Morgunblaðið - 17.03.2003, Page 30
30 MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
GUÐNÝ Aradóttir skrifar bréf í
Morgunblaðið þann 14. mars sem er
svo meinyrt í minn garð að ég er til-
neyddur að svara, eins leiðinlegt og
það nú er.
Guðný leggur þar út af grein
minni sem birtist á Múrnum 28. febr-
úar s.l.
Hvet ég menn til að lesa þá grein
sjálfir því að Guðný sjálf er fremur
slök heimild um efni hennar. En
greinin hét „Top Shop“ og lagði út af
frétt Fréttablaðsins um stjórnmála-
skóla Samfylkingarinnar sem sam-
kvæmt tón fréttarinnar var nánast
jafnmikill viðburður og skákeinvígið
í Laugardal árið 1972.
Til eru margs konar lesendur og
sumir hvimleiðir þeim sem fást við
skriftir.
Guðný les greinar á sinn eigin hátt
og skiptir þá litlu hvað veslings höf-
undurinn vildi sagt hafa, hún les
óbuguð það sem henni sýnist. Í bréfi
sínu segir hún þannig að ég hafi sagt
að Samfylkingin væri „ómálefnaleg
froða“. En ef betur er gáð er engin
slík fullyrðing í greininni og hefur
aldrei verið.
Þar að auki sakar hún mig um
„kvenfyrirlitningu“. Það þýðir auð-
vitað lítið fyrir karlmann að reyna að
bera slíkt af sér með því að benda á
fjölmörg dæmi hins gagnstæða. Tel-
ur hún setningu sem hún tilfærir úr
grein minni (sem ég hvet menn til að
lesa í samhengi) til vitnis um
óslökkvandi hatur mitt á konum og
sérstaklega ljóshærðum konum, án
þess að skýra hvers vegna ég ætti að
fyrirlíta þær. Hún yfirfærir þá kven-
fyrirlitningu síðan yfir á alla í
Vinstrihreyfingunni – grænu fram-
boði (sem er raunar full af ljóshærð-
um konum og sumar þingmannsefni)
og sjá þá allir hver tilgangurinn er
með subbuskrifum hennar.
En það sem setningin vísar raun-
verulega til er andúð mín á stjórn-
málaskólum og sérstaklega hvernig
þar er farið með konur. Hvers
vegna? Jú, í slíkum stofnunum er
reynt að breyta fólki sem fer í fram-
boð, kenna því að tala „kjörþokka-
lega“ og konur eru þar sérstaklega
teknar fyrir. Sumar ungar hugsjóna-
konur koma óþekkjanlegar úr slík-
um skólum og eru farnir að tala eins
og ungir karlar. Ég veit að mörgum
femínistum er þetta þyrnir í auga.
Þannig að orð Guðnýjar um „kven-
fyrirlitningu“ missa marks. Þessi
grein hennar er ekki skrifuð sem
innlegg í jafnréttisbaráttuna heldur
til að ná ódýrum pólitískum skotum á
andstæðing sem hingað til hefur
ekki mátt nefna á nafn.
En þeir sem hafa fylgst með mál-
flutningi Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í jafnréttismálum
vita auðvitað hvar þeir hafa þann
flokk, burtséð frá meintri „kvenfyr-
irlitningu“ minni.
Að lokum óska ég Guðnýju til
hamingju með Samfylkinguna og
flokknum með hana. Þetta bréf
hennar er þó vonandi ekki besta
dæmið um það hvernig fólki er kennt
að skrifa bréf í stjórnmálaskóla
flokksins.
ÁRMANN JAKOBSSON,
Hverfisgötu 49, Reykjavík.
Meinyrðum
svarað
Frá Ármanni Jakobssyni:
ÁGÆTI fyrrverandi forstjóri.
Í viðtali á Morgunvakt Ríkisút-
varpsins nýlega sagðir þú hiklaust að
þeir sem kosið hafa að ávaxta lífeyri
sinn hjá Kaupþingi skilji ekki um
hvað lífeyrissparnaður snýst. Ég er
einn þeirra.
Nýverið fékk ég að eigin ósk sent
yfirlit yfir stöðu séreignarsjóðs míns
sem ávaxtaður er hjá Kaupþingi. Þar
kom fram að raunávöxtunin á síðasta
ári var neikvæð um rúm 7%, ef ég
man rétt, sem þýddi að í stað þess að
þessi tiltölulega nýi sjóður ávaxtað-
ist rýrnaði hann um rúmar 37 þús-
und krónur á þessu eina ári. Þetta
gerðist þrátt fyrir að ég færi að ráð-
um þinna manna um að breyta um
ávöxtunarleið. Á yfirlitinu var
reyndar ekki reynt að sýna hvort og
þá hve miklar breytingar hefðu orðið
á ávöxtuninni við þá breytingu, en
það er önnur saga.
Mig langar í fullri einlægni að
benda þér á að þetta mál snýst ekki
um skilning eða skilningsleysi þeirra
sem falið hafa Kaupþingi að ávaxta
sitt pund. Málið snýst um traust og
trúverðugleika, m.a. gagnvart okkur
sem erum að reyna að búa í haginn
fyrir komandi tíð, trúverðugleika
sem mér finnst að þú hafir komist
langt með að fyrirgera í fyrrnefndu
viðtali.
Það er enginn misskilningur fólg-
inn í því að fólk sér lífeyri sinn rýrna
í þínum höndum. Neikvæð ávöxtun
er alveg jafn auðskilin flestum og já-
kvæð ávöxtun og það þarf ekki djúp-
an skilning á því hvernig megi
ávaxta fé, til að sjá að það er betur
komið í höndum einhverra annarra,
t.d. inni á verðtryggðum banka-
reikningi. Um þetta snýst málið.
Um leið og ég kveð, til að fara að
litast um eftir öðrum til að gæta
þeirra fjármuna sem ég legg fyrir,
bið ég þig afsökunar á að ekki náðist
sá árangur í ávöxtun framangreinds
sjóðs, að dygði til að leggja eitthvað
af mörkum í 58 milljóna króna kaup-
aukann þinn.
Með bestu óskum,
TRYGGVI JAKOBSSON,
útgáfustjóri,
Námsgagnastofnun,
Víðimel 37, R.
Opið bréf til stjórnar-
formanns Kaupþings
Frá Tryggva Jakobssyni: