Morgunblaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 13
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 13 HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í Hong Kong tilkynntu í gær- morgun um fimm ný dauðsföll, þrjá karla og tvær konur, af völdum HABL-veikinnar. 40 manns hafa nú látist vegna veikinnar í Hong Kong. Fjöldi smittilfella hefur einn- ig aukist og er nú talið að 1.150 manns séu smitaðir í Hong Kong. Um 30% allra áætlunar- ferða flugfélaga í Hong Kong hefur verið aflýst og farþegum hefur fækkað um 60% það sem af er apríl vegna HABL-veik- innar. Veikin gerði fyrst vart við sig í héraðinu Guangdong í suður- hluta Kína í nóvember sl. Or- sakir veikinnar eru óþekktar en um 4% þeirra sem fengið hafa hana hafa dáið. Nú hafa rúm- lega 3.000 manns smitast í yfir 30 löndum til þessa en lang- flestir eða um 90% ná sér aftur eftir um það bil viku veikindi. Talið er að 130 manns hafi látist úr HABL-veikinni. Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin, WHO, hefur hvatt þá sem hafa hug á að ferðast til Hong Kong eða Guangdong-héraðs í Kína, þar sem HABL hefur einkum herjað, til að fresta ferðinni. Ekki er alveg ljóst hvernig veikin berst milli manna en vís- indamenn óttast að hún geti stundum borist með andrúms- loftinu. HABL- tilfellum fjölgar í Hong Kong Hong Kong. AFP. KAFARAR og björgunarsveitar- menn hafa fundið að minnsta kosti 14 lík eftir að ferja, með 150 farþega innanborðs, sökk í slæmu veðri í norðurhluta Bangladesh á laugar- dagskvöld. Talið er að fjöldi látinna eigi enn eftir að hækka. Slysið varð í Kishoreganj, sem er 80 km norður af höfuðborginni Dhaka. Um 10 farþegar náðu að synda í land eftir að ferjan sökk. Meðal þeirra sem fórust með ferjunni eru konur og börn. Ferjan liggur á þriggja metra dýpi í ánni Nakchini og er talið að fólk hafi lokast inn í henni þegar hún sökk. Ferjuslys hafa verið mjög tíð í Bangladesh á undanförnum árum. Síðan 1997 hafa að minnsta kosti 3.000 manns farist í um 260 ferju- slysum. Ferjuslys í Bangladesh Kishoreganj. AFP. UNGVERJAR samþykktu aðild að Evrópusambandinu með miklum meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór á laugardag. Yfir 84% kjósenda voru hlynnt aðild. Um átta milljónir Ungverja voru á kjörskrá, en kjörsókn var aðeins 47%. Aðeins nokkrir dagar eru þar til fulltrúar níu landa skrifa formlega undir stækkunarsamninga í Brussel. Áður hafa íbúar í Slóveníu og Möltu samþykkt að ganga í Evrópusam- bandið en sjö ríki til viðbótar eiga eftir að greiða atkvæði um aðild. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins fagnaði miklum stuðningi Ungverja við aðild að ESB. Sagði framkvæmdastjórnin að niðurstaðan væri fagnaðarefni og Ungverjar hefðu gert það upp við sig að þeir teldu evrópska sameiningu bestu leiðina til að viðhalda friði og hag- sæld í álfunni. Þá sagði fram- kvæmdastjórnin að Ungverjar gætu verið þess fullvissir að fullveldisrétt- ur þeirra yrði virtur innan ESB. AP Hópur íbúa Búdapest fagnaði í gær niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. Ungverjar sam- þykkja ESB-aðild Búdapest. AFP. TUTTUGU og fjórir biðu bana þegar timburfarmur flutningabíls lenti á rútubifreið í Grikklandi í gær. Flestir hinna látnu voru börn sem voru á skólaferðalagi, að sögn lögreglunnar. Slysið átti sér stað með þeim hætti að timburfarmur rann af flutningabíl og á rútu sem var á ferð um sama þjóðveg, nærri bænum Tembi, um 450 km norður af Aþenu. Fjörutíu og níu börn voru í rútunni, auk þriggja kennara. Lögreglan sagði að slasaðir hefðu verið fluttir á sjúkrahús í bæn- um Larissa, ekki fjarri slysstaðnum. 24 biðu bana í bílslysi í Grikklandi Aþenu. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.