Morgunblaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 11
Barnahjálmar
Mikið úrval af barnahjálmum,
mismunandi myndir og litir.
Auðvelt að stilla höfuðstærð.
CE merktir. Verð frá kr. 2.400
GIANT 20" fjallahjól
Vönduð hjól fyrir 6-7 ára
á frábæru verði. 5 gíra með
V-bremsum.
Verð kr. 18.900, stgr. 17.955
Með dempara
kr. 21.900, stgr. 20.805
Tveir demparar
kr. 24.900, stgr. 23.655
GIANT barnahjól
Vönduð barnahjól frá þessum
þekkta framleiðanda
með hjálpardekkjum og fótbremsu.
CE öryggisstaðal.
12,5 “ svart kr. 12.500
16” svart eða bleikt kr. 13.900
www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þ
ór
ss
on
/
M
ar
ki
ð
/
04
.2
00
3
Hjólin eru afhent tilbúin til
notkunar. Árs ábyrgð og frí
upphersla eftir einn mánuð
Vandið valið og verslið
í sérverslun.
5% staðgreiðslu afsláttur. Kreditkortasamningar,
upplýsingar veittar í versluninni
Moto Cross fjallahjól
12,5” kr. 12.900
14” kr. 13.900
16” kr. 14.900 TRANSPORTERverð kr. 6.100
ITALTRIKE þríhjól
Vönduð og endingar-
góð, létt og sterk.
CE öryggisstaðall.
LUCY,
blátt, rautt eða bleikt,
verð frá kr.5.200
VIVI barnahjól
Fyrir 3 - 6 ára. Létt, sterk
og meðfærileg barnahjól
með hjálpardekkjum
og fótbremsu.
CE öryggisstaðal.
Sunny Girl 12,5” kr. 11.400
Pretty Girl 14” kr. 12.900
HAUKUR Þorfinnsson skilar hér glaður í bragði inn
tveimur hænueggjum sem hann fann í Öskjuhlíðinni en
hann var einn þeirra sem tóku þátt í páskaeggjaleit
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í gær. Búið var að fela
skreytt hænuegg víðs vegar um hlíðina sem krakkarnir
síðan leituðu að og fengu þau páskaegg að launum.
Morgunblaðið/Ómar
Ákveðinn í páskaeggjaleit
FRAMBJÓÐENDUR Framsóknarflokksins í
Reykjavík efndu til gönguferðar um Voga-
hverfið í gær með íbúum hverfisins. Halldór
Ásgrímsson, formaður flokksins, var þar í
broddi fylkingar en málefni hverfisins voru
meðal margs sem var til umræðu í göngunni.
Morgunblaðið/Kristinn
Gengu um Vogahverfið
Sameining sparisjóðanna
við banka ekki á döfinni
JÓN Kr. Sólnes, formaður Sam-
bands íslenskra sparisjóða, telur að
sameining banka á borð við Kaup-
þing og Búnaðarbankann geti falið í
sér aukin tækifæri fyrir sparisjóð-
ina. „Við höfum einbeitt okkur að því
að sinna einstaklingum og smærri
fyrirtækjum og ég held að þessar
stóru bankaeiningar snúi sér hugs-
anlega í aðra átt.“ Aðspurður hvort
þessi þróun muni leiða til þess að
sparisjóðirnir fari að leita samstarfs
við aðra banka segir hann að slíkt sé
ekki á döfinni. „Fyrsti kosturinn
væri þá frekar að sparisjóðirnir efli
og treysti samstarfið sín á milli til að
mæta harðnandi samkeppni,“ sagði
Jón.
FRIÐBERT Traustason, formaður
Sambands íslenskra bankamanna
(SÍB), segir að sér lítist í sjálfu sér
ekki illa á sameiningu Búnaðar-
bankans og Kaupþings en for-
svarsmenn bankanna hafi gert
mistök með því að tala um yfirvof-
andi uppsagnir. „Það er afskap-
lega vitlaus aðferð við að sameina
svona fyrirtæki, að byrja að gefa
það upp að það þurfi að segja upp
fólki,“ segir hann og bendir á að
við sameiningu Íslandsbanka og
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
hafi ekki einum einasta starfs-
manni verið sagt upp.
Friðbert gerir ráð fyrir því að
starfsmenn hins sameinaða banka
gerist félagsmenn í SÍB. Starfs-
menn Búnaðarbankans séu þegar
félagar en fæstir starfsmannna
Kaupþings séu á hinn bóginn í
stéttarfélögum. Auk þess sé kveðið
á um í lögum um Búnaðarbanka
Íslands hf. að starfsmenn séu fé-
lagar í SÍB. „Og ég tel engan vafa
leika á því að starfsmenn Bún-
aðarbankans telji sér best borgið
með því að vera innan vébanda
SÍB,“ segir hann. Þá sé það merki-
legt að starfsmenn Kaupþings á
Norðurlöndunum séu innan syst-
ursamtaka SÍB en starfsmenn hér
á landi standi utan stéttarfélags-
ins. Aðspurður segist hann ekkert
hafa heyrt í forsvarsmönnum
bankanna vegna sameiningarinnar.
Friðbert segir það alranga að-
ferð að byrja á því að segja fólki
að það muni hugsanlega missa
vinnuna og réttast væri að draga
þessar yfirlýsingar til baka þegar í
stað. Bankarnir eigi það á hættu
að starfsmenn sem stjórnendur
vilja síst missa og eiga jafnframt
mestu möguleikana á að fá vinnu
annarstaðar, að þeir einfaldlega
hætti en bíði ekki eftir því að vera
hugsanlega sagt upp störfum.
Friðbert segir að stjórnendum
bankanna væri nær að taka sam-
einingu Íslandsbanka og FBA sér
til fyrirmyndar. Í því tilfelli hafi
því strax verið lýst yfir að engum
yrði sagt upp í tengslum við sam-
eininguna. Á næstu árum hafi
starfsfólki smám saman fækkað
með því að ekki var ráðið í stað
þeirra sem hættu. Friðbert bendir
á að mikið af ungu fólki vinni hjá
bönkunum og það staldri gjarnan
stutt við.
Mistök að tala
um yfirvofandi
uppsagnir
„Að verða
leiðandi
alhliða banki“
STEFNA hins sameinaða banka
verður:
Að hámarka verðmæti bank-
ans og arðsemi hans til langs
tíma fyrir hluthafa.
Að vera leiðandi alhliða banki
á Íslandi og í hópi fremstu
fjárfestingarbanka á Norður-
löndum.
Að viðhalda örum vexti án
þess að slá af arðsemiskröf-
um.
Að byggja upp góða ímynd
sem framsækinn og sjálf-
stæður alhliða banki
Að koma á og viðhalda traust-
um langtímasamskiptum við
viðskiptavini.
Að hafa í starfi áhugasamt, vel
menntað og framtakssamt
fólk sem býr yfir góðri þekk-
ingu á viðfangsefnum sínum.
Að halda áfram að efla starfs-
lið bankans, sem er helsta
auðlind hans.
Að nýta nýjustu upplýsinga-
tækni sem tæki til þess að
styrkja samkeppnisstöðu
bankans.
Árni Tómasson
Ekki hans
ósk að hætta
ÁRNI Tómasson, fráfarandi banka-
stjóri Búnaðarbankans hf., óskaði
ekki sjálfur eftir því að láta af störf-
um. Þetta hafi
orðið samkomu-
lag milli aðila en
við sameiningu
fyrirtækja sé
ljóst að ekki geti
allir stjórnendur
haldið áfram.
„Það sem ligg-
ur fyrir er að ég
fer að pakka sam-
an og ljúka málum sem ég hef verið
að vinna við. Ég ætlaði líka að taka
mér frí svona til tilbreytingar en til
þess hefur ekki gefist tækifæri í
nokkur ár. Ég hugsa að ég byrji bara
á því að hafa það huggulegt,“ segir
hann. Spurður um hvaða ástæður
hann telji vera fyrir því að ákveðið
var að hann myndi hætta segir hann
að hún sé einfaldlega sú að það geti
ekki allir stjórnendur haldið áfram.
Árni Tómasson tók við starfi
bankastjóra hjá Búnaðarbankanum
10. mars 2001.
Árni Tómasson