Morgunblaðið - 17.03.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÍNA Dögg Filippusdóttir leikkona, sem fer
með hlutverk Júlíu í uppsetningu Vesturports
á Rómeó og Júlíu í samvinnu við Borgarleik-
húsið, varð fyrir því óhappi að detta út af
sviðinu á sýningu á laugardagskvöld. Tognaði
hún svo illa á hendinni í fallinu að hætta
þurfti sýningunni þegar um hálftími var eftir
og endaði leikritið því á annan veg þetta
skiptið en venjulega. Rómeó og Júlía lifðu
bæði af og enduðu kvöldið saman uppi á slysa-
varðstofu.
„Við héldum í fyrstu að ég væri mölbrotin,
en þetta reyndist bara vera svona rosalega
slæm tognun,“ segir Nína Dögg sem nú er
með höndina í gifsi og fatla. Sýningin er mjög
líkamlega krefjandi en leikarar svífa um í ról-
um, fara í heljarstökk og gera ýmsar aðrar
kúnstir. Það var þó ekki í einu þeirra atriða
sem óhappið gerðist. Fleiri hafi slasað sig á
sýningunni, enginn jafnalvarlega þó. Að sögn
Nínu hafa óhöppin þó ekki átt sér stað í sirk-
usatriðunum enda séu öll áhættuatriðin vel
æfð.
Ömurleg tilfinning að geta
ekki haldið áfram að leika
Leikritið er leikið á eins og hálfs metra
breiðu sviði, og í lausu lofti fyrir ofan sviðið
og á pöllum þar fyrir ofan. Nína Dögg datt af
sviðinu sem er eftir endilöngu gólfinu. „Það
var svona hálftími eftir af sýningunni þegar
ég datt fram af. Það hafa margir gert á sýn-
ingunni, en ég datt greinilega bara svona illa.
Þegar ég var að detta hugsaði ég að þetta
væri skemmtilegt, nú gæti ég gert eitthvað
nýtt, því alltaf þegar kemur eitthvað upp á í
leikhúsinu fyllist maður viðbótarorku. Svo
þegar ég ætlaði að rífa mig af stað og halda
áfram að leika þá bara öskraði ég. Það var
eins og höndin hefði farið úr lið, höndin var
alveg laus. Ég greip í hana og þrykkti henni
saman, svo öskraði ég því þetta var svo sárt,
ég hef aldrei fundið svona sársauka á æv-
inni,“ segir Nína Dögg.
Hún segir að það hafi verið ömurleg tilfinn-
ing að finna að hún gæti ekki haldið áfram að
leika. „Þegar ég var komin upp á slysó og að-
eins búin að jafna mig fékk ég rosalegt sam-
viskubit yfir því að hafa ekki bara haldið
áfram, en það var ekki hægt, ég var það illa
kvalin.“ Nína segir að í leikhúsinu gildi að
halda áfram, hvað sem gerist. „Maður slasar
sig oft á sýningum án þess að vita það fyrr en
eftir á. Er kannski með marblett á einum stað
og tognaður og maður spyr sig: Hvenær ætli
þetta hafi gerst? Maður veit það ekki því mað-
ur er í innlifun og heldur áfram að leika. En
þetta var alvöru,“ segir hún.
Í sömu sýningu lék Ingvar E. Sigurðsson,
sem fer með hlutverk föður Júlíu, tábrotinn,
en hann brotnaði á æfingu vikunni áður. „Svo
fer Júlía í handleggnum, þetta er aldeilis
dramafjölskyldusaga,“ segir Nína.
Leikritið um Rómeó og Júlíu, elskendurna
sem ekki mega eigast, er líklega magnaðasti
og merkasti ástarharmleikur leiklistarsög-
unnar. Hann fór þó á annan veg í Borgarleik-
húsinu á laugardag. „Það má segja að leik-
ritið hafi endað vel því Rómeó og Júlía
enduðu saman uppi á slysavarðstofu. Dóu
ekki en enduðu kvöldið bara saman. Ég veit
ekki hvað áhorfendum finnst um það en ég
vona bara að þeir komi aftur og sjái endinn,“
segir Nína Dögg.
Uppselt var á sýninguna á laugardag, alls
voru 270 áhorfendur í salnum. „Ég vil biðja
þá innilega afsökunar,“ segir leikkonan og
þegar blaðamaður segir að áhorfendur hljóti
að fyrirgefa þetta segist Nína Dögg vona að
svo sé.
Verður vonandi laus við fatlann
á frumsýningu á fimmtudag
Á fimmtudag verður frumsýnt í Borgarleik-
húsinu leikritið Púntila bóndi og Matti vinnu-
maður, en í þeirri sýningu fer Nína Dögg með
hlutverk dóttur Púntila. „Við erum búin að
leggja það svolítið fýsískt, við þurfum bara að
endurskoða það. Kannski er dóttirin bara í
fatla,“ segir Nína og bætir við að hún vonist
til að losna við fatlann fyrir frumsýninguna.
„Læknarnir vildu ekkert gefa út á það, ég
fer aftur til þeirra á morgun og þá kemur það
kannski betur í ljós hver staðan er á stelp-
unni. Það verður að koma í ljós í næstu viku
með sýningar á Rómeó og Júlíu, maður er
hangandi í rólum og ýmislegu þannig að mað-
ur þarf að vera búinn að ná fullum styrk í
handlegginn. Við bara vonum það besta,“ seg-
ir Nína Dögg.
Rómeó og Júlía enduðu
saman á slysavarðstofunni
Morgunblaðið/Golli
Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garð-
arsson, eiginmaður hennar, í hlutverkum
Rómeó og Júlíu. Sýningin er mjög líkamlega
krefjandi og vonast Nína því til að hún fái
fljótt fullan styrk í handlegginn aftur svo hægt
verði að halda sýningum á verkinu áfram.
Nína Dögg tognaði illa á sýningu á Rómeó og Júlíu á laugardagskvöld
BÚDAPEST, höfuðborg Ungverja-
lands, tók böðuð geislum vorsólar á
móti forseta Íslands, Ólafi Ragnari
Grímssyni, og fylgdarliði hans í gær,
í fyrstu opinberu heimsókn forsetans
til landsins. Í fylgd með forsetanum
eru heitkona hans, Dorrit Moussa-
ieff, Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra, embættismenn forsetaskrif-
stofu og utanríkisráðuneytis auk
forystumanna úr íslensku atvinnu-
lífi.
Gábor Iklódy, sendiherra Ung-
verjalands á Íslandi, með aðsetur í
Ósló, tók á móti forsetanum við kom-
una til landsins ásamt móttöku-
nefnd. Heimsóknin hefst formlega í
dag með hátíðlegri athöfn á Szent-
György torginu. Í kjölfarið er fundur
forseta Íslands og forseta Ungverja-
lands, Ferenc Mádl, og fundur ís-
lensku sendinefndarinnar með ung-
verskum embættismönnum. Þá mun
Ólafur Ragnar eiga fund með Péter
Medgyessy, forsætisráðherra Ung-
verjalands, og sitja hátíðarkvöldverð
forseta landsins.
Heimsókninni lýkur á þriðjudag
en þá heldur forsetinn í opinbera
heimsókn til Slóveníu.
Fyrsta opinbera heimsókn forseta
Íslands til Ungverjalands
Morgunblaðið/Sunna Ósk Logadóttir
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ræðir við Sándor Papp, siða-
meistara forseta Ungverjalands, og Klára Breuer, utanríkismálaráðgjafa
forsetans, við komuna til Búdapest.
Ræðir við forseta og for-
sætisráðherra landsins
Búdapest. Morgunblaðið.
FYRSTA skóflustungan að nýrri
átján bygginga þyrpingu í
Skuggahverfi í miðborg Reykja-
víkur var tekin á laugardag. Þor-
kell Sigurlaugsson, einn helsti
hvatamaður verkefnisins, tók
fyrstu skóflustunguna á reitnum
sem er við Skúlagötu. Segir í
fréttatilkynningu að um stærstu
einstöku framkvæmd í miðbæ
Reykjavíkur sé að ræða. Hófust
framkvæmdir strax að skóflu-
stungu lokinni og er ætlunin að
fyrstu íbúðunum verði skilað til
eigenda í júlí á næsta ári.
Helstu kennileiti húsaþyrping-
arinnar verða þrjár sextán hæða
byggingar við Skúlagötu en alls
verða í húsunum 250 íbúðir af
ýmsum stærðum. Grunnflötur er
samtals um 35.000 fermetrar auk
8.400 fermetra bílageymslna. Er
heildarkostnaður vegna bygging-
anna áætlaður á sjötta milljarð
króna og er gert ráð fyrir að allt
að 200 manns hafi atvinnu af
framkvæmdunum.
Alls munu 7–800 íbúar búa í
hverfinu en gert er ráð fyrir að
fullbyggt muni hverfið leiða til
um 30% fjölgunar íbúa í mið-
bænum á svæði sem afmarkast af
Aðalstræti, Skólavörðustíg,
Frakkastíg og Skúlagötu. Segir í
tilkynningu að búið sé að taka frá
30 íbúðir af þeim rúmlega 90 sem
byggðar verða í fyrsta áfang-
anum.
Að byggingunum stendur
hlutafélagið 101 Skuggahverfi,
sem er í eigu Fasteignafélagsins
Stoða og Burðaráss, fjárfesting-
arfélags Eimskipafélags Íslands.
Hönnuðir eru danska arkitekta-
stofan Schmidt, Hammer og
Lassen í samstarfi við Horn-
steina og VSÓ-ráðgjöf.
Framkvæmdir
hafnar í Skuggahverfi
Allt að 200
manns munu hafa
atvinnu af bygg-
ingu hverfisins
Morgunblaðið/Kristinn
Þorkell Sigurlaugsson, helsti hvatamaður byggingar hverfisins, tók fyrstu
skóflustunguna. Með honum á myndinni eru frá vinstri Einar I. Halldórs-
son, framkvæmdastjóri 101 Skuggahverfis, Skarphéðinn Steinarsson
stjórnarformaður og Pétur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Eyktar.
FISKIMJÖLSVERKSMIÐJU Síldar-
vinnslunnar í Sandgerði verður lokað til að
auka hagkvæmni annarra verksmiðja fyr-
irtækisins og hefur fjórum starfsmönnum
verksmiðjunnar verið sagt upp vegna þessa.
Bæjarstjórinn í Sandgerði segir þetta mikið
högg fyrir byggðarlagið.
„Starfsemin er búin að vera dauð frá því í
júlí í fyrra, það hefur ekki komið nein loðna
þarna inn og raunar ekki horfur á að það
verði,“ segir Björgólfur Jóhannsson, for-
stjóri Síldarvinnslunnar. Hann segir að
vinnsla beinamjöls hafi verið grunnurinn að
rekstri verksmiðjunnar en hún hafi nú nán-
ast lagst af. „Það er ljóst að þetta er gam-
aldags verksmiðja og við erum með nýja
verksmiðju í Helguvík sem er þarna rétt við
hliðina. Við höfum sagt í sameiningarferli
Síldarvinnslunnar og SR-mjöls að verk-
smiðjum ætti eftir að fækka og við ættum
eftir að sjá meiri hagkvæmni í rekstri fiski-
mjölsverksmiðja. Það er í raun ástæðan fyr-
ir þessu öllu,“ segir Björgólfur.
Mikið högg fyrir byggðarlagið
Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjar-
stjóri Sandgerðis, segir þetta mikið högg
fyrir byggðarlagið og sérstaklega fyrir
rekstur hafnarinnar. Nýlega hafi verið ráð-
ist í dýpkun og lengingu hafnargarðsins um
50 metra svo stærri skip úr loðnuflotanum
gætu lagst að bryggju í Sandgerði. Nú verði
þessi 100 milljóna framkvæmd minna notuð
en gert hafi verið ráð fyrir. „Við megum
ekki við meiri afföllum er varðar atvinnu-
lífið á Suðurnesjum því atvinnuleysið er
mest á Suðurnesjum þessa stundina.“
Björgólfur segir að ákvörðun á borð við
þessa sé aldrei auðveld. „Það er ljóst líka að
Sandgerði hefur átt undir högg að sækja
hvað sjósókn og fisk varðar. Það er alltaf
sárt að þurfa að taka svona ákvörðun, það
er alveg klárt að það er ekki gert með gleði í
huga,“ segir hann.
Alls voru fjórir starfsmenn fastráðnir við
Síldarvinnsluna í Sandgerði og einn laus-
ráðinn. Einum starfsmanni var ekki sagt
upp störfum. Mun hann ganga frá niðurrifi
verksmiðjunnar.
Síldarvinnsl-
an hættir
starfsemi í
Sandgerði