var lögreglu tilkynnt um að
ekkert hefði spurst til mannanna.
Leitin beindist í fyrstu að þjóðvegum
í nágrenni Svínavatns. Þegar ekkert
spurðist til mannanna var björgunar-
sveitin Blanda kölluð út og um klukk-
an 22:30 óku björgunarsveitarmenn
fram á mennina tvo við Kolkustíflu í
Blöndulóni. Þá höfðu þeir gengið 25
kílómetra frá Seyðisá þar sem þeir
höfðu fest bílinn. Á leiðinni gengu
þeir fram á yfirgefinn jeppa og fundu
þar nokkrar skjólflíkur sem komu í
góðar þarfir enda mennirnir ekki
búnir til slíks ferðalags. Hermann
segir að villurnar þyki með nokkrum
ólíkindum og að sama skapi merkilegt
hversu langt þeir komust inn á Kjöl á
fólksbíl. Fyrir öllu sé þó að málinu
lauk farsællega. Spurður hvort
mennirnir hafi verið skömmustulegir
þegar þeir komu til byggða svaraði
Hermann: „Ja, þú getur rétt ímyndað
þér!“
Villtust rækilega á
leiðinni til Bifrastar
BÖRNIN á leikskólanum Rauðuborg í Árbæ
voru heldur betur með á nótunum þegar Lúlli
löggubangsi og Alda löggukona komu í heim-
sókn fyrir helgina. Enda ekki að furða því Lúlli
hefur lent í ýmsum hrakningum frá því hann
vaknaði til lífsins í leikfangabúð eina nóttina og
hélt ótrauður út í umferðina – án þess að hafa
áður lært umferðarreglurnar.
Að sögn Öldu löggukonu, sem heitir reyndar
fullu nafni Alda Baldursdóttir og er rannsókn-
arlögreglumaður í forvarnardeild lögreglunnar
í Reykjavík, var um að ræða hefðbundna heim-
sókn í leikskóla borgarinnar en tilgangurinn er
að segja börnunum frá umferðarreglunum og
hvað þau verði að varast. Lúlli hjálpar mikið til
enda býr hann yfir talsverðri reynslu. Eftir að
hann komst út úr leikfangabúðinni ráfaði hann
beinustu leið fyrir bíl og handleggsbrotnaði við
áreksturinn. Lögreglan heimsótti hann á sjúkra-
húsið og síðan hefur hann aðstoðað Öldu og fé-
laga hennar við að segja leikskólabörnum frá
umferðarreglum svo þau þurfi ekki líka að lenda
í slysum. Hann er þó stundum svolítið utan við
sig og á það meðal annars til að gleyma að
spenna bílbeltin og dettur þá gjarnan á trýnið og
meiðir sig. Með góðri hjálp var hann þó minntur
á að slíkt gengur auðvitað alls ekki.
Morgunblaðið/Júlíus
Vel með á nótunum í lögguheimsókn
FUNDUM Alþingis var frestað á
fjórða tímanum í fyrrinótt fram yfir
kjördag, 10. maí. Höfðu þingmenn þá
fundað nánast samfleytt í sautján
klukkutíma. Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra las forsetabréf um frestun á
fundum Alþingis um kl. 3.15. Þar
með lauk 128. löggjafarþingi.
Áður höfðu nokkur lagafrumvörp
og þingsályktunartillögur verið sam-
þykkt. Meðal frumvarpa sem urðu að
lögum má nefna frumvarp til hafna-
laga, frumvarp um lyfjagagna-
grunna, frumvarp til raforkulaga,
frumvarp til barnalaga, frumvarp um
lýðheilsustöð og frumvarp um lax- og
silungsveiði.
Að venju fór Halldór Blöndal, for-
seti þingsins, yfir þingstörfin í vetur.
„Eins og jafnan á kosningaári hefur
þingið staðið skemur en hin fyrri
þing á kjörtímabilinu. Þó hafa verið
afgreidd fjölmörg mál og í reynd ekki
færri en á öðrum reglulegum þing-
um. Alls voru afgreidd 128 frumvörp
sem lög og jafnframt voru samþykkt-
ar 39 þingsályktanir. Þrátt fyrir
ágreining um sum þessara mála, ekki
síst um virkjunarmál og stóriðju, hef-
ur tekist að ljúka störfum Alþingis
samkvæmt starfsáætlun þingsins,“
sagði Halldór.
Bragarbót á vinnuskilyrðum
Forseti þingsins gerði að umtals-
efni vinnuskilyrði alþingismanna og
starfsliðs þingsins og sagði að mikil
bragarbót hefði verið gerð í þeim efn-
um. Það væri þó óhjákvæmilegt að
ráðast í viðhald á Alþingishúsinu til
þess að það skemmdist ekki. Hafist
yrði handa við endurbætur á fyrstu
hæð hússins í sumar en önnur hæðin
mundi bíða næsta árs. Ennfremur
væri tímabært að reisa skrifstofu-
byggingu fyrir alþingismenn vestan
þjónustuskálans, á lóðum Alþingis
við Tjarnargötu og Kirkjustræti.
„Við lok þessa kjörtímabils munu
margir alþingismenn hverfa af þingi.
Sumir munu ekki bjóða sig fram að
nýju eða skipa efstu sæti á framboðs-
listum en aðrir munu ekki ná endur-
kjöri, eins og gengur. Í fyrrnefnda
hópnum er sá þingmaður sem á sér
lengstan starfsaldur, hæstvirtur fé-
lagsmálaráðherra, Páll Pétursson, en
hann hefur setið á Alþingi í tæp 29 ár
eða síðan 1974,“ sagði Halldór. Aðrir
í þessum hópi eru Sverrir Her-
mannsson sem hefur setið á Alþingi í
21 ár, Svanfríður Jónasdóttir og
Ólafur Örn Haraldsson sem setið
hafa á Alþingi í átta ár, Sigríður Jó-
hannesdóttir í sjö ár og Karl V. Matt-
híasson í tvö ár. „Öllum þessum al-
þingismönnum og öðrum þeim sem
hverfa af þingi vil ég þakka störf
þeirra í þágu lands og þjóðar og óska
þeim alls hins besta í framtíðinni. Að
lokum kvaðst Halldór vonast til að
kosningabaráttan yrði málefnaleg og
drengileg og þakkaði þingmönnum
fyrir samstarfið.
Ekki færri mál en
á öðrum þingum
Fundum Alþingis slitið í fyrrinótt eftir 17 tíma lokasprett
ÞAÐ bætir smám saman í far-
fuglaflóruna en í síðustu viku urðu
fuglaáhugamenn í fyrsta skipti varir
við skúminn á þessum síðvetri. Á
fimmtudaginn sáust t.d. um þrjátíu
fuglar í fjöru við Salthöfða undan
Fagurhólsmýri og fimmtán til við-
bótar í fjöru undan Kvískerjum í
Öræfum.
Talið er að á sjötta þúsund skúms-
pör verpi á landinu, flest þeirra á
Skeiðarár- og Breiðamerkursandi.
Skúmurinn er úthafsfugl á veturna
og samkvæmt Fuglavísi Jóhanns Óla
Hilmarssonar sjást fyrstu fuglarnir
jafnan í lok mars. Hann er því nokk-
uð snemma á ferð nú.
Fleira fiðurfé er á ferðinni, fugla-
áhugamenn hafa t.d. séð greinilega
fjölgun álfta undanfarna viku og á
það við um flesta landshluta, en mest
þó sunnanlands.
Skúmurinn
kominn
Morgunblaðið/Ómar