Morgunblaðið - 29.03.2003, Blaðsíða 27
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 27
tilbo›!frábær
fylgirinne
ign3.000 kr.
völdumsímum**
* Samanlag›ur afsláttur af síma, ni›urfellt stofngjald og 500 kr. inneign á mánu›i í sex mánu›i. ** 500 kr. inneign á mánu›i í sex mánu›i.
í mars erekkertstofngjaldí gsm
3.000 kr. á mánu›i í
12 mánu›i vaxtalaust
nokia 5100
tilbo›sver›: 36.580 kr.
MMS, WAP, GPRS, LITASKJÁR, INNBYGGT
VASALJÓS, HITAMÆLIR, FJÖLTÓNA HRINGING o.fl.
MMS
útkr.580 léttkaup
MMS, INNBYGG‹ MYNDAVÉL, WAP, GPRS,
LITASKJÁR, FJÖLTÓNA HRINGING o.fl.
nokia 3650
léttkaup
útkr.5.980
3.000 kr. á mánu›i í
12 mánu›i vaxtalaust
tilbo›sver›: 41.980 kr.
n‡r sími
takmarka›
magn!
n‡r sími
takmarka›
magn!
MMS
Samtök herstöðvaandstæðina,
Norðurlandi, efna til baráttufundar
á morgun, sunnudaginn 30. mars, kl.
14 á Kaffi Akureyri. Yfirskrift fund-
arins er Stöðvum stríðsglæpinn,
mótmælum árásarstríði og aðild Ís-
lands.
Ræðumaður verður Elías Davíðs-
son, flutt verða ávörp, þá verður
söngur og ljóðalestur.
Á MORGUN
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur með dómi ógilt úrskurð kæru-
nefndar útboðsmála, sem kveðinn
var upp í ágúst á síðasta ári, í máli Ís-
taks og Nýsis gegn Ríkiskaupum.
Jafnframt var Ístaki og Nýsi gert að
greiða stefnendum, Íslenskum aðal-
verktökum (ÍAV), Landsafli og ISS á
Íslandi, samtals 250 þúsund krónur í
málskostnað. Mál þetta tengist út-
boði vegna byggingar rannsókna- og
nýsköpunarhúss á lóð Háskólans á
Akureyri.
Ístak og Nýsir annars vegar og Ís-
lenskir aðalverktakar, Landsafl og
ISS á Íslandi hins vegar, sendu til-
boð í byggingu rannsókna- og ný-
sköpunarhússins. Hér er um svokall-
aða einkaframkvæmd að ræða og
útboðið var um að byggja, eiga og
reka húsnæði sem Ríkiskaup ætluðu
sér síðar að taka að mestu á leigu
fyrir ríkisstofnanir á Akureyri, eins
og segir í dómi héraðsdóms. Fram
kemur að nefnd á vegum mennta-
málaráðuneytsins hafi verið Ríkis-
kaupum til ráðuneytis við mat á til-
boðunum. Jafnframt að nefndar-
menn hafi verið á einu máli um bæði
tilboðin uppfylltu kröfur útboðs-
gagna með tilliti til lausna og þjón-
ustu. Tilboð ÍAV og samstarfsaðila
fékk hærri einkun en tilboð Ístaks og
Nýsis. Tilboð ÍAV og samstarfsaðila
hljóðaði upp á rúmlega 1.800 millj-
ónir króna en tilboð Ístaks og Nýsis
upp á rúmlega 1.600 milljónir króna.
Ístak og Nýsir gerðu athugasemdir
við lágar einkunnir við mat á tilboði
sínu. Einnig var þess krafist að til-
boði ÍAV og samstarfsaðila yrði
hafnað en til vara færi fram nýtt
óháð mat á tilboðum beggja bjóð-
enda. Ríkiskaup hafnaði þessum
kröfum Ístaks og Nýsis og var sú
ákvörðun kærð til kærunefndar út-
boðsmála. Kærunefndin úrskurðaði
tilboð ÍAV og samstarfsaðila ógilt og
lagði fyrir Ríkiskaup að hafna því. Sá
úrskurður kærunefndar útboðsmála
hefur nú verið dæmdur ógildur í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Bygging rannsókna- og nýsköpunarhúss við Háskólann á Akureyri
Úrskurður kærunefndar ógiltur
SÚLAN EA liggur nú við Torfunefsbryggju á Akur-
eyri eftir að hafa barist við bryggjur landsins í
loðnuvertíðinni síðustu mánuði, en skipið hefur víða
landað, mest þó fyrir austan.
Nú stendur til að þetta gamla og góða happafley
fái andlitslyftingu og voru menn að háþrýstiþvo síð-
una í gærdag í blíðskaparveðri, en til stendur að
mála skipið að því búnu.
Morgunblaðið/Kristján
Súlan fær andlitslyftingu
NÝ ljósmyndastofa, Dagsljós,
verður formlega opnuð í dag,
laugardag en hún er við Gler-
árgötu 36. Finnbogi Marinós-
son ljósmyndari á og rekur
stofuna.
Við þetta tækifæri opnar
hann jafnframt sýningu á
ljósmyndum sem hann hefur
tekið að undanförnu og eru
liður í syrpu sem hlotið hefur
vinnuheitið Andlit Akureyrar.
Um er að ræða myndir af
bæjarbúum, sá yngsti er 7
mánaða gamall og þeir elstu
tilheyra hópi eldri borgara.
Ætlunin er að í lok árs verði
til 60 mynda syrpa sem sýni
þverskurð af fólki sem byggði
Akureyri árið 2003. Myndirn-
ar eiga það sameiginlegt að
fólkið er allt í eða við sama
stólinn.
Dagsljós býður upp á alla
almenna ljósmyndaþjónustu,
myndatökur af ýmsu tagi
hvort heldur er á stofunni eða
utan hennar, viðgerðir á
myndum og fleira.
Stofan verður opin daglega
frá kl. 10 til 18, en í dag,
laugardag verður opið frá kl.
12 til 17.
Ljós-
mynda-
stofan
Dagsljós
Tríóið Sound of Mucus heldur tón-
leika í Deiglunni annað kvöld,
sunnudagskvöldið 30. mars, kl. 21.15
á vegum Jazzklúbbs Akureyrar.
Tríóið skipa þeir Martin Küchen,
saxófón og fleiri hjóðfæri sem hann
hefur fundið upp, Hermann Muntz-
ing, rafbassa og hljóðgervil, og
Andreas Axelsson, trommur. Fé-
lagarnir eru miklir spunameistarar
að því er fram kemur í frétt frá Jazz-
klúbbi Akureyrar og fara skemmti-
legar og nýjar leiðir í túlkun sinni.
Á MORGUN
SJÖ tilboð og eitt frávikstilboð bár-
ust í grasslátt í Glerárhverfi 2003–
2005 og var aðeins eitt tilboðanna
undir kostnaðaráætlun. Tilboðin
voru frá 17,6 milljónum króna og upp
í tæpar 60 milljónir króna en kostn-
aðaráætlun bæjarins hljóðaði upp á
um 22,5 milljónir króna.
Fyrirtækið Þrif og þjónusta ehf.
átti lægsta tilboð í verkið, 17,6 millj-
ónir króna, eða um 78% af kostnað-
aráætlun. Hirðing ehf. átti hæsta til-
boð, tæpar 60 milljónir króna, eða
um 264% af kostnaðaráætlun. Fram-
kvæmdaráð Akureyrarbæjar sam-
þykkti að ganga til samninga við Þrif
og þjónustu um verkið.
Margir vilja
í grasslátt