Morgunblaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 35
VEÐUR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 35
! "#$ %
#" & #'
! "
)
)
#$
(
" ! ( " #$
(
(
" #%&'(
# )'%
*+,(( # (+&
-&.,
(&$ (
*
*
! "
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
+," " ## " --.#" !" #'" /"
#0 / 1
(& 1##--.#" !" #')
.#"!" (
'/011 *,2 ")/ *%!" "##" 0'
3)#0 3!/#! #(4 " 30 5" / ' "##)
6 ## #(+6 $#
"(
/011 ,2$ ( "
76""--.#" , !& #'(
34 +$& 34 +$& 34 +$&
+5/!6 /
78&.,6 /
/&+5 ,(($ /!&92!
.:5+.
;&&/
;((((&<
=#()> -8"(>
?( &"..)
*
*
0 3! /" ##'
3.
13.
13.
13.
3.
3.
3.
3.
13.
5!3
8//)#"&
@+(./
&9 (,8A
8.*8.
(
"(+*"
./ @"98 7+ .
.
,6+
3.
5!3
3.
3.
13.
13.
3/
13.
5!3
:,
:* 7B+8.
9C
#"
+.+5!
D..+,
:8.+
@E
;+A 4)B,8
.*8
3.
3.
13.
13.
3/
3/
3/
#1
13.
3/
3/
:$6/&*,&
# *%
!" "##" 0')# " )3.
!"5 3 #! #*!"#! *
# #'(+"!"
. #! # #'(
F(/ *,&
## #!"30
"##"3)#$ 8! *!"2 #'(
9 ./ (
=$!&*,&2 ")*%
## # #')# ## " (
3.*
!"0 3!/)#$ #! #*
#'(:"##" 0'/'")#
3. !"5 3 8! *!"
, #'(+"(
!"
!#$
!!%
%$&
%%
%%
%$'
!"
#"
#" !"
!"
!"
!"!"
$"
!"
!"
ALMENNAR
BÍLA-
VIÐGERÐIR
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500 • www.velaland
velaland@velaland.is
d
es
ig
n.
is
2
00
3
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna
10. maí er hafin. Kosið er hjá sýslumönnum og hreppstjórum
um land allt, sendiráðum og mörgum ræðismönnum erlendis.
Í Reykjavík er kosið í Skógarhlíð 6, alla daga frá kl. 10-22.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýs-
ingar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýs-
ingavef dómsmálaráðuneytisins www.kosningar2003.is.
Sjálfstæðisfólk! Látið okkur vita um
stuðningsmenn sem ekki verða heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð,
105 Reykjavík – Símar 515 1735 og 515 1736
Bréfasími 515 1739 – Farsími 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
ÚTVARP/SJÓNVARP
VESTURÁLMAN, „The West
Wing“, sem er á dagskrá Sjónvarps-
ins, segir frá lífi ekki ómerkilegri
persónu en sjálfs forseta Bandaríkj-
anna. Það er kappinn Martin Sheen
sem leikur forsetann Josiah Bart-
lett, vel menntaðan, greindan og al-
úðlegan mann sem stjórnar landinu
af stakri visku.
Eins og vænta má er oft handa-
gangur í öskjunni, og þarf að takast
á við alþjóðlegar hamfarir, stríðs-
rekstur og hryðjuverk, en einnig
innanríkismál, kosningabaráttuna
og auðvitað sjálfa fjölmiðlana. Fjöl-
skyldulíf forsetans vill einnig oft
ekki ganga algjörlega snuðrulaust
fyrir sig, en sjálfur hefur hann þurft
að takast á við MS-sjúkdóminn.
Ef rólegt er hjá forsetanum, þá
er nóg að gerast hjá aðstoðarmönn-
um hans. Þar ber hæst fjölmiðla-
fulltrúan C.J. Cregg (leikin af All-
ison Janney), Sam Seaborn ráðgjafa
(leikinn af Rob Lowe), starfsmanna-
stjórann Toby Ziegler (leikinn af
Richard Schiff) og ráðgjafann Josh
Lyman (leikinn af Bradley Whit-
ford). Þótt ekki sé mikill tími fyrir
annað en skyldustörf í þágu þjóð-
arinnar, finna þau sér stundum
svigrúm til að eiga einkalíf. En að
persónulegum sigrum og ósigrum
slepptum vill oft vera vandmeðfarið
að aðstoða einn valdamesta mann
heims, enda geta smávægileg mis-
tök haft stórvægilegar afleiðingar.
Þannig getur eitt orð á röngum
stað, eða önnur lítil yfirsjón stefnt
framtíð forsetans, og jafnvel þjóð-
arinnar allrar í hættu.
Þættirnir um vesturálmuna hófu
göngu sína 1999 og hafa síðan hlotið
fjölda verðlauna. Meðal annars á
þátturinn met í fjölda Emmy-verð-
launa í einu lagi, en fyrsta árið hlaut
þátturinn 13 slík verðlaun. Engan
skal furða, enda einvalalið leikara
og söguþráðurinn oftar en ekki í
senn spennandi og skemmtilegur,
og viðfangsefni þáttanna oft nástætt
erfiðustu pólitísku og siðferðilegu
spurningum líðandi stundar.
Martin Sheen og Richard Schiff í hlutverkum sínum.
Hversdagslíf
í Hvíta húsinu
Vesturálman er á dagskrá Sjón-
varpsins á mánudögum kl. 21.05.
SKJÖLDUR Eyfjörð, förðunargúrú
og menntaður útlits- og tískuráð-
gjafi, sér um þáttinn Lúkkið á Popp
Tíví, en eins og nafnið gefur til
kynna er hugað að fegurð í fjöl-
breyttum myndum í þættinum, eða
eins og Skjöldur segir sjálfur: „Þetta
er þáttur sem fjallar um tísku, hönn-
un og lífsstíl. Við gerum öllum þess-
um þáttum skil, í öllum sínum mynd-
um, svo hægt er að segja að
viðfangsefni þáttanna sé nokkuð víð-
feðmt.“
Í þáttunum, sem sýndir eru fjögur
kvöld í viku, rýnir Skjöldur í allt frá
mataræði og líkamsrækt, til fatn-
aðar og snyrtivara.
„Í þáttunum eru allar hliðar tekn-
ar fyrir. Það er svo margt sem við-
kemur útliti. Viðfangsefni þáttarins
getur verið andleg líðan, ástand
líkamans, áhrif fegrunaraðgerða,
hönnun á fötum, hönnun á munum,
bílum, skartgripum, hverju sem er –
af nógu að taka.“
Skjöldur heldur áfram: „Við reyn-
um að sinna eins mörgu og við get-
um, og meðal þess sem við gerum er
að taka fyrir einn einstakling og um-
breyta honum. Höfum þegar um-
breytt einni stelpu þannig og senni-
lega munum við gefa strák nýtt útlit
í næsta þætti.“
Skjöldur segist hafa verið ansi
lengi í tískubransanum og hann hafi
lengi haft hugmynd að svona þætti í
kollinum. „Svo hitti ég myndatöku-
mann sem var að taka myndir af
mér fyrir þátt. Hann hafði svipaðar
hugmyndir að þætti, svo við slógum
hugmyndum okkar saman og úr
varð Lúkkið.“ En Skjöldur bætir við
að hann þekki ekki til að aðrir sam-
bærilegir þættir séu til erlendis, þar
sem erlendir þættir einblíni oftast á
afmörkuð svið og fjalli aðallega um
hátísku stóru hönnuðanna. „Við er-
um búin að leggja okkur fram við að
grafa upp íslenska hönnuði, enda
ekki á allra færi að hanna heilar
fatalínur og opna búðir, en margir
sem eru að gera góða hluti.“
Skjöldur segist hafa fengið of-
boðslega góð viðbrögð við þætt-
inum: „Ég hef verið að hlusta út-
undan mér og reynt að heyra
hvernig fólk er að taka þessu.
Skemmtilegast er að áhorfendahóp-
urinn er mjög víður, og þótt flestir
áhorfendurnir séu á aldrinum frá 12
upp í þrítugt, þá kemur oft til mín
eldra fólk sem segir mér hvað það
hafi séð í þættinum. Í gær kom kona
um sextugt til mín og hrósaði mér
fyrir þáttinn.
Í þætti þessarar viku verður með-
al annars litið við á keppninni
Ungfrú Suðurnes, þar sem Ragn-
hildur Steinunn Jónsdóttir varð
hlutskörpust í keppni sem haldin var
í Bláa lóninu. Einnig fær einn strák-
ur algjöra útlitsbreytingu.
Með útlitið í lagi
Morgunblaðið/Jim Smart
Honum Skildi er margt til lista lagt.
Lúkkið er á dagskrá PoppTíví á
þriðjudögum kl. 21.30, og endur-
sýndur á miðvikudögum kl. 23, laug-
ardögum kl. 12 og sunnudögum kl. 23.