Morgunblaðið - 29.03.2003, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 9
Í NÝRRI áfangaskýrslu nefndar um
stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajök-
uls, kemur fram að viðhorf meðal
allra helstu hagsmunaaðila eru ærið
mismunandi, allt frá því að vera nei-
kvæð gagnvart þjóðgarðshugmynd-
inni, til jákvæðrar afstöðu til máls-
ins í heild. Nefndin var skipuð af
umhverfisráðherra og hefur skilað
ráðherra skýrslunni. Hlutverk
nefndarinnar var að fara yfir og
skoða þá möguleika sem koma til
greina til stofnunar þjóðgarðs eða
verndarsvæða fyrir norðan Vatna-
jökul með tilliti til þeirra áætlana
um landnýtingu á svæðinu sem Al-
þingi hefur fyrir sitt leyti fallist á.
Nefndinni var falið að vinna tillögur
að umfangi verndarsvæðis og vernd-
arstigi að höfðu samráði við viðkom-
andi sveitarfélög, landeigendur, þar
með talið ferðaþjónustuaðila og um-
hverfissamtök.
Í skýrslunni kemur fram að við-
horf til þjóðgarðshugtaksins voru
frekar neikvæð meðal ákveðins hóps
viðmælenda nefndarinnar en hún
telur það að hluta til kynningar-
vandamál og að hluta til neikvæða
upplifun þessara aðila úr núverandi
þjóðgörðum. Nefndin fékk hins veg-
ar jákvæð viðbrögð við hugmyndinni
um þjóðgarð sem samspil friðaðra
svæða með mismunandi friðlýsing-
arflokkum á svæðinu norðan Vatna-
jökuls. Einnig kom sterkt fram að
friðun svæðisins gæti haft jákvæð
áhrif fyrir ferðamennsku á svæðinu.
Ítarleg náttúrufarslýsing
Nefndin telur svæðið á margan
hátt einstakt út frá náttúruverndar-
gildi. Hefur verið tekin saman ít-
arleg náttúrufarslýsing um svæðið
og mat á verndargildi, sem leggur
grunn að faglegu mati á forgangs-
röðun svæða sem æskilegt væri að
friða út frá náttúruverndarsjónar-
miðum.
Að mati nefndarinnar þarf m.a. að
kortleggja nánar núverandi land- og
orkunýtingu á svæðinu og skoða
hugmyndir og áætlanir um fyrir-
hugaða landnýtingu, þar með talið
náttúruvernd, ferðaþjónustu og úti-
vist.
Áfangaskýrsla um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls
Mismunandi viðhorf
til þjóðgarðshugmyndar
ATVINNA mbl.is
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Troðfullar búðir
af nýjum vor- og sumarvörum
stærðir 36 — 56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Mömmur og ömmur!
Föt fyrir ferminguna
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14
Franskar
stúdentadragtir
RAÐGREIÐSLUR
Frábært úrval
Gott verð
10% afsláttur m.v. staðgreiðslu
Sími 861 4883
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík
Sölusýning
í dag, laugardag 29. mars, kl. 15-19 og
á morgun, sunnudag 30. mars, kl. 13-19
skart og perlur
skólavörðustíg 12
á horni bergstaðastrætis
sími 561 4500
Handsmíðaðar
fermingargjafir
Dragtir Dominique
í stærðum 44-52
Diva dragtir í stærðum 10-18
15% afsláttur
með Ásmundi Gunnlaugssyni
4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í
gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til
þess að að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði.
Ásmundur, sem m.a. byggir námskeiðið á eigin reynslu af kvíða,
tekur fyrir þætti eins og jógastöður, öndunaræfingar, slökun og
andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu.
Ekki er krafist reynslu af jóga. Yfirgripsmikið og traust námskeið
frá árinu 1994. Sjá nánar á www.yogastudio.is.
Hefst miðvikudaginn 9. mars – Mán. og mið. kl. 20.00.
Næsta ilmkjarnaolínunámskeið, stig 1, verður 8. og 10. apríl.
Jóga gegn kvíða
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 820 5562,
www.yogastudio.is
Vandaðar heimilis- og gjafavörur Kringlan 4-12, sími 533 1322
15% afsláttur af
„Höganäs“-vörum
Tilboð Í DUKA
Nýtt Sushi matarstell - 15% kynningarafsláttur
Nýtt matarstell - „Harvest“
20% kynningarafsláttur