Morgunblaðið - 29.03.2003, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 57
FÓLK vissi eiginlega ekkihvaðan á það stóð veðriðer Haukur Már frumsýndifyrstu mynd sína í fullri
lengd sumarið 1999. Myndin var hrá,
greinilega gerð af vanefnum og
gagnrýnendur, svo og áhorfendur,
voru beggja blands í afstöðu sinni.
Sumum fannst slælega að verki
staðið en aðrir sáu að þarna var
greinilega kominn fram hæfi-
leikamaður. Umræðan í kringum
myndina varð því talsverð og Hauk-
ur sjálfur þótti eiga merkilega sögu
að baki. Fyrir það fyrsta þótti hann
ekki bera svipbragð hins dæmigerða
kvikmyndagerðarmanns; hér var
kominn íþróttamannslega vaxinn
fýr, stór og stæðilegur með hring í
augnabrún. Hann var jafnvel ógn-
vekjandi. Í ljós kom að Haukur átti
líka glæstan íþróttaferil að baki en
að eigin sögn var hann farinn að
sukka heldur mikið undir það síð-
asta og lagði hann því allan þunga
sinn, líkamlegan sem andlegan í
kvikmyndagerð. Þar hefur hann un-
að sínum hag síðan og líður vel.
Meistaraverk eða drasl?
„Ég átti ekki til orð enda var ég
alltaf að hringja í þá,“ segir Haukur
og rifjar upp þegar hann var að
reyna að koma tilkynningu um að
(Ó)eðli væri komin á myndband á
sínum tíma í blaðið Myndbönd mán-
aðarins. Röddin er glaðvær þó votta
megi fyrir smávegis taugatitringi.
Haukur er enda á fullu spani að
binda alla lausa enda áður en sýning
nýju myndarinnar hefst. Fyrst og
síðast situr þó fyrir framan mig sátt-
ur og sæll einstaklingur enda að
gera það sem hjartað býður honum.
Hann er að búa til bíó.
„Ég var ekki að trúa því að þeir
ætluðu að segja nei,“ heldur Haukur
áfram og bragurinn yfir honum er
þægilega hreinskiptinn. „Uppgefin
ástæða var að þar sem ég framleiddi
og dreifði sjálfur þá þyrfti að hleypa
öllum inn í blaðið. Öllum hverjum,
spurði ég nú bara. En nú er ég kom-
inn í samvinnu við Kvikmynda-
samsteypuna hans Friðriks Þórs
þannig að ég læt koma vel fram við
mig núna (hlær).“
Haukur lítur nú til baka og rifjar
upp fárið í kringum (Ó)eðli.
„Ég hætti algerlega í íþróttum
stuttu fyrir það. Þegar ég hætti að
drekka þá hætti ég í íþróttum. Það
er svo mikið drukkið þar. Við þetta
breyttist lífsafstaðan svolítið.“
Blaðamaður er vantrúaður á að
drykkja og íþróttir passi svona vel
saman og innir eftir útskýringum.
„Íþróttamenn geta drukkið mikið
og vel af því að þeir eru í fínu formi.
Svo er það bara þessi hópandi. Ég
segi ekki að það sé þannig þegar fólk
er komið lengra. En ungmenna-
félagsandinn er svolítið á sveif með
drykkjunni.“
Það rifjast upp fyrir blaðamanni
að Haukur lýsti því yfir á sínum tíma
að hann hefði orðið þrefaldur Ís-
landsmeistari árið 1994, drukkinn!
Þá varð hann þrefaldur Íslands-
meistari í kúluvarpi, kringlukasti og
sleggjukasti.
„Ég sagði það nú aðallega til að
losna undan þrýstingi á það að ég
héldi áfram í íþróttum. Eftir þessa
sögu hætti fólk alveg að nuddast í
mér með það (hlær).“
Haukur er stoltur af fyrstu mynd
sinni.
„Mér finnst það árangur að hafa
komið henni alla leið. Enn þann dag í
dag er fólk að koma upp að mér og
þakka mér fyrir myndina. Það skipt-
ir mig öllu enda vissi ég ekkert
hvernig fólk myndi taka þessu.“
Gagnrýnendur voru margir hálf-
hlessa yfir (Ó)eðli. Einn sagðist t.d.
ekki geta ákveðið sig hvort þetta
væri versta mynd sem hann hafi séð
eða að þetta væri meistaraverk.
„Myndin var sett upp sem heim-
ildarmynd. Ég hafði hljóð t.d. með-
vitað óskýrt á mörgum stöðum. Í
einu atriðinu skrúfaði ég t.d. samtal
niður viljandi. Myndin átti að vera
eins og hrá og hægt var, t.d. setti ég
inn tímakóða á sum atriðin. Ein-
hverjir voru að pirra sig á því. Ég
hef stundum sagt að fólk muni skilja
myndina eftir þrjátíu ár.“ Það kem-
ur í ljós að kvikmyndalistin lá alltaf
fyrir Hauki og hann furðar sig á því
hvernig hann fór út af sporinu.
„Ég hafði rosalegan áhuga á
þessu þegar ég var yngri og var að
gera stuttmyndir þegar ég var í
barnaskóla. Keypti mér 8mm vél
þegar ég var 12 ára. Ég var alltaf
mjög áhugasamur um þetta en ég
veit ekki hvað gerðist…ég var nú
svo stór að ég fékk aldrei aðal-
hlutverkin í leikritunum. Svo komst
ég ekki undan þessum hæfileika í
íþróttunum. Svo sótti ég um síðir í
leiklistarskólanum og þá fattaði ég
loksins að þetta var það sem lá fyrir
mér.“
Hartley þvælist fyrir
Það stendur ekki á svari þegar
Haukur er spurður hvort honum líði
sem utangarðsmanni í íslensku kvik-
myndalífi.
„Alveg gjörsamlega. Það er ekki
það að ég telji að mér hafi verið bol-
að þangað. Ég tek mig hins vegar lít-
ið alvarlega sem „kvikmyndagerð-
armann“. Ég er með ákveðna
hugsjón um hvernig á að gera hlut-
ina og það er ekki það að ég sé eitt-
hvað á móti bransanum hér á landi.
Við eigum bara ekki samleið ein-
hverra hluta vegna.“
Haukur segir að kannski sé það
ástæðan fyrir því að leiðir hans og
Friðriks hafi legið saman, enda
Friðrik lengi vel með utangarðs-
stimpilinn á sér.
„Ég er honum mjög þakklátur
fyrir þetta tækifæri,“ segir Haukur.
„Það er vonandi að það borgi sig…“
Handritið að 1. apríll hefur verið
lengi í smíðum.
„Fyrir þremur árum hélt ég að ég
vissi rosalega mikið. Frændi minn
var þá nýkominn úr tæknibrellu-
skóla og mig langaði til að verða
fyrstur til að koma með svona litlar
tæknibrellur og krydda myndina dá-
lítið. Mig langaði bara til að prófa
eitthvað öðruvísi.“
Haukur segir að á þeim tíma sem
hann hafi verið að gera sig kláran í
tökur hafi Hal Hartley og hans
menn komið hingað til lands til að
taka upp Skrímslið eða Monster
(einnig kölluð No Such Thing). Hann
þurfti því að drífa í tökum en sá sem
betur fer fljótlega að það væri ekki
málið.
„Þannig að ég tók mér hlé og fór
að sinna öðrum verkefnum. Vinnslu-
ferlið hefur verið hægt og rólegt – en
gott.“
1. apríll er ólík (Ó)eðli að öllu leyti.
„Ef ég væri tónlistarmaður þá
væri ég í engri stefnu. Ætli þetta
verði ekki eina grínmyndin sem ég á
eftir að gera. Það eru um fimmtán
leikarar í aðalhlutverkum og fullt af
aukaleikurum. Það er himinn og haf
á milli þessara mynda.“
Það er þekkt hjá listamönnum,
séu þeir tónlistar- eða kvikmynda-
menn, að hugmyndirnar hellast yfir
þegar vinnan er á fullu spani. Hauk-
ur segist tækla þau mál á ákveðinn
hátt.
„Það er regla hjá mér, til að halda
einbeitingunni, að sinna bara einu í
einu og þá af heilindum. Núna er ég
t.d. í banni frá öðrum verkefnum. Ef
maður hleypir sér í eitthvað annað
meðfram er strax komin sú hætta að
hugurinn flögri eitthvað. Ég stopp-
aði t.d. markmiðsbundið, kannski í
mánuð, þegar ég var búinn að fá nóg
af myndinni. Þetta gerði ég til að
ganga glaður að verkinu því að það
koma tímar þar sem maður fær al-
gert ógeð. Í þessum hléum tók ég að
mér eitthvað lítið – ekki eitthvað
stórt. Þetta er bara brella sem ég
beiti til að halda dampi.“
Bíó á ekki að vera munaður
Fjármögnun myndarinnar hefur
gengið hægt en vel að áliti Hauks.
„Það var mjög gott að upplifa það
að hafa gert eitt stykki mynd fyrir
nánast engan pening. Þá verður
maður þakklátari þegar maður fær
peninga til að spila úr. Maður tekur
þessu ekki sem sjálfsögðum hlut. Ég
er á síðustu bensíndropunum í dag í
að klára þetta og fæ svona þrjú
svimaköst á dag, þetta er svo stress-
andi. En þegar maður er kominn í
mark fær maður þetta allt til baka.“
1. apríll verður frumsýnd á lands-
byggðinni 1. apríl en verður ekki
tekin til almennra sýninga í höf-
uðborginni fyrr en um miðjan apríl.
Þessi umskipti eru komin til þannig
að Haukur er alinn upp á Höfn í
Hornafirði og hann segist oft hafa
upplifað það að vera fastur úti landi
á meðan eitthvað skemmtilegt er í
gangi í Reykjavík.
„Mig langaði til að sjá þetta hinum
megin frá. Það er óþarfi að hengja
sig á það að það sé bara hægt að
gera þetta á einn hátt.“
Auk þessa tekur Haukur harða af-
stöðu til aðgangseyrisins. Miðinn
mun kosta 750 kr.
„Ég er mjög harður á þessu. Bíó á
ekki að vera munaður. Bíóaðsókn
hjá mér hefur lækkað um 80% síðan
þetta varð svona dýrt. Menn eiga
ekki að þurfa að velja, ég vil geta
farið á allt ruslið. Það er líka leið-
inlegt að þriðjudagstilboðin hafi
hætt. Og enn fremur er leiðinlegt að
bíóin séu farin úr miðborginni – hvað
er að gerast í borginni eiginlega!
Þetta er ömurlegt fyrir okkur (bæj-
ar)rotturnar. Þegar peningar og
bílastæði eru tekin fram fyrir menn-
ingu og listir er eitthvað að.“
1. apríll verður frumsýnd á Ísa-
firði, Egilsstöðum, Hornafirði, Vest-
mannaeyjum, Flúðum, Raufarhöfn,
Akureyri og Keflavík. Meðal leikara
eru Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Linda
Ásgeirsdóttir, Ívar Örn Sverrisson,
Vilhjálmur Goði, Jón Mýrdal og
Haukur sjálfur.
Atriði úr 1. apríl.
Morgunblaðið/Jim Smart
Haukur M. Hrafnsson ásamt einum fjölskyldumeðliminum. Hann keypti sér
8mm vél þegar hann var 12 ára og við það voru örlögin ráðin.
1. apríll eftir Hauk M. frumsýnd
Útlaginn
Hinn 1. apríl verður frumsýnd ný íslensk
bíómynd sem heitir 1. apríll og gerist hún
öll 1. apríl. Nema hvað! Höfundurinn er
Haukur M. Hrafnsson sem vakti verðskuld-
aða athygli fyrir frumraun sína, (Ó)eðli, sem
frumsýnd var fyrir fjórum árum. Arnar
Eggert Thoroddsen ræddi við þennan
yngsta útlaga íslenskrar kvikmyndagerðar.
arnart@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
http://1aprill.no-ip.com